Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tekjuviðmið vegna afsláttar á fráveitugjöldum Reykjavíkurborg hefur birt við hvaða tekjur er miðað vegna afsláttar á fráveitugjöldum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega. Eitt af skilyrðum þess að geta nýtt afsláttinn er að viðkomandi eigi lögheimili í eigninni og sé þinglýstur eigandi hennar. 17.2.2011 14:59
Erfitt að skylmast við fræðslustjóra „Það er erfitt að skylmast um tölur við fræðslustjóra eða aðra fulltrúa borgarinnar þegar þeir velja að ræða við foreldra reykvískra barna í þoku blekkingar og leyndarhjúps," segir Guðrún Valdimarsdóttir, formaður SAMFOKS, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. 17.2.2011 14:52
Eldri borgarar og öryrkjar fá afslátt af fráveitugjöldum Borgarráð hefur samþykkt afslátt á fráveitugjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2011. Kostnaður vegna þessarar breytingar er talinn nema um 78 milljónum króna. 17.2.2011 14:15
Gjafmildu brúðhjónin: Gaman að gefa af sér „Það er gaman að geta gefið af sér. Það er besta brúðkaupsgjöfin, töldum við," segir hinn nýkvænti Friðrik Arilíusson í samtali við Vísi. Hann og Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir, eiginkona hans, gengu í það heilaga í Fríkirkjunni þann 27. nóvember síðastliðinn. 17.2.2011 14:14
Settu „spillingarstimpil“ á Alþingi í nótt Óþekktur aðili virðist hafa farið á stjá í nótt og merkt innganga Alþingis og Landsbankans í Austurstræti með Batman merkinu víðfræga. Aðilinn sendi frá sér yfirlýsingu undir yfirskriftinni „Alþingi fær spillingarstimpilinn“ sem á að skýra gjörninginn og fer yfirlýsingin hér á eftir: 17.2.2011 14:07
Opnað fyrir styrki úr Afrekskvennasjóði Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekskvennasjóð Íslandsbanka og ÍSÍ. Sjóðurinn var stofnaður í janúar 2007 með veglegu framlagi Íslandsbanka, en það er Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem stýrir honum. 17.2.2011 13:56
Í síbrotagæslu eftir innbrot Karl á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 16. mars að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu, var nýverið handtekinn eftir að hafa verið staðinn að verki við innbrot. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 17.2.2011 13:09
Heilaheill nýtur góðs af kanilsnúðadeginum Síðastliðna helgi var stóri kanilsnúðadagurinn haldinn hátíðlegur í IKEA. Markmiðið var að safna fé til styrktar samtökunum Heilaheill, sem vinnur að hagsmunamálum einstaklinga sem orðið hafa fyrir heilablóðfalli. 17.2.2011 13:04
Meirihluti húsgagna í Hörpunni verður íslenskur Búið er að velja húsgögn í tónlistar- og ráðstefnuhúsið og liggur nú fyrir að meirihluti almennra húsgagna í Hörpu verður íslenskur. Tilkynnt verður við athöfn í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ kl. 13:00 á morgun, föstudaginn 18. febrúar, hvaða hönnuðir og framleiðendur urðu hlutskarpastir við val á húsgöngum í Hörpu, samkvæmt útboði sem fram fór. 17.2.2011 12:21
Háskólinn heldur upp á 100 ára afmæli Á laugardaginn kemur býður Háskóli Íslands þjóðinni í heimsókn í tilefni af aldarafmæli skólans. Fjölbreytt dagskrá verður á háskólasvæðinu, þar sem í boði verða viðburðir, kynningar og uppákomur sem sýna vísindin í litríku og lifandi ljósi. Þar gefst kjörið tækifæri til að kynnast starfsemi Háskóla Íslands og þjónustu auk þess að skoða rannsóknastofur, tæki og búnað. 17.2.2011 12:04
Síbrotamaður úrskurðaður í gæslu Karl á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 16. mars að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn nýverið handtekinn eftir að hafa verið staðinn að verki við innbrot. 17.2.2011 11:51
Forsetinn tekur við undirskriftum á morgun Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur ákveðið að bjóða forsvarsmönnum kjósum.is, sem er undirskriftasöfnun vegna Icesave samningana á Bessastaði á morgun. 17.2.2011 11:39
Brúðhjón glöddu Barnaspítalann í stað þess að þiggja gjafir Ung brúðhjón, Friðrik Arilíusson og Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir sem giftu sig 27. nóvember síðastliðinn, kusu frekar að láta Barnaspítala Hringsins njóta stuðnings en fá gjafir í tilefni dagsins. 17.2.2011 10:55
Slapp ótrúlega vel eftir bílveltu Kona, sem var ein í jepplingi sínum, slapp ótrúlega vel, að sögn vitna, þegar bíll hennar rann út af veginum á móts við bæinn Eiði í Kjós, við norðanverðan Hvalfjörð, upp úr klukkan tíu í morgun. Jepplingurinn fór nokkrar veltur áður en hann nam staðar og komst konan af sjálfdáðum út úr flakinu og upp á veg. Þar stöðvaði vegfarandi bíl sinn og tók hana upp í , en rétt í þann mund bar að þriðja bílinn, sem snérist í óvæntri hálkunni og hafnaði utan vegar. Engan sakaði þar um borð. Sjúkrabíll sótti konuna og flutti hana á slysadeild til aðhlynningar, en hún mun ekki vera alvarlega meidd.- 17.2.2011 10:32
Borhljóðin berast um heiminn Bygging tónlistahússins Hörpu var til umfjöllunar í menningarþætti BBC World Service í gær en þar var rætt við Steinunni Birnu Ragnarsdóttur um framtíðarstefnu þess og menningarlandslagið á Íslandi. 17.2.2011 10:14
Segir niðurskurð til grunnskóla nema 200 milljónum ekki 800 Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri í Reykjavík, segir misskilnings gæta þegar því er haldið fram að hagræða þurfi í rekstri grunnskóla Reykjavíkurborgar um 800 milljónir. Því hefur verið haldið fram í opinberri umræðu að í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar hafi staðið til að skera niður um 1000 milljónir í rekstri grunnskóla. Nú standi hins vegar eftir 800 milljóna króna niðurskurður eftir að Reykjavíkurborg hafi, fyrr í vikunni, ákveðið að auka fjárheimildir um 200 milljónir. 17.2.2011 09:52
Sala tóbaks til unglinga á undanhaldi Aldrei hafa jafn fáir söluaðilar selt unglingum tóbak í Hafnarfirði frá því núverandi tóbaksvarnarlög voru sett árið 2001. Þetta er leiðir ný könnun í ljós. 17.2.2011 09:41
Kaka ársins: Skyrterta með hvítu súkkulaði og hindberjum Kaka ársins 2011 hefur verið valin. Sigurður M. Guðjónsson hjá Bernhöftsbakaríi bar sigur úr býtum í keppni um Köku ársins sem Landssamband bakarameistara efnir árlega til. Sala á kökunni í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara hefst um næstu helgi, konudagshelgina. 17.2.2011 09:36
Bannað að fullyrða að Apple fái ekki vírusa Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu frá desember síðastliðnum um að Skakkiturninn ehf. hefði brotið gegn ákvæðum laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu þar sem hann gat ekki fært sönnur á fullyrðinguna „engir vírusar" í auglýsingum fyrirtækisins á Apple fartölvum. Fyrirtækinu hefur verið bannað að auglýsa með þessum hætti. 17.2.2011 09:16
Fjórir verið teknir með fíkniefni innvortis Fjórir farþegar hafa verið teknir með fíkniefni innvortis af tollvörðum á Keflavíkurflugvelli það sem af er þessu ári. Tveir af þessum farþegum komu frá Kaupmannahöfn og tveir frá London. Um er að ræða tvo karla og tvær konur. Tveir eru Litháar, einn Dani og einn Íslendingur. 17.2.2011 09:12
Börn afskipt í ofbeldismálum Tvö þúsund börn á Íslandi hið minnsta verða á hverju ári vitni að heimilisofbeldi. Þessi stóri hópur er hins vegar afskiptur og hafa félagsmálayfirvöld ekki sinnt honum. Þær stofnanir sem bera ábyrgð á börnum sem búa við þessar aðstæður hafa takmarkað samráð sín á milli og fagfólki kom á óvart að málin væru í þeim ólestri sem raun ber vitni. 17.2.2011 09:00
Vilja afturkalla verklagsreglur Nýtt félag dagforeldra í Reykjavík, Barnið, var stofnað síðustu viku. Sigrún Edda Laufdal, formaður Barnsins, segir að það hafi lengi vantað slíkt hagsmunafélag. 17.2.2011 08:00
Lögin óvenjulega fljótt til Bessastaða Hin nýsamþykktu Icesave-lög bárust forseta Íslands innan við klukkustund eftir að þau voru samþykkt á Alþingi. „Það er mjög óvenjulegt,“ segir Örnólfur Thorsson forsetaritari. 17.2.2011 08:00
Litháar komu saman í Gróttu Þjóðhátíðardagur Litháa var haldinn hátíðlegur í Reykjavík í gær. Velunnarar Litháens af margvíslegu þjóðerni söfnuðust saman við Gróttu af því tilefni. Börn og fullorðnir sungu saman þjóðsöng Litháens og áttu saman skemmtilega stund. 17.2.2011 07:00
60 vinna í sendiráði Bandaríkjanna Samtals 214 starfsmenn eru í þeim fjórtán sendiráðum sem erlend ríki, auk Evrópusambandsins, starfrækja á Íslandi. Í þeim vinna 140 útlendingar og 74 Íslendingar. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur Framsóknarflokki. 17.2.2011 07:00
Konstantín II. til Íslands í dag Konstantín II., landlaus konungur Grikklands, kemur til Íslands í dag og dvelur fram yfir helgi. Hann sækir hér stjórnarfund Alþjóðasiglingasambandsins sem fram fer í Reykjavík um helgina. 17.2.2011 06:00
Icesave afgreitt með öruggum meirihluta Icesave-frumvarpið var samþykkt sem lög frá Alþingi í gær. 44 þingmenn greiddu þá atkvæði með frumvarpinu, sextán voru á móti en þrír sátu hjá. Áður höfðu tvær breytingartillögur um að málið yrði borið undir þjóðaratkvæðagreiðslu verið felldar með 33 atkvæðum gegn 30. 17.2.2011 06:00
Engar tölur til um brjóstastækkanir Landlæknisembættið hefur engar tölulegar upplýsingar um fjölda brjóstastækkana, né annarra fegrunaraðgerða, sem framkvæmdar eru hér á landi. 17.2.2011 05:30
Hvað kosta þrif á glerhjúpnum? Mörður Árnason Samfylkingunni hefur lagt fram fyrirspurn til mennta- og menningarmálaráðherra um Hörpuna. Spyr hann meðal annars um starfssvið þeirra átta félaga sem koma að framkvæmdum og rekstri, veltu, starfsmannafjölda, stjórnarmenn, þóknanir þeirra, kostnaðaráætlanir fyrir einstaka verkþætti, fjármögnun og opinber framlög. 17.2.2011 05:00
Ekki verður hægt að fletta sér upp Ekki stendur til að gera fólki kleift að slá nafni sínu eða kennitölu upp á vefnum kjosum.is, þar sem safnað er undirskriftum fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave, svo það geti gengið úr skugga um að það hafi ekki verið skráð á listann að sér forspurðu. Þetta segir Hallur Hallsson, einn þeirra sem standa að undirskriftasöfnuninni. 17.2.2011 04:00
Börn sem búa við heimilisofbeldi fá litla sem enga aðstoð Stuðningi við börn sem búa við heimilisofbeldi er verulega ábótavant í Reykjavík. Þetta leiðir ný rannsókn í ljós. Þar segir að lítið sem ekkert samráð virðist vera milli stofnanna, ekki er rætt við börnin eða á þau hlustað. Úrræðaleysi virðist einkenna allt ferlið. 16.2.2011 18:34
Móðir níumennings: „Ísland er land fasismans“ Lára V. Júlíusdóttir saksóknari í níumenningarmálinu hefur ekki ákveðið hvort hún muni áfrýja málinu til hæstaréttar. Níumenningarnir svokölluðu voru sýknaðir í Héraðsdómi í dag fyrir árás á Alþingi en fjórir þeirra sakfelldir fyrir brot gegn valdstjórninni. 16.2.2011 18:30
Mun hafa jákvæð áhrif á stöðu landsins „Þessi niðurstaða, að svona sterkur meirihluti samþykki samninginn, er mikilvæg og vonandi sér nú senn fyrir endann á þessu erfiða máli. Lausn þess mun tvímælalaust hafa jákvæð áhrif á stöðu landsins og greiða götu þess að við komumst í eðlileg samskipti við umheiminn og þar með endurreisnar í efnahagsmálum " segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, á vef fjármálaráðuneytisins. 16.2.2011 17:19
Nímenningarnir segja dóminn til málamynda Nímenningarnir sem voru sakaðir um árás gegn Alþingi segja að dómurinn sem féll í héraðsdómi í morgun sé málamyndadómur. Hann sé í engu samræmi við þær alvarlegu ákærur sem þau hafi setið undir síðasta árið. „Hann er nógu mildur til að sefa mögulega reiði fólks en þó það harður að hann fullnægir refsiþörf ríkisvaldsins, breiðir yfir skömm þess og ýtir stoðum undir áframhaldandi ofsóknir í garð pólitískra andstæðinga þess,“ segir í yfirlýsingunni. 16.2.2011 16:19
Aurora styrkir sviðslistir um 10 milljónir Velgerðarsjóðurinn Aurora, sem stofnsettur var árið 2007 af hjónunum Ólafi Ólafssyni fyrrum stjórnarformanni Samskipa og Ingibjörgu Kristjánsdóttur, hyggst úthluta 10 milljónum kr. til sviðlistaverkefna á Íslandi. Úthlutunarnefndina skipa Viðar Eggertsson, Ingibjörg Þórisdóttir og Auður Einarsdóttir. Opið er fyrir umsóknir á vef sjóðsins. 16.2.2011 15:52
Óvenju löghlýðnir ökumenn á Reykjanesbrautinni Brot 21 ökumanns var myndað á Reykjanesbraut í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, það er í Hvassahrauni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 277 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 103 km/klst en þarna er 90 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 110 en athygli vekur að brotahlutfallið í gær er mun lægra en lögreglan á að venjast á þessum stað, eða 14-19%. 16.2.2011 15:35
Icesave frumvarpið samþykkt á Alþingi Icesave frumvarpið var samþykkt á Alþingi nú á fjórða tímanum. Alls greiddu 44 þingmenn frumvarpinu atkvæði sitt, 16 greiddu á móti en þrír sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Tvær tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslur voru felldar með 33 atkvæðum gegn 30. 16.2.2011 15:30
73 ökumenn yfir hámarkshraða á Eiðsgranda Brot 73 ökumanna voru mynduð á Eiðsgranda í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eiðsgranda í vesturátt, að Seilugranda. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 273 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 79. Á umræddum vegarkafla varð nýverið umferðaróhapp og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin. 16.2.2011 15:25
Tilkynna árásir á Kjósum.is til Ríkislögreglustjóra Forsvarsmenn síðunnar Kjósum.is hafa haft samband við Ríkislögreglustjóra vegna árása á síðuna. „Vegna ítrekaðra árása einstaklings og vina hans hefur verið haft samband við Ríkislögreglustjóra. Öllum tilraunum til árása verður fylgt eftir með mesta mögulega þunga,“ segir í tilkynningu á síðunni. Ekki er tekið fram um hvaða einstakling er þarna að ræða. 16.2.2011 15:15
Mastur rís hjá Búrfellsvirkjun Landsvirkjun er að reisa 50 metra hátt mastur fyrir vindmælingar í nágrenni Búrfellsvirkjunar. Framkvæmdirnar eru til að kanna möguleika á nýtingu vindorku á Suðurlandsundirlendinu. 16.2.2011 15:00
Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu felld Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave samningana var felld á Alþingi í dag. Allir þingmenn stjórnarandstöðunnar, sem greiddu atkvæði, studdu tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu. Það gerðu þau Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir, þingmenn VG, einnig. Aðrir þingmenn úr stjórnarliðinu greiddu hins vegar atkvæði gegn tillögunni. Tvær breytingatillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu voru lagðar fram og nú er búið að greiða atkvæði um þá fyrri. 16.2.2011 14:37
Bjarni vill þjóðaratkvæðagreiðslu Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, styður tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu í Icesave málinu. Þetta kom fram í máli Bjarna í dag. Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, tók undir með Bjarna og benti á nýlega skoðanakönnun MMR sem benti til þess að um 62% almennings vildi þjóðaratkvæðagreiðslu. Guðlaugur Þór Þórðarson tók einnig undir með Bjarna. 16.2.2011 14:10
Ísland er eitt án mjólkurbanka Af Norðurlöndunum er Ísland eina landið sem ekki hefur komið upp mjólkurbanka þar sem hægt væri að sækja brjóstamjólk handa fyrirburum í neyðartilfellum. Þetta segir Arnheiður Sigurðardóttir, lýðheilsufræðingur og brjóstaráðgjafarráðgjafi. Hún bendir á að hér á landi séu bara 13 prósent ársgamalla barna enn á brjósti, samanborið við 40 prósent í Noregi. 16.2.2011 14:00
Íslendingar koma fram sem fullvalda þjóð „Sú samningalota sem skilaði þeim samningum sem við erum hér að greiða atkvæði um er fyrsta samningalotan vegna icesave deilunnar sem við íslendingar komum fram eins og fullvalda þjóð,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þegar atkvæðagreiðsla um Icesave hófst í dag. 16.2.2011 13:53
Bart Simpson á móti Icesave á kjósum.is Teitur Atlason bloggari á DV hefur sýnt fram á að auðvelt sé að svindla á vefsíðunni kjósum.is. Sjálfur hefur hann kosið tvisvar á síðunni, síðast undir nafninu Bart Simpson. 16.2.2011 13:36