Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mældist á 165 km hraða Vélhjólamaður mældist á 165 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á móts við Smáralind í gærkvöldi, þar sem hámarkshraði er 70 kílómetrar á klukkustund. Hann virti stöðvunarmerki Kópavogslögreglunnar að vettugi, sem reyndi ekki einu sinni að veita honum eftirför, heldur hafði samband við lögregluna í Hanfarfirði um að gera honum fyrirsát. 28.7.2006 07:56
Íhugar þingframboð Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík, sest á skólabekk í Háskóla Íslands í haust. 28.7.2006 07:45
Mannskaði ef eldur brýst út Gríðarlega erfitt yrði að forða fólki úr Hvalfjarðargöngum ef kviknaði í olíuflutningabíl inni í þeim, að sögn slökkviliðsstjóra í Borgarnesi. 28.7.2006 07:45
Geðfatlaðir sagðir sviknir um sambýli Árið 2004 var gert ráð fyrir opnun tveggja nýrra heimila fyrir geðfatlaða í Reykjavík og tveimur á Reykjanesi. Þessi heimili voru aldrei opnuð og segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir tíð skipti á ráðherrum tefja framkvæmdir. 28.7.2006 07:45
Landsvirkjun sögð raska Eyjabökkum Samtökin Íslandsvinir saka Landsvirkjun um að ganga gegn umhverfismati við byggingu lóns á Eyjabökkum og þurrka að auki upp fossa í Jökulsá á Fljótsdal. Landsvirkjun vísar ásökununum á bug og segir mótmælendur illa upplýsta. 28.7.2006 07:30
Tafir á aðstöðu fyrir áhætturannsóknir Aðstaða fyir áhætturannsóknir sem byggja átti upp á Keldum fyrir 1. febrúar verður ekki tilbúin í tæka tíð. Ástæðan er stöðvun sem stjórnvöld settu á útboð allra opinberra framkvæmda, að sögn Helga Helgasonar framkvæmdastjóra. 28.7.2006 07:30
Átta ára börn send til einkaþjálfara Dæmi eru um að foreldrar sendi átta ára börn í einkaþjálfun. Einkaþjálfari segir foreldra oft gera óraunhæfar kröfur. Eigandi World Class segir strangar reglur gilda um einkaþjálfun. Almennt sé miðað við sextán ára aldur. 28.7.2006 07:30
Orkuboltarnir á Reykhólum Það er sólskin og blíða þegar Jón Sigurður Eyjólfsson kemur akandi að Reykhólum. Þar búa kraftmiklir og sjálfsöruggir sveitungar enda fá þeir auka orku úr þanginu og vissuna úr völunni hans Dalla. 28.7.2006 07:30
Engin lagastoð fyrir birtingu Samkvæmt skattalögum ber skattstjórum að leggja fram álagningarskrár almenningi til sýnis í hverju sveitarfélagi, þar sem skattar á hvern gjaldanda eru tilgreindir. En hvergi er kveðið á um í lögum að taka skuli saman lista yfir hæstu gjaldendur til birtingar. 28.7.2006 07:30
Heimilt að blása framkvæmdina af Esso fær takmarkað byggingarleyfi fyrir bensínstöð við Hringbraut, en fundargerð frá byggingarfulltrúa varðandi þetta var staðfest á borgarráðsfundi í gær. 28.7.2006 07:15
Veiddu yfir 500 laxa á einni viku í sumar hefur enn sem komið er ekki alveg staðið undir þeim væntingum sem veiðimenn gerðu sér í vor. Víðast hvar er veiðin nokkru minni en hún var á sama tíma í fyrra en þess ber þó að geta að sumarið 2005 var eitt besta laxveiðisumar sem um getur og samanburðurinn því ekki að öllu leyti sanngjarn. 28.7.2006 07:15
Tíu sérsveitarmenn verða ráðnir í haust Eignakaup embættis ríkislögreglustjóra jukust um 57 prósent milli áranna 2004 og 2005. 14 milljónir fóru í stækkun sérsveitarinnar sem skýrir helst aukninguna, að sögn yfirlögregluþjóns. Sértekjur embættisins lækkuðu um 44 prósent. 28.7.2006 07:00
Fljúga beint til Bandaríkjanna Flugfélag Íslands mun að líkindum missa spón úr aski sínum á næsta ári þegar Grænlandsflug mun hefja reglubundin áætlunarflug milli Grænlands og Bandaríkjanna. 28.7.2006 07:00
Níu ára piltur gerði viðvart Níu ára drengur var einn í bústaðnum að horfa á sjónvarp, sem var með innbyggðan DVD-spilara, þegar kviknaði í tækinu. Hann tók þá til fótanna og gerði foreldrum sínum sem voru á svæðinu viðvart. 28.7.2006 07:00
Hlutabréf ekki lægri á árinu Landsbankinn og Bakkavör birtu í gær uppgjör sín. Bæði félög skiluðu afkomu sem var í efri hluta meðaltalsvæntinga greiningardeilda bankanna. 28.7.2006 07:00
Ellefu tegundir ánamaðka Um fimmtíu vísindamenn eru staddir á ráðstefnu um dýralíf í jarðvegi sem haldin er á Akureyri. Bjarni E. Guðleifsson náttúrufræðingur segir að hér kunni að finnast smádýrategundir sem ekki finnist annars staðar. 28.7.2006 07:00
Vill ekki tengivagna Þetta hefur ekki verið neitt að bögga mig. En svo náttúrulega þegar maður heyrir af svona hlutum eins og slysinu þegar flutningabíllinn hellti niður olíu fyrir norðan fer maður að pæla í þessu. 28.7.2006 06:45
Allir þurfa meðmæli Dorrit Moussaieff forsetafrú fær íslenskan ríkisborgararétt næsta mánudag. Meðmælendur hennar voru Karl Sigurbjörnsson biskup og Rannveig Rist, forstjóri Alcan. Hjalti Zóphóníasson er skrifstofustjóri dómsmálaráðurneytisins. 28.7.2006 06:45
Ökumaðurinn útskrifaður Maðurinn sem slasaðist þegar hann ók flutningabíl með brotajárnsfarm fram af veginum efst á Bessastaðafjalli í Fljótsdal í fyrradag hefur verið útskrifaður af Heilsugæslunni á Egilsstöðum. 28.7.2006 06:45
Samgöngur til Vestmannaeyja Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa lagt fram tillögur að úrbótum í samgöngumálum. 28.7.2006 06:45
Dreifa fimmtán þúsund smokkum Læknanemar á vegum Ástráðs sem er forvarnarstarf læknanema ætla ekki að láta sig vanta um Verslunarmannahelgina og ætla að dreifa út um fimmtán þúsund smokkum. 27.7.2006 22:32
Minntust látinna bifhjólamanna Bifhjólafólk hittist í Laugardalshöllinni í kvöld til að ræða bætta umferðarmenningu. Tveggja látinna bifhjólamanna var minnst á fundinum. 27.7.2006 22:25
Framkvæmanleg og kosta 20 - 22 miljarða Ægisdyr, áhugafélag um jarðgöng til Vestmannaeyja, kynntu í dag skýrslu sem norska ráðgjafafyrirtækið Multiconsult gerði um framkvæmd ganga til Eyja. Þar kemur fram að göngin muni kosta á bilinu 20 -22 miljarða króna. 27.7.2006 19:33
Kjósa í fyrsta sinn 25 milljónir íbúa Austur-Kongó fá nú um helgina að kjósa sér forseta í fyrsta sinn. Fyrir fáeinum árum geisaði styrjöld í landinu sem kostaði tæpar fjórar milljónir mannslífa. 27.7.2006 19:11
Sex hundruð látnir í Líbanon Ísraelska ríkisstjórnin túlkar niðurstöðu ráðstefnunnar um stríðið í Líbanon, sem fram fór í Róm í gær, sem samþykki alþjóðasamfélagsins fyrir áframhaldandi hernaði. Líbönsk yfirvöld telja að sex hundruð manns liggi í valnum eftir árásirnar. 27.7.2006 19:05
Vill banna tengivagna Formaður samgöngunefndar Alþingis vill að flutningabílum verði bannað að aka með tengivagna. Hann segir að strandflutningar hafi lagst af áður en vegirnir voru tilbúnir fyrir aukna þungaflutninga. Nauðsynlegt sé að fara yfir gjaldskrár hafna til að reyna að ná hluta flutninganna aftur í skipin. 27.7.2006 18:59
Zeppelin fundið Pólski sjóherinn hefur fundið þýska flugvélamóðurskipið Graf Zeppelin á sjávarbotni. Það hefur verið týnt í tæp sextíu ár og hafa örlög þess verið hjúpuð leyndardómi. 27.7.2006 17:13
Þráðlaus borg Samfylkingin í Reykjavík vill að borgin beiti sér fyrir að þráðlausu netsambandi verði komið á í Reykjavík. Dagur B. Eggertsson segir tillöguna í takt við tölvuvæðingu Íslendinga og vel raunhæfa. 27.7.2006 17:10
Sakar ríkisstjórnina um svik Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sakar ríkisstjórnina um að hafa svikið loforð sitt við Alþýðusamband Íslands hvað varðar vaxtabætur. Um 13 prósentustigum minna verður greitt í vaxtabætur um mánaðamótin en greitt var í fyrra. 27.7.2006 17:07
Vísar á bug ummælum fyrrverandi bæjarstjóra Það er ófrávíkjanlegt lagaskilyrði fyrir skráningu hlutafélags í hlutafélagaskrá að hlutafé að lágmarki kr. 4.000.000 hafi þegar verið greitt við skráningu. Þetta kemur m.a. fram í yfirlýsingu sem ríkisskattstjóri sendi frá sér vegna ummæla Guðjóns Hjörleifssonar, alþingismanns og fyrrverandi bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, um að sú vinnuregla eða hefð hafi skapast að stofnfé hlutafélaga sé ekki allt greitt við skráningu hlutafélaga. 27.7.2006 16:37
Reyndi að koma fölsuðum evrum í umferð Lögreglan í Reykjavík varar við útlendingi sem virðist reyna að koma fölsuðum evrum í umferð. Þetta er lágvaxinn karlmaður sem talar bjagaða ensku. Hann er dökkur yfirlitum og er líklega með gleraugu. Til hans sást við BSÍ í Reykjavík og í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði. 27.7.2006 16:04
Avion verðlaunað af Business Britain Magazine Avion Group hefur verið valið besta alhliða þjónustufyrirtækið á sviði flutninga árin 2005 til 2006 af tímaritinu Business Britain Magazine. Í umsögn um verðlaunahafann segir m.a. að Avion hafi sýnt mjög metnaðarfulla frammistöðu frá stofnun félagsins í upphafi síðasta árs. 27.7.2006 14:45
Endurskoðun á reglum um eldsneytisflutninga í gangi Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur falið Umferðarstofu að skoða möguleika á breytingum á fyrirkomulagi eldsneytisflutninga um Hvalfjarðargöng. Hann gerir ráð fyrir að einnig verði farið í almenna endurskoðun á eldsneytisflutningum um þjóðvegi landsins. 27.7.2006 12:30
Tilviljanir að ekki hafi orðið stórslys Tilviljanir virðast hafa ráðið því að undanförnu að ekki hafa orðið stórslys þegar vöruflutningabílum hefur hlekkst á á þjóðvegum landsins. Slíkum slysum hefur fjölgað talsvert frá því í fyrra. 27.7.2006 11:56
Minniháttar meiðsl eftir bílveltu Ökumaður fólksbíls hlaut minniháttar meiðsl í bílveltu við Hólmavík í gærkvöld. Að sögn lögreglunnar í bænum fór bíllinn að minnsta kosti eina veltu og er hann talinn ónýtur. 27.7.2006 11:22
Pólverjinn fundinn Pólverji, sem lögreglan í Reykjavík lýsti eftir í gær og hafði verið týndur í viku, fannst á hótelherbergi í Reykjavík í nótt, heill á húfi. 27.7.2006 09:35
Um 1.500 laxar komnir á land úr Norðurá Tæplega 1.500 laxar hafa veiðst í Norðurá það sem af er sumri samkvæmt fréttavefnum Skessuhorn.is. Í fyrradag voru komnir fjórtán 1488 laxar á land af efra og neðra svæði árinnar. 27.7.2006 09:00
Hólmavík í Financial times Í nýjasta tölublaði hins virta blaðs Financial Times er umfjöllun um nýlega könnun á hamingju þjóða þar sem Ísland var í fyrsta sæti. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að í umfjölluninni er sagt að Hólmavík sé sá staður á landinu þar sem hamingja ríki í mestum mæli. 27.7.2006 08:45
Minni veiði í Laxá í Ásum en áður Mun minni veiði hefur verið í Laxá á Ásum, framan af sumri en í fyrrasumar, þótt veiðin hafi glæðast upp á síðkastið, að sögn Fréttablaðsins. Laxá á Ásum hefur oft státað af mestu veiði á hverja stöng, af öllum ám á landinu og kostar veiðileyfið þar 250 þúsund krónur á stöng á dag. 27.7.2006 08:30
Skattgreiðendum fjölgar um 7.000 Sjö þúsund fleiri einstaklingar greiða hátekjuskatt í ár en í fyrra, eða samtals tuttugu og fjögur þúsund manns. Þrátt fyrir það nemur innheimta Ríkissjóðs af hátekjusklatti hátt í hálfum örðum milljarði lægri upphæð en í fyrra, sem skýrist af skattalækkuninni, sem nú kemur til framkvæmdar. Þá eru framteljendur í ár hátt í sjö þúsund fleiri en í fyrra, sem skýrist að verulegu leiti af fjölgun erlendra framteljenda hér. 27.7.2006 08:15
Skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma stríðsátökin í Líbanon Samtök herstöðvaandstæðinga skora á ríkisstjórn Íslands að fordæma mannréttindabrot Ísraels í Líbanon og beita sér fyrir því að þau verði stöðvuð tafarlaust. Í tilkyningu frá samtökunum segir að Bandaríkjastjórn hafi komið í veg fyrir að fjölþjóðleg ráðstefna í Róm í gær krefðist þess að tafarlausu vopnahlé yrði komið á, og Bretland og Þýskaland hafi komið í veg fyrir að Evrópusambandið beitti sér í málinu. 27.7.2006 08:08
Mikill hafís við strendur landsins Að sögn Þórs Jakobssonar hjá Veðurstofu Íslands er mun meiri hafís við Íslandsstrendur um þessar mundir en mörg undanfarin ár. 27.7.2006 08:00
Sumarbústaður brann til kaldra kola Sumarbústaður í landi Galtarholts, norðan við Borgarnes, brann til grunna í gærkvöldi. Bústaðurinn var mannlaus, en einn maður hafði verið í honum fyrr um kvöldið. Slökkviliðið í Borgarnesi kom á vettvang og kom í veg fyrir að verr færi því gaskútar og annar eldsmaðtur voru í grennd við bústaðinn. Nærliggjandi sumarbústaðir voru ekki í hættu.Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá sjónvarpstæki. 27.7.2006 07:53
Séríslenskt vandamál Fólk stundar að bragða á vínberjunum áður en það kaupir þau, þetta er að sjálfsögðu ekki leyfilegt en þetta virðist vera séríslenskt vandamál, segir Sigurður Reinaldsson, innkaupastjóri matvöru hjá Hagkaupum. 27.7.2006 07:45
Lyfið Glivec getur valdið hjartabilun Nýleg rannsókn hefur leitt í ljós að lyf sem notað er við hvítblæði getur leitt til hjartabilunar. Ekkert er að finna um þetta á íslenskum fylgiseðli lyfsins. Markaðsstjóri Novartis sér ekki ástæðu til að bregðast við að svo stöddu. 27.7.2006 07:30