Fleiri fréttir Ljósleiðari hjá Og Vodafone í sundur Mikilvægur ljósleiðari hjá Og Vodafone rofnaði um níuleytið í morgun og veldur það truflunum á fjarskiptakerfi fyrirtækisins. Geta notendur fastlínu, GSM og ADSL þar af leiðandi búist við miklum truflunum á meðan þjónustan er flutt eftir megni á varaleiðir. Ekki er vitað hvenær viðgerðum lýkur. 13.7.2006 10:30 Reykjanesbær frestar framkvæmdum Reykjanesbær hefur ákveðið að fresta framkvæmdum í bænum sem hljóða upp á rúmar 650 milljónir króna. 13.7.2006 10:08 Atlantsolía opnar bensínstöð Atlantsolía ætlar í dag klukkan tvö að opna nýja bensínstöð á lóð FH við Kaplakrika. Í tilefni af opnuninni verður, tímabundið hægt að næla sér þar í ódýrasta bensín landsins. 13.7.2006 09:55 Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum Næstkomandi föstudag verður Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum haldið í Glaðheimum í Kópavogi. Vel á fjórða hundrað skráninga eru komnar í hús og munu nokkrir fyrrum Íslandsmeistarar, fyrri ára, freista þess að verja titla sína. 13.7.2006 09:46 Umhverfis- og fegrunarátak "Taktu upp hanskann fyrir Reykjavík" er yfirskrift nýs umhverfisátaks Reykjarvíkurborgar. Átakið hefst í Breiðholti og borgarstjóri kynnti það fyrir Breiðhyltingum í gærkvöldi. 13.7.2006 09:45 Ofsaakstur Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna ofsaaksturs í nótt. Annar mældist á 150 kílómetra harða í Ártúnsbrekkunni og hinn á 160 kílómetra hraða á Reykjanesbraut. 13.7.2006 09:41 Ekki ákveðið hvort Alliancehúsið verði friðað Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segist ekki geta svarað að svo stöddu hvort Alliance-húsið svokallaða í Vesturbæ Reykjavíkur verði friðað. 13.7.2006 09:34 Íslendingar fjárfesta grimmst erlendis Fjárfestingar Íslendinga erlendis var litlu minni en fjárfestingar nágranna okkar Dana í fyrra þrátt fyrir að hagkerfi þeirra sé um það bil fimmtán sinnum stærra. 13.7.2006 09:30 Íbúðir byggðar umfram eftirspurn Greiningadeild KB banka telur að 4200 íbúðir verði byggðar í ár en þörfin sé aðeins 3300 þannig að hátt í þúsund íbúðir verði byggðar umfram eftirspurn 13.7.2006 09:25 Sviptur ökuleyfi og dæmdur fyrir bílstuld 17 ára drengur var sviptur ökuleyfi í átta mánuði og dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa stolið olíuflutningabifreið af bensínafgreiðslustöð Atlantsolíu við Kópavogsbraut. 13.7.2006 09:00 Tveir pólverjar handteknir Tveir pólverjar gista fangageymslur lögreglunnar í Keflavík eftir að þeri voru handteknir undir kvöld fyrir óspektir i bænum. Þeir veittust að fólki og trufluðu umferð uns lögregla skarst í leikinn. Þeir voru drukknir og verða yfirheyrðir þegar af þeim er runnið. 13.7.2006 08:50 Leynilegur baráttufundur starfsmanna IGS Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust laust fyrir klukkan átta í gærkvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. 13.7.2006 08:40 Magni áfram í Rockstar Magni Ásgeirsson söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól, komst áfram í söngvarakeppninni Rockstar: Supernova , á CBS sjónvarpsstöðinni. 13.7.2006 08:35 Með kíló af kókaíni í skónum Íslenskt par um tvítugt var stöðvað af tollvörðum í Leifsstöð á fimmtudag með kíló af kókaíni falið í skóm sínum. Fólkið, sem er 23 og 24 ára, var að koma frá Frankfurt í Þýskalandi og hafði búið skófatnað sinn þannig að í hvern skó var hægt að koma 250 grömmum af kókaíni auðveldlega fyrir. 13.7.2006 08:00 Lyf hækka um tugi milljóna Lyfjakostnaður Landspítalans hækkar um sextíu til sjötíu milljónir, einungis vegna gengisbreytinga á þessu ári, ef reiknað er með að gengi helstu gjaldmiðla haldist óbreytt út árið. Þetta er mat Valgerðar Bjarnadóttur, sviðsstjóra innkaupa- og vörustjórnunarsviðs Landspítalans. 13.7.2006 07:45 Eðlilegt að kanna umhverfið „Okkur þykir Lífeyrissjóður verslunarmanna oft á tíðum hafa beitt sér með sérkennilegum hætti gegn þessum félögum,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL Group. Hann segir að Baugur og FL Group séu nú að kanna umhverfið og skoða þá möguleika sem séu fyrir hendi. 13.7.2006 07:30 Segir stúdentsprófið ekki ávísun á háskólavist Rektor Háskólans á Akureyri segir að gangi tillögur nefndar um eflingu starfsnáms eftir gæti farið svo að fólk með stúdentspróf eigi ekki lengur vísan aðgang að háskólanámi. Flestir eru þó sáttir við tillögurnar. 13.7.2006 07:30 Þýsk kona komin í leitirnar Þýsk kona, sem var í hópi ferðamanna við Dettifoss í gærmorgun, varð viðskila við hópinn og villtist. 13.7.2006 07:19 Laun hækka umtalsvert Mikil gleði var í Rúgbrauðsgerðinni í gærmorgun þegar skrifað var undir nýjan samning um kjör starfsmanna svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra. Var feginleikinn svo mikill að slegið var upp í heljarinnar hópknús á meðan blekið þornaði. 13.7.2006 07:15 Of snemmt að fagna sigri Vísitala neysluverðs í júlí hækkaði um 0,46 prósent frá því í júní, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þessi hækkun er undir væntingum greiningaraðila, sem höfðu spáð 0,55 til 0,7 prósenta hækkun. 13.7.2006 07:15 Verðbætur á ellefta milljarð Talið er líklegt að hagnaður viðskiptabankanna þriggja af verðbótum hafi numið um 10,5 - 10,9 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Verðbólga mældist um 3,8 prósent á tímabilinu og hafði mikil áhrif á afkomu bankanna sem eiga yfir 350 milljarða í verðtryggðum eignum að frádregnum skuldum. 13.7.2006 07:15 Rifa kom á Norrænu Rifa kom á birðing ferjunnar Norrænu, þega hún var að láta úr höfn í Þórshöfn í Færeyjum í gærkvöldi, áleliðis til Íslands, en rakst utan í bryggjukant. 13.7.2006 07:14 Íbúarnir taki upp hanskann Borgarstjórn Reykjavíkur hefur efnt til átaks til hreinsunar borgarinnar og stendur það í sumar og næstu tvö sumur. Var átakið kynnt á fundi með íbúum í Breiðholti í gærkvöldi en fer formlega af stað með hreinsunardegi í Breiðholti laugardaginn 22. júlí. 13.7.2006 07:00 Sagðist nota etanól í bakstra við bakverk Efnafræðingur, sem vitnaði í máli tveggja Litháa sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnabrot, sagði fyrir dómi að hann hefði aldrei séð amfetamín í fljótandi formi áður. Það var flutt inn í hvítvínsflöskum og líklega ekki í fyrsta sinn. 13.7.2006 07:00 Fundu rústir klaustursins Lengi var vitað af stóru klaustri á Austurlandi en rústir þess fundust ekki fyrr en árið 2002. Uppgröftur stendur enn yfir og hefur helmingur rústanna nú verið afhjúpaður, eða um sex hundruð fermetrar. 13.7.2006 06:45 Kosning í stjórn talin ólíkleg Líklegast er að sjálfkjörið verði í stjórn Straums-Burðaráss á hluthafafundi 19. júlí. Framboðsfrestur rennur út klukkan tvö í dag. 13.7.2006 06:30 Tók á móti skútukörlum 13.7.2006 06:30 Segja bið eftir lækni of langa Í könnun sem gerð var meðal fanga á Litla-Hrauni kemur fram að meirihluti þeirra er óánægður með lækna- og tannlæknaþjónustu fangelsisins og allmargir með sálfræðiþjónustuna. Þetta kemur fram í Tímamótum, fréttablaði fanga á Litla-Hrauni. Þar kemur einnig fram að bið eftir viðtali hjá lækni á Litla-Hrauni getur verið nokkrir dagar. 13.7.2006 06:15 Ráðherrar votta samúð Forsætis- og utanríkisráðuneyti Íslands hafa sent indverskum stjórnvöldum samúðarkveðjur vegna hryðjuverkaárásanna í Mumbai í fyrradag. 13.7.2006 06:15 Valgerður og Geir votta Indverjum samúð Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa sent starfsbræðrum sínum í Indlandi samúðarskeyti vegna sprengjuárásanna á lestakerfið í Mumbei á Indlandi. Valgerður ítrekaði ennfremur stuðning íslenskra stjórnvalda við baráttuna gegn alþjóðlegum hryðjuverkum. 12.7.2006 23:06 Fjárfestingar Íslendinga erlendis litlu minni en Dana Fjárfestingar Íslendinga erlendis var litlu minni en fjárfestingar nágranna okkar Dana í fyrra þrátt fyrir að hagkerfi þeirra sé um það bil fimmtán sinnum stærra. Alls námu fjárfestingar Íslendinga erlendis 439 milljörðum króna á síðasta ári og hafa þær aldrei verið meiri. Þetta um tvöföld upphæð fjárfestinga frá árinu áður og fimmtánföld upphæð ársins 2003. Auk þess má rifja upp á Ísland var í 16. sæti af aðlidarríkjum efnahags- og framfarastofunnarinnar, OECD þegar kom að beinum fjárfestingum. Sem dæmi um hve mikil þessi umsvif þessi voru má nefna að beinar fjárfestingar Íslendinga erlendis voru meiri en Norðmanna og Finna. Það segja Glitnismenn í raun ótrúlegt þegar litið er til þess að Ísland er lang fámennast þessara ríkja. Þessar miklu beinu fjárfestingar erlendis skýrast mest af sókn íslenskra fjármálafyrirtækja á erlendum mörkuðum svo sem kaup Actavis á Amide og Alpharma, Kaupþings á Singer og Fridlander og Bakkavarar á Geest. Það er því von að margir spyrji sig að því hvaðan allir þessir peningar koma. Jón Bjarki Bentsson sérfræðingur frá greiningardeild Glitnis segir skýringuna vera aukin erlend lán Íslendinga. Skuldasöfnunin komi svo fram í því að reynt hafi á lánshæfni íslenskra kaupahéðna og því hafi þessi þróun dregist saman. Í mars á þessu ári dró Den Danske Bank upp mjög dökka mynd af íslensku efnahagslífi. Þeirri gagnrýni vísuðu Glitsmenn þó mikið til á bug og lögðu ríka áherslu á að þó spáð væri samdrætti væri ekkert sem benti til kreppu. 12.7.2006 22:51 Fullur unglingur stal olíubíl Sautján ára drengur var sviptur ökuleyfi í átta mánuði og dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa stolið olíuflutningabifreið af bensínafgreiðslustöð Atlantsolíu við Kópavogsbraut. Bifreiðin var tengd við aftanívagn sem innihélt um þrjátíu þúsund lítra af bensíni. Drengurinn var undir áhrifum áfengis. Dómarinn taldi rétt að fresta fullnustu refsingarinnar haldi drengurinn skilorð næstu tvö árin. 12.7.2006 22:34 Rekin fyrir að reykja í laumi Afgreiðslustúlka á veitingastað í Reykjavík var sagt upp störfum þegar upp komst um laumureykingar hennar og ítrekað hnupl með falinni myndavél inn á staðnum. Persónuvernd segir að um ólögmæta vöktun hafi verið um að ræða. 12.7.2006 22:29 Starfsmenn á baráttufundi Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust nú laust fyrir klukkan átta í kvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. 12.7.2006 22:27 Göngugarpur setur met Göngugarpurinn Jón Eggert Guðmundsson er nú í Barðastrandarsýslu í göngu sinni eftir strandvegum Íslands. Hann hefur þegar náð þeim áfanga að verða sá Íslendingur sem lengst hefur gengið á vegum umhverfis Ísland. 12.7.2006 20:57 Matarkostnaður gæti lækkað um 50 þúsund á ári Allt stefnir í að matvælanefnd forsætisráðuneytisins sem átti að leggja til leiðir til að lækka matarverð á Íslandi, ljúki störfum í þessari viku án þess að skila sameiginlegri niðurstöðu um innflutningstolla á matvælum. 12.7.2006 20:55 Ópólitískur upplýsingafulltrúi Guðmundur Hörður Guðmundsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins. Guðmundur hefur starfað í fréttamennsku, bæði á Rúv og Fréttablaðinu auk þess sem hann hefur numið umhverfisfræði í Edinborgarháskóla. Guðmundur Hörður var fyrir nokkrum árum áberandi í starfi ungs Samfylkingarfólks og sat í nefndum fyrir flokkinn en segist nú hafa sagt skilið við pólitíkina. 12.7.2006 19:59 Amfetamín í hvítvínsflöskum Það er jafn auðvelt að búa til hreint amfetamín úr amfetamínvökva og að baka köku. Þetta kom fram í vitnisburði sérfræðings í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, við aðalmeðferð í máli tveggja Litháa sem grunaðir eru um stórfellt fíkniefnasmygl til landsins. 12.7.2006 18:06 Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi opnaður á ný Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi hefur verið opnaður aftur eftir umferðaróhapp sem varð fyrr í dag og hindraði umferð. 12.7.2006 17:52 Forsætisráðherra sendir samúðarkveðjur til Mumbai Geir H Haarde, forsætisráðherra sendi í dag forsætisráðherra Indlands, Dr. Manmohan Singh, samúðarkveðjur íslensku þjóðarinnar vegna hryðjuverkaárásanna í Mumbai í gær. 12.7.2006 17:37 Vill fá allt húsnæðið að Snorrabraut undir Blóðbankann Stjórnvöld og yfirstjórn Landsspítalans eiga að nýta tækifærið og flytja Blóðbankann í húsnæði sem rúmar alla starfsemina segir Sveinn Guðmundsson, blóðbankastjóri. Hann gagnrýnir harðlega ummæli ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytisins vegna fyrirhugaðra flutninga. 12.7.2006 17:29 Umskornir karlmenn smitast síður af kynsjúkdómum Minni líkur eru á að umskornir karlmenn smitist af HIV veirunni og fái aðra kynsjúkdóma en karlmenn sem ekki eru umskornir. Sóttvarnarlæknir hvetur þó ekki íslenska karlmenn til að fara í slíka aðgerð. 12.7.2006 17:25 Umferðartafir við Lómagnúp á Skeiðarársandi Umferðartafir eru við Lómagnúp á Skeiðarársandi vegna umferðaróhapps sem varð rétt fyrir klukkan þrjú. Jeppi með fellihýsi valt og lenti á miðjum veginum og hindrar umferð að öllu leyti. Enginn slasaðist alvarlega. Vegagerðin biður fólk um að sína tillitssemi. 12.7.2006 15:40 Vonast til að Alliance-húsið svokallaða verði friðað Formaður húsafriðunarnefndar ríkisins situr nú fund með borgarstjóra í von um að borgarstjóri taki vel í hugmyndir nefndarinnar um að friða Alliance-húsið svokallaða í vesturbæ Reykjavíkur. Formaðurinn neitar því alfarið að nefndin hafi sofið á verðinum, en til stendur að rífa húsið. 12.7.2006 15:16 Litháinn lýsir sig saklausann Lithái, sem var handtekinn í Leifsstöð í desember með tvær áfengisflöskur fullar af vökva til amfetamínframleiðslu, lýsti sig saklausan við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 12.7.2006 13:38 Sjá næstu 50 fréttir
Ljósleiðari hjá Og Vodafone í sundur Mikilvægur ljósleiðari hjá Og Vodafone rofnaði um níuleytið í morgun og veldur það truflunum á fjarskiptakerfi fyrirtækisins. Geta notendur fastlínu, GSM og ADSL þar af leiðandi búist við miklum truflunum á meðan þjónustan er flutt eftir megni á varaleiðir. Ekki er vitað hvenær viðgerðum lýkur. 13.7.2006 10:30
Reykjanesbær frestar framkvæmdum Reykjanesbær hefur ákveðið að fresta framkvæmdum í bænum sem hljóða upp á rúmar 650 milljónir króna. 13.7.2006 10:08
Atlantsolía opnar bensínstöð Atlantsolía ætlar í dag klukkan tvö að opna nýja bensínstöð á lóð FH við Kaplakrika. Í tilefni af opnuninni verður, tímabundið hægt að næla sér þar í ódýrasta bensín landsins. 13.7.2006 09:55
Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum Næstkomandi föstudag verður Íslandsmót fullorðinna í hestaíþróttum haldið í Glaðheimum í Kópavogi. Vel á fjórða hundrað skráninga eru komnar í hús og munu nokkrir fyrrum Íslandsmeistarar, fyrri ára, freista þess að verja titla sína. 13.7.2006 09:46
Umhverfis- og fegrunarátak "Taktu upp hanskann fyrir Reykjavík" er yfirskrift nýs umhverfisátaks Reykjarvíkurborgar. Átakið hefst í Breiðholti og borgarstjóri kynnti það fyrir Breiðhyltingum í gærkvöldi. 13.7.2006 09:45
Ofsaakstur Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna ofsaaksturs í nótt. Annar mældist á 150 kílómetra harða í Ártúnsbrekkunni og hinn á 160 kílómetra hraða á Reykjanesbraut. 13.7.2006 09:41
Ekki ákveðið hvort Alliancehúsið verði friðað Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segist ekki geta svarað að svo stöddu hvort Alliance-húsið svokallaða í Vesturbæ Reykjavíkur verði friðað. 13.7.2006 09:34
Íslendingar fjárfesta grimmst erlendis Fjárfestingar Íslendinga erlendis var litlu minni en fjárfestingar nágranna okkar Dana í fyrra þrátt fyrir að hagkerfi þeirra sé um það bil fimmtán sinnum stærra. 13.7.2006 09:30
Íbúðir byggðar umfram eftirspurn Greiningadeild KB banka telur að 4200 íbúðir verði byggðar í ár en þörfin sé aðeins 3300 þannig að hátt í þúsund íbúðir verði byggðar umfram eftirspurn 13.7.2006 09:25
Sviptur ökuleyfi og dæmdur fyrir bílstuld 17 ára drengur var sviptur ökuleyfi í átta mánuði og dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa stolið olíuflutningabifreið af bensínafgreiðslustöð Atlantsolíu við Kópavogsbraut. 13.7.2006 09:00
Tveir pólverjar handteknir Tveir pólverjar gista fangageymslur lögreglunnar í Keflavík eftir að þeri voru handteknir undir kvöld fyrir óspektir i bænum. Þeir veittust að fólki og trufluðu umferð uns lögregla skarst í leikinn. Þeir voru drukknir og verða yfirheyrðir þegar af þeim er runnið. 13.7.2006 08:50
Leynilegur baráttufundur starfsmanna IGS Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust laust fyrir klukkan átta í gærkvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. 13.7.2006 08:40
Magni áfram í Rockstar Magni Ásgeirsson söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól, komst áfram í söngvarakeppninni Rockstar: Supernova , á CBS sjónvarpsstöðinni. 13.7.2006 08:35
Með kíló af kókaíni í skónum Íslenskt par um tvítugt var stöðvað af tollvörðum í Leifsstöð á fimmtudag með kíló af kókaíni falið í skóm sínum. Fólkið, sem er 23 og 24 ára, var að koma frá Frankfurt í Þýskalandi og hafði búið skófatnað sinn þannig að í hvern skó var hægt að koma 250 grömmum af kókaíni auðveldlega fyrir. 13.7.2006 08:00
Lyf hækka um tugi milljóna Lyfjakostnaður Landspítalans hækkar um sextíu til sjötíu milljónir, einungis vegna gengisbreytinga á þessu ári, ef reiknað er með að gengi helstu gjaldmiðla haldist óbreytt út árið. Þetta er mat Valgerðar Bjarnadóttur, sviðsstjóra innkaupa- og vörustjórnunarsviðs Landspítalans. 13.7.2006 07:45
Eðlilegt að kanna umhverfið „Okkur þykir Lífeyrissjóður verslunarmanna oft á tíðum hafa beitt sér með sérkennilegum hætti gegn þessum félögum,“ segir Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður FL Group. Hann segir að Baugur og FL Group séu nú að kanna umhverfið og skoða þá möguleika sem séu fyrir hendi. 13.7.2006 07:30
Segir stúdentsprófið ekki ávísun á háskólavist Rektor Háskólans á Akureyri segir að gangi tillögur nefndar um eflingu starfsnáms eftir gæti farið svo að fólk með stúdentspróf eigi ekki lengur vísan aðgang að háskólanámi. Flestir eru þó sáttir við tillögurnar. 13.7.2006 07:30
Þýsk kona komin í leitirnar Þýsk kona, sem var í hópi ferðamanna við Dettifoss í gærmorgun, varð viðskila við hópinn og villtist. 13.7.2006 07:19
Laun hækka umtalsvert Mikil gleði var í Rúgbrauðsgerðinni í gærmorgun þegar skrifað var undir nýjan samning um kjör starfsmanna svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra. Var feginleikinn svo mikill að slegið var upp í heljarinnar hópknús á meðan blekið þornaði. 13.7.2006 07:15
Of snemmt að fagna sigri Vísitala neysluverðs í júlí hækkaði um 0,46 prósent frá því í júní, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þessi hækkun er undir væntingum greiningaraðila, sem höfðu spáð 0,55 til 0,7 prósenta hækkun. 13.7.2006 07:15
Verðbætur á ellefta milljarð Talið er líklegt að hagnaður viðskiptabankanna þriggja af verðbótum hafi numið um 10,5 - 10,9 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi. Verðbólga mældist um 3,8 prósent á tímabilinu og hafði mikil áhrif á afkomu bankanna sem eiga yfir 350 milljarða í verðtryggðum eignum að frádregnum skuldum. 13.7.2006 07:15
Rifa kom á Norrænu Rifa kom á birðing ferjunnar Norrænu, þega hún var að láta úr höfn í Þórshöfn í Færeyjum í gærkvöldi, áleliðis til Íslands, en rakst utan í bryggjukant. 13.7.2006 07:14
Íbúarnir taki upp hanskann Borgarstjórn Reykjavíkur hefur efnt til átaks til hreinsunar borgarinnar og stendur það í sumar og næstu tvö sumur. Var átakið kynnt á fundi með íbúum í Breiðholti í gærkvöldi en fer formlega af stað með hreinsunardegi í Breiðholti laugardaginn 22. júlí. 13.7.2006 07:00
Sagðist nota etanól í bakstra við bakverk Efnafræðingur, sem vitnaði í máli tveggja Litháa sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnabrot, sagði fyrir dómi að hann hefði aldrei séð amfetamín í fljótandi formi áður. Það var flutt inn í hvítvínsflöskum og líklega ekki í fyrsta sinn. 13.7.2006 07:00
Fundu rústir klaustursins Lengi var vitað af stóru klaustri á Austurlandi en rústir þess fundust ekki fyrr en árið 2002. Uppgröftur stendur enn yfir og hefur helmingur rústanna nú verið afhjúpaður, eða um sex hundruð fermetrar. 13.7.2006 06:45
Kosning í stjórn talin ólíkleg Líklegast er að sjálfkjörið verði í stjórn Straums-Burðaráss á hluthafafundi 19. júlí. Framboðsfrestur rennur út klukkan tvö í dag. 13.7.2006 06:30
Segja bið eftir lækni of langa Í könnun sem gerð var meðal fanga á Litla-Hrauni kemur fram að meirihluti þeirra er óánægður með lækna- og tannlæknaþjónustu fangelsisins og allmargir með sálfræðiþjónustuna. Þetta kemur fram í Tímamótum, fréttablaði fanga á Litla-Hrauni. Þar kemur einnig fram að bið eftir viðtali hjá lækni á Litla-Hrauni getur verið nokkrir dagar. 13.7.2006 06:15
Ráðherrar votta samúð Forsætis- og utanríkisráðuneyti Íslands hafa sent indverskum stjórnvöldum samúðarkveðjur vegna hryðjuverkaárásanna í Mumbai í fyrradag. 13.7.2006 06:15
Valgerður og Geir votta Indverjum samúð Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa sent starfsbræðrum sínum í Indlandi samúðarskeyti vegna sprengjuárásanna á lestakerfið í Mumbei á Indlandi. Valgerður ítrekaði ennfremur stuðning íslenskra stjórnvalda við baráttuna gegn alþjóðlegum hryðjuverkum. 12.7.2006 23:06
Fjárfestingar Íslendinga erlendis litlu minni en Dana Fjárfestingar Íslendinga erlendis var litlu minni en fjárfestingar nágranna okkar Dana í fyrra þrátt fyrir að hagkerfi þeirra sé um það bil fimmtán sinnum stærra. Alls námu fjárfestingar Íslendinga erlendis 439 milljörðum króna á síðasta ári og hafa þær aldrei verið meiri. Þetta um tvöföld upphæð fjárfestinga frá árinu áður og fimmtánföld upphæð ársins 2003. Auk þess má rifja upp á Ísland var í 16. sæti af aðlidarríkjum efnahags- og framfarastofunnarinnar, OECD þegar kom að beinum fjárfestingum. Sem dæmi um hve mikil þessi umsvif þessi voru má nefna að beinar fjárfestingar Íslendinga erlendis voru meiri en Norðmanna og Finna. Það segja Glitnismenn í raun ótrúlegt þegar litið er til þess að Ísland er lang fámennast þessara ríkja. Þessar miklu beinu fjárfestingar erlendis skýrast mest af sókn íslenskra fjármálafyrirtækja á erlendum mörkuðum svo sem kaup Actavis á Amide og Alpharma, Kaupþings á Singer og Fridlander og Bakkavarar á Geest. Það er því von að margir spyrji sig að því hvaðan allir þessir peningar koma. Jón Bjarki Bentsson sérfræðingur frá greiningardeild Glitnis segir skýringuna vera aukin erlend lán Íslendinga. Skuldasöfnunin komi svo fram í því að reynt hafi á lánshæfni íslenskra kaupahéðna og því hafi þessi þróun dregist saman. Í mars á þessu ári dró Den Danske Bank upp mjög dökka mynd af íslensku efnahagslífi. Þeirri gagnrýni vísuðu Glitsmenn þó mikið til á bug og lögðu ríka áherslu á að þó spáð væri samdrætti væri ekkert sem benti til kreppu. 12.7.2006 22:51
Fullur unglingur stal olíubíl Sautján ára drengur var sviptur ökuleyfi í átta mánuði og dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa stolið olíuflutningabifreið af bensínafgreiðslustöð Atlantsolíu við Kópavogsbraut. Bifreiðin var tengd við aftanívagn sem innihélt um þrjátíu þúsund lítra af bensíni. Drengurinn var undir áhrifum áfengis. Dómarinn taldi rétt að fresta fullnustu refsingarinnar haldi drengurinn skilorð næstu tvö árin. 12.7.2006 22:34
Rekin fyrir að reykja í laumi Afgreiðslustúlka á veitingastað í Reykjavík var sagt upp störfum þegar upp komst um laumureykingar hennar og ítrekað hnupl með falinni myndavél inn á staðnum. Persónuvernd segir að um ólögmæta vöktun hafi verið um að ræða. 12.7.2006 22:29
Starfsmenn á baráttufundi Hátt á annað hundrað starfsmenn IGS, dótturfyrirtækis Icelandair sem sér um þjónustustörf í Leifsstöð, hittust nú laust fyrir klukkan átta í kvöld á leynilegum baráttufundi í húsi Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. 12.7.2006 22:27
Göngugarpur setur met Göngugarpurinn Jón Eggert Guðmundsson er nú í Barðastrandarsýslu í göngu sinni eftir strandvegum Íslands. Hann hefur þegar náð þeim áfanga að verða sá Íslendingur sem lengst hefur gengið á vegum umhverfis Ísland. 12.7.2006 20:57
Matarkostnaður gæti lækkað um 50 þúsund á ári Allt stefnir í að matvælanefnd forsætisráðuneytisins sem átti að leggja til leiðir til að lækka matarverð á Íslandi, ljúki störfum í þessari viku án þess að skila sameiginlegri niðurstöðu um innflutningstolla á matvælum. 12.7.2006 20:55
Ópólitískur upplýsingafulltrúi Guðmundur Hörður Guðmundsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins. Guðmundur hefur starfað í fréttamennsku, bæði á Rúv og Fréttablaðinu auk þess sem hann hefur numið umhverfisfræði í Edinborgarháskóla. Guðmundur Hörður var fyrir nokkrum árum áberandi í starfi ungs Samfylkingarfólks og sat í nefndum fyrir flokkinn en segist nú hafa sagt skilið við pólitíkina. 12.7.2006 19:59
Amfetamín í hvítvínsflöskum Það er jafn auðvelt að búa til hreint amfetamín úr amfetamínvökva og að baka köku. Þetta kom fram í vitnisburði sérfræðings í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, við aðalmeðferð í máli tveggja Litháa sem grunaðir eru um stórfellt fíkniefnasmygl til landsins. 12.7.2006 18:06
Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi opnaður á ný Suðurlandsvegur við Lómagnúp á Skeiðarársandi hefur verið opnaður aftur eftir umferðaróhapp sem varð fyrr í dag og hindraði umferð. 12.7.2006 17:52
Forsætisráðherra sendir samúðarkveðjur til Mumbai Geir H Haarde, forsætisráðherra sendi í dag forsætisráðherra Indlands, Dr. Manmohan Singh, samúðarkveðjur íslensku þjóðarinnar vegna hryðjuverkaárásanna í Mumbai í gær. 12.7.2006 17:37
Vill fá allt húsnæðið að Snorrabraut undir Blóðbankann Stjórnvöld og yfirstjórn Landsspítalans eiga að nýta tækifærið og flytja Blóðbankann í húsnæði sem rúmar alla starfsemina segir Sveinn Guðmundsson, blóðbankastjóri. Hann gagnrýnir harðlega ummæli ráðuneytisstjóra heilbrigðisráðuneytisins vegna fyrirhugaðra flutninga. 12.7.2006 17:29
Umskornir karlmenn smitast síður af kynsjúkdómum Minni líkur eru á að umskornir karlmenn smitist af HIV veirunni og fái aðra kynsjúkdóma en karlmenn sem ekki eru umskornir. Sóttvarnarlæknir hvetur þó ekki íslenska karlmenn til að fara í slíka aðgerð. 12.7.2006 17:25
Umferðartafir við Lómagnúp á Skeiðarársandi Umferðartafir eru við Lómagnúp á Skeiðarársandi vegna umferðaróhapps sem varð rétt fyrir klukkan þrjú. Jeppi með fellihýsi valt og lenti á miðjum veginum og hindrar umferð að öllu leyti. Enginn slasaðist alvarlega. Vegagerðin biður fólk um að sína tillitssemi. 12.7.2006 15:40
Vonast til að Alliance-húsið svokallaða verði friðað Formaður húsafriðunarnefndar ríkisins situr nú fund með borgarstjóra í von um að borgarstjóri taki vel í hugmyndir nefndarinnar um að friða Alliance-húsið svokallaða í vesturbæ Reykjavíkur. Formaðurinn neitar því alfarið að nefndin hafi sofið á verðinum, en til stendur að rífa húsið. 12.7.2006 15:16
Litháinn lýsir sig saklausann Lithái, sem var handtekinn í Leifsstöð í desember með tvær áfengisflöskur fullar af vökva til amfetamínframleiðslu, lýsti sig saklausan við aðalmeðferð málsins sem hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 12.7.2006 13:38