Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aðilar vinnumarkaðarins staðfesta kjarasamninga Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins telur að mörg fyrirtæki þurfi að beita verðhækkunum og hagræðingu til að eiga fyrir launahækkunum um næstu mánaðamót. Aðilar vinnumarkaðarins staðfestu kjarasamninga í dag þrátt fyrir bullandi óánægju með frammistöðu ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum. 20.1.2012 19:15
Skora á Ólaf Ragnar að bjóða sig fram aftur Vefsíða þar sem skorað er á Ólaf Ragnar Grímsson að bjóða sig fram aftur til embættis forseta Íslands var opnuð formlega í dag. Forsvarsmenn síðunnar gera sér vonir um að safna hátt í fimmtíu þúsund undirskriftum. 20.1.2012 19:06
"Frávísunartillagan hefur veikt ríkisstjórnina" Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, telur að frávísunartillaga Bjarna Benediktssonar hafi veikt ríkisstjórnina. 20.1.2012 18:51
Gera ekki kröfu um bæjarstjórastólinn "Það var eitt af megin kosningaloforðum Y-listans að ráða faglegan bæjarstjóra og við munum virða það," segir Ármann Kr. Ólafsson, oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi, aðspurður hvort þeir muni gera kröfu um bæjarstjórastólinn. Þeir hófu formlegar viðræður við Næst besta flokkinn og Y-lista - Lista Kópavogsbúa, í dag. 20.1.2012 16:56
Júlli í draumnum dæmdur í 12 mánaða fangelsi Júlíus Þorbergsson, eða Júlli í Draumnum eins og hann er að jafnan kallaður, var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir brot gegn lyfjalögum, tóbaksvarnalögum, fíkniefnalögum og almennum hegningarlögum. 20.1.2012 16:50
Árni Páll vill greiða atkvæði um tillögu Bjarna Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, vill að tillaga Bjarna Benediktssonar um að afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde, verði sett á dagskrá og hún afgreidd með atkvæðagreiðslu. 20.1.2012 16:23
Stuðningsmenn Ólafs Ragnars opna heimasíðu Opnuð hefur verið vefsíða til stuðnings Ólafi Ragnari Grímssyni, og hann hvattur til þess að bjóða sig aftur fram sem forseti Íslands. 20.1.2012 15:51
Mokað um helgina og hverfastöðvar opnar Hverfastöðvar og símaver Reykjavíkurborgar verða með vaktir yfir helgina milli kl. 10:30 - 15:00 bæði laugardag og sunnudag. Íbúar geta sótt sand og salt á hverfastöðvarnar og símaver veitir upplýsingar og tekur við ábendingum í síma 411 11 11. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. 20.1.2012 15:50
Hróp gerð að þingmanni: „Hlustaðu á þjóðina!“ Áhorfanda á pöllum Alþingis var vísað út af öryggisgæslu þingsins eftir að sá sami gerði hróp að þingmanni Sjálfstæðisflokksins, Ólöfu Nordal. Sá hrópaði: „Hlustaðu á þjóðina.“ 20.1.2012 15:28
Umferðarstofa hvetur bílstjóra stærri bíla til þess að nota keðjur Umferðarstofa hvetur bílstjóra stærri bíla, sem annast fólks- eða vöruflutninga, til að búa ökutækin sem best fyrir erfiða vetrarfærð. 20.1.2012 14:47
Afturköllun málshöfðunar rædd á þingi Tillaga Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins þess efnis að Alþingi afturkalli málshöfðun á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra fyrir Landsdómi verður tekin til fyrri umræðu í dag. Þingfundur hefst klukkan hálfellefu og er þetta eina málið á dagskrá. Hér á Vísi getur þú fylgst með í beinni. 20.1.2012 10:22
Sigurður Árni í biskupsframboð Dr. Sigurður Árni Þórðarson, Neskirkjuprestur, hefur ákveðið að bjóða sig fram til biskupsþjónustu. Í yfirlýsingu sem Sigurður sendi frá sér í dag segir að hann muni beita sér fyrir breytingum og eflingu þjóðkirkjunnar. 20.1.2012 15:45
Kjarasamningarnir halda Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa ákveðið að nýta ekki uppsagnarákvæði kjarasamninga hinn 31. janúar næstkomandi. Þetta segir í yfirlýsingu þeirra beggja og segir þar að þetta hafi verið ákveðið „þrátt fyrir að stjórnvöld hafi ekki efnt fyrirheit sem gefin voru í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamningana 5. maí 2011.“ 20.1.2012 15:35
Meirihlutaviðræður hafnar í Kópavogi Viðræður eru hafnar milli bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Næst besta flokksins og Lista Kópavogsbúa um myndun meirihluta í Kópavogi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá oddvitum flokkanna í bæjarstjórn. 20.1.2012 14:25
Vill að tillaga Bjarna fari í nefnd - segir Alþingi hafa gert mistök Atli Gíslason, óháður þingmaður, vill að tillaga Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði lögð í nefnd, svo hægt verði að fjalla faglega um málið. 20.1.2012 13:49
Magnús Norðdahl í launalaust leyfi á meðan hann situr á þingi Magnús Norðdahl, yfirlögfræðingur ASÍ, hefur tekið sæti á Alþingi í fjarveru Katrínar Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra Samfylkingarinnar, sem fer nú í veikindaleyfi. 20.1.2012 13:21
Ekkert skyggni á Vesturlandsvegi - ökumenn varaðir við Lögregla vekur athygli á því að mjög blint er á Vesturlandsvegi, milli Mosfellsbæjar og Hvalfjarðarganga. Að sögn lögreglu hafa ökumenn lent í vandræðum og ekið út af. Búið er að kalla eftir aðstoð björgunarsveita. Að sögn lögreglu er ekki um ófærð að ræða, heldur er skyggnið einfaldlega ekkert. 20.1.2012 12:45
Risastórt grjót fyrir utan Alþingi - fleygur rekinn í steininn Það hafa eflaust einhverjir rekið upp stór augu þegar þeir komu auga á risastórt grjót sem stendur á Austurvelli fyrir framan Alþingi. Um er að ræða listaverkið Svarta keilan, minnisvarði um borgaralega óhlýðni, sem samanstendur af 180 senímetra háum steindranga. Um er að ræða gjörning á vegum spænska andófslistamannsins Santiago Sierra. 20.1.2012 12:07
Leggja fram frávísunartillögu Þingmenn allra flokka að Sjálfstæðisflokki undanskildum hafa nú lagt fram tillögu til rökstuddrar dagskrár þar sem lagt er til að Alþingi samþykki að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar um að afturkalla málshöfðun á hendur Geir Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. 20.1.2012 11:09
Lýst eftir rafstöð Lögreglan lýsir eftir rafstöð og kerru sem var stolið úr geymslu í Víðinesi á tímabilinu 30. desember til 11. janúar. 20.1.2012 10:59
Varað við slæmu skyggni á Hellisheiðinni og víðar Snjókoma verður fram yfir hádegi sunnan- og suðvestanlands samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Sums staðar verður talsverður bylur og vindur 12-15 m/s með skafrenningi og slæmu skyggni, s.s. á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði. 20.1.2012 10:54
Bresk barnaverndaryfirvöld vilja svipta móður Ellu Dísar forræði Barnaverndaryfirvöld í Bretlandi vilja svipta Rögnu Erlendsdóttur, móður Ellu Dísar, forræði yfir dóttur sinni. Ragna fór fyrir rétt í London, þar sem hún er búsett, í gær. Hún segir í viðtali við DV að hún hafi tvívegis mætt fyrir dóm og nú hafi málinu verið vísað til Royal High Court og þar verði málið tekið fyrir næsta þriðjudag. 20.1.2012 10:05
Við kunnum ekki að tala saman Skýra þarf reglur markaðarins og færa ábyrgðina frá ríkisvaldinu að mati Árna Páls Árnasonar. Hann telur mikið skorta á samræðuhefð í stjórnmálum og þar sé Samfylkingin ekki undanskilin. Hann vill breyta því en segir ráðherrametnaði sínum fullsvalað. 20.1.2012 10:00
Veitti verjanda Baldurs ráðgjöf Róbert Ragnar Spanó, lagaprófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands, veitti verjendum Baldurs Guðlaugssonar, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, ráðgjöf eftir að ákæra var gefin út á hendur honum fyrir innherjasvik. 20.1.2012 10:00
Jóhann Ingi kominn í leitirnar Jóhann Ingi Margeirsson, fimmtán ára drengurinn sem lögreglan á Akranesi lýsti eftir á miðvikudaginn, er fundinn. Að sögn lögreglu var hann færður í umsjón barnaverndaryfirvalda í gærkvöldi. 20.1.2012 09:59
Landhelgisgæslan fær nýja þyrlu Búið er að undirrita leigusamning til 12 mánaða um leigu á þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. Þyrlan er af gerðinni Super Puma eða sömu tegundar og TF LÍF og TF GNÁ. 20.1.2012 09:42
Tæpt að kjósa í einu um forseta og stjórnarskrá Mögulega er orðið of seint að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að nýrri stjórnarskrá samhliða forsetakosningum í júní, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Þetta sagði hún á Alþingi í gær. 20.1.2012 09:00
Oddný segir misskilning á ferð Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar, segir það misskilning að hún hafi hafnað því að funda um fyrirhugaðar breytingar á skólahaldi með foreldum í Hamraskóla. 20.1.2012 09:00
Kyrrsetningin stenst skoðun Eignir athafnamannsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, hér á landi verða áfram kyrrsettar að kröfu slitastjórnar bankans. Hæstiréttur kvað upp úr með það í gær að kyrrsetningin stæðist lög þrátt fyrir mótmæli tvímenninganna sem hafa í hálft annað ár reynt að fá henni hnekkt. 20.1.2012 08:30
Læknanemi bloggar sig gegnum háskóla Kristján Már Gunnarsson læknanemi kveðst fá 400 þúsund krónur á mánuði í tekjur með því að halda úti bloggi um heilsu, næringu og lífsstíl. Þetta geti hann samhliða þungu námi. Þetta sé frábært dæmi um nýsköpun í kreppunni. 20.1.2012 08:30
Kynferðisbrotamál í kerfinu tvöfalt fleiri Gríðarleg breyting hefur orðið á meðferð kynferðisbrota gegn börnum frá því fyrir fimmtán árum. Tvöfalt fleiri mál koma til kasta kerfisins og þrefalt fleiri mál rata til ákæruvaldsins. Bæði um vitundarvakningu og fleiri mál að ræða. 20.1.2012 08:30
Biður Vigdísi að treysta þjóðinni Alþingi„Treystu nú þjóðinni til að meta það hvort hún telji það rétt eða rangt að Ísland gangi í ESB.“ Svo mælti Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra við Vigdísi Hauksdóttur, þingkonu Framsóknarflokksins, á Alþingi í gær. 20.1.2012 08:00
Kínverjar vilja leggja allt að 7 milljarða í heilsuþorp Kínverska fyrirtækið CSST International á í viðræðum um aðkomu að uppbyggingu heilsuþorps á Flúðum. Enn of snemmt að segja til um hvort af verði en viðræður halda áfram segir stjórnarformaður Heilsuþorps. 20.1.2012 08:00
Brotist inn í bakarí Brotist var inn í bakarí við Álfabakka í nótt og þaðan stolið skiptimynt úr peningakassanum, eða sjóðsvélinni, en bakkelsið látið vera. 20.1.2012 07:55
Þriggja bíla árekstur á Gullinbrú Engin slasaðist alvarlega þegar þrír bílar lentu í árkestri, eða árekstrum, á Gullinbrú í Grafarvogi seint i gærkvöldi, en bilarnir skemmdust mikið. 20.1.2012 07:52
Fiskiskip og bátar streyma út á miðin Fiskiskip og bátar streyma nú út úr höfnum umhverfis landið, eftir óveður og landlegur síðustu daga. 20.1.2012 07:41
Samfylking og VG starfa áfram saman í Kópavogi Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna ákváðu á fundi sínum í gærkvöldi að halda áfram samstarfi í bæjarstjórn Kópavogs. 20.1.2012 07:28
Björguðu ökumanni sem sat fastur í Víkurskarði Björgunarsveit var kölluð út frá Svalbarðsströnd í nótt til að aðstoða ökumann, sem sat fastur í bíl sínum á Víkurskarði. Þar hafði skafið í skafla. 20.1.2012 07:26
Foringi Hells Angels verður áfram í haldi Héraðsdómur Reykjavíkur féllst í gær á kröfu lögreglu um framlengingu gæsluvarðhalds yfir Einari Marteinssyni, forsprakka Hells Angels á Íslandi, og þremur öðrum sem grunaðir eru um að tengjast hrottalegri árás á konu í Kópavogi fyrir jól. Þeir munu sitja í haldi til 16. febrúar. 20.1.2012 07:15
Keyrði pallbíl gegnum hurð í innbroti Þjófur braust inn í verkstæði Brimborgar að Krókhálsi um klukkan hálf tvö í nótt. Þar stal hann stórum Ford-F 150 pallbíl og ók honum á fullri ferð í gegnum hurðina á innkeyrsludyrunum , sem splundruðust. 20.1.2012 07:02
Enn er óvissa um lögmæti tillögunnar Frávísunartillaga kemur fram í dag vegna tillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde. Margir þingmenn telja að verði málinu ekki vísað frá þurfi þingnefnd að ganga í störf Landsdóms. Skýrt kemur fram í skýringum með lögum um Landsdóm að með ákæru sé málið úr höndum Alþingis. 20.1.2012 07:00
Vel gengur að frysta loðnu Þegar hafa um 2.800 tonn af loðnu verið fryst í uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði. Markaður fyrir þessa afurð er í ýmsum Austur-Evrópulöndum og nú í vikunni var skipað út alls um 1.800 tonnum af afurðum í erlent flutningaskip. 20.1.2012 07:00
Gögnin um Geir gætu endað í skjalageymslu Allt bendir til þess að málsgögn saksóknara Alþingis komi ekki fyrir sjónir almennings í langan tíma, fari svo að landsdómsmálið verði fellt niður. Alþingi hefur því í hendi sér hvort uppgjör stjórnmálanna við hrunið fer fram eður ei. 20.1.2012 06:30
Kaþólskir vilja lóð fyrir kirkju Bæjaryfirvöld í Árborg hafa tekið vel í umsókn kaþólsku kirkjunnar um lóð fyrir kirkju og safnaðarheimili á Selfossi. Þetta hefur Sunnlenska fréttablaðið eftir Gunnari Erni Ólafssyni, starfsmanni á skrifstofu kaþólska biskupsins á Íslandi. 20.1.2012 05:45
Hitti rúmenska ráðherra í gær Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fundaði í gær með Teodor Baconschi, utanríkisráðherra Rúmeníu, í Búkarest, höfuðborg landsins. Þar að auki hitti Össur Petru Filip, forseta rúmenska þingsins, og Leonard Orban, Evrópumálaráðherra landsins. 20.1.2012 05:30