Innlent

Einar Bárðarson fær ekki að fara á landsfund

Jakob Bjarnar skrifar
Einar Bárðarson, sem hefur undanfarin 30 ár átt greiða leið á Landsfund Sjálfstæðisflokksins, fær ekki miða. Það þykir honum súrt í broti og veltir því fyrir sér hvort það sé vegna þess að hann er talinn styðja Guðlaug Þór í formannsslag?
Einar Bárðarson, sem hefur undanfarin 30 ár átt greiða leið á Landsfund Sjálfstæðisflokksins, fær ekki miða. Það þykir honum súrt í broti og veltir því fyrir sér hvort það sé vegna þess að hann er talinn styðja Guðlaug Þór í formannsslag? vísir/vilhelm

Einar Bárðarson athafnamaður er einn þeirra fjölmörgu sem vilja en fá ekki að sækja Landsfund Sjálfstæðismanna nú um helgina. Hann spyr hvort það geti verið vegna þess að búið sé að merkja sig sem stuðningsmann Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, frambjóðanda til formanns?

Einar greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni. Hann segir þetta í fyrsta skipti í líklega 30 ár sem hann fær ekki inngöngu á Landsfund Sjálfstæðisflokksins. Hann er nú haldinn eftir fjögurra ára hlé sem meðal annars er til komið vegna Covid-faraldursins. Einar er sársvekktur vegna þessa.

Slegist um miðana

„Eftir áratugi af trúnaðarstörfum i ýmsum félögum, fjáröflun og setu miðstjórn flokksins. Mér var það sérstakt kappsmál að komast á fundinn þar sem ég er i framboði á fundinum til Umhverfis- og samgöngunefnd flokksins þar sem ég brenn fyrir umhverfismál eins og fólk vonandi veit.“

Einar veit ekki hvað veldur og þetta kemur honum spánskt fyrir sjónir. „Ég er að velta fyrir mér hvað veldur en kannski er það vegna þess að ég held með Liverpool eða búið að merkja mig sem stuðningsmann Gulla.“

Einar var meðal fjölmargra sem mætti á mikinn stemmningsfund í Valhöll þegar Guðlaugur Þór Þórðarson kynnti framboð sitt.vísir/Berghildur Erla

Mikill slagur hefur verið um miðana á Landsfundinn en áhugann má ekki síst rekja til ákaflega harðar formannsbaráttu milli þeirra Guðlaugs Þórs og Bjarna Benediktssonar formanns flokksins. Vísir greindi í gær frá væringum í Kópavogi vegna landsfundafulltrúa Félags Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Samkvæmt heimildum Vísis hafa ýmsir innan flokks áhyggjur af því að stuðningsmenn séu að fara fram úr sér og það sé ekki til þess fallið að flokkurinn komi sameinaður frá þeim hildarleik. Landsfundurinn er hafinn en klukkan 16:30 flytur Bjarni setningarræðu.

Einar of seinn að næla sér í miða

Einari hefur borist svar frá Sjálfstæðisfélagi Garðabæjar, í athugasemd á Facebooksíðu hans, þar sem segir að við val á fulltrúum úr Garðabæ hafi verið stuðst við þá reglu að fyrstur kemur, fyrstur fær. Mögulegt var að óska eftir sæti í gegnum tölvupóst og vef XD.

Sigríður Indriðadóttir var kjörin formaður Sjálfstæðisfélags Garðabæjar árið 2021. Bjarni Th. Bjarnason var kjörinn varaformaður.Sjálfstæðisfélag Garðabæjar

Þá segir jafnframt að 11.október hafi sameiginlegur félagsfundur verið haldinn þar sem listi kjörinna landsfundarfulltrúa var samþykktur.

„Allir sem höfðu óskað eftir sæti fyrir þann fund fengu sæti. Allar óskir um setu sem fram hafa komið eftir það eru skráðar og haldið utan um þær á varamannalista. Ef forföll verða hjá landsfundarfulltrúum er sætum úthlutað á varamannalista eftir því hvenær viðkomandi óskaði eftir sætinu.“

Á það er bent að aðferðafræðin við kjör fulltrúa hafi verið jafn einföld og hún sé sanngjörn.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×