Fleiri fréttir

Bílstjóri komst sjálfur í land

Björgunarsveitir voru kallaðar út á fimmtudagskvöldið þegar óttast var um afdrif bílstjóra rútu sem festist í Krossá í Þórsmörk. Bílstjóranum, sem var einn í rútunni, tókst að sparka út rúðu og komast sjálfur í land. Var þá hjálpin afturkölluð.

Öryggismyndavél sett upp

Lögreglan í Reykjavík hefur komið fyrir eftirlitsmyndavél við gatnamót Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar.

Búið að veiða 40 hrefnur

sjávarútvegur Búið er að veiða 40 hrefnur í ár af 50 dýra kvóta en hrefnuveiðitímabilinu lýkur 18. ágúst. Tímabilið, sem átti upphaflega að ljúka 4. ágúst, var framlengt sökum þess hve hægt veiðar sóttust framan af.

Fjórir teknir með fíkniefni

Fjórir karlmenn um þrítugt og fertugt voru handteknir á gistiheimili í Holtunum um fjögur leytið í fyrrinótt þar sem þeir sátu við neyslu fíkniefna.

Eldsnöggur að hafa sig á brott

Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar var gert viðvart eftir að maður skildi eftir um tuttugu kíló af dínamíti á gámasvæði Sorpstöðvar Selfoss um tvöleytið í gær.

Ónýt dekk lögreglubíls skorin

Skemmdarvargur stakk göt á öll dekk lögreglubíls á Höfn í Hornafirði í fyrrinótt þar sem bíllinn stóð á verkstæði. Til stóð að setja ný dekk undir bílinn á verkstæðinu þar sem þau gömlu voru orðin slitin og því var um afar mis­lukkað skemmdarverk að ræða.

Eina akrein í hvora átt

Aðeins önnur brúin af tveimur á mislægum gatnamótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar fyrir neðan Grafarholtið verður byggð að þessu sinni. Sú síðari er ekki komin á vegaáætlun stjórnvalda.

Átta milljarða lækkun bréfa

Hlutabréf í Straumi-Burðarási hafa lækkað um fimmtung eftir að FL Group keypti fjórðungshlut í félaginu af þeim Kristni Björnssyni og Magnúsi Kristinssyni í lok júní.

Braut tönn dyravarðar

Ungur maður kýldi dyravörð á skemmtistað í Vestmannaeyjum í fyrrinótt með þeim afleiðingum að sauma þurfti í vör dyravarðarins og ein tönn hans reyndist brotin. Maðurinn var handtekinn í kjölfar árásarinnar og látinn gista fangageymslur. Honum var sleppt úr haldi í gær en ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna maðurinn reiddist dyraverðinum svo.

Fundað aftur í mánuðinum

Áfram var fundað um varnarmál Íslands í Washington í gær. Fjögurra tíma fundi viðræðunefndanna lauk um klukkan eitt að staðartíma, en að sögn Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, aðstoðarmanns forsætisráðherra, fékkst ekki niðurstaða á fundinum.

Björn ráðinn sveitastjóri

Björn Ingimarsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri í Langanesbyggð til næstu fjögurra ára. Gengið var frá ráðningunni á fundi hreppsnefndar í vikunni. Langanesbyggð varð til við sameiningu Þórshafnarhrepps og Skeggjastaðahrepps í vor, en Björn var áður sveitarstjóri Þórshafnarhrepps.

Um 3.000 manns á tónleikum Sigur rósar

Talið er að um 3.000 manns séu samankomnir í Ásbyrgi á tónleikum Sigur rósar sem hófust fyrr í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Húsavík hefur samkoman farið vel fram, sem og unglingalandsmót UMFÍ á Laugum en talið er að um 7.000 manns séu á mótinu. Umferð hefur sömuleiðis gengið vel um umdæmið í allan dag.

Lögreglumenn ánægður með vegfarendur

Umferð um þjóðveg númer eitt hefur gengið vel fyrir sig og er mikil ánægja meðal lögreglumanna með upphafið að þessari stærstu ferðahelgi landsmanna.

Innipúkahátíðin hafin

Innipúkahátíðin er hafin þessa verslunarmannahelgi, en enn er ekki uppselt á hana. Innipúkinn er árleg hátíð um verslunarmannahelgi fyrir fólk sem nennir ekki að þvælast út á land og gista í leku tjaldi til að fara á góða tónleika. Innipúkinn er líka fyrir fólkið sem er fast í bænum vegna vinnu en langar samt að lyfta sér upp á kvöldin. Hátíðin er haldin í fimmta sinn í ár og er á Nasa.

Skortur á leiðsögumönnum

Skólastjóri Ferðamálaskóla Íslands vill að ríkið veiti auknum fjármunum í ferðaþjónustuna. Mikill skortur er orðinn á leiðsögumönnum hér á landi sem búa yfir ákveðinni tungumálakunnáttu.

Ekkert að marka íslensku fjárlögin?

Svo virðist sem ekkert sé lengur að marka íslensku fjárlögin því stofnanir ríkisins séu hættar að virða þau. Þetta segir fulltrúi Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd. Flokkurinn hefur óskað eftir fundi í nefndinni vegna gagnrýni ríkisendurskoðunar á framkvæmd fjárlaga.

Ekið á gangandi vegfaranda

Ekið var á konu á sextugsaldri á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Álfheima á sjötta símanum í dag. Konan var flutt á gjörgæslu Landsspítalans í Fossvogi þar sem hún gengst undir rannsóknir. Líðan hennar eftir atvikum. Suðurlandsbrautin er lokuð um tíma vegna vettvangs- og rannsóknarvinna en hefur nú verið opnuð að nýju.

TF-LÍF notuð við umferðareftirlit um helgina

TF-Líf þyrla Landhelgisgæslunnar verður notuð við umferðareftirlit alla verslunarmannahelgina. Um samstarfsverkefni milli lögreglunnar og Landhelgisgæslunnar er að ræða, en lögreglumenn verða með þyrluáhöfn um borð. Þyrlunni verður flogið víða um land meðal annars yfir útihátíðarsvæði.

Eldur kviknaði í Síldarverksmiðjunni

Slökkvilið Akranes var kallað út um klukkan 17 í dag þegar eldur kom upp í Síldarverksmiðjunni á Akranesi. Í fyrstu var eldurinn nokkuð mikill en slökkviliðsmenn náði fljótt slökkva hann að mestu. Þeir eru þó enn á vettvangi en rjúfa þarf veggi til að ráða niðurlögum eldsins að fullu. Eldsupptök eru ókunn.

Umferð gengur vel víða um land

Umferð hefur gengið vel víða um land en svo virðist sem straumur ferðalanga liggi norður á Akureyri. Búist er við að mörg þúsund manns ætli sér að eyða helginni við skemmtan á hátíðinni Ein með öllu. Mikil umferð hefur verið í bæinn, sem og um bæinn og úr honum.

Grunnvatnsstaða enn langt yfir meðallagi hér á landi

Víða frá meginlandi Evrópu berast fréttir af miklum þurrkum og nú síðast segir norska dagblaðið Aftenposten frá því að orkuverð til norskra fjölskyldna muni líkast til rjúka upp úr öllu valdi í haust, þegar þarlendar vatnsaflsvirkjanir hafa ekki nægilegt vatn til að knýja rafala. Annað er hins vegar uppi á teningnum hér, og hefur verið síðustu árin.

Náðist að bjarga rútu sem barst niður með Krossá

Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöld þegar óttast var um afdrif bílstjóra, sem var einn í rútubíl, sem festist í Krossá í Þórsmörk. Bílstjóranum tókst að sparka út rúðu og komast í land og var aðstoð þá afturkölluð. Rútan barst eitthvað undan straumi og um tíma var óttast að hún ylti, en öðrum rútubílstjórum og fleirum, tóks með ærinni fyrirhöfn að ná henni upp úr ánni.

Loksins flogið til Eyja

Rétt um hádegisbilið rofaði til í þoku og súld í Vestmannaeyjum þannig að hægt var að fljúga þangað á ný. Fyrsta flugvélin fór um hálfeitt og þá tekur við að vinna upp tafir morgunsins. Um 300 manns áttu bókað flug til Vestmannaeyja í dag með Flugfélagi Íslands frá Reykjavík. Þá eru ótaldir þeir sem fljúga með öðrum flugfélögum og frá öðrum stöðum.

Flúðu dalinn og gistu í íþróttahúsinu

Um 150 mann þurftu að flýja Herjólfsdal í nótt þegar tjöld fóru að fjúka og gista í íþróttahúsinu. Aðrir skelltu sér á húkkaraball og var einn maður handtekinn eftir að hafa barið dyravörð.

Bíll festist í Krossá í Þórsmörk

Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöld þegar óttast var um afdrif bílstjóra, sem var einn í rútubíl, sem festist í Krossá í Þórsmörk. Bílstjóranum tókst að sparka út rúðu og komast í land og var aðstoð þá afturkölluð. Rútan barst eitthvað undan straumi og um tíma var óttast að hún ylti, en öðrum rútubílstjórum og fleirum, tókst með ærinni fyrirhöfn að ná henni upp úr ánni.-

Maður handtekinn í Vestmannaeyjum

Ungur maður var handtekinn í Vestmannaeyjum i nótt eftir að hann hafði barið dyravörð á veitingahúsi þannig að hann hlaut nokkurn áverka.

Fjörutíu hrefnur veiddar

Alls hafa fjörutíu hrefnur verið veiddar af fimmtíu dýra kvóta í ár. Á fréttavefnum dagur punktur net kemur fram að samkvæmt áætlun megi veiða 200 hrefnur á fjögurra ára tímabili árin 2003 til 2007.

VR stendur ekki fyrir hátíðarhöldum um helgina

Verslunarmannafélag Reykjavíkur mun ekki standa fyrir neinum hátíðarhöldum í tilefni frídags verslunarmanna, en undanfarin ár hefur félagið staðið fyrir fjölskylduhátíð í fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Karlmaður handtekinn eftir átök

Karlmaður var handtekinn og kona flutt handleggsbrotin á sjúkrahúsið á Selfossi, eftir að til átaka kom á milli þeirra í sumarbústað við þingvelli í gærkvöldi.

Bjargaðist úr sjálfheldu í Krossá

Rúta festist í Krossá inni í Þórsmörk um áttaleytið í kvöld. Bílstjóri rútunnar var einn um borð og að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli bjargaðist hann á þurrt eftir að hann hafði sparkað upp afturrúðu rútunnar.

Árni Johnsen vill ekkert gefa upp um framboð

Árni Johnsen segir ótímabært að gefa upp hvort hann hyggist bjóða sig fram ef prófkjör verður hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Stuðningsmenn hans hafa hafið undirskriftasöfnun til að skora á Árna að bjóða sig fram.

Málinu frestað

Dómari ákvað í dag að fresta máli Íslendings sem ákærður er í Bretlandi fyrir kynferðislega misnotkun á fjórtán ára enskri stúlku.

Stakk göt á dekk lögreglubíls

Stungin voru göt á öll dekk lögreglubíls á Höfn í Hornafirði í síðastliðna nótt, þar sem bíllinn stóð á bílaverkstæði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að um mislukkað skemmdarverk hafi verið að ræða en dekkin hafi verið orðið slitin og til stóð að setja ný dekk undir bílinn. Lögreglan hefur þó í huga að hafa hendur í hári dekkjadólgsins. Lögreglan vill koma því áleiðis að viðkomandi gefi sig fram og þiggi aðstoð í sínum málum, því athæfi sem þetta beri vott um alvarlega hugarbresti.

Tekinn fyrir hraðakstur í fimmta sinn á árinu

Tæplega þrítugur karlmaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík í gær. Það er vart í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að þetta var í fimmta sinn á árinu sem viðkomandi er tekinn fyrir hraðakstur.

Búið að veiða 40 á þessu ári

Alls hafa 40 hrefnur verið veiddar af 50 dýra kvóta í ár. Á fréttavefnum Dagur.net kemur fram að samkvæmt áætlun megi veiða 200 hrefnur á fjögurra ára tímabili árin 2003 til 2007. Alls hafa 141 hrefna verið veidd. Hrefnur eru veiddar samkvæmt ákveðnu skipulagi á níu svæðum í kringum landið og í hlutfalli við þéttleika hrefnu. Fjögur skip hafa verið á veiðunum en upphaflega var áætlað að veiðunum lyki í dag. Hugsanlega verður því sótt um framlengingu á veiðunum svo hægt sé að veiða þær tíu hrefnur sem eftir standa á næsta ári.

Verslunarmannahelgin að bresta á

Hátíðahaldarar bjóða upp á skemmtanir af ýmsum meiði um helgina, fyrir unnendur flugs og harmonikku, íþrótta og útivistar og ekki síst tónlistar. Allt er þetta að bresta á og erill verslunarmannahelgarinnar er einnig að hefjast hjá lögregluembættum landsins.

Heilbrigðisstarfsmenn aðstoðuðu samferðakonu sína

Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út fyrir skömmu vegna konu sem fótbrotnaði á leið sinni um Laugaveginn. Sveitarmenn lögðu af stað að sækja konuna, í Jökultungur milli Landmannalauga og Álftavatns, og var búist við þyrfti að bera hana langan veg. Betur fór þó en á horfðist því ferðafélagar hennar komu henni niður í skála við Álftavatn, en bæði læknir og hjúkrunarfræðingur voru með í för. Flugbjörgunarsveitin var því kölluð til baka en einn bíll er á leið í skálann að sækja konuna.

Enn og aftur bent á að virða fjárlög

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2005 er enn og aftur bent á mikilvægi þess að ráðuneyti og stofnanir ríkisins virði fjárlög. Í árslok 2005 hafði ríflega fjórðungur fjárlagaliða ráðstafað fjármunum umfram heimildir og á sama tíma áttu tæplega tveir þriðju allra fjárlagaliða inneign hjá ríkissjóði.

Mýrin fær 45 milljónir

Kvikmyndamiðstöð Íslands tilkynnti í gær hvað kvikmyndir hefðu fengið styrki eða vilyrði fyrir styrk úr sjóð þess. Fjórar kvikmyndir eru nú í tökum eða í lokastigi og fengu þær allar styrk. Mýrin eftir Baltasar Kormák fékk 45 milljónir, Köld Slóð í leikstjórn Björns Brynjólfs Björnssonar fékk 40 milljónir og kvikmynd Gunnars Björns Guðmundssonar, Astrópía, fékk 37 milljónir. Þá fékk framleiðslufyrirtækið Zik Zak sjö og hálfa milljón fyrir þátt sinn í kvikmynd Lars Von Trier, The Boss of it All.

Vöruskiptahallinn við útlönd sá mesti í sögunni

Vöruskiptahallinn við útlönd í síðasta mánuði var sá mesti í sögunni og fór tvo og hálfan milljarð yfir metið frá því í júní. Fluttar voru út vörur fyrir 17 milljarða en inn fyrir röska 35 milljarða þannig að hallinn nemur 18,3 milljörðum króna.

Avion gerir tilboð í kanadískt fyrirtæki

Avion Group hefur gert tilboð í kanadíska fyrirtækið Atlas Cold Storage Income Trust, sem metið er á 37 milljarða íslenskra króna. Avion Group gerir tilboðið fyrir hönd nýstofnaðs dótturfélags, sem heitir Eimskip Atlas Canada.

Sérsveitin kölluð að Kvíabryggju

Fangelsið að Kvíabryggju var í gjörgæslu víkingarsveitarmanna í gær eftir að utanaðkomandi maður hótaði að koma á staðinn og drepa tiltekinn fanga. Sérsveitin var kölluð til og stóð vakt í fangelsinu fram eftir degi.

Ökumaður á áttræðisaldri tekinn fyrir hraðakstur

Elsti ökumaðurinn, sem lögreglan í Reykjavík stöðvaði fyrir hraðakstur í gær, var á áttræðis aldri, en sá yngsti 17 ára og hafði einnig verið stöðvaður fyrir hraðakstur fyrir nokkrum dögum.

Sjá næstu 50 fréttir