Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fleiri láta fjarlægja tattoo Fjöldi þeirra sem láta fjarlægja húðflúr hér á landi hefur aukist töluvert síðustu ár og er búist við frekari aukningu á næstu árum. Yfirleitt er laser aðferðum beitt en þær geta verið bæði sársaukafullar, kostnaðarsamar og tímafrekar. Þetta er svipuð þróun og Í Bandaríkjunum þar sem aukningin hefur orðið gífurleg. 19.9.2007 12:49
Segir Kompás þátt ósmekklegan Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður mannsins sem Kompás fjallaði um í þætti sínum í gær, segir að umbjóðandi sinn kannist ekki við tvær þeirra stúlkna sem fjallað var um í þættinum. 19.9.2007 12:31
Lífetanólstöðin ekki opin almenningi strax Lífetanólstöðin sem opnuð var fyrir tveimur dögum verður ekki opin almenningi fyrr en eftir nokkrar vikur. Forstjóri Brimborgar segir að um tilraunaverkefni sé að ræða og eftir eigi að að kanna, tollafyrirkomulag á tvíorkubílum og etanóli, áhuga almennings og ekki síður áhuga olíufélaganna. 19.9.2007 12:16
Töf á skráningu hlutafjár Straums í evrum Töf verður á fyrirhugaðri skráningu hlutafjár Straums í evrum vegna lögfræðilega athugasemda sem Seðlabankinn gerði um framkvæmdina. Forsvarsmenn Straums vísa því alfarið á bug að Seðlabankinn reyni að setja félaginu hömlur í þessum efnum. 19.9.2007 12:14
Mótvægisaðgerðirnar brandari Mótvægisaðgerðir ríkistjórnarinnar eru brandari, segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Árni Johnsen. Hann segir ekki samræmi í aðgerðunum og óeðlilegt að taka Vestfirði fram yfir aðrar sjávarbyggðir. 19.9.2007 12:00
Breyttu hóruhúsi í bænahús Í Ármúla 23 eru nú reglulega haldnar fjölmennar samkomur fólks sem hefur frelsast til guðstrúar. Flestir eiga safnaðarmeðlimirnir það sameiginlegt að hafa lent upp á kant við lögin fyrr á lífsleiðinni. Húsnæðið sem hýsir bænahúsið var mikið í fréttum fyrir nokkru þegar því var slegið upp að þar væri rekið vændishús. 19.9.2007 11:00
Vilja reka Friðarstofnun Reykjavíkur Samtök hernaðarandstæðinga ætla að bjóða fulltrúum borgarstjórnar til formlegra viðræðna á næstu dögum, með það að markmiði að samtökin taki að sér að reka Friðarstofnun Reykjavíkur. 19.9.2007 10:53
25.000 fm miðborgarkjarni í bígerð Á morgunverðarfundi í morgun um fyrirhugaðann miðborgarkjarna á Barónsreit kom fram að gert er ráð fyrir um 25.000 fermetra rými undir verslanir og þjónustu þar sem m.a. verður stór matvöruverslun, alþjóðlegar verslanir með þekktum vörumerkjum, kvikmyndahús og veitingastaðir. Þá er gert ráð fyrir bílakjallara á fjórum hæðum. 19.9.2007 10:42
Varað við íslensku leiðinni Framkvæmdastjóri samtaka veiðimanna á Grænlandi (KNAPK) varar í viðtali við grænlenska útvarpið sterklega við fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins. Það muni leiða til ástands eins og á Íslandi þar sem nokkrir barónar eigi allan kvótann. 19.9.2007 10:33
GSM allan Hringveginn Stöðugt bætast við nýir sendar fyrir GSM-farsímaþjónustuna á Hringveginum. Samgönguráðuneytið áætlar að í árslok verði boðið uppá GSM-þjónustu á öllum Hringveginum. 19.9.2007 10:28
Ristu upp blaðaböggla Margir borgarbúar fengu ekki dagblöðin sín í morgun því einhverjir spellvirkjar tóku sig til í nótt, fóru víða um borgina og ristu upp blaðaböggla, sem biðu blaðburðarfólksins. 19.9.2007 08:44
Bifhjólamaður á gjörgæslu Bifhjólamaður slasaðist á Fáskrúðsfirði í dag þegar hann féll af hjóli sínu á Skólavegi laust fyrir klukkan fimm í dag. Maðurinn, sem er um þrítugt, var fluttur með sjúkrabíl til Egilsstaða og þaðan með sjúkraflugi á Landspítalann í Fossvogi. Hann er nú á gjörgæslu en er ekki talinn alvarlega slasaður. 18.9.2007 21:11
Kristjana sigraði í Veðravon Um fimm þúsund Íslendingar tóku þátt Veðravon, veðurleik veðurstofu Stöðvar 2 og Vísis. Sigurvegarinn í leiknum var Kristjana Margrét Harðardóttir, Reykjavík, en hún reyndist ötulasti veðurathugunarmaðurinn enda gerði hún 93 veðurathuganir af 93 mögulegum. 18.9.2007 20:22
Ver barnaníðinga en sætir ákæru sjálfur um kynferðisafbrot Lögmaður sem er ákærður um kynferðisafbrot gegn fjórum unglingsstúlkum hefur tekið að sér að verja meinta barnaníðinga þótt hann sæti sjálfur rannsókn vegna meintra kynferðisafbrota. 18.9.2007 18:45
Íslendingar sitja lengi á skólabekk Ástralir og Íslendingar sitja lengst allra á skólabekk og engin þjóð ver jafn miklu af þjóðartekjum í að koma börnunum í gegnum grunn- og framhaldsskóla en Íslendingar. 18.9.2007 18:42
Vilja hætta við smíði Grímseyjarferju Vaxandi stuðningur er innan samgöngunefndar alþingis við að smíði fyrirhugaðrar Grímseyjarferju verði hætt. Grímseyingar segja skipið ekki henta vegna veðurs og ónógrar burðargetu. 18.9.2007 18:39
Vanhæfur? Bæjarstjórn Kópavogs hefur falið bæjarlögmanni að kanna hvort eðlilega hafi verið staðið að ráðningu aðstoðarskólastjóra í bænum. 18.9.2007 18:32
Brú selur Nokia allt hlutafé í Enpocket Nokia er að kaupa allt hlutafé í Enpocket, en Brú, dótturfyrirtæki Straums-Burðaráss er einn stærsti hluthafinn þar. Um það bil fimmtíu Íslendingar eiga hlut í félaginu. 18.9.2007 18:30
Hlíðaskóli fyrirmynd á Norðurlöndum í kennslu fyrir heyrnarskerta Hlíðaskóli hefur unnið markvisst frumkvöðlastarf í skólamálum á Íslandi á þann veg að heyrnarskert, heyrnarlaus og daufblind börn taka þátt í kennslustundum með heyrandi og sjáandi nemendum skólans. 18.9.2007 18:30
Ákært í fjórum líkamsárásarmálum í Reykjanesbæ Fjórar ákærur vegna líkamsárása voru þingfestar í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Allar árásirnar áttu sér stað í Reykjanesbæ. Nokkra athygli vekur að rúm þrjú ár eru liðin frá einni árásinni. 18.9.2007 17:47
Ekið á barn við Lönguhlíð Ekið var á barn á mótum Lönguhlíðar og Mávahlíðar laust fyrir klukkan fimm í dag. Í fyrstu var óttast að barnið hefði slasast alvarlega. 18.9.2007 17:07
Fáfnisfauti týndur Jón Trausti Lúthersson, sem kenndur er við bifhjólasamtökin Fáfni, átti að mæta fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Samkvæmt heimildum Vísis er hann ákærður fyrir tvær líkamsárásir sem áttu sér stað í Keflavík. 18.9.2007 17:00
Opna Schengen fyrir ríki Austur-Evrópu Stefnt er að því að aðildarríki Evrópusambandsins í Austur-Evrópu fái fullan aðgang að Schengen-samstarfinu á næsta ári. Þetta var meðal annars sem kom fram á ráðherrafundi um Schengen málefni í Brussel í dag. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sat fundinn fyrir hönd Íslands. 18.9.2007 16:59
Jónas: Borga ekki fyrr en ég hef lokið afplánun Jónas Garðarsson, sem Hæstiréttur hefur dæmt í þriggja ára fangelsi og til að greiða 10 milljónir í skaðabætur fyrir að vera valdur að dauða Matthildar Viktoríu Harðardóttur og Friðriks Hermannsonar þegar skemmtibáturinn Harpa sökk í Viðeyjarsundi, segist ekki ætla að greiða krónu í skaðabætur fyrr en hann hafi lokið afplánun sinni. 18.9.2007 16:40
Tölvupóstar frá svikahröppum sífellt grófari Mörg þúsund tilkynningar hafa borist ríkislögreglustjóra það sem af er þessu ári vegna tölvupósta þar sem reynt er að hafa af fólki fé. Bréfin verða sífellt grófari að sögn aðstoðarríkislögreglustjóra og í þeim nýjustu er fólki hótað lífláti. 18.9.2007 16:22
Reyna að forðast reynslulausn barnaníðings Brynjar Níelsson, skipaður verjandi Ágústs Magnússonar, segir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu dragi að gefa út kæru á hendur Ágústi, dæmdum barnaníðingi, til að koma í veg fyrir að hann fái reynslulausn úr fangelsi. 18.9.2007 15:34
Lögreglan varar við svikapóstum Ríkislögreglustjóri hefur gefið út viðvörun vegna tölvupósta frá svikahröppum sem innihalda morðhótanir. Í póstunum er fólki hótað lífláti greiði það ekki háa upphæð inn á bankareikning erlendis. Nokkuð hefur borið á því að Íslendingar hafi fengið slíkar hótanir í gegnum tölvupóst að sögn lögreglu. Fólk er hvatt til að svara ekki þessum bréfum. 18.9.2007 15:34
Ekkert spurst til brottrekna Rússans Ekkert hefur spurst til rússneska mannsins sem rekinn var úr landi í síðustu viku. Eiginkona hans óttast að hann verði settur í fangelsi í Rússlandi þar sem hann er frá Tjeténíu. Lögreglan meinaði henni að kveðja hann á Leifsstöð. 18.9.2007 14:58
Hrakfalladagur í Reykjavík Piltur á grunnskólaaldri handleggsbrotnaði þegar hann féll af þaki fyrirtækis í austurborginni í gær. Talið er að pilturinn hafi verið að príla með fyrrgreindum afleiðingum. 18.9.2007 14:00
Fékk fálkaorðu fyrir rannsóknir á náttúru Íslands Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sæmdi í gær dr. Jack Ives riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir rannsóknir á náttúru landsins og samvinnu við íslenska fræðimenn. 18.9.2007 13:49
Nágrannar ósáttir við flutning hússins að Bergstaðastræti Verslunareigendur og íbúar við Klapparstíg eru ósáttir við það hversu illa flutningur hússins frá Hverfisgötu að Bergstaðastræti var undirbúinn. Ari Magnússon, eigandi verslunarinnar Antíkmunir, telur að fólk í nágrenninu hefði átt að vera aðvarað. 18.9.2007 13:02
Laun hækka mest á Norðurlöndum Kjarasamningar á öllum Norðurlöndum hafa verið endurnýjaðir á þessu ári að Íslandi undanskyldu, eftir því sem fram kemur i frétt á vef Samtaka atvinnulífsins. 18.9.2007 12:48
Tólf tíma tók að flytja húsið Um tólf tíma tók að flytja tæplega hundrað ára gamalt hús frá Hverfisgötu yfir á Bergastaðastræti í Reykjavík í nótt. Eigandi verktakafyrirtækis sem sá um flutninginn segir þrengsli í miðbænum hafa valdið töfunum. 18.9.2007 12:42
Um 40 ólöglegir iPhone símar í notkun á Íslandi Samkvæmt heimildum Vísis eru um fjörutíu óskráðir og ólöglegir iPhone símar í notkun hér á landi. Símarnir voru keyptir í Bandaríkjunum en vegna samnings sem Apple gerði við farsímafyrirtæki þar í landi eru símarnir læstir fyrir notkun erlendis. Tölvuhakkarar hafa fundið leið til að komast framhjá þessari læsingu og lekið þeim upplýsingum á netið. Svo virðirst sem allnokkrir óþreyjufullir aðilar hér á landi hafi nýtt sér þerssar upplýsingar, aflæst Iphone símanum og hafið notkun á honum hér á landi. 18.9.2007 12:16
Ísland í hópi menntuðustu OECD þjóða Ísland er meðal níu landa innan OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnar, þar sem fjórir af hverjum tíu útskrifast úr háskóla. 18.9.2007 12:05
SBA - Norðurleið, Hagvagnar og Kynnisferðir fá ekki að sameinast Samkeppniseftilitið hefur úrskurðað að hópferðafyrirtækin SBA - Norðurleið, Hagvagnar og Kynnisferðir fái ekki að sameinast. Í lok marsmánaðar síðastliðinn keypti eignarhaldsfélagið Reynimelur ehf., sem er í eigu SBA-Norðurleiðar og Hagvagna fyrirtækið Kynnisferðir ehf. af FL Group. Viðskiptin voru tilkynnt Samkeppniseftirlitinu sem samruni. 18.9.2007 10:49
Afkoma ríkissjóðs versnar Á öðrum ársfjórðungi 2007 nam tekjuafgangur hins opinbera 9,7 milljörðum króna en það er nokkuð óhagstæðari afkoma en á öðrum ársfjórðungi 2006 er hann mældist 15,7 milljarðar króna. 18.9.2007 09:15
Alvarlega slasaður eftir bílveltu Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti í kvöld mann til Reykjavíkur eftir bílslys í Reykhólasveit. Að sögn lögreglu er maðurinn alvarlega slasaður. Tildrög slyssins urðu með þeim hætti að maðurinn, sem var einn í bíl sínum, ók út af veginum við Klukkufell með þeim afleiðingum að bíllinn valt. 17.9.2007 19:13
Grindvíkingar undrandi og óánægðir Á aukabæjarstjórnarfundi í Grindavík sem haldinn var í dag lýsti bæjarstjórnin yfir undrun og óánægju sinni með mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna aflaskerðingar á þorski. Bæjarfulltrúarnir segja að Grindavík verði verst úti vegna skerðingarinnar en þrátt fyrir það sé hvergi minnst á bæinn í boðuðum aðgerðum. 17.9.2007 18:46
Ók yfir á rauðu Harður árekstur varð á mótum Miklubrautar og Háaleitisbratuar laust fyrir klukkan hálf sex í kvöld. Þrennt lenti í árekstrinum og þurfti að flytja farþega annarar bifreiðarinnar á slysadeild. Slysið varð með þeim hætti að annar ökumaðurinn ók yfir á rauðu ljósi. 17.9.2007 18:35
Vill loka klukkan tvö Stefán Eiríksson, lögreglustjóri Höfuðborgarsvæðisins, boðar stórhertar aðgerðir lögreglu í miðborginni. Hann vill láta takmarka opnunartíma skemmtistaða í miðbænum til klukkan tvö á nóttunni. Stefán segir að þeir staðir sem vilji hafa opið lengur verði að vera annarsstaðar í borginni. Þetta kom fram á Miðborgarþingi. 17.9.2007 18:21
Leitin að Hörpunni heldur áfram Jónas Garðarsson er á leið í fangelsi. Hann mun afplána þriggja ára dóm fyrir að bera ábyrgð á dauða þeirra Friðriks Hermannssonar og Matthildar Harðardóttur í sjóslysi í september 2005 þegar bátur hans Harpan steytti á skeri. Hér fyrir neðan er málið rakið frá nóttinni örlagaríku til dagsins í dag. 17.9.2007 17:32
Treystir Svöfu fyrir milljarðinum Róbert Wessman, forstjóri Actavis, hefur ákveðið að leggja fram 1 milljarð króna sem hlutafé og framlag í Þróunarsjóð Háskólans í Reykjavík, sem verið er að stofna. Róbert sagði í samtali við Vísi að hann teldi mikil tækifæri til þess að byggja upp samkeppnishæft alþjóðlegt háskólaumhverfi á Íslandi. 17.9.2007 17:24
Saklaus maður sviptur frelsi Liðlega tvítugur karlmaður hefur stefnt dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins vegna ólögmætrar frelsissviptingar. Maðurinn var stöðvaður af lögreglu í Árnessýslu að morgni þriðjudagsins 22. mars 2005 vegna of hraðs aksturs. Hann var beðinn að koma í lögreglubifreið þar sem hann játaði brot sín. Hann var síðar sakaður um aðild að ólöglegri veru og vinnu útlendinga. 17.9.2007 16:52
Slagsmál unglinga mynduð og sett á Netið Slagsmál á meðal reykvískra unglinga voru tekin upp á myndband og sett á Netið. Samkvæmt heimildum Vísis eru unglingarnir á aldrinum 14-15 ára og nemendur í Réttarholtsskóla. Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis, hafði ekki séð myndbandið þegar blaðamaður Vísis benti henni á það. 17.9.2007 16:45