Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýtt upphaf eða bara orð? Ár er liðið frá útkomu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Margir biðu skýrslunnar með eftirvæntingu enda stóðu vonir til að hún myndi varpa ljósi á sannleikann um hrunið og marka upphaf nýs Íslands. 16.4.2011 10:30
Með 50 cm rörbút í átökum við dyraverði Ölvuðum og mjög æstum manni var vísað út af skemmtistaðnum Lundinn í Vestmannaeyjum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vestmannaeyjum kom maðurinn sér strax í áflog fyrir utan staðinn og þegar hann reyndi að komast inn á staðinn var honum að lokum vísað frá. 16.4.2011 09:49
Fór of snemma af stað Þrír voru teknir fyrir ölvunarakstur hjá lögreglunni á Selfossi í gærkvöldi og nótt. Ein kona var tekin ölvuð undir stýri klukkan hálf átta í morgun. 16.4.2011 09:47
Atvinnuvegaráðuneyti vefst fyrir tæpri stjórn Ríkisstjórnin stendur tæpt. Eftir brotthvarf Ásmundar Einars Daðasonar úr þingliði Vinstri grænna hangir hún á einum manni. Þetta getur valdið henni vandræðum við að koma í gegn málum sem lengi hafa verið á dagskránni. 16.4.2011 09:45
Fimm þúsund páskaegg við Perluna Fréttablaðið býður lesendum sínum í tíu ára afmælisveislu í Perlunni í dag milli klukkan 13 og 16. Blaðið fagnar því um þessar mundir að 23. apríl eru tíu ára liðin frá útgáfu fyrsta tölublaðsins. 16.4.2011 09:30
Alþingi á ekki að skipta sér af rekstrinum Ríkið verður að setja sér stefnu um það með hvaða hætti það eigi að fara með eigendavald sitt, að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur, stjórnarformanns Landsvirkjunar. Í ræðu sinni á ársfundinum sagði hún fyrirtæki í opinberri eiga að fá að starfa óhindrað á viðskiptalegum forsendum og án íhlutunar eigenda sinna. 16.4.2011 09:00
Engir virkjanakostir eru óumdeildir Landsvirkjun áætlar að reisa tíu vatnsfallsvirkjanir og fjórar jarðvarmavirkjanir fyrir 4,5 til fimm milljarða dala, jafnvirði tæpra 570 milljarða króna, á næstu fimmtán árum og auka raforkuframleiðsluna um ellefu teravattstundir. Við það mun raforkuframleiðsla Landsvirkjunar fara í um fjörutíu teravattstundir. 16.4.2011 09:00
Sjúklingar og starfsmenn sýktir Búið er að loka lyflækningadeildum á Landspítalanum í Fossvogi og Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna nóróveirusýkingar. Alls hafa tíu manns, sex sjúklingar og fjórir starfsmenn, greinst með sýkinguna á spítalanum á Akureyri, þar sem einnig var skipt upp hand- og bæklunardeild til að varna frekara smiti. Vikudagur greindi frá málinu. 16.4.2011 08:30
Gleðidagur í Þjóðmenningarhúsi Árleg Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt á fimmtudag. Forseti Íslands afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu þar sem tilnefndir og aðrir gestir fylltu salinn. Að athöfn lokinni var boðið upp á veitingar þar 16.4.2011 08:00
Jóhanna: Furðuleg afstaða Samtaka atvinnulífsins Óvissa ríkti enn í kjaraviðræðum Alþýðusambandsins (ASÍ) og Samtaka atvinnulífisins (SA) í gærkvöld. Kjarasamningur til þriggja ára var sleginn út af borðinu síðdegis í gær og ekki hafði náðst samkomulag um gerð samninga til styttri tíma. Fundur stóð þó enn yfir þegar Fréttablaðið fór í prentun. 16.4.2011 07:15
Samræmd lög um alla fjölmiðla Ný heildarlög um fjölmiðla voru samþykkt á Alþingi í gær. 30 þingmenn greiddu atkvæði með lögunum og 14 gegn þeim. 16.4.2011 07:00
Leit hjá stuðningsklúbbi Vítisengla Lögreglan fann eftirlíkingu skotvopns við húsleit í Reykjanesbæ í fyrradag. Tveir karlmenn, annar á fertugsaldri en hinn tvítugur, voru handteknir í þágu rannsóknarinnar en skotvopnið fannst á heimili annars þeirra. Þessir tveir karlmenn tengjast báðir vélhjólaklúbbi í Reykjanesbæ, MC Suðurnes, sem er stuðningsklúbbur íslensku Vítisenglanna. 16.4.2011 06:45
Kveikjarar innkallaðir Neytendastofa hefur ákveðið að innkalla fjórar tegundir kveikjara. Þeir eru í laginu eins og gaskútur, slökkvitæki, gallabuxur og skrúflykill. Ástæðan er að kveikjararnir hafa allir óhefðbundið útlit sem býður þeirri hættu heim að börn sæki í þá. Sala slíkra kveikjara er bönnuð, er kemur fram í tilkynningu frá Neytendastofu. 16.4.2011 06:30
Bjóða 900 störf Velferðarráðuneytið og Vinnumálastofnun auglýsa níu hundruð sumarstörf um allt land í átaki til að fjölga störfum á vegum ríkisins og sveitarfélaga. Störfin er ætluð námsmönnum og atvinnuleitendum og verða kynnt í sérstöku auglýsingablaði um helgina. Einnig er hægt að sjá störfin á heimasíðu Vinnumálastofnunar. 16.4.2011 06:15
Hef alltaf verið með góðu fólki Mér finnst ég vera ótrúlega hamingjusöm, segir Jenna Jensdóttir, heiðursverðlaunahafi Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins. Jenna vann sem kennari um áratugaskeið og er þjóðkunn fyrir barnabækur sínar. Sigríður Björg Tómasdóttir ræddi við Jennu um uppvöxtinn 16.4.2011 06:00
Becromal heitir bót og betrun Forsvarsmenn Becromal á Íslandi, sem rekur aflþynnuverksmiðju í Krossanesi við Akureyri, segjast munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að vernda umhverfið og mæta þeim kröfum sem Íslendingar gera í þeim efnum. 16.4.2011 06:00
Óvænt áform um sameiningu Meirihlutinn í borgarráði samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að hefja undirbúning að sameiningu leikskólasviðs, menntasviðs og þess hluta íþrótta- og tómstundasviðs sem heyrir nú undir skrifstofu tómstundamála. 16.4.2011 05:00
Kjaraviðræðum slitið Slitnað hefur upp úr kjaraviðræðum aðila vinnumarkaðarins og yfirgáfu fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar karphúsið á tólfta tímanum í kvöld. Samtök atvinnulífisins skilyrti gerð skammtímasamnings sem lá á borðinu í kvöld því að verkalýðshreyfingin færi með samtökunum í stríð við ríkisstjórnina, líkt og það er orðað í yfirlýsingu frá Alþýðusambandinu. 15.4.2011 23:30
Allt í hnút í Karphúsinu "Þetta er mjög þungt. Ég er ekki bjartsýnn á framhaldið,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtakta atvinnulífsins. Enn hefur ekki náðst saman í kjaraviðræðum aðila vinnumarkaðarins en fundahöld hafa staðið í Karphúsinu í allan dag og allt kvöld. Búist er við að fundað verði fram á nótt. "Það er engin niðurstaða í sjónmáli,“ segir Vilhjálmur. 15.4.2011 22:20
Fæddist án hægri lærleggs en lætur ekkert stöðva sig Þrátt fyrir fötlun lætur hann ekkert stoppa sig og hlakkar til að komast í Æskubúðir Össurar í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal á morgun, en búðirnar eru ætlaðar ungmennum sem notast við stoð- og stuðningstæki. 15.4.2011 21:00
Ók ölvaður á ljósastaur við Kringluna Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á sjötta tímanum í dag eftir að hann ók á ljósastaur skammt frá Kringlunni. Þegar lögreglumenn komu á staðinn kom í ljós að ökumaðurinn var ölvaður. Maðurinn slasaðist ekki þegar hann ók á ljósastaurinn. 15.4.2011 21:16
Úthlutun aflaheimilda breytt í nýtingarheimildir Ríkisstjórnin mun leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða fljótlega í næsta mánuði. Frumvarpið felur í sér að úthlutun á aflaheimildum verði breytt í nýtingarheimildir samkvæmt samningum til afmarkaðs tíma. Samtök atvinnulífsins harma að ríkisstjórnin skuli ekki hafa nýtt það sem samtökin kalla einstakt tækifæri til að ná nauðsynlegri sátt um málefni sjávarútvegsins. Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram tillögur um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem fela í sér útfærslu á samningaleið í sjávarútvegi, að því er fram kemur á vef samtakanna. 15.4.2011 20:03
Orðaskipti Ólínu og Ástu Ragnheiðar - myndband Líkt og fram kom á Vísi fyrr í dag kom til snarpra orðaskipta á milli Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, og Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, á þingfundi í morgun. Ólína sakaði flokkssystur sína um valdbeitingu við fundarstjórn. Hægt er að sjá myndband frá samskiptum þeirra hér. 15.4.2011 19:58
Yfirmaður þýsku flotadeildarinnar leiður yfir ákvörðun Jóns Gnarr Yfirmaður stærsta herskips þýska flotans segist vera leiður yfir því að Jón Gnarr hafi ekki viljað taka á móti þeim. Skipið kom með þyrlu sem aðstoða mun Landhelgisgæsluna næstu daga. 15.4.2011 19:47
Samið til tveggja mánaða Kjaraviðræðum mun að öllum líkindum ljúka í kvöld. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir hugmyndir um þriggja ára samning út af borðinu. Samningurinn sem nú er rætt um í Karphúsinu mun gilda í tvo mánuði fyrst um sinn með möguleika á framlenginu. 15.4.2011 18:45
Alvarlegt umferðarslys í Vestur Landeyjum Umferðarslys varð í Vestur Landeyjum suðvestur af Hvolsvelli á fimmta tímanum í dag þegar fólksbifreið valt. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er um alvarlegt slys að ræða. Ekki fengust frekari upplýsingar hjá lögreglu. 15.4.2011 18:15
Ís innkallaður úr verslunum Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur ákveðið að innkalla úr verslunum vörurnar Emmessís Bragðaref og Daim toppa í lausu þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki merktir á umbúðum þeirra. 15.4.2011 17:29
Lentu í bílslysi rétt fyrir handtöku Tveir karlmenn á þrítugsaldri voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna sölu og dreifingar á fíkniefnum. Lögregla hafði fylgst með mönnunum, sem báðir eru góðkunningjar lögreglu, í nokkurn tíma en ekki vildi betur til en svo að þeir lentu í umferðaróhappi þegar lögregla var um það bil að fara að handtaka þá, að því er fram kemur á vef lögreglunnar. 15.4.2011 17:18
Sóley gagnrýnir virkjanaáform Orkuveitunnar Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að ganga til könnunarviðræðna við Landsamband lífeyrissjóða um fjármögnun og/eða eignarhald á Hverahlíðarvirkjun. Tillaga Sóleyjar Tómasdóttur, fulltrúa Vinstri grænna, um að málinu yrði frestað og það tekið til umfjöllunar af hálfu eigenda var felld og málið samþykkt með mótatkvæði Vinstri grænna. 15.4.2011 16:36
Starfsmaður íhaldshóps kærður fyrir fjárdrátt Starfsmaður á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins hefur verið kærður vegna gruns um stórfelldan fjárdrátt. Samkvæmt heimildum Vísis nemur fjárdrátturinn milljónum króna og hefur staðið yfir frá árinu 2009. Starfsmaðurinn var fulltrúi í svokölluðum íhaldshóp Norðurlanda. 15.4.2011 16:09
Gjaldskrárhækkanir OR kosta Landspítalann rúmar 70 milljónir Gjaldskrárhækkanir Orkuveitu Reykjavíkur sem boðaðar voru á dögunum, með 8% hækkun á heitu vatni og 45% hækkun á fráveitugjaldi kosta Landspítalann 23 milljónir króna. Þessar hækkanir bætast við 50 milljóna kostnaðarauka fyrir spítalann vegna gjaldskrárhækkanna Orkuveitu Reykjavíkur sem komu til framkvæmda 1. febrúar síðastliðinn. Gjaldskrárhækkanir Orkuveitu Reykjavíkur hafa því kostað Landspítalann alls 73 milljónir króna. 15.4.2011 15:41
Páll Óskar við fermingarbörnin: Bannað að fara í fýlu! „Ég trúi því að við séum öll alveg ógeðslega klár í einhverju. Við höfum öll einhverja geggjaða hæfileika á einhverjum sviðum. Við fengum öll einhverja mikla gjöf þegar við fæddumst," sagði Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður í ávarpi sínu til fermingarbarna sem fermdust borgaralega síðasta sunnudag. 15.4.2011 15:38
Samið við Læknavaktina Samningar hafa tekist milli Sjúkratrygginga Íslands og Læknavaktarinnar ehf. um móttökuvakt og vitjanaþjónustu heimilislækna utan dagvinnutíma heilsugæslustöðva í Reykjavík og nágrenni. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra staðfesti samningana í dag. 15.4.2011 15:09
Vélhjólamenn með eftirlíkingu af skotvopni Lögreglan fann eftirlíkingu skotvopns við húsleit í Reykjanesbæ í gærdag. Tveir karlmenn, annar á fertugsaldri en hinn tvítugur, voru handteknir í þágu rannsóknarinnar en eftirlíkingin fannst á heimili annars þeirra. Þessir tveir karlmenn tengjast báðir vélhjólaklúbbi í Reykjanesbæ. Húsleit var einnig framkvæmd á öðrum stað í Reykjanesbæ í tengslum við þetta mál, þar sem meðal annars var lagt hald á barefli og peningaskáp. Upphaf þessa máls má rekja til þess að annar mannanna sást með hið ætlaða skotvopn í eftirlitsmyndavél í miðborg Reykjavíkur. Að aðgerðinni stóðu lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum auk lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra. 15.4.2011 14:40
Kjarasamningar til þriggja ára blásnir af Ekkert verður af gerð kjarasamninga til þriggja ára eins og staðið hefur til. Heimildir Vísis úr Karphúsinu herma að ekkert samkomulag hafi náðst á milli aðila vinnumarkaðins og ríkisstjórnarinnar um ýmis mál, til dæmis stjórn fiskveiða, samgöngumál og lífeyrismál. 15.4.2011 14:24
Þurfa ekki leyfi fyrir blindrahundum Alþingi samþykkti í morgun lagafrumvarp þess efnis að þeir sem eru blindir eða með aðra fötlun geti haldið sérþjálfaða leiðsögu- eða hjálparhunda í fjöleignarhúsum án þess að til þurfi að koma samþykki annarra íbúa í húsinu. 15.4.2011 14:15
Fordæma vinnubrögð í skólamálum Stjórn Félags leikskólakennara fordæmir þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við greiningu tækifæra til samrekstrar eða sameiningar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila í Reykjavík. Stjórnin segir að þessi vinnubrögð hafi valdið gríðarlegu álagi og óvissu hjá nemendum, foreldrum, skólastjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki leikskólanna í borginni sem ekki sjái fyrir endann á. 15.4.2011 13:59
Foreldrar harma ákvörðun um sameiningu skóla Stjórn Foreldrafélags Hvassaleitisskóla harmar þá ákvörðun menntaráðs Reykjavíkurborgar að falla ekki frá sameiningu Hvassaleitisskóla og Álftamýrarskóla. Í tilkynningu frá stjórninni er ítrekað sú krafa að tillaga um sameiningu skólanna verði dregin til baka og sjálfstæði Hvassaleitisskóla tryggt. 15.4.2011 13:57
Íslenskt barn fær að leiða leikmann í Meistaradeildinni Íslensku barni mun gefast kostur á að komast í hóp barna alls staðar að úr Evrópu sem fylgja leikmönnum í úrslitaviðureign Meistaradeildarinnar í knattspyrnu, UEFA Champions League, út á Wembley leikvanginn þann 28. maí næstkomandi. Búast má við því að andrúmsloftið verði rafmagnað þegar úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram, en gera má ráð fyrir að 80 þúsund áhorfendur muni fagna leikmönnunum þegar þeir ganga inn á völlinn í einum mest spennandi knattspyrnuleik ársins. 15.4.2011 13:45
Sigmundur lauk BS prófi í viðskiptafræði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, lauk BS prófi frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands árið 2005 með fjölmiðlafræði sem aukagrein. Þetta kemur fram á vefsíðu Háskóla Íslands. 15.4.2011 13:24
Ætla sér að ganga frá nýjum samningum í dag Samningamenn Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins halda fast við að ganga frá nýjum kjarasamningum klukkan korter yfir fimm í dag, þótt enn sé óljóst hvort samið verður til skamms tíma eða þriggja ára. 15.4.2011 12:37
Um tíu manns greinst með nóróveirusýkinguna á Sjúkrahúsinu á Akureyri Nóróveirusýking er komin upp á Sjúkrahúsinu á Akureyri, búið er að loka lyfjalækningadeild tímabundið og skipta upp, hand- og bæklunardeild samkvæmt norðlenska miðlinum Vikudegi. 15.4.2011 12:07
Lilju virðist hafa snúist hugur Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkvöld útilokaði Lilja Mósesdóttir ekki að stofna nýjan stjórnmálaflokk. Í upphafi þingfundar í dag sagði hún þetta mikla spunafréttamennsku. Hins vegar vakti athygli að í máli hennar kom ekki fram að hún væri hætt að íhuga stofnun nýs flokks. 15.4.2011 12:05
Rafræn inneignarkort til bágstaddra - engir matarpokar Hjálparstarf kirkjunnar ætlar að gera róttækar breytingar á mataraðstoð sinni hérlendis um næstu mánaðarmót, meðal annars með því að úthluta rafrænum inneignarkortum en ekki matarpokum eins og tíðkast hefur. 15.4.2011 12:01
Upp úr sauð milli Ólínu og Ástu Ragnheiðar Það voru snarpar umræður um störf forseta Alþingis á þingfundi í morgun. Ólína Þorvarðardóttir sté í pontu og gerði athugasemd við málflutning Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem hún taldi að hefði borið á sig sakir. 15.4.2011 11:45