Fleiri fréttir Aukin samvinna við Norðmenn Siglingastofnun Íslands og Kystverket, systurstofnun hennar í Noregi, hafa ákveðið að taka upp aukna samvinnu við vöktun skipaumferðar á hafsvæðinu milli Noregs og Íslands. Þá munu stofnanirnar skiptast á upplýsingum um veðurfar og sjólag á hafsvæðinu. 24.7.2006 07:00 Rýmt verði fyrir íbúðabyggð Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi síðastliðinn fimmtudag að stofna verkefnisstjórn, sem skal láta athuga framtíðarstaðsetningu olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey. Í kjölfarið verði svo athugað hvort betra væri að hafa stöðina í Hvalfirði eða á Grundartanga. Einnig verður skoðað hvort henti að flytja olíu svo langa leið frá nýrri stöð inn í höfuðborgina. 24.7.2006 06:45 Huglægt hver er hryðjuverkamaður Þó að margir stjórnmálamenn telji það auðvelt hafa fræðimenn ekki náð samstöðu um hver getur talist hryðjuverkamaður. Vandinn felst aðallega í því að erfitt er að skilgreina hver sé munurinn á hermanni, skæruliða og hryðjuverkamanni. Slíkt mat getur farið eftir pólitískum tilgangi þess sem skilgreinir eða hugsunargangi á hverjum tíma, að sögn Vísindavefs Háskóla Íslands. 24.7.2006 06:45 Stakk af undir áhrifjum lyfja Maður um þrítugt var handtekinn í gær á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar fyrir ofsaakstur og grun um að aka undir áhrifjum lyfja. 24.7.2006 06:45 Kalkþörunganámur endast í 500 ár Kalkþörunganámur, sem fundist hafa á botni Arnarfjarðar, endast í fimmhundruð ár, miðað við afköst verksmiðjunnar sem brátt hefur störf á Bíldudal. Afurðin verður að mestu flutt úr landi og seld sem fæðubótarefni fyrir búpening. 23.7.2006 19:36 Eldur við íbúðarhúsnæði á Grettisgötu Eldur kviknaði í bílageymslu íbúðarhúss við Grettisgötu um klukkan hálf fjögur í dag. Þegar slökkvilið kom á staðin voru íbúar að mestu búnir að slökkva loganna og höfðu litlar skemmdir orðið utan þess að reykur hafði komist inn í nálægar geymslur hússins. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða og rannsakar lögregla málið. 23.7.2006 17:29 Réðst á lögregluþjóna Lögreglan í Reykjavík handtók mann um þrítugt á horni Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar um klukkan hálf ellefu í morgun eftir að nokkrar tilkynningar höfðu borist um ofsaakstur hans um borgina. Þegar lögregla gaf manninum merki um að stöðva bifreið sína reyndi hann að stinga af en var fljótlega króaður af. Eftir það réðist hann að lögregluþjónum en var fljótlega yfirbugaður og gistir hann nú fangageymslu. Maðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. 23.7.2006 13:57 Jörð skelfur í Grímsey Tveggja jarðskjálfta varð vart með þrjátíu sekúnda millibili um klukkan hálf eitt í nótt í Grímsey. Báðir voru þeir 3,2 á richter. Í morgun hafa nokkrir smáskjálftar orðið en sá stærsti þeirra varð um klukkan tíu í morgun og var hann 2, 7 á richter. 23.7.2006 12:14 Reyndi að synda í kringum Reykjavík Sjósundkappinn Benedikt Lafleur varð í gær fyrsti maðurinn í um hálfa öld til að reyna að synda í kringum Reykjavík. Sundið var liður í undirbúningi kappans fyrir sund yfir Ermasundið eftir rúman mánuð. 23.7.2006 12:08 950 ár frá vígslu fyrsta íslenska biskupsins Mikið verður um dýrðir í Skálholti í dag en Skálholtshátíð er haldin um helgina. Hátíðin er með nokkuð sérstöku móti að þessu sinni vegna þess að í ár er þess minnst að 950 ár eru liðin frá biskupsvígslu Ísleifs Gissurarsonar, fyrsta íslenska biskupsins. 23.7.2006 11:30 Sælgætisþjófur gripinn í Skipholti Karlmaður um tvítugt var handtekinn við Skipholt í Reykjavík í nótt grunaður um innbrot. Maðurinn þótti grunsamlegur þar sem hann gekk um göturnar í nætuhúminu klifjaður sælgæti og við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að brotist hafði verið í söulturn í nágrenninu og þaðan numið á brott góðgæti á borð við það sem maðurinn var gripinn með. 23.7.2006 10:05 Kona bjargaðist úr eldi Eldur kviknaði í íbúðarhúsnæði bæjarins Hrísa í Flókadal í nótt. Ein kona býr í húsinu en hún komst klakklaus út í tæka tíð. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagnstöflu en það var slökkvilið Borgarfjarðardala sem kom á vettvang og var það skamma stund að ráða niðurlögum eldsins. 23.7.2006 10:00 Ísraelsk innrás í Líbanon Ísraelskir hermenn og Hizbollah-liðar börðust á götum þorpsins Maroun al-Ras í gær. Linnulausar flugskeytarásir eru við landamæri Ísrael og Líbanon. Um 400 manns hafa látist í átökunum. 23.7.2006 09:15 Skutull sprakk ekki við veiðar Tveir sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru í fyrradag kallaðir vestur á Patreksfjörð, því að einn skutull hrefnuveiðaskipsins Njarðar sprakk ekki við veiðar. Sérfræðingarnir tóku skutulinn í sína vörslu og eyddu honum. Loka þurfti hluta hafnarinnar á Patreksfirði í fyrradag vegna þessa. 23.7.2006 08:45 Segir samkomulag brotið Róbert Bragason, stjórnarformaður Atlassíma, segir að þegar Neyðarlínan, ásamt Ríkislögreglustjóra, kærði bráðabirgðaákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar, sem skyldaði Símann til að flytja símanúmer í almennri talþjónustu yfir í netsímaþjónustu til Atlassíma, hafi samkomulag milli Atlassíma og Neyðarlínunnar verið brotið. 23.7.2006 08:30 Ráðherra segir stríðið gegn unglingadrykkju ekki tapað Unnið er að mótun heildstæðrar forvarnastefnu á vegum Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra. Ráðherrann hefur áhyggjur af þróun bæjarhátíða þar sem ungmenni safnast saman til drykkju. 23.7.2006 08:30 Mótmæli hafin á ný í Snæfelli Hátt í tvö hundruð manns eru nú komnir í mótmælabúðir Íslandsvina undir Snæfelli, sem settar voru upp á föstudag. Hópurinn kom til landsins í fyrra til að halda uppi mótmælum gegn Kárahnjúkavirkjun og verður það sama uppi á teningnum í ár. 23.7.2006 08:15 Tvöföldun í sölu milli ára Hjá Fiskmarkaði Húsavíkur varð hlutfallslega mesta söluaukningin fyrstu sex mánuði þessa árs en þar nam sala á sjávarafurðum 490 tonnum. Þetta er meira en tvöfalt magn frá sama tímabili í fyrra en þá nam salan 215 tonnum. 23.7.2006 08:15 Kofi Annan óttast hörmungar Þúsundir manna eiga nú í erfiðleikum með að flýja átökin í Líbanon vegna flugskeytaárása Ísraela. Um hálf milljón Líbana hefur þegar flúið sína heimabyggð og talið er að um 150 þúsund manns séu á flótta. 23.7.2006 08:00 Stjórnkerfið skoðað í þaula Borgaryfirvöld hafa ákveðið að gerð verði stjórnsýsluúttekt á stjórnkerfi Reykjavíkur. Ekki hefur verið ákveðið hvenær úttektin hefst, né hvaða fyrirtæki verður fengið til verksins. 23.7.2006 08:00 Verðmæti ýsu og ufsa eykst Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 25 milljörðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Það er milljarði króna minna verðmæti en árið 2005. Aflaverðmæti aprílmánaðar nam rúmum sex milljörðum, sem er nokkru meira en í sama mánuði í fyrra. 23.7.2006 07:45 Enginn fékk að sjá kjarasamninginn Áhrifamenn innan Öryrkjabandalags Íslands segja Sigurstein Másson hafa brotið lög bandalagsins þegar hann neitaði að opinbera samning við framkvæmdastjóra. Þetta stangast á við allt sem heitir lýðræði, segir stjórnarmeðlimur. 23.7.2006 07:45 Verði flutt til sveitarfélaga 23.7.2006 07:30 Ekki sama hvar er keypt Samtök ferðaþjónustunnar fagna skýrslu matvælaverðsnefndarinnar. Að sögn samtakanna hafa veitingamenn lagt ríka áherslu á að tollar verði afnumdir og öll sala matvæla verði í sama virðisaukaskattsþrepi, óháð því hvernig hún er seld 23.7.2006 07:30 Bóndi segir hækkun á leigu sanngjarna Eigandi sumarhúsalóða í Skorradal segir ekki ósanngjarnt að leiguverð hækki úr tuttugu þúsundum í rúmar hundrað þúsund krónur á ári með endurnýjun á leigusamningum. Sumarhúsalóðir sæti lögmálum um eftirspurn eins og annað. 23.7.2006 07:15 Alvarleg sakamál eru enn óupplýst Tvö alvarleg sakamál frá því fyrr á árinu hafa enn ekki verið upplýst. Annars vegar er um að ræða vopnað rán í höfuðstöðvum Happdrættis Háskóla Íslands í janúar og hins vegar mannrán í Garði í mars. Sökudólgarnir ganga enn lausir. 23.7.2006 07:15 Réðst á lögreglumann í lyftu Öryggisvörður Hagkaupa í Skeifunni gerði lögreglu viðvart vegna manns sem virtist í annarlegu ástandi við verslunina, um hálf ellefu leytið í gærmorgun. 23.7.2006 07:00 Tekin með steratöflur 23.7.2006 07:00 Allt skipulag endurskoðað Eftir að upp komst um fjárdráttinn í Tryggingastofnun ríkisins á dögunum var ákveðið að taka skipulag stofnunarinnar til gagngerrar endurskoðunar. 23.7.2006 07:00 Uppskeruhátíð Lunga í dag Uppskeruhátíð Lunga, listahátíð ungs fólks á Austurlandi, var haldin í dag. Aldrei hafa fleiri sótt hátíðina sem stækkar með hverju árinu. Lunga er listahátíð fyrir fólk á aldrinum 16 til 25 ára en hún hófst á mánudaginn var. Í kvöld verða svo tónleikar þar sem hljómsveitin Todmobile spilar. 22.7.2006 19:27 Horfið aftur til miðalda á Gásum Horfið var aftur til miðalda á Gásum í Eyjafirði í dag þar sem haldin var lifandi hátíð í þessari fyrrum helstu útflutningshöfn Norðlendinga. 22.7.2006 19:21 Mótmælastaða undir kvöldið Íslandsvinir, sem dvelja í mótmælabúðum undir Snæfelli, fóru í dag í göngu um það svæði sem fer undir Hálslón í haust. Þátttakendur í búðunum koma frá ýmsum þjóðum og eru margir mættir til að sýna andstöðu sína gegn Kárahnjúkavirkjun. 22.7.2006 19:15 Persónuleg óvild segir formaður ÖBÍ Stjórnarmenn í Öryrkjabandalaginu ætla að kæra formann bandalagsins til félagsmálaráðuneytisins vegna framgöngu hans við gerð samnings við nýjan framkvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins. Formaðurinn segir framgöngu mannanna sprottna af persónulegri óvild í sinn garð. 22.7.2006 19:07 Lagt hald á nokkuð af fíkniefnum Lögreglan á Siglufirði lagði í gærkvöldi og nótt hald á nokkuð af fíkniefnum og voru þrír menn handteknir í tengslum við málið. Gerð var húsleit á tveimur stöðum í bænum og játuðu tveir hinna handteknu að vera eigendur efnanna. 22.7.2006 16:00 Hreinsað til í Breiðholti „Tökum upp hanskann fyrir Breiðholt" nefnist fegrunarátak sem hófst í hverfinu í morgun. Breiðhyltingurinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri fór þar fyrir fríðu föruneyti. 22.7.2006 13:30 Fulltrúi Byggðastofnunar segir af sér vegna meintra lögbrota Fulltrúi Byggðastofnunar í stjórn Eignarhaldsfélags Vestmanneyja hefur sagt af sér vegna lögbrota félagsins sem hann kallar svo. Í greinargerð hans til Byggðastofnunar kemur fram að Guðjón Hjörleifsson, alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri í Eyjum, greiddi aldrei fjórðung stofnfjár í eignarhaldsfélagi Vestmanneyja eins og þó hafði verið tilkynnt hlutafélagaskrá. 22.7.2006 12:59 Útskrifaður í dag eftir bílslysið á Suðurlandsvegi Maðurinn sem fór í aðgerð vegna beinbrota eftir bílslys á Suðurlandsvegi við Rauðhóla í gærkvöld verður útskrifaður í dag. Sjö manns voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn sem var mjög harður. 22.7.2006 12:15 Ökumaður stakk af Bíl var ekið á umferðamerki í Seljahverfinu um átta leytið í morgun og stakk ökumaður af af vettvagni. Tilkynnt var um hálf fjögur í nótt að bílnum hefði verið stolið. Talið er að bíllinn hafi verið á nokkurri ferð þegar hann fór á umferðarmerkið því um sextíu metra hemlaför eru eftir bílinn. 22.7.2006 10:45 Sprengjusérfræðingar eyddu skutli hrefnuskips Tveir sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru í gær kallaðir vestur á Patreksfjörð þar sem einn skutull hrefnuskipsins Njarðar sprakk ekki. Loka þurfti hluta hafnarinnar á Patreksfirði í gærkvöldi vegna þessa. 22.7.2006 10:45 Fíkniefni fundust Lögreglan í Reykjavík stöðvaði fólksbíl um klukkan hálf sex í nótt og reyndust allir í bílnum, þrír talsins, vera með fíkniefni á sér. Fólkið var bæði með hvít efni og e-töflur á sér auk þess sem að einn farþeganna var með stera í fórum sínum. 22.7.2006 10:30 Á annað hundrað manns í mótmælabúðum Á annað hundrað manns eru nú komnir í mótmælabúðir Íslandsvina undir Snæfelli. Hópurinn er þessa stundina á göngu um það svæði sem fer undir vatn þegar byrjað verður að safna í Hálslón í haust. 22.7.2006 10:16 Fíkniefni og vopn fundust í húsi í miðborginni Lögreglan í Reykjavík handtók fjóra einstaklinga í nótt eftir að hafa fundið fíkniefni og vopn í húsi í miðbæ Reykjavíkur. Verið er að yfirheyra þá sem voru handteknir. Gífurleg neysla hefur farið fram í húsnæðinu og hefur lögregla áður þurft að hafa afskipti af einstaklingum þar inni. 22.7.2006 10:15 Subbur kærðar Lögreglan í Reykjavík hefur í sumar stöðvað og kært ökumenn fyrir að henda sígarettustubbum og öðru rusli úr bílum sínum á götur borgarinnar. 22.7.2006 08:45 Umhverfismats krafist Landssamband veiðifélaga hefur sent umhverfisráðherra bréf þar sem þess er krafist að fyrirhuguð framkvæmd AGVA ehf., vegna þorskeldis í Hvalfirði, fari í umhverfismat. 22.7.2006 08:30 Listsköpun í stað áhættu Nýju meðferðarstarfi, sem ætlað er að minnka líkurnar á áhættusamri hegðun, hefur verið ýtt úr vör. Lögð er áhersla á listnám, vellíðan án vímuefna, hugræna atferlismeðferð og sjálfsstyrkingu. 22.7.2006 08:15 Sjá næstu 50 fréttir
Aukin samvinna við Norðmenn Siglingastofnun Íslands og Kystverket, systurstofnun hennar í Noregi, hafa ákveðið að taka upp aukna samvinnu við vöktun skipaumferðar á hafsvæðinu milli Noregs og Íslands. Þá munu stofnanirnar skiptast á upplýsingum um veðurfar og sjólag á hafsvæðinu. 24.7.2006 07:00
Rýmt verði fyrir íbúðabyggð Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi síðastliðinn fimmtudag að stofna verkefnisstjórn, sem skal láta athuga framtíðarstaðsetningu olíubirgðastöðvarinnar í Örfirisey. Í kjölfarið verði svo athugað hvort betra væri að hafa stöðina í Hvalfirði eða á Grundartanga. Einnig verður skoðað hvort henti að flytja olíu svo langa leið frá nýrri stöð inn í höfuðborgina. 24.7.2006 06:45
Huglægt hver er hryðjuverkamaður Þó að margir stjórnmálamenn telji það auðvelt hafa fræðimenn ekki náð samstöðu um hver getur talist hryðjuverkamaður. Vandinn felst aðallega í því að erfitt er að skilgreina hver sé munurinn á hermanni, skæruliða og hryðjuverkamanni. Slíkt mat getur farið eftir pólitískum tilgangi þess sem skilgreinir eða hugsunargangi á hverjum tíma, að sögn Vísindavefs Háskóla Íslands. 24.7.2006 06:45
Stakk af undir áhrifjum lyfja Maður um þrítugt var handtekinn í gær á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar fyrir ofsaakstur og grun um að aka undir áhrifjum lyfja. 24.7.2006 06:45
Kalkþörunganámur endast í 500 ár Kalkþörunganámur, sem fundist hafa á botni Arnarfjarðar, endast í fimmhundruð ár, miðað við afköst verksmiðjunnar sem brátt hefur störf á Bíldudal. Afurðin verður að mestu flutt úr landi og seld sem fæðubótarefni fyrir búpening. 23.7.2006 19:36
Eldur við íbúðarhúsnæði á Grettisgötu Eldur kviknaði í bílageymslu íbúðarhúss við Grettisgötu um klukkan hálf fjögur í dag. Þegar slökkvilið kom á staðin voru íbúar að mestu búnir að slökkva loganna og höfðu litlar skemmdir orðið utan þess að reykur hafði komist inn í nálægar geymslur hússins. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða og rannsakar lögregla málið. 23.7.2006 17:29
Réðst á lögregluþjóna Lögreglan í Reykjavík handtók mann um þrítugt á horni Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar um klukkan hálf ellefu í morgun eftir að nokkrar tilkynningar höfðu borist um ofsaakstur hans um borgina. Þegar lögregla gaf manninum merki um að stöðva bifreið sína reyndi hann að stinga af en var fljótlega króaður af. Eftir það réðist hann að lögregluþjónum en var fljótlega yfirbugaður og gistir hann nú fangageymslu. Maðurinn er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. 23.7.2006 13:57
Jörð skelfur í Grímsey Tveggja jarðskjálfta varð vart með þrjátíu sekúnda millibili um klukkan hálf eitt í nótt í Grímsey. Báðir voru þeir 3,2 á richter. Í morgun hafa nokkrir smáskjálftar orðið en sá stærsti þeirra varð um klukkan tíu í morgun og var hann 2, 7 á richter. 23.7.2006 12:14
Reyndi að synda í kringum Reykjavík Sjósundkappinn Benedikt Lafleur varð í gær fyrsti maðurinn í um hálfa öld til að reyna að synda í kringum Reykjavík. Sundið var liður í undirbúningi kappans fyrir sund yfir Ermasundið eftir rúman mánuð. 23.7.2006 12:08
950 ár frá vígslu fyrsta íslenska biskupsins Mikið verður um dýrðir í Skálholti í dag en Skálholtshátíð er haldin um helgina. Hátíðin er með nokkuð sérstöku móti að þessu sinni vegna þess að í ár er þess minnst að 950 ár eru liðin frá biskupsvígslu Ísleifs Gissurarsonar, fyrsta íslenska biskupsins. 23.7.2006 11:30
Sælgætisþjófur gripinn í Skipholti Karlmaður um tvítugt var handtekinn við Skipholt í Reykjavík í nótt grunaður um innbrot. Maðurinn þótti grunsamlegur þar sem hann gekk um göturnar í nætuhúminu klifjaður sælgæti og við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að brotist hafði verið í söulturn í nágrenninu og þaðan numið á brott góðgæti á borð við það sem maðurinn var gripinn með. 23.7.2006 10:05
Kona bjargaðist úr eldi Eldur kviknaði í íbúðarhúsnæði bæjarins Hrísa í Flókadal í nótt. Ein kona býr í húsinu en hún komst klakklaus út í tæka tíð. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagnstöflu en það var slökkvilið Borgarfjarðardala sem kom á vettvang og var það skamma stund að ráða niðurlögum eldsins. 23.7.2006 10:00
Ísraelsk innrás í Líbanon Ísraelskir hermenn og Hizbollah-liðar börðust á götum þorpsins Maroun al-Ras í gær. Linnulausar flugskeytarásir eru við landamæri Ísrael og Líbanon. Um 400 manns hafa látist í átökunum. 23.7.2006 09:15
Skutull sprakk ekki við veiðar Tveir sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru í fyrradag kallaðir vestur á Patreksfjörð, því að einn skutull hrefnuveiðaskipsins Njarðar sprakk ekki við veiðar. Sérfræðingarnir tóku skutulinn í sína vörslu og eyddu honum. Loka þurfti hluta hafnarinnar á Patreksfirði í fyrradag vegna þessa. 23.7.2006 08:45
Segir samkomulag brotið Róbert Bragason, stjórnarformaður Atlassíma, segir að þegar Neyðarlínan, ásamt Ríkislögreglustjóra, kærði bráðabirgðaákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar, sem skyldaði Símann til að flytja símanúmer í almennri talþjónustu yfir í netsímaþjónustu til Atlassíma, hafi samkomulag milli Atlassíma og Neyðarlínunnar verið brotið. 23.7.2006 08:30
Ráðherra segir stríðið gegn unglingadrykkju ekki tapað Unnið er að mótun heildstæðrar forvarnastefnu á vegum Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra. Ráðherrann hefur áhyggjur af þróun bæjarhátíða þar sem ungmenni safnast saman til drykkju. 23.7.2006 08:30
Mótmæli hafin á ný í Snæfelli Hátt í tvö hundruð manns eru nú komnir í mótmælabúðir Íslandsvina undir Snæfelli, sem settar voru upp á föstudag. Hópurinn kom til landsins í fyrra til að halda uppi mótmælum gegn Kárahnjúkavirkjun og verður það sama uppi á teningnum í ár. 23.7.2006 08:15
Tvöföldun í sölu milli ára Hjá Fiskmarkaði Húsavíkur varð hlutfallslega mesta söluaukningin fyrstu sex mánuði þessa árs en þar nam sala á sjávarafurðum 490 tonnum. Þetta er meira en tvöfalt magn frá sama tímabili í fyrra en þá nam salan 215 tonnum. 23.7.2006 08:15
Kofi Annan óttast hörmungar Þúsundir manna eiga nú í erfiðleikum með að flýja átökin í Líbanon vegna flugskeytaárása Ísraela. Um hálf milljón Líbana hefur þegar flúið sína heimabyggð og talið er að um 150 þúsund manns séu á flótta. 23.7.2006 08:00
Stjórnkerfið skoðað í þaula Borgaryfirvöld hafa ákveðið að gerð verði stjórnsýsluúttekt á stjórnkerfi Reykjavíkur. Ekki hefur verið ákveðið hvenær úttektin hefst, né hvaða fyrirtæki verður fengið til verksins. 23.7.2006 08:00
Verðmæti ýsu og ufsa eykst Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 25 milljörðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Það er milljarði króna minna verðmæti en árið 2005. Aflaverðmæti aprílmánaðar nam rúmum sex milljörðum, sem er nokkru meira en í sama mánuði í fyrra. 23.7.2006 07:45
Enginn fékk að sjá kjarasamninginn Áhrifamenn innan Öryrkjabandalags Íslands segja Sigurstein Másson hafa brotið lög bandalagsins þegar hann neitaði að opinbera samning við framkvæmdastjóra. Þetta stangast á við allt sem heitir lýðræði, segir stjórnarmeðlimur. 23.7.2006 07:45
Ekki sama hvar er keypt Samtök ferðaþjónustunnar fagna skýrslu matvælaverðsnefndarinnar. Að sögn samtakanna hafa veitingamenn lagt ríka áherslu á að tollar verði afnumdir og öll sala matvæla verði í sama virðisaukaskattsþrepi, óháð því hvernig hún er seld 23.7.2006 07:30
Bóndi segir hækkun á leigu sanngjarna Eigandi sumarhúsalóða í Skorradal segir ekki ósanngjarnt að leiguverð hækki úr tuttugu þúsundum í rúmar hundrað þúsund krónur á ári með endurnýjun á leigusamningum. Sumarhúsalóðir sæti lögmálum um eftirspurn eins og annað. 23.7.2006 07:15
Alvarleg sakamál eru enn óupplýst Tvö alvarleg sakamál frá því fyrr á árinu hafa enn ekki verið upplýst. Annars vegar er um að ræða vopnað rán í höfuðstöðvum Happdrættis Háskóla Íslands í janúar og hins vegar mannrán í Garði í mars. Sökudólgarnir ganga enn lausir. 23.7.2006 07:15
Réðst á lögreglumann í lyftu Öryggisvörður Hagkaupa í Skeifunni gerði lögreglu viðvart vegna manns sem virtist í annarlegu ástandi við verslunina, um hálf ellefu leytið í gærmorgun. 23.7.2006 07:00
Allt skipulag endurskoðað Eftir að upp komst um fjárdráttinn í Tryggingastofnun ríkisins á dögunum var ákveðið að taka skipulag stofnunarinnar til gagngerrar endurskoðunar. 23.7.2006 07:00
Uppskeruhátíð Lunga í dag Uppskeruhátíð Lunga, listahátíð ungs fólks á Austurlandi, var haldin í dag. Aldrei hafa fleiri sótt hátíðina sem stækkar með hverju árinu. Lunga er listahátíð fyrir fólk á aldrinum 16 til 25 ára en hún hófst á mánudaginn var. Í kvöld verða svo tónleikar þar sem hljómsveitin Todmobile spilar. 22.7.2006 19:27
Horfið aftur til miðalda á Gásum Horfið var aftur til miðalda á Gásum í Eyjafirði í dag þar sem haldin var lifandi hátíð í þessari fyrrum helstu útflutningshöfn Norðlendinga. 22.7.2006 19:21
Mótmælastaða undir kvöldið Íslandsvinir, sem dvelja í mótmælabúðum undir Snæfelli, fóru í dag í göngu um það svæði sem fer undir Hálslón í haust. Þátttakendur í búðunum koma frá ýmsum þjóðum og eru margir mættir til að sýna andstöðu sína gegn Kárahnjúkavirkjun. 22.7.2006 19:15
Persónuleg óvild segir formaður ÖBÍ Stjórnarmenn í Öryrkjabandalaginu ætla að kæra formann bandalagsins til félagsmálaráðuneytisins vegna framgöngu hans við gerð samnings við nýjan framkvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins. Formaðurinn segir framgöngu mannanna sprottna af persónulegri óvild í sinn garð. 22.7.2006 19:07
Lagt hald á nokkuð af fíkniefnum Lögreglan á Siglufirði lagði í gærkvöldi og nótt hald á nokkuð af fíkniefnum og voru þrír menn handteknir í tengslum við málið. Gerð var húsleit á tveimur stöðum í bænum og játuðu tveir hinna handteknu að vera eigendur efnanna. 22.7.2006 16:00
Hreinsað til í Breiðholti „Tökum upp hanskann fyrir Breiðholt" nefnist fegrunarátak sem hófst í hverfinu í morgun. Breiðhyltingurinn Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri fór þar fyrir fríðu föruneyti. 22.7.2006 13:30
Fulltrúi Byggðastofnunar segir af sér vegna meintra lögbrota Fulltrúi Byggðastofnunar í stjórn Eignarhaldsfélags Vestmanneyja hefur sagt af sér vegna lögbrota félagsins sem hann kallar svo. Í greinargerð hans til Byggðastofnunar kemur fram að Guðjón Hjörleifsson, alþingismaður og fyrrverandi bæjarstjóri í Eyjum, greiddi aldrei fjórðung stofnfjár í eignarhaldsfélagi Vestmanneyja eins og þó hafði verið tilkynnt hlutafélagaskrá. 22.7.2006 12:59
Útskrifaður í dag eftir bílslysið á Suðurlandsvegi Maðurinn sem fór í aðgerð vegna beinbrota eftir bílslys á Suðurlandsvegi við Rauðhóla í gærkvöld verður útskrifaður í dag. Sjö manns voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn sem var mjög harður. 22.7.2006 12:15
Ökumaður stakk af Bíl var ekið á umferðamerki í Seljahverfinu um átta leytið í morgun og stakk ökumaður af af vettvagni. Tilkynnt var um hálf fjögur í nótt að bílnum hefði verið stolið. Talið er að bíllinn hafi verið á nokkurri ferð þegar hann fór á umferðarmerkið því um sextíu metra hemlaför eru eftir bílinn. 22.7.2006 10:45
Sprengjusérfræðingar eyddu skutli hrefnuskips Tveir sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar voru í gær kallaðir vestur á Patreksfjörð þar sem einn skutull hrefnuskipsins Njarðar sprakk ekki. Loka þurfti hluta hafnarinnar á Patreksfirði í gærkvöldi vegna þessa. 22.7.2006 10:45
Fíkniefni fundust Lögreglan í Reykjavík stöðvaði fólksbíl um klukkan hálf sex í nótt og reyndust allir í bílnum, þrír talsins, vera með fíkniefni á sér. Fólkið var bæði með hvít efni og e-töflur á sér auk þess sem að einn farþeganna var með stera í fórum sínum. 22.7.2006 10:30
Á annað hundrað manns í mótmælabúðum Á annað hundrað manns eru nú komnir í mótmælabúðir Íslandsvina undir Snæfelli. Hópurinn er þessa stundina á göngu um það svæði sem fer undir vatn þegar byrjað verður að safna í Hálslón í haust. 22.7.2006 10:16
Fíkniefni og vopn fundust í húsi í miðborginni Lögreglan í Reykjavík handtók fjóra einstaklinga í nótt eftir að hafa fundið fíkniefni og vopn í húsi í miðbæ Reykjavíkur. Verið er að yfirheyra þá sem voru handteknir. Gífurleg neysla hefur farið fram í húsnæðinu og hefur lögregla áður þurft að hafa afskipti af einstaklingum þar inni. 22.7.2006 10:15
Subbur kærðar Lögreglan í Reykjavík hefur í sumar stöðvað og kært ökumenn fyrir að henda sígarettustubbum og öðru rusli úr bílum sínum á götur borgarinnar. 22.7.2006 08:45
Umhverfismats krafist Landssamband veiðifélaga hefur sent umhverfisráðherra bréf þar sem þess er krafist að fyrirhuguð framkvæmd AGVA ehf., vegna þorskeldis í Hvalfirði, fari í umhverfismat. 22.7.2006 08:30
Listsköpun í stað áhættu Nýju meðferðarstarfi, sem ætlað er að minnka líkurnar á áhættusamri hegðun, hefur verið ýtt úr vör. Lögð er áhersla á listnám, vellíðan án vímuefna, hugræna atferlismeðferð og sjálfsstyrkingu. 22.7.2006 08:15