Fleiri fréttir

Le Pen: "Þjóðernishyggja er stefna framtíðarinnar“

Marine Le Pen, leiðtogi franska þjóðernishyggjuflokksins Front National segir að árið 2017 verði árið þar sem Evrópubúar "muni vakna“ á samkomu leiðtoga þjóðernissinnaðra stjórnmálaflokka í Þýskalandi. Þingkosningar munu fara fram á árinu í Hollandi, Frakklandi og í Þýskalandi og eru leiðtogar þessara flokka vongóðir um góðan árangur í þeim.

Björgunarsveitirnar hafa klárað þúsund verkefni í dag

Þorsteinn G. Gunnarsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að björgunarsveitirnar hafi lokið rúmlega helmingi þeirra tvö þúsund verkefna sem lagt var upp með að klára um helgina og því lokið leit á helmingi þess svæðis sem kortlagt var fyrir helgi.

Forsíða Fréttablaðsins vakti athygli Time

Stórritið Time birti í dag frétt þar sem búið er að taka saman fjöldamargar forsíður hvaðanæva að sem Trump prýðir en þeirra á meðal er forsíða Fréttablaðsins í morgun.

Forseti Íslands hvetur til samhugar og stillingar

Guðni Th. segir að varast beri allt það sem sært geti aðra og sem ali á tortryggni og fordómum en fordóma hefur undanfarið orðið vart í samfélaginu í garð Grænlendinga. Tveir grænlenskir sjómenn eru nú í gæsluvarðahaldi grunaðir um aðild að hvarfi Birnu.

Ekki dæmdur fyrir barnsrán

Dómur var felldur í máli manns sem 17. ágúst 2016 stal bifreið fyrir utan leikskóla í Kópavogi. Í bílnum var tveggja ára gamalt barn. Hann hefur verið dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa í tvígang verið óhæfur til að aka bíl líklega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna en einnig fyrir að aka þrisvar sinnum eftir að hafa verið sviptur ökuréttindum.

Leyfir sér að vera vongóður um að Birna finnist í dag

Grímur Grímsson, sem stýrir rannsókn lögreglunnar á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, sem hefur verið saknað í heila viku, kveðst vongóður um að umfangsmikil leit sem hófst í morgun og standa mun í allan dag skili því að Birna finnist.

Trump lætur til sín taka á fyrstu dögum í embætti

Donald Trump hefur tekið sín fyrstu skref sem forseti Bandaríkjanna með því að undirrita tilskipun sem miðar að því að endurskilgreina og endurgera heilbrigðsstefnu Bandaríkjanna sem einnig gengur undir nafninu Obamacare.

TF-LÍF leitar á Reykjanesskaga

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, lagði af stað frá Reykjavíkurflugvelli klukkan ellefu í morgun til að taka þátt í leitinni að Birnu Brjánsdóttur og vísbendingum sem varpað geta ljósi á hvarf hennar.

Konur um allan heim mótmæla Donald Trump

Konur halda mótmælagöngur víða um heim í dag gegn Donald Trump, 45. forseta Bandaríkjanna. Búist er við því að yfir hálf milljón kvenna komi saman í Washington DC, höfuðborg Bandaríkjanna þar sem Trump sór embættiseið að bandarísku stjórnarskránni er hann tók við embætti í gær.

Leitin að Birnu: Stefna á að leysa 2000 verkefni um helgina

Þorsteinn G. Gunnarsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir þetta umfangsmestu leit sem Landsbjörg hefur farið í. Björgunarsveitarfólk eru um 500 talsins. Lagt verður áherslu á svæði frá Borgarnesi að Selfossi og allan Reykjanesskagann. Áherslan er fyrst of fremst lögð á vegi og vegaslóða á þessu svæði.

Borgin malbikar fyrir 8,3 milljarða á næstu árum

Reykjavíkurborg hyggst verja meiri fjármunum til viðgerða og endurnýjunar á malbiki á þessu ári en nokkru sinni áður. Fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir 1.460 milljónum króna til verkefnisins og er það ríflega tvöföldun frá því í fyrra.

Laun bæjarfulltrúa hækka um 44 prósent

Hafnarfjarðarbær hefur riðið á vaðið meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ætlar að hækka laun kjörinna fulltrúa sem nemur hækkun kjararáðs. Minnihlutinn gagnrýnir hækkunina. Önnur sveitafélög eiga eftir að ákveða sig.

Leitin að Birnu: Svæði útilokuð sem eru ófær Kia Rio

Ein umfangsmesta leit björgunarsveitanna, leitin að Birnu Brjánsdóttur, fer fram um helgina. Ráðist var í skipulag og útreikninga í gær til að útiloka ákveðin svæði frá leitinni. Fjórar klukkustundir eru óútskýrðar í ferðum rauða Kia Rio bílsins.

Ókeypis sundferðir heyri sögunni til

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur til að starfsmenn borgarinnar fái ekki ókeypis í sund. Vill umræðu um málið í borgarstjórn. Borgarfulltrúi Samfylkingar telur mikilvægt að gera vel við starfsfólk og efla heilsu.

Forsetinn setur Bandaríkin í fyrsta sæti

Donald John Trump varð 45. forseti Bandaríkjanna í gær. Í innsetningarræðu sinni hvatti hann til sameiningar undir bandaríska fánanum. Forsetinn sagði að Bandaríkin og bandaríska þjóðin ættu alltaf að vera í fyrsta sæti. Dagar innantó

Börnin smakka hákarl

Skemmtilegustu viðbrögðin komu þó frá leikskólakennara frá Bretlandi eins og sjá má í myndskeiðinu.

El Chapo lýsir yfir sakleysi sínu

Joaquin Guzman er sakaður um peningaþvætti, fíkniefnasmygl, mannrán og morð víða í Bandaríkjunum eins og í New York, Chicago og í Miami.

Blóð fannst í Kia Rio bifreiðinni

Einar Guðberg Jónsson, lögreglufulltrúi, staðfestir við fréttastofu að blóðsýni hafi fundist í bílnum og það hafi verið sent út til rannsóknar.

Grænlendingar miður sín

Lögreglan segir fólk hafa haft samband sem hafi orðið fyrir aðkasti fyrir það eitt að vera frá Grænlandi.

Mikið menntaðir Íslendingar eignast færri börn

Einstaklingar með mikla menntun eignast færri börn en þeir sem hafa ekki menntað sig samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar Íslenskrar erfðagreiningar. Þeir sem mælast hátt í eiginleikum til að mennta sig mikið en hafa engu að síður litla menntun eiga líka færri börn en þeir sem mælast lágt.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Þrotlaus vinna færustu rannsóknarlögreglumanna undanfarna sex sólarhringa er smátt og smátt að skýra myndina varðandi hvarf Birnu Brjánsdóttur.

Sjá næstu 50 fréttir