Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ríki og sveitarfélög geri ekki nóg til að stytta biðlista á hjúkrunarheimili Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Velferðarráði Reykjavíkur segir ríki og sveitarfélög ekki hafa gert nóg til að bregðast við löngum biðlistum á hjúkrunarheimili. Aldrei hafa fleiri beðið eftir að fá pláss á hjúkrunarheimili en nú. 5.11.2022 13:02
Kosningateymi Twitter rekið á einu bretti rétt fyrir kosningar Starfsmenn samfélagsmiðilsins Twitter sem sáu um að verjast upplýsingafalsi í kringum kosningar voru á meðal þeirra sem voru sagt upp í umfangsmikilli hópuppsögn í gær. Aðeins þrír dagar eru nú til þýðingarmikilla þingkosninga í Bandaríkjunum. 5.11.2022 12:22
Stórnotendur leigubíla hlynntir Uber-þjónustu: „Leigubílakerfið komið til ára sinna“ Samkvæmt nýrri könnun eru stórnotendur leigubíla hvað hlynntastir því að heimila akstursþjónustu á borð við Uber hér á landi. Lögfræðingur hjá Viðskiptaráði segir ljóst að leigubílakerfið sé komið til ára sinna. 5.11.2022 12:19
Rannsóknin færð annað tuttugu dögum eftir að nafn Guðjóns kom upp Tæpar þrjár vikur liðu frá því að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu varð kunnugt um tengsl föður ríkislögreglustjóra við ólöglega byssu, sem fannst við húsleit sumarið 2018, þar til málinu var vísað til annars lögregluembættis. 5.11.2022 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Tæpar þrjár vikur liðu frá því að lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu varð kunnugt um tengsl föður ríkisstjóra við ólöglega byssu, sem fannst við húsleit sumarið 2018, þar til málinu var vísað til annars lögregluembættis. 5.11.2022 11:47
Taldi ákæru í nauðgunarmáli ekki samræmast framburði brotaþola Landsréttardómari vildi vísa frá nauðgunarmáli þar sem hann taldi að ákæra héraðssaksóknara væri ekki í samræmi við framburð brotaþola af atvikum. Fangelsisdómur í málinu var mildaður um sex mánuði. 5.11.2022 11:06
Harma ómannúðlega og vanvirðandi meðferð á hælisleitendum Íslandsdeild mannréttindasamtakanna Amnesty International fordæmir brottvísun íslenskra stjórnvalda á hælisleitendum í vikunni. Harmar hún „ómannúðlega og vanvirðandi“ meðferð á viðkvæmum hópi sem var vísað úr landi í vikunni. 5.11.2022 10:21
Svíar hafna Kúrdum til að friðþægja Tyrki Sænska ríkisstjórnin ætlar að láta af stuðningi við vopnaða sveit Kúrda í Sýrlandi og stjórnmálaflokk sem tengist henni til þess að friðþægja Tyrki. Recep Erdogan Tyrklandsforseti hefur sett sig upp á móti aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu vegna stuðnings þeirra við Kúrda. 5.11.2022 09:54
Gangast loks við því að útvega Rússum dróna Utanríkisráðherra Írans viðurkenndi í fyrsta skipti í dag að ríkisstjórn hans hefði útvegað Rússum dróna sem hafa verið notaðir í sprengjuárásir í Úkraínu. Hann fullyrðir að drónarnir hafi verið afhentir áður en innrás Rússa í Úkraínu hófst. 5.11.2022 09:10
Tveggja ára dómur fyrir stórfelld brot gegn barnsmóður og árás á samfanga Landsréttur þyngdi fangelsisdóm yfir karlmanni sem var sakfelldur fyrir ítrekuð og stórfelld brot gegn barnsmóður sinni og sérstaklega hættulega líkamsárás á samfanga í gær. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi en héraðsdómur hafði áður dæmt hann í fimmtán mánaða fangelsi. 5.11.2022 08:29
Á fimmta tug fulltrúa Íslands á COP27 Fjörutíu og fjórir Íslendingar halda til Egyptalands í næstu viku til að sækja aðildarríkjafund Loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna (COP27). Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra fer fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra ávarpar viðburðinn í gegnum streymi. 5.11.2022 08:00
Fordæma brottvísun á ungmenni sem kom sem fylgdarlaust barn Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi fordæmir að íslensk stjórnvöld hafi vísað úr landi ungmenni sem til landsins sem fylgdarlaust barn rétt eftir að það varð sjálfráða á fimmtudag. Samtökin ítreka áköll sín um að íslensk stjórnvöld hætti að senda hælisleitendur til Grikklands. 5.11.2022 07:45
Mikið eftirlit í miðbænum vegna Airwaves Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með mikið eftirlit í miðborg Reykjavíkur vegna Airwaves-tónlistarhátíðarinnar í nótt. Flest mál sem komu upp voru þó minniháttar og tengdust ölvun. 5.11.2022 07:16
„Hún vill bara fá að deyja í dag“ Aldrei hafa jafn margir beðið eftir plássi á hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og nú. Yfir þrjú hundruð manns eru á biðlista en dæmi eru um fólk hafi beðið í meira en ár. Dóttir áttatíu og níu ára konu sem bíður eftir plássi segir langa bið hafa orðið til þess að móðir hennar hafi misst allan lífsþrótt. 5.11.2022 07:00
Ríkið sýknað á ný af milljónakröfu Sigurðar G. Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson beið á ný í lægri hlut í dómsmáli sem hann höfðaði á hendur íslenska ríkinu vegna úrskurðar ríkisskattstjóra frá 2018 vegna vangoldinna skatta. Sigurður krafðist rúmlega 25 milljóna króna auk dráttarvaxta. Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms að öðru leyti en um málskostnað og féll hann niður á báðum dómstigum. 4.11.2022 22:19
Háttsemi Isavia feli í sér atlögu að störfum blaðamanna Blaðamannafélag Íslands krefur ríkislögreglustjóra og Isavia svara vegna aðgerða starfsmanna Isavia við brottflutning hælisleitenda fyrr í vikunni. Flóðljósum var beitt gegn blaðamönnum til að hindra fréttaflutning af málinu. 4.11.2022 21:50
Læknir, túlkur og sérþjálfaður eftirlitsaðili tóku þátt í brottvísuninni Við brottflutning fimmtán hælisleitenda í vikunni voru, auk lögreglu, læknir, túlkur og sérþjálfaður eftirlitsaðili. Leiguflugvél var fengin undir fólkið. Stjórnarráðið segir að lögum hafi verið fylgt út í ystu æsar. 4.11.2022 21:31
Bjarni bauð Viðreisnarfólk velkomið heim Bjarni Benediktsson setti landsfund Sjálfstæðismanna í dag sem formaður flokksins - ef til vill í síðasta sinn - en eins og flestir vita verður kosið milli hans og Guðlaugs Þórs Þórðarsonar á sunnudag. Í setningarræðu skaut hann á Samfylkinguna og bauð Viðreisnarfólk velkomið heim. 4.11.2022 20:25
Lögin ekki vandamálið heldur framkvæmdin Þingmaður Pírata segir ekkert í Útlendingalögum skikka stjórnvöld til að framkvæma brottflutning með jafn mikilli hörku og gert var í vikunni. Það veki furðu að ríkisstjórnin ýti eftir nýrri útlendingalöggjöf þegar forsætisráðherra telur mikla sátt ríkja um núgildandi lög. 4.11.2022 20:00
Lóðir fyrir allt að 3.000 nýjar íbúðir á ári næstu fimm árin í Reykjavík Borgarstjóri segir að Reykjavík muni ekki ráða hraða uppbyggingar íbúðahúsnæðis á næstu árum sem muni ráðast af fjármögnun fjármálastofnana. Hann óttast að verið sé að framkalla kulnun á uppbyggingarmarkaði húsnæðis. 4.11.2022 19:21
„Við einfaldlega skuldum borgarbúum að gefa Samfylkingunni frí“ Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins skaut föstum skotum á Samfylkinguna í setningarræðu sinni á landsfundi í Laugardalshöll. Hann sagði Samfylkinguna hafa áttað sig á því að aðild að Evrópusambandinu kæmi ekki til greina og virtist bjóða þeim, sem farið hafa í aðra flokka, aftur heim. 4.11.2022 18:45
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Aldrei hafa jafn margir beðið eftir plássi á hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og nú. Yfir þrjú hundruð manns eru á biðlista en dæmi eru um fólk hafi beðið í meira en ár. Í kvöldfréttum verður rætt við dóttur áttatíu og níu ára konu sem bíður eftir plássi segir langa bið hafa orðið til þess að móðir hennar hafi misst allan lífsþrótt. 4.11.2022 18:01
Forsætisráðherra hættir við þátttöku á glæpasagnahátíðinni Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun ekki koma fram á bókmenntahátíðinni Iceland Noir. 4.11.2022 17:43
Öskraði „farðu aftur til Afríku“ á annan þingmann Þingmaður á franska þinginu hefur verið settur í fimmtán daga bann fyrir að hafa öskrað „farðu aftur til Afríku“ á þingmann úr öðrum flokki. Hann segist ekkert hafa gert rangt og vill meina að orðin hafi beinst að stöðu flóttafólks. 4.11.2022 17:26
Bein útsending: Reyna að grípa eldflaug með þyrlu Starfsmenn fyrirtækisins Rocket Lab ætla í dag að reyna að grípa eldflaug með þyrlu. Eldflauginni verður skotið frá Nýja-Sjálandi og á hún að koma smáum gervihnetti á braut um jörðu fyrir sænskt fyrirtæki. 4.11.2022 16:32
Mikil stemmning á spennuþrungnum landsfundi Sjálfstæðisflokksins Landsfundur Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll var settur klukkan 16:30 í dag með ræðu formanns Bjarna Benediktssonar. Fjölmennt var í Laugardalshöll og mörg kunnuleg andlit á svæðinu. 4.11.2022 15:31
Sanna braut engar reglur með djamminu Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, braut engar reglur og braut ekki gegn skyldum sínum með því að fara í samkvæmi. Myndbönd af forsætisráðherranum í dansa og syngja í samkvæmum var lekið á netið í sumar og þurfti hún að fara í fíkniefnapróf vegna ásakana um neyslu fíkniefna frá andstæðingum sínum í þinginu. 4.11.2022 15:22
Borgarstjóri hefur áhyggjur af kulnun í íbúðaframkvæmdum Borgarstjóri segir að ekki muni standa á Reykjavíkurborg að hafa nægar lóðir í boði til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis í borginni. Hann óttast hins vegar að flöskuháls geti myndast vegna tregðu lánastofnana og getu byggingaraðila til að halda í við eftirspurnina. 4.11.2022 15:19
Miasto Reykjavik podnosi ceny Z początkiem roku Miasto Reykjavik planuje podnieść ceny wielu usług. Mieszkańcy mogą spodziewać się podwyżek cen za odbiór odpadów, posiłki w szkołach i rocznych karnetów na basen. 4.11.2022 14:57
Þrjár ISIS-konur ákærðar í Danmörku Yfirvöld í Danmörku hafa ákært þrjár konur fyrir að ganga til liðs við Íslamska ríkið. Konurnar fóru til Sýrlands á árum áður og giftust þar vígamönnum hryðjuverkasamtakanna. Eftir fall Kalífadæmisins voru konurnar og fjórtán börn þeirra í Roj-búðum í norðausturhluta Sýrlands. 4.11.2022 14:40
Villikettir vilja lóð án endurgjalds: Segjast hafa sparað Hafnarfjarðarbæ tugi milljóna Sjálfboðaliðasamtökin Villikettir hafa óskað eftir því að Hafnarfjarðarbær úthluti lóð við Kaplaskeið án endurgjalds þar sem samtökin gætu reist húsnæði til að sinna villi- og vergangsköttum. Formaður segir í bréfi til sveitarstjórnar að samkvæmt útreikningum hafi samtökin með vinnu sinni sennilega sparað bæjarfélaginu milli 70 og 80 milljónum króna á síðustu átta árum. 4.11.2022 14:33
Ætlar að skipta Loga inn fyrir Helgu Völu Kristrún Frostadóttir, nýkjörinn formaður Samfylkingarinnar, stefnir að því að Logi Einarsson verði nýr þingflokksformaður flokksins. Þetta herma heimildir fréttastofu. 4.11.2022 14:27
Miklar skemmdir unnar á leikskólanum Funaborg: „Þetta er eiginlega bara ónýtt“ Miklar skemmdir hafa verið unnar síðustu vikur á leikskólanum Funaborg í Grafarvogi. Í október var kveikt í ruslagámi sem hafði miklar afleiðingar á starf skólans. Um síðustu helgi var nýlegt skógarhús spreyjað að utan og eru skemmdirnar að öllum líkindum varanlegar. Leikskólastýra segist ráðalaus. 4.11.2022 14:01
Segir rithöfunda bera skarðan hlut frá borði í stafrænum heimi Framkvæmdastjóri Rithöfundasambands Íslands segir að hlutur rithöfunda minnki sífellt í takt við aukna útbreiðslu á verkum þeirra á streymisveitum. Færri og færri geti lagt fyrir sig að verða atvinnuhöfundar í núverandi viðskiptaumhverfi. Kallað er eftir stjórnsýslulegri ákvörðun um að tryggja fjölbreytni til að ljóð og jaðarbókmenntir hverfi ekki úr bókmenntaflóru landsmanna. 4.11.2022 13:46
Heyrist vera almenn samstaða um lögin þó framkvæmdin sé iðulega gagnrýnd Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra heyrist að almenn samstaða sé um útlendingalögin þó að framkvæmdin við brottflutning hælisleitenda sé iðulega gagnrýnd. 4.11.2022 13:26
Einar Bárðarson fær ekki að fara á landsfund Einar Bárðarson athafnamaður er einn þeirra fjölmörgu sem vilja en fá ekki að sækja Landsfund Sjálfstæðismanna nú um helgina. Hann spyr hvort það geti verið vegna þess að búið sé að merkja sig sem stuðningsmann Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, frambjóðanda til formanns? 4.11.2022 12:47
Fjölbreytt verkefni hlutu Menntaverðlaunin í ár Íslensku menntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Fjórar menntastofnanir og einn kennari hlutu verðlaun. 4.11.2022 12:27
Dómari segir að vakta eigi fyrirtæki Trumps Óháður aðili verður fenginn til að vakta fyrirtæki Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Dómari í New York-ríki komst að þeirri niðurstöðu í dag í tengslum við lögsókn ríkissaksóknara New York gegn fyrirtækinu. 4.11.2022 12:14
Spyr hvort önnur framkvæmd sé nokkuð í boði Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, segir að farið hafi verið að lögum þegar hælisleitendum var vísað úr landi í fyrrinótt. Hann spyr hvort að önnur framkvæmd en sú að lögregla leiti uppi og vísi þeim frá landi með valdi synjað hefur verið um dvöl hér á landi en neita að fara. Forsætisráðherra minnir á að lög um útlendinga hafi verið samþykkt í breiðri sátt árið 2016. 4.11.2022 11:55
Ekkert bendi til að föður Sigríðar hafi verið hlíft af lögreglunni Dómsmálaráðherra segir ekkert benda til að föður ríkislögreglustjóra hafi verið hlíft af lögreglu eftir að hann var sakaður um að hafa selt ólögleg skotvopn. Samkvæmt dómsgögnum voru vopnin hvorki skoðuð né upprunavottorð afhent lögreglu þegar hún skráði vopnin á sínum tíma. 4.11.2022 11:49
Znaleziono dziesiątki niezarejestrowanej broni We wrześniu w domu Guðjóna Valdimarssona, który jest ojcem Komisarz Policji Krajowej Sigríður Björk Guðjónsdóttir, znaleziono około czterdziestu niezarejestrowanych sztuk broni palnej. 4.11.2022 11:45
Fjölskylda Kristins ætlar að kæra ákvörðun lögreglu að fella niður rannsókn Fjölskylda Kristins Hauks Jóhannessonar, sem lést í bílslysi í Óshlíð árið 1973, hefur ákveðið að kæra niðurstöðu lögreglunnar á Vestfjörðum um að hætta rannsókn. 4.11.2022 11:40
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um málefni flóttafólksins sem vísað var úr landi á dögunum og áform borgarinnar um íbúðauppbyggingu á næstu misserum. 4.11.2022 11:37
Sló samnemanda með hamri Nemandi við Réttarholtsskóla réðst á samnemanda sinn með hamri fyrir utan skólann á skólatíma á miðvikudag. Starfsmaður náði að skerast í leikinn og stöðva árásina. Málið er til skoðunar hjá barnaverndaryfirvöldum. 4.11.2022 11:28
Þjóðgarðsverðir fá leyfi til að skjóta á úlfa með málningarkúlum Þjóðgarðsverðir í Arnheim í Hollandi hafa fengið heimild til að skjóta á úlfa með málningarkúlum (e. paint ball) í þeim tilgangi að gera dýrin fráhverf mannfólkinu. Úlfar í Hoge Veluwe-þjóðgarðinum eru sagðir orðnir hættulega óhræddir við fólk, þannig að mönnum gæti stafað ógn af þeim. 4.11.2022 11:24