Fleiri fréttir

Framkvæmd í hendur Malava

Malaví Þáttaskil urðu á samstarfi Malaví og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) með nýrri fjögurra ára samstarfsáætlun sem tekur gildi í byrjun júlí.

Krakkar hvattir til sumarlesturs

Í sumar efnir Borgarbókasafnið og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO til sumarlesturs fyrir börn á öllum aldri. Til að taka þátt þarf að koma við í einu af sex söfnum Borgarbókasafnsins þegar bók hefur verið lesin og skrifa nafn sitt, aldur, heiti bókar og símanúmer á blað í formi sólargeisla. Geislanum er svo komið fyrir á lestrarsólinni sem skáldfákurinn Sleipnir gætir í söfnunum.

Gagnrýnir orð fólks á netinu

Egill Einarsson vill fá skýringar á því hvers vegna mál hans tók jafn langan tíma að fara í gegn um kerfið og raun bar vitni.

Selastofnarnir hafa minnkað verulega

Stofnar landsels og útsels eru mun minni en þeir voru árið 1980 þrátt fyrir takmarkaða veiði frá þeim tíma. Fækkunin hefur mest orðið í Breiðafirði, Faxaflóa, við Suðurströndina og Austfirði.

224 milljónum hent í ruslið

Átta milljónir skilagjaldsskyldra áldósa lenda í almennu heimilissorpi landsmanna á ári hverju. Með þessum hætti verða Íslendingar af andvirði 112 milljóna króna árlega.

Sæti gæti færst af sjálfsdáðum

BL innkallar nú Nissan Navara (D40) og Nissan Pathfinder (D51). Ástæðan er galli í útbúnaði á bílstjórasæti sem gæti leitt til þess að stjórnborð fyrir sætisstillingar verði óvirkt. Í versta falli gæti bílstjórasætið tekið upp á því að færast af sjálfsdáðum.

Kröfur hertar um kælingu á fiskinum

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur breytt reglugerð um hollustuhætti matvæla til að tryggja kælingu fiskjar. Reglugerðarbreytingin er sett að stærstum hluta vegna strandveiða.

Kemur vampíruleikurinn út árið 2014?

Vísbendingar eru um að þriðji leikur CCP, World of Darkness, komi út árið 2014. Í frétt í Viðskiptablaðinu í gær er vitnað í ársskýrslu fyrirtækisins. Þar er farið yfir þróunaráætlun og gert ráð fyrir því að leikurinn verði tilbúinn til framleiðslu í ár og hann verði gefinn út árið 2014.

Gefur jöklunum rödd

Vox Naturae var gert að umræðuefni á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Ríó + 20 sem haldin var í þessari viku. Vox Naturae er íslenskt verkefni sem felst í því að listamenn munu lýsa upp Svínafellsjökul um leið og frumsamin tónlist Bergljótar Arnalds mun ljá honum rödd.

Brýnt að styrkja línukerfið milli landshluta

Markaðsstjóri Landsvirkjunar telur brýnt að styrkja flutningskerfi raforku milli landshluta, - það myndi efla uppbyggingu iðnaðarsvæðis við Húsavík. Vegna fyrirhugaðra iðjuvera á Bakka er rætt um að reisa þurfi tvær virkjanir í Mývatnssveit. Landsvirkjunarmenn líta hins vegar ekki svo á að þeir séu að selja orku frá tilteknu orkuveri heldur úr raforkukerfi fyrirtækisins sem heild.

Útvega Skúla fógeta félagskap

Þriggja manna hönnunarteymi hefur tekið Fógetagarðinn í miðbænum í gegn og lífgað upp á torgið með tiltækum ráðum. Opnun á verkinu fer fram á morgun.

Kaldhæðnislegt ef femínistar myndu krefjast afsagnar Jóhönnu

Það væri afar kaldhæðnislegt ef Femínistafélag Íslands kallaði eftir afsögn fyrsta kvenkyns forsætisráðherra íslands þegar ráðherrar hafa brotið jafnréttislög á undan henni og komist upp með það án þess að þurfa að segja af sér. Þetta segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, ráðskona feministafélagsins.

Umsóknarferli Íslands gengur óvenju hratt

Þrír kaflar til viðbótar voru í morgun opnaðir í viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Stefan Fulhe stækkunarstjóri segir að gangurinn í viðræðunum sé betri en hjá nokkru öðru landi frá árinu 2006.

Stakk fórnarlambið um þrjátíu sinnum

Hlífar Vatnar Stefánsson, sem hefur játað að hafa orðið Þóru Eyjalín Gísladóttur að bana, segir að hún hafi verið besti vinur sinn, og að hann hafi ekki ætlað að drepa hana. Sækjandi fer fram á minnst 16 ára fangelsisdóm. Rétt er að vara viðkvæma við lýsingum á atburðum í fréttinni.

Allar líkur á að Einar "Boom“ fái bætur

Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður segir allar líkur á því að Einar „Boom" Marteinsson fái dæmdar skaðabætur frá ríkinu fyrir að hafa setið í gæsluvarðhaldi að ósekju ef hann á annað borð fer fram á bætur.

Hreystimenni hlaupa aftur og aftur upp Esjuna

Á morgun munu hátt í níutíu ofurhugar hlaupa upp og niður Esjuna, aftur og aftur allt að tíu sinnum. Hlaupið nefnist Mt.Esja Ultra og er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi hvað varðar erfiðleikastig, hækkun og vegalengd.

20 stigin aftur komin í veðurkortin

Tuttugu stiga hitamúrinn í lofthita var rofinn á landinu í dag, og raunar gott betur en það, því hitinn hefur hæst farið í 21,5 gráður á Egilsstöðum og í 21,4 gráður á Torfum í Eyjafirði. Fleiri veðurstöðvar norðaustanlands hafa farið yfir 20 gráðurnar, þar á meðal Hallormsstaður, með 20,5 gráður, og Reykir í Fnjóskadal, með 20,1 gráðu, samkvæmt tölum Veðurstofu. Þá hefur einnig verið hlýtt á hálendinu norðan Vatnajökuls. Þannig fór hitinn á Möðrudal í 19,3 gráður, á Jökuldal í 18,3 gráður og í Svartárkoti sunnan Mývatns mældust 18 gráður. Á Akureyri var 18 stiga hiti. Sunnanlands mældist 17,7 stiga hiti á Hjarðarlandi í Biskupstungum en í Reykjavík hefur hitinn mest farið í 15,6 stig. Veðurspá morgundagsins lofar einnig góðu, spáð er sól og blíðu um land. Búast má við um og yfir 20 stiga hita þar sem hlýjast verður inn til landsins.

Enginn missir bílpróf fyrir að hjóla fullur

Hjólreiðamenn geta fengið sektir fyrir að brjóta umferðarlög. Þeir geta aftur á móti ekki fengið refsipunkta í ökuferilskrá eða misst ökuleyfið fyrir það. Þetta segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi hjá Umferðarstofu.

Engin ákvörðun tekin um áfrýjun

Ríkissaksóknari hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort málinu gegn Einari "Boom“ Marteinssyni og félögum hans verður áfrýjað. Einar var sýknaður af ákæru um aðild að líkamsárás í Hafnarfirði skömmu fyrir síðustu jól, en dómur var kveðinn upp í málinu fyrr í vikunni. Fjórir fengu þunga dóma vegna árásarinnar. Þyngsta dóminn fékk Andrea Unnarsdóttir, eða fjögurra og hálfs árs fangelsi. Auk Einars var einn annar sýknaður af aðild að málinu.

Fundu fimm notaðar sprautunálar

Fimm notaðar sprautunálar fundust við hafnarvigtina í Keflavík í vikunni þegar lögreglan fór að gá. Það var vegfarandi sem kom við á lögreglustöðinni á Hringbraut í Reykjanesbæ til að gera viðvart um sprauturnar. Þess eru dæmi að sprautunálar finnist á víðavangi og beinir lögregla þeim tilmælum til fólks að láta tafarlaust vita ef það rekst á slíka hluti, því þeir geta reynst hættulegir lendi þeir í höndum barna.

Borgarráð styrkir tónleika Of Monsters and men

Borgarráð hefur samþykkt að styrkja tónleika hljómsveitarinnar Of Monsters and Men sem haldnir verða í Hljómskálagarðinum við Tjörnina í Reykjavík 7. júlí næstkomandi.

Hundruð lítra af olíu teknir ófrjálsri hendi

220 lítrum af olíu var stolið úr tanki sem var við húsnæði fyrirtækis í Reykjanesbæ. Ekki er vitað hvenær þjófnaðurinn átti sér stað, en talið er að það hafi verið á síðustu dögum. Þjófnaðurinn var tilkynntur lögreglunnar á Suðurnesjum og biður hún þá sem kunna að búa yfir upplýsingum um málið að hafa samband í síma 420-1800.

Ólafur enn með yfirhöndina

Tæplega 45% ætla að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosningunum og 37% ætla að kjósa Þóru Arnórsdóttur, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR. Þá voru 10,1% þeirra sem tóku afstöðu sem lýstu yfir stuðningi við Ara Trausta Guðmundsson, 4,6% vildu kjósa Herdísi Þorgeirsdótur, 2,0% Andreu J. Ólafsdóttur og tæp 2% Hannes Bjarnason. Könnunin var gerð dagana 13.-19. júní og voru þátttakendur á aldrinum 18-67 ára. 1816 manns svöruðu könnuninni á Netinu.

Hjólamennirnir koma til Reykjavíkur í dag

Áætlað er að sex manna hópur hjólreiðamanna, sem hjólað hefur hringinn í kringum landið á innan við viku, komi til Reykjavíkur í dag eftir að hafa lagt 1400 kílómetra að baki. Hringferðin er samstarfsverkefni Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, Rauða kross Íslands, Tryggingamiðstöðvarinnar og Landspítalans og tilgangurinn með henni er að minna fólk á mikilvægi þess að nota reiðhjólahjálma. Hópurinn lagði af stað síðastliðinn laugardag og hefur því hjólað hringinn í kringum landið á tæpri viku. Ferðin hefur gengið mjög vel þó menn séu eðlilega orðnir lúnir því þeir skiptast ekkert á heldur hjóla allir heildarvegalengdina. Hópurinn lýkur ferðinni við slökkvistöðina við Tunguháls

Krefst sex mánaða fangelsis yfir Berki

Sækjandi í málinu gegn Berki Birgissyni fer fram á sex mánaða fangelsi fyrir að hafa hrækt á dómara og kallað ókvæðisorðum. Aðalmeðferð í málinu fór fram í morgun.

Jóhanna biður Önnu Kristínu afsökunar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra biður Önnu Kristínu Ólafsdóttur afsökunar í grein sem birtist í Fréttablaðinu og hér á Vísi í dag. Forsætisráðuneytið hefur, sem kunnugt er, verið dæmt til að greiða Önnu Kristínu 500 þúsund krónur í miskabætur vegna yfirlýsingar sem birt var á vef forsætisráðuneytisins eftir að úrskurðarnefnd kærumála úrskurðaði að ráðuneytið hefði brotið gegn Önnu Kristínu með ráðningu í starf skrifstofustjóra.

Þrír nýir kaflar opnaðir

Í morgun voru þrír nýir kaflar opnaðir í viðræðum við Evrópusambandið um aðild Íslands á sérstakri ríkjaráðstefnu í Brussel. Kaflarnir sem opnaðir voru fjalla um flutningastarfsemi, félags- og vinnumál og um fjárhagslegt eftirlit. Alls er þá búið að opna 18 kafla af þeim 33 sem þarf að semja um og samningum um tíu þeirra er lokið. Því má segja að seinni hálfleikurinn í viðræðunum sé nú hafinn.

EM sýnt á risaskjá á Ibizatorgi

Ingólfstorg verður fóstrað af verslunum og veitingahúsum við torgið í sumar. Komið hefur verið fyrir risaskjá á vegg CenterHotel Plaza vestan við torgið þar sem sýndir verða Evrópumeistaramótsleikir í knattspyrnu. Yfir sumarmánuðina mun Miðborgin okkar, samstarfstarfsvettvangur hagsmunaaðila í miðborginni, standa fyrir alls kyns viðburðum á torginu.

Dómari segir Börk hafa verið ógnandi

"Hann var mjög ógnandi,“ sagði Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari við Héraðsdóm Reykjaness um Börk Birgisson. Aðalmeðferð fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag yfir Berki, sem sakaður er um að hafa brotið gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á Söndru í vor. Þá var verið að úrskurða að Börkur skyldi sitja af sér eldri dóm eftir að hann hafði, á reynslulausn, verið sakaður um fjölda ofbeldisbrota.

Börkur viðurkennir að hafa hrækt á dómara

Börkur Birgisson viðurkennir að hafa hrækt á skikkju dómara í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum. Réttað er yfir Berki í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna þessa brots, sem flokkast undir brot gegn valdstjórninni. Dómarar í Reykjanesi lýstu sig vanhæfa til að dæma í málum hans eftir brotið og því var málið flutt til Reykjavíkur. Fréttavefur Morgunblaðsins segir að átök hafi orðið í réttinum í morgun þegar maður undir áhrifum reyndi að koma einhverskonar hlut að Berki þegar hann var í dómnum í fylgd fangavarða. Börkur er sakaður um fjölmörg ofbeldisbrot. Þar á meðal eru hann og Annþór Kristján Karlsson sakaðir um að hafa orðið samfanga sínum á Litla Hrauni að bana.

Frænka Þóru: Þegar Hlífar verður reiður brýtur hann hluti

"Ég veit að þegar Hlífar verður reiður þá brýtur hann hluti," sagði frænka Þóru Eyjalín Gísladóttur, sem Hlífar Vatnar myrti í byrjun febrúar, þegar hún lýsti persónu Hlífars og sambandi hans við Þóru Eyjalín fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Var hugsanlega látin í nokkra daga í íbúð Hlífars

"Þetta er ömurlegt, ég ætlaði aldrei að drepa þessa mannskju," sagði Hlífar Vatnar Stefánsson í Héraðsdómi Reykjaness í morgun þar sem réttað er yfir honum fyrir að hafa myrt Þóru Eyjalín Gísladóttur í Hafnarfirði í febrúar á þessu ári.

Hálendishópar taka til starfa

Fyrstu hópar sjálfboðaliða Slysavarnafélagsins Landsbjargar halda í dag á hálendið á svokallaða Hálendisvakt, en hún snýst um að aðstoða innlenda sem erlenda ferðamenn. Þetta er sjöunda sumarið sem Hálendisvaktin er starfrækt og telja björgunarsveitamenn að aldrei sé eins mikil þörf á henni og nú. Ferðamönnum hafi fjölgað um 20% það sem af er ári og það stefni í metsumar í ferðaþjónustu. Síðasta sumar bárust Hálendisvaktinni meira en 1200 beiðnir um aðstoð.

Egill krefst skýringa

Egill Einarsson, einnig kallaður Gillzenegger, ætlar að krefjast skýringa á því hvers vegna nauðgunarkæra gegn honum fór jafn langt og raun bar vitni. Þetta segir hann í yfirlýsingu sem hann sendi fréttastofu í nótt.

Vilja ekki lána sýni úr Davíð

Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður krafðist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að fá aðgang að lífsýni Davíðs Stefánssonar skálds frá Fagraskógi. Auk þess vill hann fá aðgang að lífsýnum móður sinnar og ömmu

Segja sorglegt að Jóhanna hafi brotið jafnréttislög

Það er sorglegur vitnisburður að Jóhanna Sigurðardóttir, fyrsta konan sem gegnir stöðu forsætisráðherra, hafi gerst brotleg við jafnréttislög landsins, segir í ályktun jafnréttisnefndar Framsóknarflokksins.

Fimm ökumenn teknir úr umferð

Fimm ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinui í nótt, tveir fyrir ölvunarakstur og þrír fyrir fíkniefnaakstur.

Hver þremillinn! Ruslahaugur verður til í Árbæjarhverfi

Mikið af rusli hefur safnast fyrir í miðju íbúðahverfi í Árbænum. Bílhlöss af steypurusli, mótatimbur, fiskikar, þvottavél, bíldekk og bílþak eru í haugnum. Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru mættir í Árbæinn í gær til að sinna hreinsunarstörfum, eftir að Fréttablaðið hringdi í borgina til að grennslast fyrir um rusl sem þar hefur safnast fyrir. Þeim varð þó lítið ágengt enda ljóst að verkefnið er stórt.

Ný stefna í íþróttamálum

Borgarstjórn hefur samþykkt nýja stefnu í íþróttamálum fram til ársins 2020. Stefnan var unnin undir forystu Íþróttabandalags Reykjavíkur og Íþrótta– og tómstundaráðs Reykjavíkur.

Landslagssamningur fullgiltur

Ísland hefur ákveðið að undirrita Landslagssamning Evrópu og verður það formlega gert síðar í júnímánuði.

Kröfuhafar taka yfir Glitni fyrir lok ársins

Stefnt er að því að klára nauðasamning Glitnis á þessu ári. Óreglulegur kröfuhafafundur verður haldinn í London í byrjun júlí til að kynna skilmála hans. Íslandsbanki yrði þá í eigu kröfuhafa. Langstærsti hluti þeirra er erlendir aðilar.

Kom með mörð og var kærður

Tollstjórinn á Seyðisfirði hafði 5. júní afskipti af manni sem hafði marðardýr meðferðis í bíl sínum þegar hann kom til landsins með ferjunni Norrænu.

Krossviður Jónasar rifinn af veggjunum

Endurbætur á innviðum Menntaskólans í Reykjavík halda áfram í sumar. Leitast er við að endurheimta upprunalegan frágang hússins. Til þess er fjarlægður krossviður af veggjum sem á sér rætur í endurbótum Jónasar frá Hriflu um 1930.

Sjá næstu 50 fréttir