Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maðurinn sem leitað var að fundinn Maðurinn sem leitað var að á Ströndum í kvöld er kominn í leitirnar heill á húfi. Björgunarsveitafólk fann hann við Hvítuhlíð um klukkan 23:40. Björgunarsveitir höfðu leitað mannsins frá því fyrr í kvöld en hann var á göngu með hópi fólks á fjallið Klakk í Kollafirði. Hann varð viðskila við hóp sinn um klukkan 16: 00 í dag. 3.8.2006 00:15
Og vodafone með Hot Spot í Eyjum Gestir sem eru á leið á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eiga þess að komast frítt á Netið í Dalnum. Og Vodafone verður með Hot Spot eða þráðlausa nettengingu og tölvur fyrir þá sem vilja komast í tölvupóstinn sinn eða vafra um Netið. Þá verður GSM þjónusta vodafone í Galtalæk stórefld um helgina. 3.8.2006 00:00
Bergur Elías Ágústsson ráðinn sveitarstjóri Byggðaráð sveitarfélagsins Norðurþings samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Berg Elías Ágústsson í starf sveitarstjóra til næstu fjögurra ára. Auglýst var eftir sveitarstjóra og bárust 13 umsóknir en tvær voru dregnar til baka. Eftir umsögn utanaðkomandi ráðningarþjónstu var einn umsækjendanna metinn hæfur en niðurstaða meirihluta byggðaráðs var að hafna öllum umsóknum. Í framhaldi af því var ákveðið að ráða Berg Elías í starfið. 3.8.2006 00:00
Fjórar konur handteknar á Kárahnjúkum Fjórar konur voru handteknar á Kárahnjúkum í kvöld, þar sem þær fóru inn að svæði þar sem gangnaopið sem vatnið mun streyma innum er staðsett. Þær fóru inn á svæðið í leyfisleysi og trufluðu atvinnustarfsemi á vinnusvæðinu. Þeim var gert að dvelja í fangageymslum lögreglu. 2.8.2006 22:35
Minni velta á fasteignamarkaði Nokkuð dró úr veltu á fasteignamarkaðnum á höfuðborgarsvæðinu í júlí. Þinglýstum kaupsamingum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði um 22,5% frá júní til júlí. 2.8.2006 22:21
Vilja hefja sölu á lituðu bensínu Forráðamenn Atlantsolíu hafa sent fjármálaráðherra bréf þar sem skorað er á ráðherra að hann beiti sér fyrir því að heimilt verði að hefja sölu á lituðu bensíni. 2.8.2006 22:02
Mikið um að vera víða um land Útihátíð, innihátíð, fjölskylduhátíð og þjóðhátíð; hátíðaglaðir landsmenn hafa ýmsa kosti um komandi Verslunarmannahelgi. 2.8.2006 21:15
Heiðruðu minningu Einars Sigurðssonar Þrír Kanadamenn, sem björguðust úr sjóslysi við Viðey árið 1944, eru nú staddir hér á landi til að heiðra minningu Íslendingsins sem bjargaði þeim, ásamt 195 félögum þeirra, úr sökkvandi skipi. 2.8.2006 20:48
Leitað að karlmanni í Kollafirði Leit stendur yfir að einhverfum manni á þrítugsaldri sem varð viðskila við hóp á göngu um Kollafjörðinn um klukkan fjögur í dag. Búið er að kalla björgunarsveitina Dagrenningu á Hólmavík út og eru björgunarsveitarmenn að hefja leit. 2.8.2006 20:46
Eðlilegra að skerðingin sé í þrepum Formanni vinstri grænna finnst miður að örorkulífeyrir tæplega 2500 öryrkja verði skertur innan þriggja mánaða. Honum finnst eðlilegra að þetta sé gert í þrepum, ef skerðing er á annað borð óumflýjanleg. 2.8.2006 19:13
Pólverji í sjálfheldu Pólskum ferðamanni var bjargað úr sjálfheldu í dag en hann sat fastur í fjallshlíð Gleiðarhjalla, sem liggur fyrir ofan Ísafjörð. 2.8.2006 18:58
Þota frá American Airlines lenti með veikan farþega Boeing 777 breiðþota frá American Airlines lenti á Keflavíkurlfugvelli nú síðdegis en einn farþegi í vélinni var meðvitundarlaus. Farþeginn sem er 15 ára gamall var einn á ferð en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli var talið að hann væri sykursjúkur. Hann var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann fékk aðhlynningu. Eftir því sem komist verður næst þá hélt þotan áleiðis til Chicago í Bandaríkjunum stuttu síðar en hún var að koma frá London. 2.8.2006 17:42
Samtök gegn nauðgunum Karlahópur Femínistafélags Íslands og V-dags samtökin hafa tekið höndum saman gegn nauðgunum um Verslunarmannahelgina. 2.8.2006 17:09
Ók 50 km hraða yfir leyfilegum hraða 28 ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík á síðasta sólarhring. Meðal þeirra ökumanna sem stöðvaðir voru, var tvítug stúlka sem ók á rúmlega 100 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 kílómetra hraði. Stúlkan á yfir höfði sér sviptingu ökuleyfis í einn mánuð og 50 þúsund króna sekt fyrir athæfið. Þá voru þrír teknir fyrir ölvun við akstur og einn fyrir að aka undir áhdirum lyfja. 2.8.2006 16:45
Mikið eftirlit á Ein með öllu Lögreglan á Akureyri vill ítreka að unglingar inna átján ára aldurs fá ekki aðgang að tjaldstæðum nema í fylgd með forráðamönnum um helgina. Á Akureyri er haldin hátíðin Ein með öllu og á Laugum í Þingeyjarsýslu verður haldið unglingalandsmót UMFÍ, svo lögreglan gerir ráð fyrir miklum fjölda manns á ferð um Norðurlandið næstu daga. Lögreglan vill einnig koma því áleiðis til ferðamanna að þeir sýni aðgát við akstur og gefi sér nægan tíma til ferðalaga. 2.8.2006 16:30
Óásættanlegt að umsóknum sé hafnað Hagsmunaráð framhaldsskólanema og Stúdentaráð Háskóla Íslands telur það óásættanlegt að háskólar landsins hafi þurft að hafna 2.500 umsóknum um háskólanám fyrir komandi skólaár. Jafnvel þótt einn einstaklingur kunni að vera að baki fleiri en einni umsókn, sé ljóst að hlutfall þeirra sem hafnað er sé of hátt. 2.8.2006 16:15
Íbúum af erlendum uppruna fækkar á Vestfjörðum Íbúum á Vestfjörðum með erlent ríkisfang fækkaði um 6,7% frá árinu 2000 til 2005, eða úr 499 í 466. 2.8.2006 15:41
4,1 milljarða hagnaður hjá Sjóvá 4,1 milljarða hagnaður var á rekstri Sjóvá vátrygginga og fjarfestingastarfsemi á fyrstu sex mánuðum ársins fyrir skatta, samanborið við 1,7 milljarða hagnað á fyrstu sex mánuðum síðasta árs. Í tilkynningu frá Sjóvá segir að rekstrarkostnaður fyrirtækisins hafi lækkað um 30%. Halli á vátryggingarekstri félagsins að frádregnum fjárfestingartekjum nam 271 milljón á fyrstu sex mánuðum ársins en nam 1.116 milljónum á sama tímabili í fyrra. 2.8.2006 15:30
Sigur rós spilar á Seyðisfirði Tónleikaferð hljómsveitarinnar Sigur rósar um landið hefur fallið vel í kramið hjá landanum. Hljómsveitin hefur nú upplýst um næstu tónleika hljómsveitarinnar en þeir verða á Miðbæjartorginu á Seyðisfirði annað kvöld og munu hefjast klukkan 20. Þetta verða fimmtu tónleikar hljómsveitarinnar í ferð þeirra um landið en til stendur að þeir verði alls sjö talsins. Það á þó enn eftir að skýrast hvar þeir tveir síðastnefndu verða, en tónleikarnir eru tilkynntir með stuttum fyrirvara. 2.8.2006 15:20
Dregur saman með Samfylkingunni og Vinstri grænum Heldur dregur saman með Samfylkingunni og Vinstri grænum frá því í síðasta mánuði, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups. 2.8.2006 12:53
Spá minni hagnaði Fjármálasérfræðingar bankanna spá almennt minni hagnaði á síðari helmingi ársins, en á fyrri helmingi þess, sem sló öll met. 2.8.2006 12:46
Þingmenn fastir í Svíþjóð Fimm manna sendinefnd á vegum Alþingis hefur setið föst á Arlanda flugvellinum í Stokkhólmi, á annan sólarhring. Björgvin G. Sigurðsson þingmaður segir framkomu Flugleiða slíka að þingið þurfa að endurskoða viðskipti sín við félagið. 2.8.2006 12:30
Um 40 kýr brunnu inni Um það bil fjörutíu kýr brunnu inni þegar eldur kom upp í fjósi og hlöðu á bænum Húsatóftum á Skeiðum á sjöunda tímanum í morgun. Þegar heimafólk varð eldsins vart, logaði hann í þökum beggja bygginganna, sem eru sambyggðar, og varð ekki við neitt ráðið. 2.8.2006 12:00
Úrskurðaður í gæsluvarðhald Maðurinn, sem handtekinn var eftir ránið í skrifstofum Bónusvídeós í Hafnarfirði í fyrradag, var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til áttunda ágúst. 2.8.2006 09:49
Með hass í poka Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn eftir að slatti af hassi fanst í poka í bíl hans , eftir að hann var stöðvaður á Geirsgötu í Reykjavík í nótt. 16 ára unglingur, sem líka var í bílnum, forðaði sér á hlaupum, en lögreglan vissi hver hann er og komu forledrar með hann á stöðina síðar í nótt. Sá eldri gistir fangageymslur, grunaður um að hafa ætlað efnið til sölu, og verður yfirheyrður í dag. 2.8.2006 09:33
Virða ekki hæðatakmarkanir Flutningabílar með háfermi óku sex sinnum á hæðarslár, við brúarbygginguna á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvega frá því um tvö leitið í fyrrinótt þar til um tvö leitið í nótt. Að sögn lögreglu er í nokkrum tilvikum vitað hverjir voru á ferð, en í öðrum ekki. Slárnar skemmdust talsvert, en ökumennirnir náðu að stöðva bíla sína áður en þeir ækju á uppsláttinn undir brúnni sjálfri. Slárnar eru svipaðar þeim, sem eru við Hvalfjarðagöng og hvað eftir annað hefur verið ekið á að undanförnu. 2.8.2006 09:30
Eldur í íbúðarhúsnæði Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði mikinn viðbúnað þegar tilkynnt var um eld í íbúð í húsnæði, sem búið er að breyta í íbúðarhúsnæði, við utanverða Kársnesbraut í Kópavogi í gærkvöldi. Þegar slökkviliðið kom á vettvang var búið að rýma húsið að hluta, en þegar til kom reyndist lítilsháttar eldur loga í gluggakarmi einnar íbúðarinnar, sem var mannlaus. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í, og verður rannsókn haldið áfram á vettvangi í dag. 2.8.2006 09:26
Steranotkun unglinga mest í þremur greinum íþrótta Notkun ólöglegra stera og hins örvandi efnis efedríns, virðist vera umtalsverð meðal framhaldsskólanema, ef marka má niðurstöður könnunar sem unnin var fyrir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Flestir notendur þessara ólöglegu efna voru í vaxtarrækt, frjálsum íþróttum og bardagaíþróttum. 2.8.2006 03:30
Börn sem leggja aðra í einelti lenda á glapstigu Börn sem leggja önnur börn í einelti eru líklegri til að lenda á glapstigu. Þetta segir Þorlákur H. Helgason sem vinnur að svokölluðu Olweusar-verkefni hjá Kennaraháskóla Íslands. Rannsókn sem unnin var í efsta bekk grunnskóla í Stokkhólmi sýnir að börn og unglingar sem leggja aðra í einelti eru margfalt líklegri til að fremja afbrot. Einnig eru þau líklegri til að reykja daglega, neyta eiturlyfja og drekka. 1.8.2006 22:15
Mikill verðmunur á nikótínlyfjum Verð á nikótínlyfjum hefur hækkað töluvert frá því í janúar samkvæmt nýlegri könnun Neytendasamtakanna. Veðhækkunin nemur allt að tuttugu og fjórum prósentum í sumum apótekum. 1.8.2006 21:52
Búið að slökkva eldinn Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan átta í kvöld vegna elds í blokk við Kársnesbraut í Kópavogi. Eldurinn hafði kviknað í íbúð á efstu hæð en hún var þá mannlaus. Betur fór en á horfðist í fyrstu en um minniháttar bruna var að ræða og gekk slökkvistarf greiðlega. Ekki er vitað með tjón að svo stöddu en lögregla fer með rannsókn málsins. Líklegt þykir að um íkveikju hafi verið að ræða. 1.8.2006 20:57
Eldur í íbúðablokk á Kársnesbraut Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út rétt í þessu vegna elds í íbúðablokk við Kársnesbraut í Kópavogi. Slökkviliðsmenn eru komnir á staðinn en svo virðist sem um minniháttar bruna sé að ræða. Nokkur reykur er í íbúðinni en slökkviliðsmenn eru að störfum. Einn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp en honum varð ekki meint af. Nokkrar nærliggjandi íbúðir voru rýmdar þegar eldurinn kom upp en ekki reyndist þörf á að rýma alla blokkinni. 1.8.2006 20:28
Um 4.600 manns eiga bókaðar ferðir til Eyja Um 4.600 manns eiga bókaðar ferðir til Vestmannaeyja um næstu helgi. Fréttavefurinn Suðurland.is greinir frá því að flestir farþeganna eigi bókað far með Herjólfi til Eyja eða rúmlega 3.000 manns. Um 940 farþegar munu fljúga með Flugvfélagi Vestmannaeyja og þá eiga um 600 manns bókað flug til Eyja með Landsflugi en Landsflug mun fljúga frá Reykjavík, Höfn í Hornafirði og Sauðárkróki. 1.8.2006 19:16
Sr. Elínborg ráðin afleysingaprestur í Grindavík Sr. Elínborg Gísladóttir hefur verið ráðin afleysingaprestur í Grindavík. Fréttavefurinn Víkurfréttir.is greinir frá því að sr. Elínborg muni gegn starfinu til loka maí á næsta ári í fjarveru sr. Jónu Kristínar Þorvaldsdóttur sem varð forseti bæjarstjórnar eftir kosningarnar í vor. Elínborg hefur áður gegnt starfi afleysingaprests, í Ólafsfirði í þrjú ár og í Grafarvogskikrju í 17 mánuði. Hún er fædd árið 1959, lauk embættisprófi 1998 og hlaut prestsvígslu árið 2001. 1.8.2006 18:45
Heimilt að semja við Eykt Félagsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að fyrrverandi meirihluta í bæjarstjórn Hveragerðis hafi verið heimilt að semja við Eykt um uppbyggingu á nýju hverfi í bænum. 1.8.2006 18:08
Kaupþing banki selur hlut í Exista Kaupþing banki hefur selt 6,1% hlut í Exista til alls níu lífeyrissjóða á Íslandi. Þessi hluti samsvarar um 30% af heildareign bankans í félaginu. 1.8.2006 17:59
Líðan mannsins eftir atvikum Líðan unga mannsins, sem slasaðist alvarlega á Sandgerðisvegi í gærkvöldi þegar bíll hans fór útaf og bílbeltið slitnaði, er eftir atvikum góð. Hann er undir eftirliti lækna á gjörgæslu Landspítalans en hann er mikið slasaður. Hann er þó ekki í öndunarvél en hann verður áfram undir eftirliti lækna næstu daga. Hann var einn í bílnum og kastaðist út úr honum eftir að beltið slitnaði. Lögregla og Rannsóknanefnd bílslysa rannsaka tildrög slyssins, og af hverju bílbeltið slitnaði. 1.8.2006 17:57
BSRB stefnir bæjarstjórn Snæfellsbæjar BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar, verði uppsagnir sex starfsmanna sundlauga og íþróttahúsa í sveitarfélaginu ekki dregnar til baka. Uppsagnirnar standa í tengslum við skipulagsbreytingar en BSRB segir kjarasamninga kveða skýrt á um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að fólki sé sagt upp störfum. 1.8.2006 17:52
Tíu ár frá því að Ólafur Ragnar var kjörinn forseti Í dag eru tíu ár síðan Ólafur Ragnar Grímsson tók formlega við embætti forseta Íslands. Það má segja að hver merkisdagurinn reki hvorn annan í þessari viku hjá forsetanum því í gær fékk Dorrit Mousaieff forsætisfrú íslenskan ríkisborgararétt. 1.8.2006 17:51
Methagnaður viðskiptabankanna Methagnaður er á rekstri viðskiptabankanna á þessu ári, en fyrstu sex mánuði ársins nam hagnaðurinn rúmlega 72 milljörðum króna. Glitnir hefur aldrei skilað meiri hagnaði og hagnaður KB banka og Landsbanka er meiri en á sama tíma í fyrra. 1.8.2006 17:31
1200 öryrkjar missa lífeyrisbæturnar 1. nóvember Um 1200 öryrkjar munu að líkindum missa allar lífeyrisbætur sínar þann 1. nóvember næstkomandi eftir sérstaka tekjuathugun Greiðslustofu lífeyrissjóða. Bætur 1100 manns til viðbótar skerðast á sama tíma. 1.8.2006 17:11
Mikið álag á Reiknistofu bankanna Mikið álag hefur verið á Reiknisstofu bankanna frá því í gærkvöldi, en í dag eru stærstu mánaðarmót ársins vegna greiðslna hins opinbera á vaxtabótum og ofgreiddum sköttum. 1.8.2006 15:28
BSRB hótar kæru á hendur Snæfellsbæ BSRB hefur ákveðið að stefna bæjarstjórn Snæfellsbæjar, verði uppsagnir sex starfsmanna sundlauga og íþróttahúsa í sveitarfélaginu ekki dregnar til baka. Uppsagnirnar standa í tengslum við skipulagsbreytingar en BSRB segir kjarasamninga kveða skýrt á um að slíkar breytingar geti átt sér stað án þess að fólki sé sagt upp störfum. 1.8.2006 14:45
Lögreglan neitar að hafa ekið á mótmælanda Lögreglan á Egilsstöðum vísar á bug ásökunum Ólafs Páls Sigurðssonar um að hafa ekið á hann við fjölskyldubúðir Íslandsvina nálægt Kárahnjúkavirkjun. Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn, segir að maðurinn hafi verið ógnandi, eins og sjáist á þessari mynd lögreglunnar sem NFS fékk afhenta. 1.8.2006 14:00
Sturla hyggst höggva á hnútinn Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, ætlar að fá utanaðkomandi aðila til að skoða nýtt vaktafyrirkomulag flugumferðarstjóra í flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. Flugumferðarstjórar funduðu með ráðherra í morgun, en þeir hafa neitað að vinna yfirvinnu frá því nýtt vaktafyrirkomulag tók gildi í vor. 1.8.2006 13:11