Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Særandi hamingjuóskir þeirra sem prumpa glimmeri Guðrún Hlín Bragadóttir hjúkrunarfræðingur skrifar einkar athyglisverða grein sem hún birtir á Vísi þar sem hún lýsir lífsreynslu maka þess sem kemur úr skápnum. 3.8.2022 10:06
Aldrei fleiri fengið íbúð á Stúdentagörðunum Félagsstofnun stúdenta úthlutaði 512 leigueiningum á Stúdentagörðum til rúmlega 550 stúdenta í nýafstaðinni haustúthlutun. Aldrei hafa fleiri fengið leiguhúsnæði úthlutað hjá stofnuninni í haustúthlutun. 3.8.2022 09:45
Gular viðvaranir í gildi fram á kvöld Gular viðvaranir eru enn í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra ásamt Norðurlandi eystra. Búast má við vexti í ám og lækjum en ásamt því gætu vatnsföll flætt staðbundið yfir bakka sína. Auknar líkur eru á grjóthruni og skriðum og er útivistarfólki bent á hættu á kælingu vegna rigningar, lágs lofthita og vinda. 3.8.2022 09:05
Túrbínan sé tilbúin fyrir flutning til Rússlands Kanslari Þýskalands, Olaf Scholz mun í dag skoða rússneska túrbínu frá Gazprom sem hefur valdið miklum flækjum fyrir gasflutning í gegnum Nord Stream 1 gasleiðsluna. Túrbínan er staðsett í borginni Mulheim í Þýskalandi. 3.8.2022 08:31
Ríkur tannlæknir dæmdur fyrir að bana eiginkonunni með haglabyssu í veiðiferð Auðugur bandarískur tannlæknir sem sakaður var um að hafa skotið eiginkonu sína til bana með haglabyssu í veiðileiðangri í Afríku var í gær sakfelldur fyrir morð og póstsvik. Hinn 67 ára Lawrence Rudolph var ákærður fyrir að hafa myrt Bianca Rudolph í Sambíu árið 2016 og brotið lög þegar hann leysti út 4,8 milljónir bandaríkjadala út úr líftryggingunni hennar. 3.8.2022 08:01
Fimm teknir í tollinum með Oxycontin á þremur vikum Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært fimm pólska karlmenn fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa flutt inn mikið magn ópíóíðalyfsins Oxycontin. Mennirnir voru teknir á þriggja vikna tímabili með efni í fórum sér en þeir eru allir ákærðir hver í sínu lagi og því er ekki litið á brot þeirra sem samverknað. 3.8.2022 07:49
Ítrekaði stuðning Bandaríkjanna við Taívan og skaut á forseta Kína Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar bandaríska þingsins, hét áframhaldandi stuðningi Bandaríkjanna við Taívan í opinberri heimsókn sinni þar í gær. Pelosi fundaði meðal annars með Tsai Ing-wen, forseta Taívan, sem hét því að láta ekki undan hernaðarlegum hótunum Kína. 3.8.2022 07:35
Haukur Viðar á Heklunni Íslandsmeistari í torfæru Haukur Viðar Einarsson á bíl sínum Heklunni varð um helgina Íslandsmeistari í sérútbúnaflokki Íslandsmótsins í torfæru í fyrsta sinn, þegar tvær síðustu keppnir tímabilsins fóru fram á Akureyri. Haukur endaði með 101 stig í mótinu. Í öðru sæti varð Geir Evert Grímsson á Sleggjunni með 85 stig og í þriðja sæti varð Íslandsmeistari síðasta árs, Skúli Kristjánsson á Simba með 84 stig. 3.8.2022 07:01
„Ég var dálítið stressaður og var farinn að leita að dyrunum“ Þó Íslendingar séu margir orðnir vanir jarðskjálftum, líkt og þeim sem riðið hafa yfir á Reykjanesskaga og víðar að undanförnu, þá eru það ekki allir. Nokkrir erlendir ferðamenn sem fréttastofa hitti höfðu aldrei upplifað jarðskjálfta fyrr en á mánudagskvöld. 3.8.2022 07:00
Kærunefnd stöðvar samningagerð vegna leikskóla í Urriðaholti Kærunefnd úboðsmála hefur stöðvað samningsgerð Garðabæjar við Fortis ehf. vegna bygginar leikskóla í Urriðaholti, þar sem nefndin telur verulegar líkur á því að bæjaryfirvöld hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup. 3.8.2022 06:56
Íbúar Kansas standa vörð um rétt kvenna til þungunarrofs Íbúar í Kansas í Bandaríkjunum höfnuðu því í atkvæðagreiðslu í gær að fjarlægja ákvæði úr stjórnarskrá ríkisins þar sem konum er tryggður rétturinn til þungunarrofs. 3.8.2022 06:41
Minni virkni í nótt en einn stór skjálfti í morgunsárið Nokkuð færri skjálftar urðu á Reykjanesskaga í nótt en aðeins fjórir mældust þrír að stærð eða stærri. Þar af var einn af stærðinni 4,6 sem reið yfir klukkan hálf sex í morgun. 3.8.2022 06:40
Óútskýrður eldur í mosa en engin kvika sjáanleg Ljósblossar í Fagradalsfjalli sem Landhelgisgæslan var send að kanna nú eftir miðnætti reyndust vera vegna elds í mosa. Engin merki eru um kviku á svæðinu. 3.8.2022 01:26
„Maður myndi alveg þiggja fleiri svona helgar“ Verslunarmannahelgin var með rólegra móti þetta árið þó hátíðarhöld hafi verið víða á landinu og mikil stemning eftir faraldur. Færri líkamsárásir komu á borð lögreglu en oft áður en tilkynnt hefur verið um tvö kynferðisbrot í Vestmannaeyjum. 2.8.2022 23:00
Allra augu beinast að svæði sem í fyrra var talið líklegast til að gjósa Augu jarðvísindamanna, sem og fróðleiksþyrstra landsmanna um næsta eldgos á Reykjanesskaga, beinast núna að svæði austan og norðaustan Fagradalsfjalls sem liggur til norðausturs frá eldstöðvunum í Geldingadölum í fyrra og í átt að hinu svipmikla fjalli Keili. Þar benda mælingar til að kvika streymi núna inn í kvikugang sem gæti brotist upp til yfirborðs á næstu dögum með eldgosi. 2.8.2022 22:50
Lögreglumenn sendir út til að kanna aðstæður við Fagradalsfjall Fulltrúar lögreglunnar á Suðurnesjum könnuðu aðstæður við Fagradalsfjall í kvöld eftir að bera fór þar á reyk. Sáu þeir ekkert athugavert á svæðinu að sögn náttúruvársérfræðings sem segir engin merki um að kvika sé að koma upp á yfirborðið. 2.8.2022 22:22
Sérstaklega mikilvægt að halda Hinsegin daga í ljósi bakslags Hinsegin dagar voru settir í dag með regnbogamálun í miðborginni þegar Bankastræti var breytt í regnbogastræti. Dagskráin er fjölbreytt á þessari fyrstu hátíð eftir kórónuveirufaraldurinn og nær hámarki á laugardag með Gleðigöngunni og útihátíð í Hljómskálagarðinum. 2.8.2022 21:30
Öflugir skjálftar í Krýsuvík: „Þetta er enginn stórskaði eins og er“ Verulegar líkur eru taldar á eldgosi við Fagradalsfjall á næstu dögum eða vikum. Nýjar niðurstöður benda til þess að kvikugangur liggi mjög grunnt undir yfirborðinu. Ummerki skjálftahrinunnar eru greinileg á meðferðarheimilinu í Krýsuvík og segir framkvæmdastjórinn þá hörðustu líkjast brotsjó. 2.8.2022 20:17
Samviskusamur köttur hjá Icewear á Akureyri Læðan Ágústa er magnaður köttur á Akureyri því hún lítur á sig, sem einn af starfsmönnum Icewear í göngugötunni enda situr hún meira og minna allan daginn við afgreiðsluborðið. Þá bíður hún við dyrnar á morgnanna eftir því að verslunin opni, enda samviskusöm með eindæmum þegar vinnan er annars vegar. 2.8.2022 20:03
Reykurinn í Fagradalsfjalli ekki merki um kviku Reykur sem sést rjúka upp við Fagradalsfjall í vefútsendingu mbl.is frá svæðinu er ekki merki um að kvika sé á leið upp á yfirborðið, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Jarðskjálfti að stærð 3,8 mældist um 2,1 kílómetra suðsuðvestur af Keili um klukkan 19:40 í kvöld og fylgdu minni eftirskjálftar í kjölfarið. Stóri skjálftinn fannst meðal annars á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu. 2.8.2022 19:49
Átta líkamsárásir og tvö kynferðisbrot tilkynnt eftir Þjóðhátíð Átta líkamsárásir og tvö kynferðisbrotamál hafa verið skráð hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í tengslum við nýafstaðna Þjóðhátíð. Heildarmálafjöldi frá fimmtudegi til mánudags er mjög áþekkur því sem var í kringum Þjóðhátíð á árunum 2018 og 2019 en tilkynnt hefur verið um ívið færri líkamsárásir og ofbeldisbrot. Þetta sýna bráðabirgðatölur lögreglunnar. 2.8.2022 19:35
Verulegar líkur á gosi á næstu dögum eða vikum Líkurnar á eldgosi á svæðinu í kringum Fagradalsfjall á næstu dögum eða vikum hafa aukist og eru nú taldar verulegar. Þetta má lesa úr niðurstöðum nýrra aflögunarlíkana en líkt og staðan er núna virðist vera að hægja á aflögun og skjálftavirkni við Fagradalsfjall. Var það einn af forboðunum fyrir eldgosið sem hófst í mars á seinasta ári. 2.8.2022 18:40
Ekki náð að leysa út lyfseðla vegna bilunar Margir hafa átt í erfiðleikum með að leysa út lyfseðla í dag vegna bilunar í tölvukerfi sem læknar nota til að senda frá sér rafræna lyfseðla. Bilunin kom upp hjá þjónustuaðila kerfisins seinnipart dags í dag og er unnið að viðgerð. 2.8.2022 18:31
Pelosi lent í Taívan og kínverskum orustuþotum flogið inn í loftvarnarsvæði þeirra Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, lenti í Taívan síðdegis í dag þrátt fyrir mikla andstöðu Kínverja. Talið er að heimsóknin gæti aukið verulega á spennu á milli stórveldanna tveggja. 2.8.2022 18:10
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ekkert lát er á skjálftahrinunni sem hófst á Reykjanesskaga um helgina og Grímsvötn hafa nú verið færð á gulan litakóða eftir snarpan skjálfta í dag. Gervitunglamynd sýnir kvikuinnskot og aflögun á Reykjanesi og ummerki hrinunnar eru greinileg á meðferðarheimilinu í Krýsuvík. 2.8.2022 18:00
Litakóða fyrir Grímsvötn breytt í gult Veðurstofan hefur breytt litakóða fyrir Grímsvötn í gult. Nokkrir jarðskjálftar stærri en 1,0 að stærð hafa mælst þar í eftirmiðdag og stærsti skjálftinn af þeim mældist 3,6 að stærð klukkan 14:24. Jarðskjálftavirkni er því umfram eðlilega bakgrunnsvirkni að sögn náttúruvársérfræðinga. 2.8.2022 17:24
Jarðskjálfti nálægt Grímsvötnum af stærðinni 3,7 Jarðskjálfti af stærðinni 3,7 mældist 2,7 kílómetra norðnorðaustur af Grímsfjalli klukkan tuttugu mínútur yfir tvö í dag. Fyrir utan þennan stóra skjálfta hefur verið lítið um virkni á svæðinu. 2.8.2022 16:53
Hopp íhugar að grípa til sekta Framkvæmdastjóri Hopp segist taka það mjög alvarlega að fólk leggi rafskútum svo illa að það stofni lífi fólks í hættu eða hindri för þeirra. Hún segir að ef ástandið batni ekki þurfi fyrirtækið mögulega að grípa til þess að sekta notendur. 2.8.2022 16:51
Tvær alvarlegar líkamsárásir um helgina Tilkynnt var um nítján líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu um helgina, þar af tvær alvarlegar árásir. Þá var tilkynnt um tíu innbrot, fimm þeirra í bifreiðar og geymslur en eitt í íbúðarhúsnæði. 2.8.2022 16:35
Varað við mikilli rigningu á morgun Gul veðurviðvörun er í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra sem og Norðurlandi eystra. Búist er við talsverðri eða mikilli rigningu. Auknar líkur eru á grjóthruni og skriðuföllum. 2.8.2022 15:41
System opieki zdrowotnej jest w sytuacji awaryjnej Przewodnicząca Islandzkiego Stowarzyszenia Medycznego mówi, że spodziewa się wzrostu zagrożenia w systemie opieki zdrowotnej. 2.8.2022 15:40
Nýtt gostímabil: Samfélagið þarf að aðlagast nýjum veruleika Íslendingar þurfa að aðlagast nýjum veruleika segir prófessor í eldfjallafræði sem telur skjálftahrinuna staðfesta að nýtt gostímabil sé hafið. Hann telur líklegt að það gjósi á Reykjanesi í haust. 2.8.2022 15:28
Veður í júlí sjaldan eins skítt Veðurfar það sem af er sumri hefur verið í slöku meðallagi. Þetta upplýsir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á Facebook-síðu sinn. Meðalhitinn í júlí var einni gráðu lægri að meðaltali en á tímabilinu 1991 til 2020. 2.8.2022 15:09
Rośnie liczba mieszkań budowanych poza stolicą Poza obszarem stolicy powstaje coraz więcej budynków mieszkalnych i jak wynika z raportów, tak dużego wzrostu w budownictwie nie było od 2008 roku. 2.8.2022 15:06
Skýrslan um sölu Íslandsbanka væntanleg í þessum mánuði Skýrsla ríkisendurskoðunar um umdeilda sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka hefur frestast en ríkisendurskoðandi boðar að hún verði lögð fram til þinglegrar meðferðar í þessum mánuði. 2.8.2022 14:36
Túristagos ekki endilega jákvætt Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir almannavarnir og aðra viðbragðsaðila vera viðbúna ef það skildi byrja að gjósa. Allir reyni að halda sér eins upplýstum og hægt er. Túristagos hafi vissulega jákvæð áhrif á efnahaginn en það sé ekkert grín þegar það gýs svona nálægt byggð. 2.8.2022 14:15
Einhver kynferðisbrot tilkynnt eftir helgina en of snemmt að bera saman við fyrri ár Ofbeldisbrot um verslunarmannahelgina virðast við fyrstu sýn álíka mörg og fyrir faraldur að sögn verkefnastjóra aðgerða gegn ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra. Einhver kynferðisbrot hafi komið á borð lögreglu en hafa þurfi í huga að þau séu yfirleitt tilkynnt seinna. Þá sé sumarið ekki búið og stórir viðburðir fram undan. 2.8.2022 13:16
Ein tilkynning um kynferðisbrot á Suðurlandi um helgina Alls barst lögreglunni á Suðurlandi ein tilkynning um kynferðisbrot um helgina. Einnig barst tilkynning um mögulega byrlun. Alls voru 360 mál og verkefni skráð hjá embættinu yfir helgina. 2.8.2022 12:15
Meira en áttatíu menn sakaðir um að hópnauðga átta konum Meira en áttatíu menn ásakaðir um að hópnauðga átta konum komu fyrir dómara í Krugersdorp í Suður-Afríku í gær. Mennirnir réðust á tökulið sem var að taka upp tónlistarmyndband í yfirgefinni námu í Krugersdorp, nauðguðu konum hópsins og rændu fólkið öllum verðmætum. 2.8.2022 12:09
Hádegisfréttir Bylgjunnar Öflug jarðskjálftahrina reið yfir suðvesturhornið í gærkvöldi. Eldfjallafræðingur segir Íslendinga þurfa að venjast nýjum veruleika. Við förum ítarlega yfir málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. 2.8.2022 12:03
Eldgos gæti tekið af okkur báða vegina til Suðurnesja Eldfjallafræðingur segir það vera skynsamlegt að byggja annan alþjóðaflugvöll fjarri Keflavíkurflugvelli. Það gæti gerst að eldgos taki af okkur bæði Suðurstrandarveg og Reykjanesbrautina þannig að engin leið sé fyrir bílaumferð til og frá Reykjanesi. 2.8.2022 11:23
Vakinn af værum blundi með skjálftasímtali úr Kópavogi Grindvíkingar virðast lítið hafa fundið fyrir þremur stórum skjálftum sem riðu yfir skömmu fyrir miðnætti og í nótt. Bæjarstjórinn segir að dóttir hans hafi vakið foreldra sína í gærkvöldi með símtali úr Kópavogi, smeyk um stöðuna í Grindavík eftir að hafa fundið vel fyrir einum af skjálftunum. 2.8.2022 11:15
Straumlaust í Straumsvík Rafmagni sló út í álverinu í Straumsvík eftir jarðskjálftahrinuna í nótt. 2.8.2022 11:12
Brynjar segir umdeildan fund með Namibíumönnum hinn furðulegasta Brynjar Níelsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra segir ómögulegt fyrir sig að átta sig á því hvers eðlis umdeildur fundur með Namibíumönnum var. 2.8.2022 10:24
Læknar búast við neyðarástandi Formaður Læknafélags Íslands segist búast við neyðarástandi í heilbrigðiskerfinu vegna manneklu. Hann segir álag á heilbrigðisstarfsfólk orðið að hættulegum vítahring. Þegar álag aukist fækki fólki og meira álag verði á þeim sem eftir standa. 2.8.2022 10:13