Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjögur hundruð milljónir bandaríkjadala í hernaðaraðstoð Bandaríkjamenn hyggjast styðja Úkraínu um ígildi 400 milljón bandaríkjadala í hernaðaraðstoð. Vopn, skotfæri og loftvarnarkerfi verða meðal hergagna. 23.11.2022 18:48
„Þeir virðast vera bara með nóg af vopnum“ Lögregla hefur lagt hald á töluvert af vopnum í tengslum við rannsókn á árásinni á skemmtistaðnum Bankastræti Club. Þar á meðal skotvopn. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir átökin undanfarna daga snúast um völd. 23.11.2022 18:47
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Viðræður Starfsgreinasambandsins og samtaka verslunarmanna við Samtök atvinnulífsins um nýjan skammtíma kjarasamning eru í uppnámi eftir vaxtahækkun Seðlabankans í morgun. Seðlabankastjóri segir neyslugleði almennings stuðla að mikilli verðbólgu og nauðsynlegt að stilla saman veruleika og væntingar. 23.11.2022 18:00
Sá yngsti í haldi sautján ára og sá elsti fjörutíu ára Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á stunguárásinni á Bankastræti club miðar vel og hefur verið í algjörum forgangi hjá embættinu frá því að málið kom upp. Tíu eru í haldi og er sá yngsti 17 ára og sá elsti 40 ára. Lögreglan rannsakar hvernig myndefni af árásinni rataði í fjölmiðla og hvort starfsmaður embættisins hafi átt hlut að máli. 23.11.2022 17:59
Óvissustigi almannavarna lýst yfir á Austurlandi Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir á Austurlandi vegna skriðuhættu. Mikið hefur rignt á svæðinu í nóvember og er grunnvatnsstaða há í landshlutanum. Sérstaklega er fylgst með skriðuhættu á Seyðisfirði. 23.11.2022 17:46
Rússar grunaðir um netárás á vefsíðu Evrópuþingsins Netárás var gerð á vefsíðu Evrópuþingsins fyrr í dag. Árásin var gerð mjög skömmu eftir að þingmenn samþykktu þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Rússneskur hópur hefur lýst yfir ábyrgð. 23.11.2022 17:36
Héraðssaksóknari rannsakar myndbandslekann „Þetta mál verður skoðað, það eru alveg hreinar línur,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. Grunur leikur á að myndböndum af hnífaárásinni á Bankastræti Club á síðustu viku, hafi verið lekið úr gagnagrunni lögreglunnar. Í myndbandinu sést á tölvuskjá í tákn skráningakerfis lögreglunnar, Löke. 23.11.2022 17:17
Rangæingar segja Hekluskóga miklu stærri en Þorláksskóga Rangæingar vilja ekki skrifa upp á þá staðhæfingu formanns bæjarráðs Ölfuss að Þorláksskógar séu stærsta skógræktarverkefni á Íslandi. Þeir segja að Hekluskógar í Rangárþingi ytra séu miklu stærri og vitna til upplýsinga frá Skógræktinni máli sínu til stuðnings. 23.11.2022 17:05
Árásarmálið í Borgarholtsskóla þingfest Mál fimmmenninganna sem ákærðir eru fyrir vopnuð slagsmál í Borgarholtsskóla var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur síðdegis í dag. Sakborningarnir eru allir ákærðir fyrir brot gegn vopnalögum. 23.11.2022 16:40
Rannsókn á hryðjuverkamáli langt komin og styttist í ákærufrest Héraðssaksóknari sækist eftir að tveir menn sem eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka og brot á vopnalögum verði áfram í gæsluvarðhaldi. Rannsókn er langt á veg komin en ákærufrestur í málinu rennur út um miðjan desember. 23.11.2022 15:54
Víða rafmagnslaust eftir enn eitt stýriflaugaregnið Umfangsmiklar stýriflaugaárásir Rússa á Úkraínu í dag hafa leitt til þess að rafmagnslaust er víða um landið. Minnst þrír eru látnir og níu særðir í Kænugarði og er borgin þar að auki án neysluvatns í kjölfar árásanna. 23.11.2022 15:32
Skotar mega ekki kjósa um sjálfstæði aftur án leyfis Æðsti dómstóll Bretlands bannað skosku heimstjórninni að halda aðra atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands án samþykkis breska þingsins í dag. Skoskir þjóðernissinnar vonuðust til þess að kjósa aftur um sjálfstæði á næsta ári. 23.11.2022 14:50
Bandaríkjamönnum ráðlagt að fara varlega í miðbæ Reykjavíkur Bandaríska sendiráðið biður Bandaríkjamenn að fara varlega í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Í tilkynningu sem sendiráðið birti á Facebook fyrr í dag eru ferðamenn beðnir um að forðast mannmergð og flýta sér í burtu ef þeir verða vitni að einhverju óeðlilegu. 23.11.2022 14:33
Leggja mikið kapp á að koma jarðsýnum frá Mars til jarðarinnar Geimvísindastofnanir Evrópu (ESA) og Bandaríkjanna (NASA) opinberuðu nýverið áætlun sem snýr að því að sækja jarðsýni til Mars og flytja til jarðarinnar. Vélmennið Perseverance, sem lenti á Mars í fyrra, er þegar byrjað að bora eftir jarðsýnum. 23.11.2022 14:25
Najsilniejsze trzęsienie ziemi od 2018 roku Dziś rano, o godzinie 10:04, w okolicy Öræfajökull wystąpiło trzęsienie ziemi o sile 3,0 stopnia. Wstrząs był odczuwalny w wielu miejscowościach w pobliżu lodowca. 23.11.2022 14:24
Sogni lokað í byrjun árs ef ekki koma til auknar fjárheimildir Fangelsinu að Sogni verður varanlega lokað ef ekki koma til auknar fjárheimildir til Fangelsismálastofnunar. Auk þess munu 23 fangelsispláss á Litla Hrauni hverfa, boðunarlistar til afplánunar munu lengjast og fyrningar refsingar munu aukast. Í dag eru ríflega þrjú hundruð dómþolar á boðunarlista til afplánunar í fangelsi en um 20-25% fangelsisplássa eru ekki nýtt í dag vegna fjárskorts. 23.11.2022 13:56
Bein útsending: Málþing um komugjöld í heilbrigðisþjónustu ÖBÍ réttindasamtök standa fyrir málþing um komugjöld í heilbrigðiskerfinu á Grand hótel klukkan 13 í dag. 23.11.2022 12:45
Skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki: Tveggja daga gamalt barn dó í eldflaugaárás á fæðingardeild Þingmenn Evrópuþingsins samþykktu í dag þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Er það gert með vísan í ítrekaðar árásir Rússa á orkuinnviði Úkraínu, sjúkrahús, skóla og neyðarskýli. Nýfætt barn lést í árás Rússa á fæðingardeild í suðurhluta landsins í nótt. 23.11.2022 12:09
Gerðu samning um fræðslu og stuðning til hinsegin barna Forsætisráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið hafa undirritað samstarfssamninga við Samtökin '78. Markmið samninganna sem eru samtals að fjárhæð níu milljónir króna er að veita fræðslu og stuðning til hinsegin barna og ungmenna og vinna gegn fordómum og haturstjáningu. 23.11.2022 11:57
Neyslugleði almennings heldur uppi verðbólgunni að mati seðlabankastjóra Seðlabankastjóri segir neyslugleði Íslendinga eiga stóran þátt í að halda uppi verðbólgunni. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði meginvexti sína um 0,25 prósentur í morgun sem er tíunda vaxtahækkun bankans á einu og hálfu ári. 23.11.2022 11:51
Premier Finlandii odwiedziła Islandię Premier Finlandii Sanna Marin i premier Islandii Katrín Jakobsdóttir, przyznały, że widzą wiele możliwości bliższej współpracy między tymi dwoma krajami. Współpraca może zostać rozwinięta w różnych dziedzinach. 23.11.2022 11:44
Útilokar að ríkisstjórnin endurtaki tilboðsleiðina Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir útilokað að núverandi ríkisstjórn beiti aftur tilboðsfyrirkomulagi við næstu sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. 23.11.2022 11:42
Stærsti skjálftinn í Öræfajökli frá árinu 2018 Skjálfti 3,0 að stærð varð í Öræfajökli klukkan 10:04 í morgun. Hann fannst víða á bæjum í nágrenni jökulsins. 23.11.2022 11:21
Myndbandinu líklega lekið af lögreglunni: „Erum mjög óhress með þetta“ Grunur leikur á að myndböndum af hnífaárásinni á Bankastræti Club á síðustu viku, hafi verið lekið úr gagnagrunni lögreglunnar. Yfirlögregluþjónn lítur málið alvarlegum augum. 23.11.2022 11:07
Skotar þurfa leyfi fyrir nýrri atkvæðagreiðslu Skoska heimastjórnin má ekki halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði, án leyfis frá breska þinginu. Hæstiréttur Bretlands opinberaði þessa niðurstöðu í morgun en Nicola Sturgeon, oddviti heimastjórnarinnar, stefndi á atkvæðagreiðslu í október á næsta ári. 23.11.2022 11:02
„Gamla skammtíma- og óskilvirka loforðapólitíkin ræður nú aftur ríkjum í Kópavogi“ Fulltrúar í minnihluta í bæjarstjórn Kópavogs eru allt annað en ánægðir með verklag við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2023. Segja þeir að mikil afturför hafi orðið hvað þetta varðar með nýjum meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna sem myndaður var eftir kosningarnar í vor og að nú hafi vinnan ekki verið unnin í þverpólitískri sátt líkt og síðustu ár. 23.11.2022 11:02
Myndskeið sýnir bensínsprengju kastað í hús Myndskeið gengur nú milli manna á samfélagsmiðlum þar sem einstaklingur sést kasta bensínsprengju á glugga fjölbýlisshúss. Talið er að um hefndaraðgerð sé að ræða sem tengist hnífaárásinni á Bankastræti Club síðastliðið fimmtudagskvöld. 23.11.2022 10:44
Berjast um mikilvægan skaga við ósa Dniproár Yfirvöld í Úkraínu segjast ætla að reka rússneska hermenn frá mikilvægum skaga vestur af Kherson-borg. Úkraínskir sérsveitarmenn eru þegar sagðir berjast við rússneska hermenn á Kinburn-skaga við ósa Dniproár við Svartahaf. 23.11.2022 10:28
Sundlaugargestur hellti klór á steina í gufubaði Klórslys sem varð í Grafarvogslaug í gærkvöldi orsakaðist af því að gestur sundlaugarinnar fór inn í lokaða geymslu, sótti þar klór sem hann taldi vera vatn og hellti á steina í gufubaði. Nokkrir þurftu að leita aðhlynningar á bráðamóttöku þar sem klór getur verið skaðlegur öndunarfærum 23.11.2022 10:19
Bein útsending: Bjarni svarar spurningum um Íslandsbankaskýrsluna Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis heldur opinn fund í dag vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Fjármálaráðherra er á meðal þeirra sem svarar spurningum nefndarinnar í dag. 23.11.2022 09:15
Óvíst að gervihnattasamband myndi anna öllum fjarskiptaþörfum mikilvægra innviða Gervihnattasamband hefur takmarkaða flutningsgetu og óvíst að fjarskiptasamband um gervihnetti geti annað öllum fjarskiptaþörfum mikilvægra inniviða eða ríkisins við útlönd. 23.11.2022 09:04
Segja byssumanninn í Koloradó kynsegin Lögmenn byssumanns sem skaut fimm manns til bana á næturklúbbi samkynhneigðra í Koloradó í Bandaríkjunum fullyrða að hann sé kynsegin. Hán gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir hatursglæp og á að koma fyrir dómara í fyrsta skipti í dag. 23.11.2022 08:41
Segir krónutöluhækkanir gætu jafngilt kaupmáttarrýrnun hjá stórum hópum Friðrik Jónsson, formaður BHM, segir kaupmátt láglaunafólks hafa hækkað sexfalt á við aðra frá gerð lífskjarasamningsins. Hann segir að ef krónutöluhækkanir verða aftur ráðandi við gerð kjarasamninga gæti það jafngilt kaupmáttarrýrnun fyrir stóran hluta launafólks. 23.11.2022 07:53
Hvasst á sunnanverðu landinu og gular viðvaranir í gildi Hvesst hefur í nótt og er nú norðaustan 13 til 18 metrar á sekúndu en 18 til 25 í vindstrengjum á sunnanverðu landinu. 23.11.2022 07:44
Mótmælir formlega niðurstöðum kosninganna Jair Bolsonaro, fráfarandi forseti Brasilíu hefur sent formlega kvörtun til kosningayfirvalda þar í landi þar sem hann mótmælir niðurstöðum forsetakosninganna í október. Þar beið hann naumlega lægri hlut gegn Luiz Inacio „Lula“ da Silva. 23.11.2022 07:43
Fimmtán særðir eftir sprengjuárás í Jerúsalem Að minnsta kosti fimmtán eru særðir eftir að tvær sprengjuárásir voru gerðar í Jerúsalem í Ísrael í morgun. 23.11.2022 07:23
Dieci skotbómulyftarasýning í Velti Veltir ætlar að halda skotbómulyftarasýningu á morgun, fimmtudag. Sýningin verður í Hádegismóum 8 í Árbæ. Á sýningunni verða Dieci Icarus 40.14, Dieci 40.17 og Dieci Pegasus 50.25 skotbómulyftarar. Einnig verður sérfræðingur frá Dieci á staðnum. 23.11.2022 07:01
Margdæmdum skattsvikara gert að greiða 130 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Jón Arnar Pálmason í 24 mánaða fangelsi, þar af 21 mánuð skilorðsbundinn, fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum. Jón Arnar þarf einnig að greiða 131 milljón í sekt til ríkissjóðs auk málsvarsþóknunar verjanda síns. 23.11.2022 07:01
Loftsteinninn á við allt að tíu tonn af sprengiefni Einstakar mælingar sem náðust með jarðskjálftamælitækjum á loftsteini sem sprakk yfir Suðvesturlandi í fyrra benda til þess að krafturinn í sprengingunni hafi jafnast á við allt að tíu tonn af TNT-sprengiefni. Þrátt fyrir það var steinninn líklega aðeins einhverjir sentímetrar að stærð. 23.11.2022 07:01
Hæstiréttur leggur blessun sína yfir afhendingu skattskýrslna Trump Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað þingnefnd að fá afhent afrit af skattskýrslum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Demókratar hafa barist fyrir því í þrjú ár að komast yfir gögnin. 23.11.2022 06:56
Um tíu látnir eftir skothríð verslunarstjóra Walmart í Virginíu Allt að tíu eru látnir eftir að maður hóf skothríð inni í Walmart-verslun í Virginíu í Bandaríkjunum í nótt. Erlendir fjölmiðlar segja að talið sé að árásarmaðurinn sé verslunarstjóri verslunarinnar. 23.11.2022 06:49
Orkuráðherra segir deilur um rammaáætlun hafa reynst dýrkeyptar Guðlaugur Þór Þórðarsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir áralangar deilur um rammaáætlun hafa reynst Íslendingum dýrkeyptar. Á sama tíma hafi litlar rannsóknir verið stundaðar og nánast engin ný orkuöflun átt sér stað. 23.11.2022 06:48
Kallað út vegna reyksprengju í Fossvogi og eldsprengju í Hafnarfirði Slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út upp úr klukkan eitt í nótt eftir að reyksprengju var kastað inn um rúðu einbýlishúss í Fossvogi í Reykjavík. Um svipað leyti kom útkall vegna tilraunar til að kasta eldsprengju í einbýlishús í Hafnarfirði. 23.11.2022 06:32
Ölvaður maður slasaðist í rafhjólaslysi Maður var fluttur á bráðadeild Landspítalans eftir að hafa misst stjórn á rafhjóli sínu þar sem hann var að hjóla í Grafarvogi í Reykjavík um klukkan 17 í gær. 23.11.2022 06:14
Neitaði að yfirgefa íbúðina Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við að vísa óvelkomnum manni úr íbúð í hverfi 105 í Reykjavík um klukkan þrjú í nótt. 23.11.2022 06:06