Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fluttur á slysadeild Þyrla landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann sem dottið hafði af hestbaki við Gljúfurleiti, nærri Sultartangalóni, um sjöleytið í gærkvöld. Maðurinn meiddist á höfði en ekki er ljóst hversu alvarleg meiðslin eru. 13.9.2006 09:00
Vatnsleki í íbúðarblokk í Kópavogi Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað úr á tíunda tímanum í kvöld vegna bilunar í heitavatnskrana í íbúðarblokk í Ástúni. Nokkuð mikið af heitu vatni hafði leikið úr einni íbúðinni og niður um þrjár hæðir en greiðlega gekk að stöðva lekann þegar slökkviliðsmenn voru komnir á staðinn. Einn íbúi brenndist lítillega þegar hann reyndi að stöðva lekann en hann kom sér sjálfur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. 12.9.2006 22:43
Lögregla fann stóra ferðatösku Lögreglan í Kópavogi fann stóra ferðatösku á göngustíg í Fögrubrekkunni í kvöld. Í töskunni voru smókingföt og annar fatnaður, allt snyrtilega saman brotið. Enn er allt á huldu með eiganda töskunnar og fatnaðarins. Ekki er ljóst hvort eigandanum hafi verið hent á dyr og töskunni á eftir honum en ef einhver saknar fata sinna þá getur sá hinn sami haft samband við lögregluna í Kópavogi. 12.9.2006 22:31
Hreindýraleiðsögumaður sýknaður í Héraðsdómi Austurlands Hreindýraleiðsögumaður var í gær sýknaður í Héraðsdómi Austurlands af ákæru um ólöglega notkun fjórhjóls við veiðar. Þar með verður leiðsögumönnum á hreindýraveiðum framvegis heimilt að nota fjór- og sexhjól til að sækja felld dýr samkvæmt dómnum. 12.9.2006 22:07
Bann við innflutningi á selskinnum til umræðu á þingi ESB Ályktunartillaga um að banna innflutning á selskinnum verður á næstunni lögð fram hjá Evrópusambandinu. Áralöng barátta dýraverndarsamtaka er þar að skila árangri, en hún hefur einkum beinst gegn selveiðum Kanadamanna. Dýraverndarsamtökin ætla að láta kné fylgja kviði og fara framá að einnig verði bönnuð sala á pelsum og öðrum tilbúnum flíkum úr selskinni. 12.9.2006 20:30
Úrskurðaður í gæsluvarðhald Annar mannanna tveggja, sem réðust að öryggisverði og starfsmanni Select í Fellahverfi aðfaranótt sunnudags, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðahald til föstudags. Hann hefur játað aðild sína í málinu en hann stakk öryggisvörðinn í bakið. Hinn maðurinn var látinn laus í dag eftir að yfirheyrslum lauk. 12.9.2006 19:08
Vilja breyta lögum ef þörf er á Þingmenn Samfylkingarinnar hafa beðið um fund í allsherjarnefnd til að ræða alvarlegar ásakanir um að réttarstaða barna hafi verið fyrir borð borin með mistökum í lagasetningu og skýrslutökum í dómshúsi en ekki í Barnahúsi. Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur vísar gagnrýni forstjóra Barnaverndarstofu til föðurhúsanna og segir umdeilt hvort Barnahús geti talist hlutlaus vettvangur fyrir skýrslutöku á börnum sem sætt hafa kynferðislegu ofbeldi. 12.9.2006 18:48
Segir starf matvælanefndar hafa klúðrast Þingmaður Samfylkingarinnar segir skýrslu formanns matvælanefndar, um hvernig lækka eigi matvælaverð, staðfesta það sem áður hefur komið fram í skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskólans. Landbúnaðarráðherra finnst hugmyndirnar fáránlegar og segir starf matvælanefndarinnar hafa klúðrast. 12.9.2006 18:45
Hefur trú á sínum manni Eyrún Huld Haraldsdóttir, kona Magna Ásgeirsonar, hefur fulla trú á sínum manni og telur að hann standi uppi sem sigurvegari í raunveruleikaþættinum Rockstar:Supernova. Hún er þakklát íslensku þjóðinni fyrir stuðninginn. 12.9.2006 18:45
Fiskur í fyrirrúmi á hátíðinni Fiskirí Matarhátíð tileinkuð fiski og öðru sjávarfangi verður haldin hátíðleg um næstu helgi. Það er sjávarútvegsráðuneytið og Klúbbur matreiðslumeistara sem standa að hátíðinni sem hlotið hefur nafnið Fiskirí. 12.9.2006 17:54
Fundað vegna forvals Vinstri - grænna á höfuðborgarsvæðinu Vinstri - grænir halda í kvöld kynningarfund fyrir félagsmenn vegna forvals fyrir komandi alþingiskosningar. Þar verða tillögur uppstillingarnefndar kynntar en þær gera ráð fyrir sameiginlegu forvali í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi. Gert er ráð fyrir forvali fyrir félagsmenn þann 11. nóvember næstkomandi og að framboðsfrestur sé til 27. október. 12.9.2006 17:24
Ásta sækist eftir þriðja sætinu Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sækist eftir þriðja sætinu í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi þingkosningar. Stjórn fulltrúaráðs flokksins hefur lagt til að prófkjör fari fram 27. og 28. október en það er í höndum fulltrúaráðsfundar að taka endanlega ákvörðun um það. 12.9.2006 17:17
Vésteinn Ólason forstöðumaður nýrrar stofnunar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, hefur skipað Véstein Ólason í embætti forstöðumanns nýrrar Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum til 1. mars 2009, frá 12. september 2006 að fenginni umsögn stjórnar stofnunarinnar. 12.9.2006 17:00
Getur vitjað hassmola á lögreglustöð Lögreglan í Vestmannaeyjum hafði í ýmsu að snúast um helgina við að aðstoða fólk vegna ölvunarástands þess og vegna annarra atvika. Fram kemur á vef hennar að eitt fíkniefnamál hafi komið en einhver lánsamur fíkniefnaneytandi, eins og það er orðað, hafi gleymt hassmola sínum á borði inni á veitingastaðnum Lundanum. 12.9.2006 16:11
Öðrum sleppt en hinn leiddur fyrir dómara Lögregla hefur sleppt öðrum mannanna sem grunaðir eru um árásir á öryggisvörð og starfsmann á bensínstöð Skeljungs í Breiðholti aðfararnótt sunnudags. Hinn, sem grunaður er um að hafa stungið öryggisvörðinn í bakið, verður hins vegar leiddur fyrir dómara kl. 17 í dag þar sem farið verður fram á gæsluvarðhald yfir honum. 12.9.2006 15:45
Tvær konur bítast um formannsembætti Heimdallar Tvær ungar sjálfstæðiskonur hafa boðið sig fram í formannsembætti Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, þær Erla Ósk Ásgeirsdóttir og Heiðrún Lind Halldórsdóttir. Stjórn Heimdallar verður kosin á aðalfundi félagsins sem verður haldinn eigi síðar en 1. október næstkomandi. 12.9.2006 15:40
Aukið samráð og gegnsærra lagasetningarferli Starfshópur sem forsætisráðherra skipaði til þess kanna hvernig megi með markvissum hætti einfalda lög og reglur á Íslandi með það að markmiði að auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs hefur skilað tillögum sínum. 12.9.2006 15:27
Vitnaleiðslur í Ásláksmáli í dag Vitnaleiðslur hófust í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna máls á hendur karlmanni á þrítugsaldri sem ákærður er fyrir að hafa banað öðrum manni á kránni Ásláki í Mosfellsbæ í desember árið 2004. 12.9.2006 15:15
Umtalsverðar hækkanir á matvörum í lágvöruverslunum Umtalsverðar hækkanir hafa orðið á matvörum í lágvöruverðsverslunum frá því í upphafi þessa árs. Þetta er niðurstaða úr samanburði á verðkönnunum verðlagseftirlits ASÍ frá því í janúar og nýrri könnun sem gerð var í liðinni viku og greint er frá á heimaíðu samtakanna. 12.9.2006 14:45
Vill prófkjör Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík ætlar að leggja það til á fulltrúaráðsfundi að röð á framboðslista flokksins í Alþingiskosningum skuli ákveðin með prófkjöri dagana 27. og 28. september. Prófkjörið verði opið öllum meðlimum flokksins sem búsettir eru í kjördæminu. 12.9.2006 14:32
Þriðjungur stjórnenda vinnur rúma 60 tíma á viku Meira en helmingur stjórnenda á Íslandi vinnur meira en 50 tíma á viku og þriðjungur þeirra vinnur rúma 60 klukkustundir á viku. Þetta eru niðurstöður könnunar sem VR gerði fyrr á þessu ári. Í hópi þeirra sem vinna mest eru karlar þrisvar sinnum fleiri en konur. Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar í heild sinni í október. 12.9.2006 14:15
Minni uppsjávarveiði á síðasta fiskveiðiári en árið á undan Heildarafli hefur aldrei verið minni en á síðasta fiskveiðiári samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Minni veiði á uppsjávarfiski er þar einkum um að kenna. 12.9.2006 14:00
Lögregla kvartar undan skemmdarverkum Nokkuð bar á skemmdarverkum í Reykjavík um nýliðna helgi en þau voru af ýmsu tagi. Rúður voru brotnar í grunnskóla og leikskóla og einnig í bifreið. Hliðarspeglar á bifreiðum fengu heldur ekki að vera í friði en þeir voru brotnir af fimm bifreiðum. Þá var brotin rúða í heimahúsi sem og í fyrirtæki. 12.9.2006 14:00
Vilja fund vegna málefna Barnahúss Fulltrúar Samfylkingarinnar í allsherjarnefnd hafa óskað eftir fundi um málefni Barnahúss eftir umræður síðustu daga um framkvæmd skýrslutöku á börnum vegna meintra kynferðisafbrota. 12.9.2006 13:45
Vestnorden mikilvæg fyrir ferðaþjónustuna Ein stærsta kaupstefna ferðaþjónustuaðila við Norður-Atlantshafið, Vestnorden, stendur nú yfir í Laugardagshöllinni. Ferðamálastjóri segir allar ferðaskrifstofur, sem hingað selja ferðir, vera staddar hér á landi fyrir kaupstefnuna. 12.9.2006 13:15
Skúli Eggert nýr ríkisskattstjóri Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknarstjóri hefur verið skipaður ríkisskattstjóri frá og með næstu áramótum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. 12.9.2006 13:00
Missir réttinn til sjúkradagpeninga Fólk sem skiptir um vinnu og fer frá stéttarfélögum hins opinbera til stéttarfélaga hins almenna markaðar eða öfugt missir rétt sinn til sjúkradagpeninga og lendir því oft í fjárskorti ef það veikist á fyrstu dögum í nýrri vinnu. Formaður BSRB segir kerfið einfaldlega vanþróað, eðlilegt væri að sjúkrasjóðir hefðu samstarf sín á milli, allavega um lágmarksréttindi. 12.9.2006 12:27
Níu ökumenn sviptir ökuleyfi vegna hraðaksturs Níu ökumenn eiga yfir höfði sér ökuleyfissviptingu fyrir að hafa ekið of hratt í íbúðargötu í Breiðholti í gær þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. 12.9.2006 12:15
Segja lítinn áhuga á hvalkjöti innan lands sem utan Einungis 1,1 prósent Íslendinga neytir hvalkjöts einu sinni í viku eða oftar en 82,4% prósent fólks á aldrinum 16-24 ára leggur sér ekki hvalkjöt til munns. Þetta eru niðurstöður úr árlegri neyslukönnun Gallup sem gerð var í júní og júlí fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands og Alþjóðadýraverndunarsjóðinni. 12.9.2006 11:30
Stórt skref aftur á bak að skipta menntaráði upp Félag leikskólakennara og Kennarafélag Reykjavíkur telja það stórt skref aftur á bak að skipta menntaráði Reykjavíkurborgar upp í tvö ráð og menntasviði upp í tvö svið. Mælast félögin eindregið til þess að fallið verði frá breytingunni strax. 12.9.2006 11:15
Heildarafli aldrei minni en á nýliðnu fiskveiðiári Heildarafli hefur aldrei verið minni en á síðasta fiskveiðiári samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu sem birtar eru á vef stofnunarinnar. Tæplega 1300 þúsund tonn veiddust á fiskveiðiárinu 2005-2006 en það er rúmlega 350 þúsund tonnum minna en fiskveiðiárið þar á undan. 12.9.2006 11:00
Yfirheyrslur yfir tvímenningum standa enn Yfirheyrslur yfir mönnunum tveimur sem grunaðir eru um árásir á bensínstöð Skeljungs í Fellahverfi í Breiðholti aðfararnótt sunnudags standa enn yfir. 12.9.2006 10:30
Tíu útgerðir með helming kvótans Tíu útgerðir hafa yfir að ráða meira en helmingi allra fiskveiðiheimilda í íslenskri lögsögu og þar af fengu fimm stærstu útgerðirnar úthlutað þriðjungi kvótans, samkvæmt úttekt í nýjasta tölublaði Fiskifrétta. Alls fengu 192 aðilar úthlutað kvóta við upphaf nýs fiskveiðiárs í byrjun mánaðarins, en stærsta útgerðin, HB Grandi, ræður yfir 10 prósentum kvótans. 12.9.2006 10:00
Sportbíllinn óökufær Ökumaður slapp með skrekkinn í gærkvöldi þegar hann keyrði út af veginum í Kömbunum. Hann ók utan í vegrið sem varnaði því þó að hann hentist út af þar sem fallið er hátt en í staðinn hentist hann út af veginum hinum megin, upp í brekkuna. Lögregla telur manninn hafa keyrt vel umfram hámarkshraða og hann því misst stjórn á hraðskreiðum sportbíl sínum, sem er nú óökufær. 12.9.2006 09:45
Dregur úr verðbólgu milli mánaða Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,61 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt nýjum upplýsingum frá Hagstofunni. Hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,6 prósent síðustu mánuði sem þýðir að dregið hefur úr verðbólgu í landinu um eitt prósentustig frá síðasta mánuði. 12.9.2006 09:24
Vestnorden í Laugardalshöll Kaupstefnan Vestnorden, þar sem ferðaþjónustuaðilar og handverksmenn á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum kynna þjónustu sína og vörur, fer fram í Laugardalshöllinni í dag og stendur hún fram til hádegis á morgun. Hátt í 200 utanaðkomandi kaupendur geta þar kynnt sér möguleika í ferðaþjónustu á þessu svæði. 12.9.2006 09:15
Saurgerlar í drykkjarvatni á Borgarfirði Íbúar á Borgarfirði eystra hafa þurft að sjóða allt kranavatn sem ætlað er til neyslu eftir að Heilbrigðiseftirlit Austurlands fann kólígerla í vatninu, en slíkt vatn er ekki talið hæft til manneldis. Ástæðan er bágur frágangur við tvo af sex lindarbrunnum bæjarins þannig að yfirborðsvatn hefur komist í þá. 12.9.2006 08:45
Missti stjórn á bíl sínum í Kömbunum Ökumaður fólksbíls missti stjórn á bíl sínum í Kömbunum á Hellisheiðinni á níunda tímanum í kvöld og hafnaði utan vegar. Ökumaður slapp með skrekkinn en draga þurfti bíl hans í burtu þar sem hann var nokkuð skemmdur. 11.9.2006 22:02
Fjöldi erlendra starfsmanna Bónus tvöfaldast Starfsmannastjóri stærstu matvöruverslanakeðju landsins segist sjá fram á tvöföldun í ráðningu erlends starfsfólks í láglaunastörf á næstunni. Skortur á fólki er það mikill að núverandi starfsfólk fær 100 þúsund krónur ef það finnur fólk í lausar stöður. 11.9.2006 18:58
Mesti smánarblettur á sögu íslenska lýðveldisins Stuðningur Íslands við Íraksstríðið er mesti smánarblettur á sögu íslenska lýðveldisins að mati Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi utanríkisráðherra. Hann segir ákvörðunina algjörlega óréttlætanlega. 11.9.2006 18:56
Tók bankalán og stofnaði starfþjálfunarstöð Starfsendurhæfingarstöð fyrir óvirka alkóhólista, fíkniefnaneytendur og öryrkja er tilbúin til notkunar í Kópavogi. Upphafsmaðurinn og hugmyndasmiðurinn er sjálfur óvirkur alkóhólisti sem sá þörfina, tók bankalán, keypti húsnæði og treystir nú á að fá fjármagn til þess að reka stöðina. 11.9.2006 18:45
Um 90% flugfarþega telja flugþjónusta mikilvæga fyrir byggðarlag sitt Um 90% farþegar í innanlandsflugi á Íslandi telja flugþjónustu mjög mikilvæga fyrir byggðalagið sitt samkvæmt nýrri könnun sem Land-Ráð sf. vann í mars og apríl síðastliðnum fyrir Samgönguráðuneytið. Könnunin var unnin í samvinnu við Flugfélag Íslands og Landsflug en alls tóku 570 farþegar þátt í könnuninni. 11.9.2006 18:18
Tvímenningar gefa sig fram Mennirnir tveir sem leitað hefur verið að í tengslum við árásir á bensínstöð Skeljungs í Fellahverfi í Breiðholti í fyrrinótt hafa gefið sig fram við lögreglu. Það gerðu þeir nú síðdegis eftir að lögregla hafði birt myndir af þeim úr öryggismyndavél og hvatt þá til að gefa sig fram. 11.9.2006 17:04
Sektað fyrir að henda rusli Nokkuð ber á því að fólk hendi rusli á götur borgarinnar eða annars staðar á almannafæri. Það er að sjálfsögðu með öllu óheimilt enda telst það brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að aekt í slíkum tilfellum ákvarðist eftir eðli og umfangi brots en hún er þó aldrei lægri en 10 þúsund krónur. 11.9.2006 16:45
Tilboð Barr upp á um 180 milljarða Bandaríska lyfjafyrirtækið Barr hefur hækkað tilboð sitt í öll hlutabréf króatíska lyfjafyrirtækisins PLIVA upp í 820 kúnur á hlut, sem þýðir að fyrirtækið býður um 180 milljarða króna í PLIVA. 11.9.2006 16:30
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent