Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hætta rannsókn Óshlíðarmálsins Lögreglan á Vestfjörðum hefur ákveðið að hætta rannsókn á mannsláti í Óshlíð árið 1973. Niðurstaða rannsóknar réttarlæknis var sú að ekkert benti til annars en að farþegi í bíl sem hafnaði utan vegar hafi látist af afleiðingum umferðarslyss. 14.10.2022 17:45
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Pútín segist ekki sjá eftir neinu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir sextán þúsund menn sem skikkaðir voru til herþjónustu hafa verið senda á vígstöðvarnar í Úkraínu. Gagnrýni í garð herkvaðningarinnar hefur aukist í Rússlandi og fregnir hafa borist af dauðsföllum meðal kvaðmanna en Pútín segist ekki sjá eftir neinu í tengslum við innrásina í Úkraínu. 14.10.2022 16:20
Áfram fjórar vikur í gæsluvarðhaldi Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hyggja á hryðjuverk í slagtogi við annan mann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaðurinn mun þó ekki sæta einangrun áfram líkt og hann hefur gert nær sleitulaust undanfarnar fjórar vikur. 14.10.2022 15:57
Kona á áttræðisaldri talin leiða hægri-öfga hóp Talið er að 75 ára kona sé leiðtogi hægri-öfga hóps sem skipulagði mannrán og fleiri árásir í Þýskalandi. Konan var í gær handtekin vegna málsins. 14.10.2022 14:55
Stjórn Prestafélagsins fundar í dag í skugga afsagnar formanns Stjórn Prestafélags Íslands fundar í dag um næstu skref nú í kjölfar þess að formaður félagsins hefur sagt af sér eftir vantraustsyfirlýsingu prestvígðra kvenna. Varaformaður félagsins segir forgangsmál að lægja öldurnar. 14.10.2022 14:34
Enginn hafi spurt hvort búið sé að biðja þær afsökunar Þrjár konur segja Auðunn Lúthersson tónlistarmann aldrei hafa beðist afsökunar á framkomu sinni í þeirra garð. Það sé sárt að sjá samfélagið fyrirgefa honum. Erfitt sé að heyra hann játa að hafa farið yfir mörk og verið dónalegur, með því sé hann að smætta gjörðir sínar. 14.10.2022 14:33
Gerður nýr formaður flóttamannanefndar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur skipað Gerði Gestsdóttur sem formann flóttamannanefndar. 14.10.2022 14:27
Zatwierdzono nowe imiona Na początku miesiąca Komisja ds. nazewnictwa rozpatrywała dziewięć wniosków o przyjęcie nowych imion i wszystkie zostały zaakceptowane. 14.10.2022 14:17
„Við verðum að klára athöfnina, annars vinna þau“ Á meðan Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, fylgdist með árásinni á þinghúsið í Washington DC þann 6. janúar í fyrra, í sjónvarpinu og neitaði að gefa út yfirlýsingu um að stuðningsmenn hans ættu að láta af árásinni, voru leiðtogar þingsins að vinna að því að reyna að stöðva árásina. 14.10.2022 14:16
Evrópuráðsþingið hvetur ríki til að skilgreina Rússlandsstjórn sem hryðjuverkastjórn Úkraínuforseti segir mikilvægt að þing Evrópuráðsins hafi skilgreint ríkisstjórn Rússlands sem hryðjuverkastjórn. Þingmaður Pírata segir aðildarríki Evrópuráðsins þar með hvött til að gera hið sama og virkja lög ríkjanna um varnir gegn hryðjuverkum gagnvart Rússlandi. 14.10.2022 14:06
Podejrzani nie będą przetrzymywani w izolacji Prokurator okręgowy nie zamierza wnosić o dalszą izolację w przypadku dwóch mężczyzn aresztowanych pod zarzutem planowania zamachu terrorystycznego. 14.10.2022 13:59
Máttu nota uppfinningu nýsköpunarstjóra Íslenskar orkurannsóknir þurfa ekki að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum fyrir notkun á uppfinningum sem starfsmaðurinn fann upp á meðan hann var enn starfsmaður. Starfsmaðurinn taldi sig eiga rétt á hluta af nettóhagnaði af uppfinningunum. 14.10.2022 13:24
Jeremy Hunt skipaður nýr fjármálaráðherra Breski þingmaðurinn Jeremy Hunt, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og utanríkisráðherra, hefur verið skipaður nýr fjármálaráðherra í ríkisstjórn forsætisráðherrans Liz Truss. 14.10.2022 13:11
Umdeild reglugerð ráðherra um fjölda barna á leikskólum sett á bið Reglugerðarbreyting mennta- og barnamálaráðherra um ákvörðunarvaldið hvað varðar fjölda barna á leikskólum hefur verið sett á bið eftir mikla gagnrýni. Ráðherra segist vilja ræða málin á breiðari grunni, leiða saman ólíka hópa, og gera stærri breytingar en voru undir í reglugerðinni. Samtal þess efnis muni eiga sér stað á næstu vikum og mánuðum. 14.10.2022 12:18
Íshellan sigið um fimmtán metra Íshellan í Grímvötnum hefur sigið um fimmtán metra síðan hlaup hófst fyrr í vikunni. Rennsli hefur enn ekki náð hámarki við brúna á þjóðvegi 1. Enn sjást engin merki um gosóróa í eldstöðinni. 14.10.2022 12:16
Bein útsending: RECLAIM ráðstefnan í Veröld Ráðstefnan RECLAIM, Reclaiming Liberal Democracy in Europe, fer fram í Veröld - húsi Vigdísar á milli klukkan 13 og 16:30 í dag. Ráðstefnan verður í beinu streymi hér á Vísi. 14.10.2022 12:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Vinnuaflsskortur, leikskólamál, Prestafélagið og staða mála í Úkraínu verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 14.10.2022 11:41
Truss rekur fjármálaráðherrann úr embætti Liz Truss, forsætisráðherra Bretlands, hefur rekið fjármálaráðherra sinn, Kwasi Kwarteng, úr embætti. 14.10.2022 11:32
Íslendingar eru allt of latir við að skafa þegar veður breytist Umferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur gengið slysalaust fyrir sig að mestu þrátt fyrir breytt veðurfar. Lögreglan segir borgarbúa samt ekki nógu duglega að skafa rúðurnar sínar. 14.10.2022 11:25
Krefjast ekki einangrunar yfir mönnunum tveimur Héraðssaksóknari ætlar ekki að gera kröfu um frekari einangrun í tilfelli tveggja karlmanna sem sæta gæsluvarðhaldi grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk. Karlmennirnir tveir verða leiddir fyrir dómara í dag. 14.10.2022 11:23
Telur dóm veita tvö hundruð flóttamönnum sem átti að vísa úr landi rétt á efnismeðferð Palestínumaður, sem sótti um alþjóðlega vernd hér á landi en fékk ekki efnismeðferð, bar ekki ábyrgð á miklum töfum á meðferð máls hans. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi í málinu í gær. Lögmaður segir málið fordæmisgefandi í málum allra þeirra sem sótt hafa um hæli hér á landi og ílengdust vegna kórónuveirufaraldursins. 14.10.2022 11:21
„Óboðleg staða“ í Vestmannaeyjum Bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar segir að samgöngur milli eyja og lands séu óboðlegar þessa stundina. Herjólfur III er að leysa Herjólf IV af á meðan sá síðarnefndi er í slipp. Herjólfur III er tvisvar búinn að bila í þessari viku. 14.10.2022 11:07
Gular viðvaranir norðanlands um helgina Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og á Norðurlandi eystra um helgina vegna hvassrar norðanáttar og ofankomu. 14.10.2022 10:23
Hafa rænt úkraínskum börnum í massavís Yfirvöld í Rússlandi hafa rænt fjölmörgum úkraínskum börnum frá yfirráðasvæðum þeirra í Úkraínu og ættleitt þau til fólks í Rússlandi. Meðal annars hefur verið logið að börnunum að úkraínskir foreldrar þeirra vilji þau ekki. 14.10.2022 10:19
Kvikmyndatökur í Ártúnsbrekku í dag Kvikmyndatökur fer fram í Ártúnsbrekkunni á milli klukkan 9:30 og 13 í dag og gætu vegfarendur orðið varir við það. 14.10.2022 09:38
Efast um hæfi MAST Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) segja viðbrögð Matvælastofnunar (MAST) við vanrækslu hrossa í Borgarfirði ekki vera í samræmi við alvarleika málsins. Samtökin skora á MAST að tryggja viðunandi aðbúnað dýranna á meðan málið er enn í skoðun. 14.10.2022 09:33
Einn hefur látist í gríðarlegum flóðum í Ástralíu Íbúar í þremur áströlskum fylkjum hafa þurft að flýja heimili sín vegna úrhellisrigninga og flóða. Í hluta landsins hefur rigning undanfarinn sólarhring verið fjórum sinnum meiri en að meðaltali í októbermánuði. 14.10.2022 08:22
Þriggja flokka stjórn sem Svíþjóðardemókratar verja vantrausti Borgaralegu flokkarnir í sænskum stjórnmálum hafa náð saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar undir forystu Ulf Kristersson, formanns Moderaterna. Ríkisstjórnin mun samanstanda af ráðherrum úr röðum Moderaterna, Kristilegra demókrata og Frjálslyndra. Svíþjóðardemókratar munu ekki eiga sæti í ríkisstjórninni en verja stjórnina vantrausti. 14.10.2022 08:14
Rennslið enn að aukast í Gígjukvísl Rennsli hefur haldið áfram að aukast í Gígjukvísl og hefur íshellan í Grímsvötnum nú lækkað um þrettán metra frá því að hlaup hófst fyrr í vikunni. 14.10.2022 07:47
„Gerðu ljósið í eldhúsinu rautt”: Tæknin komin mun lengra en fólk heldur Fjallað var um meiriháttar framfarir á sviði íslenskrar máltækni í Íslandi í dag, þar sem tekið var hús á fyrirtækinu Miðeind. Þar er nú hægt að biðja snjalltæki um að slökkva og kveikja ljós, skipta um lag í hátölurum og einnig má leiðrétta ófullkominn texta sjálfvirkt með miklum árangri. Allt á íslensku. 14.10.2022 07:33
Ókyrrð í Kína eftir eins manns mótmæli Kínversk stjórnvöld hafa undanfarna daga unnið dag og nótt að því að ritskoða umræður á samfélagsmiðlum um mótmæli sem fóru fram í Peking í gær. Mótmælendur hafa krafist þess að Xi Jinping, leiðtoga landsins, verði komið frá völdum en aðeins nokkrir dagar eru í að þjóðþing kommúnistaflokksins fer fram. 14.10.2022 07:28
Handtekinn í annarlegu ástandi í stætó Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi mann í annarlegu ástandi í strætó. Maðurinn var með fíkniefni í fórum sínum. 14.10.2022 07:16
Yrði ekki svarað með kjarnorkuvopnum en sveitir Rússa þurrkaðar út Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur verið harðlega gagrýndur fyrir að lýsa því yfir að Frakkar myndu ekki svara kjarnorkuárás á Úkraínu með kjarnorkuvopnum. 14.10.2022 07:16
Norðanátt með éljum norðantil en bjart fyrir sunnan Veðurstofan spáir norðan- og norðaustanátt í dag, víða átta til þrettán metrum á sekúndu með éljum fyrir norðan og bjart sunnan heiða. Það hvessir í kvöld á má reikna með áframhaldandi norðanátt um helgina. 14.10.2022 07:09
Hjá einum af tíu fara meira en 75 prósent tekna í húsnæðiskostnað Fyrstu niðurstöður könnunar sem Félagsvísindastofnun vinnur að fyrir Öryrkjabandalag Íslands benda til þess að tíundi hver öryrki á Íslandi verji meira en 75 prósentum af ráðstöfunartekjum sínum í rekstur húsnæðis. 14.10.2022 07:07
Polestar 3 rafjeppinn kynntur Polestar 3 er fyrsti jeppi bílaframleiðandans og fyrsti bíllinn sem fyrirhugað er að framleiða í tveimur heimsálfum. Polestar 3 kemur á markað fjórhjóladrifinn með tveimur rafmótorum með áherslu á aukna aflstýringu til afturhjólanna. Hann mun kosta frá 12.990.000 kr. 14.10.2022 07:00
Flóttamenn frá Kherson komnir til Rússlands Flóttamenn frá Kherson héraðinu í suðurhluta Úkraínu eru farnir að koma til Rússlands eftir að leppstjórn Rússa í héraðinu hvatti íbúa til að flýja öryggis síns vegna. Sérfræðingar segja þetta benda til þess að heljartak Rússa á héraðinu sé farið að linast. 14.10.2022 06:56
Dró sér rúmar þrjár milljónir sem gjaldkeri húsfélags Gjaldkeri húsfélags hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt með því að hafa dregið sér samtals 3.308.425 krónur í eigu húfélagsins. Gerði hún það með því að millifæra fé af bankareikningi félagsins inn á sína persónulegu bankareikninga í 165 færslum. 14.10.2022 00:07
Cuba Gooding Jr. sleppur við fangelsi Leikarinn Cuba Gooding Jr. slapp við fangelsisrefsingu þegar dómur yfir honum var kveðinn upp í dag í New York ríki. Hann játaði að hafa kynferðislega áreitt þrjár konur árin 2018 og 2019. Með því skilyrði að halda áfengismeðferð sinni áfram hlaut hann sex mánaða skilorðsbundinn dóm. 13.10.2022 23:45
„Höfum kannski ekki verið að skoða hvort þetta sé Helvetica eða Arial“ Töluvert misræmi er á leturgerð á götuskiltum Reykjavíkurborgar, sem stingur fólk mismikið í augun. Skrifstofustjóri hjá borginni segir að leturgerð hafi orðið út undan í samræmingarferlum borgarinnar en lofar bót og betrun. 13.10.2022 23:15
Eldislaxar í meirihluta í Mjólká Í veiðum Fiskistofu í Mjólká í Arnarfirði veiddust 43 laxar þar sem 28 af þeim koma úr eldi. 15 laxar voru villtir og reyndist einn þeirra eiga uppruna sinn frá Skotlandi. Hóf Fiskistofa veiðar í ágúst síðastliðnum er grunur kom upp um að eldislax væri í Mjólká. 13.10.2022 23:05
Gasið flæðir frá Frakklandi til Þýskalands í fyrsta sinn Gas er nú byrjað að flæða frá Frakklandi til Þýskalands í fyrsta sinn. Þetta er hluti af aukinni samvinnu ríkjanna í orkumálum vegna orkukreppu í Evrópu. 13.10.2022 22:58
Innanlandsvélar Icelandair gætu verið knúnar vetni eftir þrjú ár Tækni til að umbreyta olíuknúnum innanlandsflota Icelandair í vetnisknúnar flugvélar verður tilbúin eftir þrjú ár. Þetta kom fram á fundi um orkuskipti í flugi á Reykjavik Edition hótelinu í dag í tengslum við Hringborð norðurslóða. 13.10.2022 22:23
Frávísunar krafist vegna dýrkeyptra mistaka í málum útrásarvíkinga Ríkissaksóknari hefur farið fram á frávísun í máli Milestone gegn Karli Wernerssyni í kjölfar frávísunar Hæstaréttar á sambærilegu máli Styrmis Þórs Bragasonar vegna mistaka endurupptökudóms. Nokkrum svipuðum hrunmálum var ranglega vísað til Hæstaréttar á síðasta ári. Fari hrunmál Karls og fleiri sömu leið og Styrmis standa áratugsgamlir sýknudómar óhaggaðir og ríkið dæmt til að greiða tugi milljóna í málsvarnarlaun. 13.10.2022 21:39
Taminn forystuhrútur í Skagafirði Forystuhrúturinn Móri í Skagafirði þykir einstaklega fær þegar kemur að því að hlaupa samhliða hesti í bandi með bjölluna sína. Bóndinn á bænum, sem hefur tamið Móra notar hann mikið þegar hann er að smala því kindurnar laðast að Móra og síðan hleypur hann með þær heim á bæ. 13.10.2022 21:30
Atvinnurekendur í Grindavík argir: „Míga inn um bréfalúguna, dingla og spyrja hversu langt þú dreifst“ Innlent