Fleiri fréttir Ný björgunarmiðstöð í Hafnarfirði Ný 2000 m² björgunar- og slysavarnarmiðstöð Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og Slysavarnadeildarinnar Hraunprýði verður reist í Hafnarfirði á næstunni. Með byggingunni mun öll starfsemi Björgunarsveitar Hafnarfjarðar komast undir eitt þak. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna í dag á Hvaleyrarbraut 32, við gamla bátalónið. 26.2.2007 11:58 Heimaunnar afurðir "Beint frá býli" Undanfarin tvö ár hefur vinnuhópur í samvinnu við bændur og aðra hagsmunaaðila unnið að því að gera vinnslu og sölu á heimaunnum afurðum að raunhæfum kosti fyrir bændur og neytendur. Verkefnið gengur undir nafninu "Beint frá býli" og verður heimasíða þess www.beintfrabyli.is opnuð á kynningarfundi á Akureyri á morgun. 26.2.2007 11:41 Mikilvægi undirbúnings við sýningar erlendis Útflutningsráð stendur fyrir námskeiði á Hótel Nordica á morgun um undirbúning og eftirfylgni við sýningar í útlöndum. Markmiðið er að undirstrika mikilvægi þessara þátta fyrir stjórnendur og starfsfólk útflutningsfyrirtækja auk þess að miðla reynslu annarra. 26.2.2007 11:08 Davíð kallaði forsvarsmenn Baugs glæpamenn Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóri, kallaði forsvarsmenn Baugs glæpamenn sem væru á leið í fangelsi á fundi með Hreini Loftssyni, stjórnarformanni Baugs, í Lundúnum í janúar 2002. Frá þessu greindi Hreinn í réttarsal í morgun. Davíð sagðist einnig algjörlega andvígur því að íslensku bankarnir styddu Baug í áhættufjárfestingum erlendis. 26.2.2007 10:45 Forseta Úganda umhugað um heilsu Valgerðar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra lenti í þrumuveðri á bát á Viktoríuvatni í Úganda þar sem hún var á ferð ásamt íslenskri sendinefnd. Forseti Úganda Yoweri Museveni var umhugað um heilsu hennar og hringdi til að spyrjast fyrir um heilsu Valgerðar eftir ferðina. 26.2.2007 10:35 Hreinn í réttarsal í dag Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, er yfirheyrður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sem vitni í Baugsmálinu. Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í síðustu viku að Baugsmálið væri sprottið upp af pólitískri óvild í garð fyrirtækisins og það sem fram kom á fundi Hreins og Davíðs Oddssonar sönnun um það. 26.2.2007 09:53 Engin götuljós í miðbæ og á Seltjarnarnesi 25.2.2007 20:10 Segja þúsundir eiga mikið undir álveri í Straumsvík Samtökin Hagur Hafnarfjarðar sem berjast fyrir stækkun álvers í Straumsvík voru kynnt í dag en þau telja að einhliða og villandi áróður hafi verið rekinn gegn álversstækkun. Talsmaður samtakanna krefst þess að stjórnmálamenn í Hafnarfirði gefi upp afstöðu sína til málsins og bendir á að þúsundir Hafnfirðinga sæki lifibrauð sitt með beinum eða óbeinum hætti til álversins. 25.2.2007 19:43 Gretti mistókst Drangeyjarsund Grettir hefur í annað sinn reynt við Drangeyjarsund. Að þessu sinni var það kuldaskræfan Grettir, sem komst þó aðeins örfáa metra þrátt fyrir að vera í þurrbúningi. 25.2.2007 19:33 Sunndlendingar ekki endilega mestu skúrkarnir Ætla mætti að Sunnlendingar séu mestu lögbrjótar landsins, en ákærumál miðað við íbúatölu eru tvöfalt fleiri þar en í öðrum landshlutum. Sýslumaðurinn á Selfossi segir að skýra megi þetta með góðri löggæslu og eftirfylgni en bendir þó á að mikil sumarhúsabyggð og gegnumstreymi fólks geti legið að baki. 25.2.2007 19:32 Hugað að breyttri nýtingu á Keflavíkurflugvelli Íslenskar farþegaþotur eru á ný farnar að leggja við gömlu flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Talsmaður Flugmálastjórnar segir svæðið þar í kring afar verðmætt fyrir flugstarfsemi. Þá er áformað að opna þriðju flugbraut vallarins, sem myndi bæta enn frekar rekstraröryggi flugs, ekki síst innanlandsflugs. 25.2.2007 19:29 Jakob Frímann hættur í Samfylkingunni Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og varaþingmaður Samfylkingarinnar, tilkynnti í Silfri Egils á Stöð 2 í dag að hann hefði sagt sig úr flokknum. Hann skipaði 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður við síðustu þingkosningar og hefur eini sinni tekið sæti á Alþingi. 25.2.2007 19:24 Steingrímur J. vill netlöggu Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, vill setja á fót netlöggu, til þess að hindra aðgang að klámi og annarri óáran, á netinu. Steingrímur lét þessi orð falli í Silfri Egils á Stöð 2 í dag. Það var verið að ræða um klámráðstefnuna sem ekki fékk inni á Íslandi, og Egill spurði Steingrím hvort hann vildi þá ekki ganga lengra og skera upp herör gegn öllu klámi. 25.2.2007 16:29 Vilja að Ingibjörg Sólrún verði forsætisráðherra Kvennahreyfing Samfylkingarinnar samþykkti á fundi sínum í dag að skora á þjóðina að nýta það sögulega tækifæri sem gefst í vor til að gera Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að fyrsta kvenforsætisráðherra Íslands. Verði af því lofar Kvennahreyfingin henni fullum stuðningi til þess meðal annars að; · Gera jafnréttissjónarmið að rauðum þræði í allri stefnumótun stjórnvalda og fela forsætisráðuneytinu ábyrgð á þeim málaflokki. 25.2.2007 15:33 Stóriðjuframkvæmdir verða stöðvaðar Vinstri græn vanda ekki ríkisstjórninni kveðjurnar í landsfundarályktun sinni. Talað er um valdahroka og ólýðræðisleg vinnubrögð hennar og að hún hafi ráðists í miklar virkjunarframkvæmdir með geigvænlegum afleiðingum fyrir íslenska náttúru og efnahagslíf, til þess að selja raforku á útsöluverði til erlendra álhringa. Vinstri græn boða betri tíð ef þau komast í ríkisstjórn, og er þar af ýmsu að taka. 25.2.2007 14:02 Jakob Frímann úr Samfylkingunni Jakob Frímann Magnússon tónlistamaður og varaþingmaður tilkynnti í sjónvarpsþættinum Silfur Egils í dag að hann hefði sagt sig úr Samfylkingunni. Jakob Frímann, sem kunnastur er fyrir að vera einn af Stuðmönnum, hefur einu sinni tekið sæti á Alþingi, í desember árið 2004. 25.2.2007 13:37 Sjálfsagt að skoða bankana Pétur Blöndal, formaður efnahags- og viðskiptanefndar telur sjálfsagt að skoða samkeppni bankanna hér á landi í ljósi þess að gjaldtaka þeirra af lánveitingum er miklu hærri hérlendis en í útibúum sömu banka í Svíþjóð og Noregi. 25.2.2007 13:09 Markar stefnu Evrópuráðsins Stefán Lárus Stefánsson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, hefur verið skipaður formaður í stefnumörkunarnefnd ráðherranefndar Evrópuráðins. Skipun þessi fór fram samkvæmt ósk fastafulltrúa San Marínó sem nú gegnir formennsku í Evrópuráðinu. 25.2.2007 12:21 Kolbrún leiðir Frjálslynda í SV kjördæmi Kolbrún Stefánsdóttir ritari Frjálslynda flokksins mun leiða lista flokksins í Suðvestur kjördæmi. Kolbrún starfar nú sem framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar. Hún var kjörin ritari Frjálslynda flokksins á landsþingi flokksins sem haldið var í lok mars á síðasta ári. 25.2.2007 11:24 Varðskip með bilað loðnuskip í drætti Varðskip Landhelgisgæslunnar er nú með loðnuskipið Antares VE-18 í drætti, á leið til Akraness. Um miðjan dag í gær varð vélarbilun í aðalvél loðnuskipsins um 6 sjómílur norður af Óðninsboða á Húnaflóa og rak skipið í átt að boðanum. Skipið var á leið til Þórshafnar á Langanesi með um 1000 tonn af loðnu. 25.2.2007 11:08 Hinrik prins með Dorrit upp á arminn 25.2.2007 10:48 Skógrækt og landgræðsla gegn mengun Skógrækt á Íslandi gæti orðið gróðafyrirtæki þegar mengunarkvótar verða markaðsvara, að mati sérfræðings Skógræktar ríkisins. Hann segir að með aukinni skógrækt og landgræðslu ætti að vera unnt að binda tvo þriðju hluta af útstreymi gróðurhúsalofttegunda hérlendis. 24.2.2007 18:58 Framtíð starfmanna Marels á Ísafirði óljós Framtíð starfsmanna Marels á Ísafirði er óljós eftir að fyrirtækið tilkynnti fyrir helgi að það myndi hætta allri starfsemi í bænum. Tuttugu manns missa vinnuna og ljóst að ekki fá allir atvinnu við sitt hæfi á Ísafirði. 24.2.2007 18:56 Moody´s: Lánshæfismat stóru íslensku bankanna hækkað Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s hefur hækkað lánshæfismat stóru íslensku bankanna þriggja og gefur þeim nú öllum bestu einkunn. Þetta er gert í samræmi við breytta aðferðafræði fyrirtækisins. Hástökkvarinn er Landsbankinn. 24.2.2007 18:45 Hass í Hörgárdal Lögreglan á Akureyri hafði í nótt afskipti af manni og konu, þar sem þau voru í Hörgárdal á leið til Akureyrar. Grunur vaknaði um að þau gætu verið með fíkniefni í fórum sínum og við leit í bifreiðinni fannst böggull, sem talinn er geyma rúm 700 grömm af hassi. 24.2.2007 17:48 Fækkar í grunnskólum -fjölgar í einkaskólum Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands hefur grunnskólanemendum fækkað um 461 frá síðasta skólaári eða um 1,0%. Aftur á móti hefur nemendum í einkaskólum fjölgað um 100 frá fyrra ári, eða 21,2%. Gera má ráð fyrir að grunnskólanemendum haldi áfram að fækka því þeir árgangar sem eru að hefja grunnskólanám eru fámennari en þeir árgangar sem ljúka munu grunnskólanámi. 24.2.2007 17:42 Ingibjörg Sólrún vill stytta vinnutíma Konur í baráttuhug var rauði þráðurinn á ársfundi Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, sem hófst í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ítrekaði þar að pólitíkin sé ennþá karlaheimur og hin pólitíska menning og leikreglur mótaðar af aldalöngu forræði karla. 24.2.2007 16:35 Vilja stækka í Straumsvík Félag vélstjóra og málmtæknimanna leggur áherslu á að álver Alcan í Straumsvík verði stækkað, enda verði stækkunin unnin í sátt við umhverfissjónarmið og fullnægi öllum skilyrðum um mengunarvarnir. Þetta var samþykkt á fundi félagsins í dag. 24.2.2007 16:08 Björk Vilhelmsdóttir í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar Fyrrverandi liðsmaður Vinstri-grænna, Björk Vilhelmsdóttir, hefur gengið til liðs við Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar. Björk sagði sig úr Vinstri-grænum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar og fór í óháð framboð í samstarfi við Samfylkinguna. 24.2.2007 16:06 Vel sótt í sjóð Orkuveitunnar Nýjum umhverfis- og orkurannsóknarsjóði hjá Orkuveitu Reykjavíkur bárust alls 95 umsóknir um styrki. Umsóknirnar eru samtals að upphæð um 450 milljónir króna og því ljóst að stjórnar sjóðsins bíður vandasamt verkefni, en stjórn Orkuveitunnar hefur lagt 100 milljónir króna til sjóðsins. 24.2.2007 13:15 ,,Allt annað líf" Í dag fer fram málefnastarf á öðrum degi Landsfundar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sem stendur yfir á Grand Hótel Reykjavík, undir yfirskriftinni ,,Allt annað líf". Meðal þess sem finna má í drögum að samþykktum landsfundarins eru rótttækar aðgerðir í jafnfréttismálum þar sem lagt er til að bundið verði í stjórnarskrá jafnt hlutfall kvenna og karla á Alþingi og í sveitarstjórnum. Jafnframt er lagt til að lögbinda jafnt hlutfall kvenna og karla í stjórnum fyrirtækja. Tillögurnar gera enn fremur ráð fyrir að launaleynd verði afnumin. 24.2.2007 12:23 Moody´s hækkar lánshæfismat íslensku bankanna Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s hækkaði í dag lánshæfismat íslensku bankanna. Allir fá þeir hæstu eikunn. Landsbankinn er hástökkvarinn og fer upp úr þriðja styrkleikaflokk en Glitnir og Kaupþing úr öðrum. 24.2.2007 12:00 Málverki stolið af Reykjalundi Málverki eftir Tolla var stolið frá endurhæfingastöð SÍBS, Reykjalundi í Mosfellsbæ. Athæfið átti sér líklega stað um síðustu helgi en málverkið er engin smásmíð, um 140x120 cm að stærð. Þeir sem geta veitt upplýdingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 24.2.2007 11:48 Færð á vegum Greiðfært er á Suðurlandi. Það eru hálkublettir á Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum eru hálkublettir og éljagangur á heiðum, hálka og skafrenningur á Steingrímsfjarðaheiði og ófært yfir Eyrarfjall. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. 24.2.2007 11:07 Skíðasvæðin 24.2.2007 10:21 Jóhanna kvaddi X-Factor 24.2.2007 10:16 Vilja lögbinda jafnt hlutfall kvenna 24.2.2007 10:14 Sviptur á staðnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók ökumann á þrítugsaldri í ofsaakstri um klukkan hálf eitt í nótt á Hringbraut á móts við Bjarkargötu. Hann mældist á hundrað þrjátíu og þriggja kílómetra hraða en hámarkshraði á þessum stað er 50 kílómetrar. Hann var sviptur ökuskírteininu á staðnum. 24.2.2007 10:08 Öllum eldhústækjunum stolið Brotist var inn í íbúðarhús í byggingu í Vallahverfi í Hafnarfirði í dag. Innbrotsþjófarnir höfðu á brott með sér ískáp, helluborð og önnur eldhústæki, öll ný. Lögregla veit ekki hverjir voru að verki en málið er í rannsókn. Þá var ökumaður stöðvaður ölvaður undir stýri á Nýbýlavegi í Kópavogi um tíuleytið í kvöld. Virtist hann lítilsháttar ölvaður samkvæmt öndunarsýni en nógu ölvaður þó til þess að hann var tekinn í blóðprufu. Þá var lögreglu tilkynnt um sinubruna í Norðurbænum í Hafnarfirði í dag, eldurinn hafði kviknað í grasbala neðan við Kaupfélagsblokkina svokölluðu við Miðvang. Vel gekk að slökkva eldinn. 23.2.2007 22:58 Höfðust við í neyðarskýli Tveir bílar með sex manns innanborðs veðurtepptust á Eyrarfjalli í Ísafjarðardjúpi í dag. Fólkið náði sambandi við Vaktstöð siglinga í gegnum talstöð og fóru björgunarsveitarmenn frá Koðra í Súðavík af stað að hjálpa fólkinu sem hafðist við í neyðarskýli á fjallinu. Vel gekk að losa bílana úr snjónum og komu þeir til byggða í fylgd björgunarsveita nú undir kvöld. 23.2.2007 22:21 Saka viðskiptaráðherra um að ganga erinda tryggingafélaga Forsvarsmenn Læknafélags Íslands saka viðskiptaráðherra og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis um að ganga erinda tryggingafélaganna. Formaður félagsins segir það sína persónulegu skoðun að verið sé að lögfesta mannréttindabrot. Samtök fjármálafyrirtækja saka læknafélagið um fordóma. Viðskiptaráðherra segist ekki trúa því að Læknafélagið standi að baki fullyrðingum framkvæmdastjóra félagsins. 23.2.2007 19:19 Nafnlausa bréfið skaðar sókn málsins Nafnlaust bréf sem barst lykilmönnum í Baugsmálinu og hæstaréttardómurum skaðar sókn málsins að mati setts ríkissaksóknara. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir lögreglurannsókn hafa verið gerða af minna tilefni. Afrit af bréfinu fylgir fréttinni. 23.2.2007 19:15 Segir ummæli Hjartar guðlast Hörð ummæli fríkirkjuprests í Kompásþætti í garð Þjóðkirkjunnar hafa vakið hastarleg viðbrögð. Þannig segir sóknarprestur í Landakirkju að ásakanirnar feli í sér guðlast. 23.2.2007 19:10 Tveggja barna móðir sem glímir við afleiðingar heilablóðfalls fær ekki íbúð í Mosfellsbæ Allt stefnir í að tveggja barna móðir, sem fékk heilablóðfall fyrir þremur árum, verði á götunni þann 1. mars næstkomandi, en hún er úrkula vonar um lausnir í húsnæðismálum sínum. Hún og foreldrar hennar hafa ítrekað beðið bæjarstjórn Mosfellsbæjar um úrræði en fengið þau svör að enga hjálp sé að fá þar í bæ 23.2.2007 19:00 Krónan og Bónus ríða á vaðið Krónan og Bónus hafa þegar lækkað verð á matvöru til samræmis við fyrirhugaða lækkun stjórnvalda á virðisaukaskatti um mánaðamótin. 23.2.2007 18:56 Sjá næstu 50 fréttir
Ný björgunarmiðstöð í Hafnarfirði Ný 2000 m² björgunar- og slysavarnarmiðstöð Björgunarsveitar Hafnarfjarðar og Slysavarnadeildarinnar Hraunprýði verður reist í Hafnarfirði á næstunni. Með byggingunni mun öll starfsemi Björgunarsveitar Hafnarfjarðar komast undir eitt þak. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri tekur fyrstu skóflustunguna í dag á Hvaleyrarbraut 32, við gamla bátalónið. 26.2.2007 11:58
Heimaunnar afurðir "Beint frá býli" Undanfarin tvö ár hefur vinnuhópur í samvinnu við bændur og aðra hagsmunaaðila unnið að því að gera vinnslu og sölu á heimaunnum afurðum að raunhæfum kosti fyrir bændur og neytendur. Verkefnið gengur undir nafninu "Beint frá býli" og verður heimasíða þess www.beintfrabyli.is opnuð á kynningarfundi á Akureyri á morgun. 26.2.2007 11:41
Mikilvægi undirbúnings við sýningar erlendis Útflutningsráð stendur fyrir námskeiði á Hótel Nordica á morgun um undirbúning og eftirfylgni við sýningar í útlöndum. Markmiðið er að undirstrika mikilvægi þessara þátta fyrir stjórnendur og starfsfólk útflutningsfyrirtækja auk þess að miðla reynslu annarra. 26.2.2007 11:08
Davíð kallaði forsvarsmenn Baugs glæpamenn Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabankastjóri, kallaði forsvarsmenn Baugs glæpamenn sem væru á leið í fangelsi á fundi með Hreini Loftssyni, stjórnarformanni Baugs, í Lundúnum í janúar 2002. Frá þessu greindi Hreinn í réttarsal í morgun. Davíð sagðist einnig algjörlega andvígur því að íslensku bankarnir styddu Baug í áhættufjárfestingum erlendis. 26.2.2007 10:45
Forseta Úganda umhugað um heilsu Valgerðar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra lenti í þrumuveðri á bát á Viktoríuvatni í Úganda þar sem hún var á ferð ásamt íslenskri sendinefnd. Forseti Úganda Yoweri Museveni var umhugað um heilsu hennar og hringdi til að spyrjast fyrir um heilsu Valgerðar eftir ferðina. 26.2.2007 10:35
Hreinn í réttarsal í dag Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, er yfirheyrður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag sem vitni í Baugsmálinu. Jón Ásgeir Jóhannesson sagði í síðustu viku að Baugsmálið væri sprottið upp af pólitískri óvild í garð fyrirtækisins og það sem fram kom á fundi Hreins og Davíðs Oddssonar sönnun um það. 26.2.2007 09:53
Segja þúsundir eiga mikið undir álveri í Straumsvík Samtökin Hagur Hafnarfjarðar sem berjast fyrir stækkun álvers í Straumsvík voru kynnt í dag en þau telja að einhliða og villandi áróður hafi verið rekinn gegn álversstækkun. Talsmaður samtakanna krefst þess að stjórnmálamenn í Hafnarfirði gefi upp afstöðu sína til málsins og bendir á að þúsundir Hafnfirðinga sæki lifibrauð sitt með beinum eða óbeinum hætti til álversins. 25.2.2007 19:43
Gretti mistókst Drangeyjarsund Grettir hefur í annað sinn reynt við Drangeyjarsund. Að þessu sinni var það kuldaskræfan Grettir, sem komst þó aðeins örfáa metra þrátt fyrir að vera í þurrbúningi. 25.2.2007 19:33
Sunndlendingar ekki endilega mestu skúrkarnir Ætla mætti að Sunnlendingar séu mestu lögbrjótar landsins, en ákærumál miðað við íbúatölu eru tvöfalt fleiri þar en í öðrum landshlutum. Sýslumaðurinn á Selfossi segir að skýra megi þetta með góðri löggæslu og eftirfylgni en bendir þó á að mikil sumarhúsabyggð og gegnumstreymi fólks geti legið að baki. 25.2.2007 19:32
Hugað að breyttri nýtingu á Keflavíkurflugvelli Íslenskar farþegaþotur eru á ný farnar að leggja við gömlu flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Talsmaður Flugmálastjórnar segir svæðið þar í kring afar verðmætt fyrir flugstarfsemi. Þá er áformað að opna þriðju flugbraut vallarins, sem myndi bæta enn frekar rekstraröryggi flugs, ekki síst innanlandsflugs. 25.2.2007 19:29
Jakob Frímann hættur í Samfylkingunni Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og varaþingmaður Samfylkingarinnar, tilkynnti í Silfri Egils á Stöð 2 í dag að hann hefði sagt sig úr flokknum. Hann skipaði 7. sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður við síðustu þingkosningar og hefur eini sinni tekið sæti á Alþingi. 25.2.2007 19:24
Steingrímur J. vill netlöggu Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, vill setja á fót netlöggu, til þess að hindra aðgang að klámi og annarri óáran, á netinu. Steingrímur lét þessi orð falli í Silfri Egils á Stöð 2 í dag. Það var verið að ræða um klámráðstefnuna sem ekki fékk inni á Íslandi, og Egill spurði Steingrím hvort hann vildi þá ekki ganga lengra og skera upp herör gegn öllu klámi. 25.2.2007 16:29
Vilja að Ingibjörg Sólrún verði forsætisráðherra Kvennahreyfing Samfylkingarinnar samþykkti á fundi sínum í dag að skora á þjóðina að nýta það sögulega tækifæri sem gefst í vor til að gera Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að fyrsta kvenforsætisráðherra Íslands. Verði af því lofar Kvennahreyfingin henni fullum stuðningi til þess meðal annars að; · Gera jafnréttissjónarmið að rauðum þræði í allri stefnumótun stjórnvalda og fela forsætisráðuneytinu ábyrgð á þeim málaflokki. 25.2.2007 15:33
Stóriðjuframkvæmdir verða stöðvaðar Vinstri græn vanda ekki ríkisstjórninni kveðjurnar í landsfundarályktun sinni. Talað er um valdahroka og ólýðræðisleg vinnubrögð hennar og að hún hafi ráðists í miklar virkjunarframkvæmdir með geigvænlegum afleiðingum fyrir íslenska náttúru og efnahagslíf, til þess að selja raforku á útsöluverði til erlendra álhringa. Vinstri græn boða betri tíð ef þau komast í ríkisstjórn, og er þar af ýmsu að taka. 25.2.2007 14:02
Jakob Frímann úr Samfylkingunni Jakob Frímann Magnússon tónlistamaður og varaþingmaður tilkynnti í sjónvarpsþættinum Silfur Egils í dag að hann hefði sagt sig úr Samfylkingunni. Jakob Frímann, sem kunnastur er fyrir að vera einn af Stuðmönnum, hefur einu sinni tekið sæti á Alþingi, í desember árið 2004. 25.2.2007 13:37
Sjálfsagt að skoða bankana Pétur Blöndal, formaður efnahags- og viðskiptanefndar telur sjálfsagt að skoða samkeppni bankanna hér á landi í ljósi þess að gjaldtaka þeirra af lánveitingum er miklu hærri hérlendis en í útibúum sömu banka í Svíþjóð og Noregi. 25.2.2007 13:09
Markar stefnu Evrópuráðsins Stefán Lárus Stefánsson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Evrópuráðinu í Strassborg, hefur verið skipaður formaður í stefnumörkunarnefnd ráðherranefndar Evrópuráðins. Skipun þessi fór fram samkvæmt ósk fastafulltrúa San Marínó sem nú gegnir formennsku í Evrópuráðinu. 25.2.2007 12:21
Kolbrún leiðir Frjálslynda í SV kjördæmi Kolbrún Stefánsdóttir ritari Frjálslynda flokksins mun leiða lista flokksins í Suðvestur kjördæmi. Kolbrún starfar nú sem framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar. Hún var kjörin ritari Frjálslynda flokksins á landsþingi flokksins sem haldið var í lok mars á síðasta ári. 25.2.2007 11:24
Varðskip með bilað loðnuskip í drætti Varðskip Landhelgisgæslunnar er nú með loðnuskipið Antares VE-18 í drætti, á leið til Akraness. Um miðjan dag í gær varð vélarbilun í aðalvél loðnuskipsins um 6 sjómílur norður af Óðninsboða á Húnaflóa og rak skipið í átt að boðanum. Skipið var á leið til Þórshafnar á Langanesi með um 1000 tonn af loðnu. 25.2.2007 11:08
Skógrækt og landgræðsla gegn mengun Skógrækt á Íslandi gæti orðið gróðafyrirtæki þegar mengunarkvótar verða markaðsvara, að mati sérfræðings Skógræktar ríkisins. Hann segir að með aukinni skógrækt og landgræðslu ætti að vera unnt að binda tvo þriðju hluta af útstreymi gróðurhúsalofttegunda hérlendis. 24.2.2007 18:58
Framtíð starfmanna Marels á Ísafirði óljós Framtíð starfsmanna Marels á Ísafirði er óljós eftir að fyrirtækið tilkynnti fyrir helgi að það myndi hætta allri starfsemi í bænum. Tuttugu manns missa vinnuna og ljóst að ekki fá allir atvinnu við sitt hæfi á Ísafirði. 24.2.2007 18:56
Moody´s: Lánshæfismat stóru íslensku bankanna hækkað Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s hefur hækkað lánshæfismat stóru íslensku bankanna þriggja og gefur þeim nú öllum bestu einkunn. Þetta er gert í samræmi við breytta aðferðafræði fyrirtækisins. Hástökkvarinn er Landsbankinn. 24.2.2007 18:45
Hass í Hörgárdal Lögreglan á Akureyri hafði í nótt afskipti af manni og konu, þar sem þau voru í Hörgárdal á leið til Akureyrar. Grunur vaknaði um að þau gætu verið með fíkniefni í fórum sínum og við leit í bifreiðinni fannst böggull, sem talinn er geyma rúm 700 grömm af hassi. 24.2.2007 17:48
Fækkar í grunnskólum -fjölgar í einkaskólum Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands hefur grunnskólanemendum fækkað um 461 frá síðasta skólaári eða um 1,0%. Aftur á móti hefur nemendum í einkaskólum fjölgað um 100 frá fyrra ári, eða 21,2%. Gera má ráð fyrir að grunnskólanemendum haldi áfram að fækka því þeir árgangar sem eru að hefja grunnskólanám eru fámennari en þeir árgangar sem ljúka munu grunnskólanámi. 24.2.2007 17:42
Ingibjörg Sólrún vill stytta vinnutíma Konur í baráttuhug var rauði þráðurinn á ársfundi Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar, sem hófst í dag. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ítrekaði þar að pólitíkin sé ennþá karlaheimur og hin pólitíska menning og leikreglur mótaðar af aldalöngu forræði karla. 24.2.2007 16:35
Vilja stækka í Straumsvík Félag vélstjóra og málmtæknimanna leggur áherslu á að álver Alcan í Straumsvík verði stækkað, enda verði stækkunin unnin í sátt við umhverfissjónarmið og fullnægi öllum skilyrðum um mengunarvarnir. Þetta var samþykkt á fundi félagsins í dag. 24.2.2007 16:08
Björk Vilhelmsdóttir í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar Fyrrverandi liðsmaður Vinstri-grænna, Björk Vilhelmsdóttir, hefur gengið til liðs við Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar. Björk sagði sig úr Vinstri-grænum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar og fór í óháð framboð í samstarfi við Samfylkinguna. 24.2.2007 16:06
Vel sótt í sjóð Orkuveitunnar Nýjum umhverfis- og orkurannsóknarsjóði hjá Orkuveitu Reykjavíkur bárust alls 95 umsóknir um styrki. Umsóknirnar eru samtals að upphæð um 450 milljónir króna og því ljóst að stjórnar sjóðsins bíður vandasamt verkefni, en stjórn Orkuveitunnar hefur lagt 100 milljónir króna til sjóðsins. 24.2.2007 13:15
,,Allt annað líf" Í dag fer fram málefnastarf á öðrum degi Landsfundar Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sem stendur yfir á Grand Hótel Reykjavík, undir yfirskriftinni ,,Allt annað líf". Meðal þess sem finna má í drögum að samþykktum landsfundarins eru rótttækar aðgerðir í jafnfréttismálum þar sem lagt er til að bundið verði í stjórnarskrá jafnt hlutfall kvenna og karla á Alþingi og í sveitarstjórnum. Jafnframt er lagt til að lögbinda jafnt hlutfall kvenna og karla í stjórnum fyrirtækja. Tillögurnar gera enn fremur ráð fyrir að launaleynd verði afnumin. 24.2.2007 12:23
Moody´s hækkar lánshæfismat íslensku bankanna Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody´s hækkaði í dag lánshæfismat íslensku bankanna. Allir fá þeir hæstu eikunn. Landsbankinn er hástökkvarinn og fer upp úr þriðja styrkleikaflokk en Glitnir og Kaupþing úr öðrum. 24.2.2007 12:00
Málverki stolið af Reykjalundi Málverki eftir Tolla var stolið frá endurhæfingastöð SÍBS, Reykjalundi í Mosfellsbæ. Athæfið átti sér líklega stað um síðustu helgi en málverkið er engin smásmíð, um 140x120 cm að stærð. Þeir sem geta veitt upplýdingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 24.2.2007 11:48
Færð á vegum Greiðfært er á Suðurlandi. Það eru hálkublettir á Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum eru hálkublettir og éljagangur á heiðum, hálka og skafrenningur á Steingrímsfjarðaheiði og ófært yfir Eyrarfjall. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. 24.2.2007 11:07
Sviptur á staðnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók ökumann á þrítugsaldri í ofsaakstri um klukkan hálf eitt í nótt á Hringbraut á móts við Bjarkargötu. Hann mældist á hundrað þrjátíu og þriggja kílómetra hraða en hámarkshraði á þessum stað er 50 kílómetrar. Hann var sviptur ökuskírteininu á staðnum. 24.2.2007 10:08
Öllum eldhústækjunum stolið Brotist var inn í íbúðarhús í byggingu í Vallahverfi í Hafnarfirði í dag. Innbrotsþjófarnir höfðu á brott með sér ískáp, helluborð og önnur eldhústæki, öll ný. Lögregla veit ekki hverjir voru að verki en málið er í rannsókn. Þá var ökumaður stöðvaður ölvaður undir stýri á Nýbýlavegi í Kópavogi um tíuleytið í kvöld. Virtist hann lítilsháttar ölvaður samkvæmt öndunarsýni en nógu ölvaður þó til þess að hann var tekinn í blóðprufu. Þá var lögreglu tilkynnt um sinubruna í Norðurbænum í Hafnarfirði í dag, eldurinn hafði kviknað í grasbala neðan við Kaupfélagsblokkina svokölluðu við Miðvang. Vel gekk að slökkva eldinn. 23.2.2007 22:58
Höfðust við í neyðarskýli Tveir bílar með sex manns innanborðs veðurtepptust á Eyrarfjalli í Ísafjarðardjúpi í dag. Fólkið náði sambandi við Vaktstöð siglinga í gegnum talstöð og fóru björgunarsveitarmenn frá Koðra í Súðavík af stað að hjálpa fólkinu sem hafðist við í neyðarskýli á fjallinu. Vel gekk að losa bílana úr snjónum og komu þeir til byggða í fylgd björgunarsveita nú undir kvöld. 23.2.2007 22:21
Saka viðskiptaráðherra um að ganga erinda tryggingafélaga Forsvarsmenn Læknafélags Íslands saka viðskiptaráðherra og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis um að ganga erinda tryggingafélaganna. Formaður félagsins segir það sína persónulegu skoðun að verið sé að lögfesta mannréttindabrot. Samtök fjármálafyrirtækja saka læknafélagið um fordóma. Viðskiptaráðherra segist ekki trúa því að Læknafélagið standi að baki fullyrðingum framkvæmdastjóra félagsins. 23.2.2007 19:19
Nafnlausa bréfið skaðar sókn málsins Nafnlaust bréf sem barst lykilmönnum í Baugsmálinu og hæstaréttardómurum skaðar sókn málsins að mati setts ríkissaksóknara. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir lögreglurannsókn hafa verið gerða af minna tilefni. Afrit af bréfinu fylgir fréttinni. 23.2.2007 19:15
Segir ummæli Hjartar guðlast Hörð ummæli fríkirkjuprests í Kompásþætti í garð Þjóðkirkjunnar hafa vakið hastarleg viðbrögð. Þannig segir sóknarprestur í Landakirkju að ásakanirnar feli í sér guðlast. 23.2.2007 19:10
Tveggja barna móðir sem glímir við afleiðingar heilablóðfalls fær ekki íbúð í Mosfellsbæ Allt stefnir í að tveggja barna móðir, sem fékk heilablóðfall fyrir þremur árum, verði á götunni þann 1. mars næstkomandi, en hún er úrkula vonar um lausnir í húsnæðismálum sínum. Hún og foreldrar hennar hafa ítrekað beðið bæjarstjórn Mosfellsbæjar um úrræði en fengið þau svör að enga hjálp sé að fá þar í bæ 23.2.2007 19:00
Krónan og Bónus ríða á vaðið Krónan og Bónus hafa þegar lækkað verð á matvöru til samræmis við fyrirhugaða lækkun stjórnvalda á virðisaukaskatti um mánaðamótin. 23.2.2007 18:56