Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Margrét sækist eftir fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ Margrét Bjarnadóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í fimmta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ sem fer fram þann fimmta mars næstkomandi. Margrét greinir frá framboðinu á Facebook síðu sinni. 25.1.2022 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þúsundir Íslendingar losna úr sóttkví á miðnætti þegar miklu vægari reglur um sóttkví taka gildi. Forsætisráðherra segir skrefið marka eðlisbreytingu á baráttunni við faraldurinn. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 25.1.2022 18:01
Engar breytingar á einangrun þrátt fyrir nýjar reglur um sóttkví Breyttar reglur um sóttkví voru tilkynntar í dag en engu að síður er sóttvarnalæknir harður á því að breytingar verði ekki gerðar á lengd og framkvæmd einangrunar. Hann segir mikilvægt að aflétta í varfærnum skrefum en viðbúið er að fleiri muni greinast í skólum vegna þeirra breytinga sem kyntnar voru í dag. 25.1.2022 17:44
Þríeykið verður á upplýsingafundi á morgun Þríeykið mætir enn og aftur til leiks á upplýsingafundi á morgun en almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknir hafa boðað til fundar klukkan ellefu. 25.1.2022 17:18
Sigurður Ingi segir Sundabraut tilbúna eftir níu ár Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra telur að Sundabraut geti orðið að veruleika eftir níu ár. Félagshagfræðileg greining sem skilað hafi verið til hans og Dags B. Eggertssonar borgarstjóra í gær sýni ótvíræðan ábata af mannvirkinu á fyrstu þrjátíu árum þess. 25.1.2022 16:37
Saka Bandaríkin um að auka spennu í Austur-Evrópu Ráðamenn í Rússlandi segjast fylgjast náið með og hafa áhyggjur af því að Bandaríkjamenn hafi sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna Úkraínu-krísunnar. Rússar segjast ekki ætla að gera innrás í Úkraínu en segjast geta framkvæmt ótilgreindar hernaðaraðgerðir verði ekki orðið við kröfum þeirra. 25.1.2022 15:15
Rótin sendir yfirlýsingu vegna SÁÁ: „Brot Einars gegn konunni er nöturleg valdamisnotkun“ Rótin - félag um málefni kvenna, segist harma þann skaða sem skjólstæðingur SÁÁ hefur lýst að Einar Hermannsson, fráfarandi formaður félagsins, hafi valdið henni. Brotin séu nöturleg valdamisnotkun stjórnarmannsins. 25.1.2022 14:32
Styrkur til mannúðaraðstoðar í norðurhluta Eþíópíu Hjálparstarf kirkjunnar hlaut á dögunum 20 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu til mannúðaraðstoðar í Amhara fylki sem er nágranna fylki Tigray í norðurhluta Eþíópíu. 25.1.2022 14:02
„Íslenskri“ lægð kennt um ófarir Tyrkja Þúsundir Tyrkja sátu fastir í bílum vegna snjókomu við Eyjahaf. Loka þurfti vegum í Istanbúl og hafa þúsundir manna unnið við hreinsunarstörf eftir mikla snjókomu frá því í gær en almannavarnir Istanbúl segja að kenna megi íslenskri lægð um ófarirnar. 25.1.2022 13:21
Veðurofsinn gengur yfir í kvöld og nótt Millilandaflug fór úr skorðum í morgun vegna vonskuveðurs. Sjö flugferðum var aflýst og sex flugferðum seinkað fram á kvöld. Einnig hefur orðið röskun á innanlandsflugi en spáð er vondu veðri víðast hvar í dag. 25.1.2022 13:11
Kynna afléttingaáætlun fyrir Ísland á föstudag Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra minnir á að Landspítalinn starfi enn á neyðarstigi. Gæta þurfi bæði jafnræðis og meðalhófs við ákvarðanir. Tíu manna samkomubann er áfram í gildi í landinu en Willum boðar kynningu á afléttingaráætlun á föstudag. 25.1.2022 13:07
Aukinn stuðningur Íslands við heimaræktaðar skólamáltíðir í Malaví Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) lýsti í gær ánægju sinni með framlag frá Íslandi um frekari stuðning við skólamáltíðir í Malaví. Að sögn Ingu Dóru Pétursdóttur forstöðumanns sendiráðs Íslands í Lilongwe var Ísland fyrsta þjóðin til að styðja við heimaræktaðar skólamáltíðir í Malaví árið 2012. 25.1.2022 12:20
Miklar breytingar á sóttkví Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera breytingar á sóttkví hér á landi. Frá og með miðnætti mun fólk sem verður útsett fyrir smitum utan heimilis ekki sæta sóttkví heldur fara í smitgát. Börn og unglingar verða algjörlega undanþegin reglum um smitgát. 25.1.2022 12:17
Vissi ekki af vændiskaupunum og furðar sig á umfjöllun Stundarinnar Starfsfólk embættis landlæknis var ekki kunnugt um vændiskaup fráfarandi formanns SÁÁ. Talsmaður embættisins furðar sig á að það sé dregið inn í þetta mál í umfjöllun Stundarinnar. 25.1.2022 12:12
Stjórnin fundi um málið á næstu dögum Stjórnarmaður SÁÁ segir að stjórnin hafi fengið upplýsingar um vændiskaup þáverandi formanns samtakanna á föstudaginn. Stjórnin mun funda um málið á næstu dögum. 25.1.2022 12:02
Íslendingar nota mest af hættulegum lyfjum Íslendingar nota langmest af tauga- og geðlyfjum af öllum Norðurlandaþjóðunum. Fíknigeðlæknir segir það séríslenskt, og mjög banvænt, að blanda saman mörgum ávanabindandi lyfjum en halda sig ekki við eitt kjörefni. Þetta gerir afeitrun og meðferð sömuleiðis flóknari og fólk fellur frekar vegna þess að freistingarnar eru út um allt. 25.1.2022 12:00
Þingmaður VG segist hafa verið misnotaður af starfsmanni SÁÁ Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna, segist hafa verið misnotuð af starfsmanni á Staðarfelli, sem var meðferðarheimili SÁÁ í Dölum. Hún segir sína sögu ekki einsdæmi og segir hallarbylltingu og yfirmannahrókeringar ekki duga til, breyta þurfi menningunni innan samtakanna. 25.1.2022 11:51
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum greinum við frá ákvörðun ráðherra um breytingar á reglum í kórónuveirufaraldrinum en búist er við tíðindum af ríkisstjórnarfundi sem enn stendur yfir. 25.1.2022 11:35
Lögreglan rannsakar Borisar-boðin Lögreglan í London hefur hafið rannsókn á samkvæmum sem haldin voru í Downingstræti tíu á tímum samkomutakmarkana í Bretlandi. Verið er að rannsaka hvort brot voru framin á sóttvarnalögum en uppljóstranir um samkvæmi hafa valdið Boris Johnson, forsætisráðherra, miklum vandræðum. 25.1.2022 11:08
Í basli á leið yfir Hellisheiði Appelsínugul viðvörun er á suðvesturhorni landsins en afar hvasst er á þessum hluta landsins. Öllum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli í morgun var aflýst og bílar eiga sumir hverjir í basli með að komast yfir Hellisheiðina. 25.1.2022 11:04
1.558 greindust innanlands í gær og hafa aldrei verið fleiri 1.558 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 55 á landamærum. Aldrei hafa svo margir greinst innanlands á einum sólarhring hér á landi frá upphafi faraldursins, en fyrri metdagur var 30. desember síðastliðinn þar sem 1.553 greindust innanlands. 25.1.2022 11:00
Um þriðjungur fimm ára barna mætt í bólusetningu Um þriðjungur fimm ára barna á höfuðborgarsvæðinu hefur mætt í bólusetningu, en börnin fædd árið 2016 voru boðuð í byrjun síðustu viku. 25.1.2022 10:39
37 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 37 sjúklingar eru nú inniliggjandi á Landspítala með Covid-19. Þrír eru á gjörgæslu, allir í öndunarvél. 25.1.2022 10:19
Andlát vegna Covid-19 Karlmaður á áttræðisaldri lést vegna Covid-19 á gjörgæslu Landspítalans í gær. 25.1.2022 10:11
Kallaði blaðamann Fox heimskan tíkarson Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, kallaði Peter Doocy, blaðamann Fox, heimskan tíkarson í gær. Biden virtist ætla að hvísla það en blótaði óvart í hljóðnema. 25.1.2022 09:47
Einar hafi haft frumkvæði að samskiptum um kynlíf gegn greiðslu Einar Hermannsson, fráfarandi formaður SÁÁ, hafði frumkvæði að samskiptum við skjólstæðing stofnunarinnar um kynlíf gegn greiðslum. Þetta sýna skilaboð milli Einars og konunnar, sem birtast í umfjöllun Stundarinnar um málið. 25.1.2022 09:18
Riða greindist í kind sem send var til slátrunar Nýverið barst Matvælastofnun tilkynning um að riða hafi greinst í sýni úr fé sem sent var til slátrunar. Um var að ræða sýni úr kind frá bænum Sporði á Vatnsnesi en sauðfjárbússkap var hætt þar í haust og ekkert fé lengur á bænum. 25.1.2022 08:39
Endurtaka forsetakosningar á Ítalíu Ítalskir þingmenn náðu ekki samstöðu um hver skyldi verða næsti forseti landsins í gær þegar leynileg kosning fór fram í þinginu. Leiðtogar stjórnmálaflokka funda nú til þess að komast að samstöðu um forsetaframbjóðanda og koma í veg fyrir stjórnarkreppu. 25.1.2022 08:21
Herinn rænir völdum í Búrkína Fasó Herinn í Búrkína Fasó tilkynnti í gærkvöldi að hann hafi komið Roch Kabore, forseta landsis frá stóli, fellt stjórnarskrána úr gildi, leyst upp ríkisstjórnina og þingið og lokað landamærum ríkisins. 25.1.2022 07:49
Ferðalöngum snúið við vegna vonskuveðurs Öllu flugi Icelandair, sem fara átti frá Keflavíkurflugvelli fyrir hádegi í dag, hefur verið aflýst vegna vonskuveðurs. Flugi Play til Tenerife og Alicante hefur sömuleiðis verið frestað um sólarhring. 25.1.2022 07:36
Nýr ópíóíðafaraldur: „Í stöðugri lífshættu nokkrum sinnum á dag” Tuttugu og eitt þúsund Íslendingar eru langtímanotendur ávanabindandi lyfja. Lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af Norðurlöndunum og hafa þau aldrei verið fleiri en á fyrri helming síðasta árs. 25.1.2022 07:00
Ógilti grímuskyldu sem ríkisstjóri hafði sett upp á sitt eindæmi Dómari í New York ríki ógilti í gærkvöldi grímuskyldu sem ríkistjórinn hafði sett upp á sitt eindæmi og gilti víða um ríkið. 25.1.2022 06:59
Kröpp lægð nálgast landið og appelsínugular viðvaranir Kröpp lægð er nú skammt vestur af landinu og hún fer austnorðaustur yfir land í dag. Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði því vaxandi suðvestanátt fyrri part dags og rigning eða skúrir, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti verður á bilinu núll til sex stig. 25.1.2022 06:50
Ísland í 13. til 18. sæti á nýjum spillingarlista Transparency International Transparency International hefur birt nýjan árlegan lista sinn um spillingu í ríkjum heims. Ísland lækkar þar um eitt sæti og skipar nú 13. til 18. sætið á listanum. Danmörk, Finnland og Nýja-Sjáland skipa efstu þrjú sætin, það er að minnst spilling mælist þar samkvæmt mælingu TI. 25.1.2022 06:42
Umferðarslys á Bústaðarvegi, Kringlumýrarbraut og Nýbýlavegi í gærkvöldi Nokkuð var um umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Um klukkan hálf níu í gærkvöldi var tilkynnt um bílveltu á Bústaðarvegi en þar urðu þó ekki slys á fólki. 25.1.2022 06:13
Elsti St. Bernhards hundur landsins elskar banana og ætlar að verða hundgamall Næst kynnumst við elsta St. Bernhards hundi landsins sem átti tíu ára afmæli fyrir helgi. Hann kýs banana fram yfir kjöt og á stóran aðdáendahóp. 24.1.2022 23:30
Bandaríkjaher í startholunum vegna stöðunnar við Úkraínu Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna hernaðaruppbyggingar Rússa við landamæri Úkraínu. 24.1.2022 23:24
Lögin skýr um að það beri að aflétta þegar forsendurnar eru brostnar Fjármálaráðherra segir að heilbrigðisráðherra beri skylda til að líta til fleiri þátta heldur en sóttvarnalæknir telur upp þegar kemur að takmörkunum. Hann bendir að þróunin sé jákvæðari en fyrri spár gerðu ráð fyrir, forsendur fyrri aðgerða séu brostnar, og því beri að aflétta. 24.1.2022 23:20
Hálfdapurleg viðtöl úr fyrri hálfleik í Laugardalshöll Bjartsýnin réð ríkjum þegar nokkur fjöldi fólks var bólusettur yfir leik landsliðsins gegn Króötum í dag. Enda lokaði í bólusetningunni í hálfleik. 24.1.2022 22:53
„Það er ekki okkar hugsun að reyna að negla fólk“ Við erum ekki í þessu til að negla fólk, heldur einfaldlega til að passa upp á hag okkar allra, segir aðstoðaryfirlögregluþjónn. Eftirlit með sóttvörnum er sívaxandi hluti af daglegum störfum lögreglu en hátt í fimm hundruð sektir hafa verið gefnar út vegna brota á sóttvörnum. 24.1.2022 21:54
James Webb kominn á áfangastað James Webb geimsjónaukinn er nú kominn á lokaáfangastað sinn, svokallaðan Lagrange-punkt 2. „Velkominn heim, Webb“ sagði yfirmaður bandarísku geimferðarstofnunarinnar, NASA, við tilefnið. 24.1.2022 21:47
Meirihluti getur vel hugsað sér fjarvinnu eftir faraldurinn Tæp 40% Íslendinga hafa áhuga á að vinna að hluta til áfram í fjarvinnu eftir að heimsfaraldrinum lýkur. Atvinnurekendur gætu séð sér hag í að senda fólk heim frekar en að borga fyrir atvinnuhúsnæði. 24.1.2022 21:23
Óvænt afmælisveisla í Downingstræti enn eitt höggið fyrir Johnson Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er sagður hafa verið viðstaddur afmælisviðburð í Downingstræti í júní 2020 þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi. Johnson hefur verið harðlega gagnrýndur undanfarið fyrir önnur veisluhöld vorið 2020 og hafa þingmenn jafnvel kallað eftir afsögn hans. 24.1.2022 20:47
Hvetur fyrirtæki til að hagræða frekar en að grípa til hækkana ASÍ gefur lítið fyrir áhyggjur stórfyrirtækja um yfirvofandi verðhækkanir, enda séu þau sannarlega ekki á flæðiskeri stödd, og geti vel hagrætt fremur en að velta hækkunum út í verðlagið. Heildsölur og stærri fyrirtæki hafa lýst því yfir að hækkanir muni dynja yfir á næstu vikum. 24.1.2022 19:16
Agresywny kierowca przebywa w areszcie Jeden z kierowców zatrzymał swój samochód blokując drogę przejazdu pojazdowi znajdującemu się za nim, wysiadł z auta i agresywnie zaczął kopać w szybę drugiego auta. 24.1.2022 19:07