Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líðan mannsins eftir atvikum Líðan unga mannsins, sem slasaðist alvarlega á Sandgerðisvegi í gærkvöldi þegar bíll hans fór útaf og bílbeltið slitnaði, er eftir atvikum góð. Hann er undir eftirliti lækna á gjörgæslu Landspítalans en hann er mikið slasaður. Hann er þó ekki í öndunarvél en hann verður áfram undir eftirliti lækna næstu daga. Hann var einn í bílnum og kastaðist út úr honum eftir að beltið slitnaði. Lögregla og Rannsóknanefnd bílslysa rannsaka tildrög slyssins, og af hverju bílbeltið slitnaði. 1.8.2006 17:57
BSRB stefnir bæjarstjórn Snæfellsbæjar BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar, verði uppsagnir sex starfsmanna sundlauga og íþróttahúsa í sveitarfélaginu ekki dregnar til baka. Uppsagnirnar standa í tengslum við skipulagsbreytingar en BSRB segir kjarasamninga kveða skýrt á um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að fólki sé sagt upp störfum. 1.8.2006 17:52
Tíu ár frá því að Ólafur Ragnar var kjörinn forseti Í dag eru tíu ár síðan Ólafur Ragnar Grímsson tók formlega við embætti forseta Íslands. Það má segja að hver merkisdagurinn reki hvorn annan í þessari viku hjá forsetanum því í gær fékk Dorrit Mousaieff forsætisfrú íslenskan ríkisborgararétt. 1.8.2006 17:51
Methagnaður viðskiptabankanna Methagnaður er á rekstri viðskiptabankanna á þessu ári, en fyrstu sex mánuði ársins nam hagnaðurinn rúmlega 72 milljörðum króna. Glitnir hefur aldrei skilað meiri hagnaði og hagnaður KB banka og Landsbanka er meiri en á sama tíma í fyrra. 1.8.2006 17:31
1200 öryrkjar missa lífeyrisbæturnar 1. nóvember Um 1200 öryrkjar munu að líkindum missa allar lífeyrisbætur sínar þann 1. nóvember næstkomandi eftir sérstaka tekjuathugun Greiðslustofu lífeyrissjóða. Bætur 1100 manns til viðbótar skerðast á sama tíma. 1.8.2006 17:11
Mikið álag á Reiknistofu bankanna Mikið álag hefur verið á Reiknisstofu bankanna frá því í gærkvöldi, en í dag eru stærstu mánaðarmót ársins vegna greiðslna hins opinbera á vaxtabótum og ofgreiddum sköttum. 1.8.2006 15:28
BSRB hótar kæru á hendur Snæfellsbæ BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar, verði uppsagnir sex starfsmanna sundlauga og íþróttahúsa í sveitarfélaginu ekki dregnar til baka. Uppsagnirnar standa í tengslum við skipulagsbreytingar en BSRB segir kjarasamninga kveða skýrt á um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að fólki sé sagt upp störfum. 1.8.2006 14:45
Lögreglan neitar að hafa ekið á mótmælanda Lögreglan á Egilsstöðum vísar á bug ásökunum Ólafs Páls Sigurðssonar um að hafa ekið á hann við fjölskyldubúðir Íslandsvina nálægt Kárahnjúkavirkjun. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn, segir að maðurinn hafi verið ógnandi, eins og sjáist á þessari mynd lögreglunnar sem NFS fékk afhenta. 1.8.2006 14:00
Sturla hyggst höggva á hnútinn Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, ætlar að fá utanaðkomandi aðila til að skoða nýtt vaktafyrirkomulag flugumferðarstjóra í flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. Flugumferðarstjórar funduðu með ráðherra í morgun, en þeir hafa neitað að vinna yfirvinnu frá því nýtt vaktafyrirkomulag tók gildi í vor. 1.8.2006 13:11
Stýrivextir hafa lítil áhrif á þenslu Stýrivaxtahækkanir Seðlabankans hafa lítil áhrif á þenslu í þjóðfélaginu. Þetta segir Árni Mathiesen fjármálaráðherra. Hann segir Seðlabankann vinna að því að finna áhrifaríkari leið til að slá á þensluna. Þrátt fyrir að stýrivextir Seðlabankans hafi hækkað mikið á þessu ári þá virðist ekkert lát vera á þenslu í þjóðfélaginu. 1.8.2006 13:11
Fiskur að verða munaðarvara á Íslandi Skortur á ferskum fiski og hörð samkeppni um það litla sem í boði er, hefur valdið 40% verðhækkun á fiskmörkuðum á aðeins tveimur mánuðum. Aðeins brot af því er enn komið út í verðlagið í fiskbúðum. 1.8.2006 12:28
Hermönnunum allar bjargir bannaðar Þeir tæplega 500 hermenn, sem enn eru eftir í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli, komast ekki lengur í sund, því sundlauginni var lokað í gær, um leið og aðal-Vallarhliðinu. Félagsheimilinu og bókasafninu var líka lokað, internetkaffinu, aðal veitingahúsinu og matvöruverslun sömuleiðis. 1.8.2006 12:00
Umfangsmikil GSM uppbygging Og Vodafone í Eyjafirði Og Vodafone hefur nú lokið umfangsmikilli uppbyggingu á GSM kerfi fyrirtækisins á ákveðnum svæðum í Eyjafirði. Uppbyggingin hófst við Sörlagötu á Akureyri í febrúar á þessu ári en lauk við Klauf/Hrafnagil um helgina. 1.8.2006 11:00
Fyrstu þjóðhátíðargestirnir komnir til Eyja Fyrstu þjóðhátíðargestirnir eru byrjaðir að tínast ti lEyja, en ekki er þó enn farið að tjalda í Herjólfsdal. Að sögn lögreglu verður öflugt fíkniefnaeftirlit bæði á flugvellinum og við Herjólfsbryggjuna. Fíkniefnahundar og lilðsauki úr landi verða lögreglunni í Eyjum til halds og trausts við það. 1.8.2006 10:00
Allt að loka á vellinum Þeir tæplega fimm hundruð hermenn, sem enn eru eftir í varnarstöðinni á Keflavíkurflugvelli komast ekki lengur í sund, því sundlauginni var lokað í gær . Félagsheimilinu og bókasafninu var líka lokað, internetkaffinu, aðalveitingahúsinu og matvöruverslun sömuleiðis. ADSL tenging var tekin af, beinar sjónvarpsútsendingar felldar niður og bílaþjónustunni lokað. 1.8.2006 08:45
Papeyin vélarvana skammt frá Grindavík Brunnbáturinn Papey, sem er 150 tonn að stærð með þriggja manna áhöfn, missti vélarafl þegar hann átti skammt ófarið til Grindavíkur undir morgun með farm af lifandi laxi austan af Fjörðum. Skipverjar óskuðu eftir aðstoð og var björgunarskipið Oddur V. Gíslason frá Grindavík sent til móts við þá, en þeim tókst að koma vélinni aftur í gang. 1.8.2006 08:30
Bílbeltið gaf sig Bílbelti slitnaði á ögurstund, með þeim afleiðingum að ökumaður á tvítugsaldri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann ók út af Sandgerðisvegi um klukkan hálf sjö í gærkvöldi og bílinn valt. Hann var einn í bílnum og kastaðist út úr honum eftir að beltið slitnaði. 1.8.2006 08:08
Lokað fyrir fullt og fast Umferð um aðalhlið varnarsvæðisins á Miðnesheiði hefur verið hætt. Hliðið var tekið í notkun í mars 2005, fyrir fimmtán mánuðum. Kostnaður við framkvæmdir vegna þess nam rúmum 130 milljónum króna en reist voru ný varðskýli og bygging fyrir vegabréfaumsýslu auk breytinga á bílastæðum og girðingu. 1.8.2006 05:00
Flugumferðarstjóri þvingaður til vinnu veikur Flugumferðarstjóri á Reykjavíkurflugvelli, sem tilkynnti sig veikan í gærmorgun, var úrskurðaður vinnufær af trúnaðarlækni og í framhaldinu sagt að mæta til vinnu. Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir atburðinn fáheyrðan og stórhættulegan. 31.7.2006 22:49
Slasaðist alvarlega eftir útafakstur Ökumaður á tvítugsaldri var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild Landspítalans eftir útaf akstur á Sandgerðisvegi um klukkan hálf sjö í kvöld. Ökumaður var einn í bílnum. Hann mun hafa kastast út úr ökutækinu eftir að bílbelti slitnaði. Tildrög slyssins eru ókunn en lögreglan í Reykjanesbæ fer með rannsók þess. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um líðan mannsins að svo stöddu. 31.7.2006 22:03
Sala jókst um 85% milli ára Sala Össurar á öðrum ársfjórðungi þessa árs nam 4,8 milljörðum íslenskra króna. Söluaukningin jókst um 85% frá öðrum árstjórðungi árið 2005, mælt í Bandaríkjadölum. Þá var söluaukning vegna innri vaxtar 8%. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir að aukning í sölu á stoðtækjum hafi verið umfram væntingar og sala á spelkum og stuðningsvörum hafi verið í takt við áætlanir. 31.7.2006 21:35
Sútað fiskroð gefur vel í aðra hönd Sútað fiskroð með merkinu Nike eða Prada gefur vel í aðra hönd. Rekstrargrundvöllur fyrirtækisins Sjávarleðurs á Sauðárkróki virðist tryggur og í fyrsta sinn frá stofnun þess árið 1995 er það farið að skila hagnaði. 31.7.2006 21:30
Fornt akkeri á þurrt Fornleifafræðingum á vegum Hólarannsóknarinnar tókst í dag að losa af hafsbotni við Kolkuós í Skagafirði fornt akkeri sem er talið staðfesta kenninguna um skipalægi suður af Elínarhólma. Talið er að Kolkuós hafi verið ein meginhöfn Norðlendinga á öldum áður og Elínarhólmi landfastur og því heppilegur til uppskipunar. 31.7.2006 21:13
Brýnt að veita fjármagni til fornleifarannsókna Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir brýnt að veita fjármagni til fornleifarannsókna svo hægt sé að ljúka þeim. Hún telur ástæðu til að styrkja Forneleifasjóð þar sem Kristnuhátíðarsjóðs njóti ekki lengur við. 31.7.2006 20:47
Réðist með ofbeldi inn á skrifstofur Bónusvideo Karlmaður á þrítugsaldri réðst inn á skrifstofur Bónusvídeós í Hafnarfirði í dag, barði tvær konur og reyndi að ræna töskum með peningum í. Hann var yfirbugaður af vegfarendum eftir að hafa stokkið út um glugga í meira en fjögurra metra hæð. 31.7.2006 18:30
Litlu stærra en höfuðborgarsvæðið Helsta átakasvæðið í Líbanon er litlu stærra en Stór-Reykjavíkursvæðið. Íbúar höfuðborgarinnar Beirút fara ekki varhluta af árásunum í suðurhluta landsins, því ekki eru nema um áttatíu kílómetrar þarna á milli. 31.7.2006 18:30
RARIK hf. tekur formlega við á morgun Hlutafélagið RARIK hf. tekur formlega við allri starfsemi Rafmagnsveitna ríkisins á morgun, fyrsta ágúst. Á stofnfundi hlutafélagsins í dag var kjörið í fimm manna stjórn og ákveðið ganga til samninga við Tryggja Þór Haraldsson í stöðu forstjóra RARIK hf. Tryggvi Þór hefur verið settur rafmagnsveitustjóri undanfarin misseri. 31.7.2006 17:52
Jarðhitinn sparar okkur 30 milljarða árlega í hitakostnað Jarðhitinn á Íslandi sparar þjóðarbúinu 30 milljarða árlega í upphitun húsa. Brenna þyrfi 800 þúsund tonnum af jarðeldsneyti á ári, ef kynda ætti allan húsakost landsmanna upp með olíu. Jarðvarminn á Íslandi er þannig jafnvel verðmætari en fólk gerir sér grein fyrir að mati Sigurðar Friðleifssonar hjá Orkusetri. 31.7.2006 17:42
Leiðsegir fólki um Kárahnúkasvæðið Ómar Ragnarsson fréttamaður segir ferðamenn um Kárahnúkasvæðið marga hverja vera undrandi á umfangi miðlunarlónsins sem senn verður fyllt. Hann mun verja sumarfríi sínu á Kárahnjúkum í sumar til að fræða ferðamenn um svæðið. 31.7.2006 17:32
Áverkar sem eiga heima í stríði Áverkar sem hljótast af ofbeldi í miðborg Reykjavíkur um helgar eiga heima í stríði - ekki í skemmtanalífi. Þetta segir yfirlæknir á slysadeild Landspítalans. Hann vill að fræðsla um ofbeldi og slæmar afleiðingar þess hefjist strax í leikskóla. 31.7.2006 17:16
Fundur um varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna Næsti fundur samninganefnda Íslands og Bandaríkjanna um varnarsamstarf ríkjanna verður haldinn í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, dagana 3. og 4. ágúst n.k. Albert Jónsson, sendiherra, fer fyrir íslensku samninganefndinni en hún er skipuð fulltrúum úr forsætis-, utanríkis-, fjármála- og dómsmálaráðuneyti. 31.7.2006 16:11
Fíkniefni finnast á Sauðárkróki Rúmlega tvítugur maður var handtekinn á Sauðárkróki aðfaranótt sunnudags fyrir vörslu fíkniefna. Maðurinn var tekinn í teiti í heimahúsi og fundust á honum rúm sex grömm af hassi og tæplega þrjú grömm af amfetamíni sem hann ætlaði til sölu. Málið telst upplýst. 31.7.2006 15:14
Umræðufundur um ástandið í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs Ástandið, í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs, verður tekið fyrir á opnum umræðufundi í Valhöll á morgunn. 31.7.2006 14:46
Malbikunarframkvæmdir á Suðurlandsvegi Malbikunarframkvæmdir hefjast í kvöld á Suðurlandsvegi í Hveradalabrekku. Gert er ráð fyrir að verkið taki einn og hálfan sólarhring og mega vegfarendur búast við umferðartöfum á meðan á því stendur. 31.7.2006 14:40
Vélarvana bátur úti fyrir Rifi Um klukkan tvö fékk Neyðarlínan tilkynningu um vélarvana bát eina sjómílu norður af Rifi á Snæfellsnesi. Björgunarskipið Björg var komið að bátnum tuttugu mínútum seinna og dró hann í land. Báturinn er 8 metra langur línu- og handfærabátur og var einn maður um borð. 31.7.2006 14:24
Ingólfur Hartvigsson ráðinn sóknarprestur í Kirkjubæjarklausturprestakalli Ingólfur Hartvigsson hefur verið ráðinn í embætti sóknarprests í Kirkjubæjarklausturprestakalli frá og með 1. ágúst. 31.7.2006 13:51
Rán í Hafnarfirði Rán var framið um eitt leitið í dag á skrifstofum Bónusvídeó í Hafnarfirði. Tveir menn eru taldir koma við sögu. Einn hefur verið handtekinn en annar komst undan á bíl. 31.7.2006 13:34
Tónleikar Sigur Rósar í kvikmyndahúsi í London Tónleikar Sigur Rósar á Miklatúni í gærkvöldi voru ekki bara vel sóttir hér á landi heldur var fullt hús í kvikmyndahúsinu National Film Theatre í London þar sem tónleikunum var sjónvarpað beint á kvikmyndatjald. 31.7.2006 13:12
Sjávarleður skilar hagnaði Fyrirtækið Sjávarleður á Sauðárkróki er farið að skila hagnaði, í fyrsta sinn frá stofnun þess árið 1995 og forsvarsmaður þess segir að reksturinn gangi jafnvel betur nú en í fyrra, þegar gerður var samningur við hinn þekkta íþróttavöruframleiðanda NIKE. 31.7.2006 13:08
Siv í formann eða varaformann? Spenna fer vaxandi meðal framsóknarmanna fyrir flokksþingið eftir þrjár vikur, vegna óvissu um framboð Sivjar Friðleifsdóttur til formanns eða varaformanns. 31.7.2006 13:01
Laun stjórnenda fjármálafyrirtækja hækka meira en annarra Laun stjórnenda fjármálafyrirtækja hækka mun meira en laun annarra stjórnenda í þjóðfélaginu, samkvæmt samantekt Frjálsrar verslunar, og höfðu fimm tekjuhæstu mennirnir í þeim flokki á bilinu tíu til tuttugu og tvær milljónir króna á mánuði. 31.7.2006 12:55
Fimm í haldi í strippbúllustríði Fimm voru handteknir á skemmtistaðnum Bóhem í Reykjavík laust eftir miðnætti í gærkvöldi. Þeir héldu starfsfólki staðarins í gíslingu. Lögreglan auk sérsveitarmanna handtók mennina sem eru enn í haldi. 31.7.2006 12:06
Borgarráð í viðræðum um hverfislöggæslu Borgarráð hefur samþykkt að taka upp viðræður við dómsmálaráðuneytið og Lögregluna í Reykjavík um að koma á fót sýnilegri hverfislöggæslu í öllum hverfum borgarinnar. Dagur B. Eggertsson segir í yfirlýsingu, sem hann sendi frá sér í dag, að í ljósi þess hversu mikið ofbeldi hefur átt sér stað í miðborginni undanfarið ætti einnig að athuga grundvöll fyrir aukinni miðborgarvakt lögreglu. 31.7.2006 12:03
Straumur-Burðarás kaupir hlut í ráðgjafafyrirtæki Straumur-Burðarás hefur keypt 50% hlut í breska ráðgjafafyrirtækinu Stamford Partners og gert kaupréttarsamning um annað hlutafé félagsins. Þetta kemur fram í morgunkorni Glitnis. 31.7.2006 11:44
Bíll alelda Bíll stóð í ljósum logum og mikinn reyk lagði frá honum á Suðurlandsbraut rétt fyrir klukkan tíu í morgun. Slökkviliðið var kallað á svæðið og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Bíllinn var yfirgefinn og ekki á númerum. Ekki er vitað hver upptök eldsins voru. 31.7.2006 11:23