Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Serbar kalla sendiherra sinn heim frá Washington Serbar hafa kallað sendiherra sinn í Washington heim sem mótmæli gegn viðurkenningu Bandaríkjamanna á sjálfstæði Kosovo. Jafnfram saka Serbar Bandaríkjamenn um brot á alþjóðalögum. 19.2.2008 08:18
Lögreglan lýsir eftir Sigrúnu Maríu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigrúnu Maríu Líndal, sem er fædd 1994. Hún er 160 sentímetrar á hæð , í brúnni hettupeysu, gallabuxum og með dökkt missítt hár. 19.2.2008 08:16
Fidel Castro lætur af embætti sem forseti Kúbu Fidel Castro hyggst ekki gefa kost á sér aftur sem forseti Kúbu. Þetta kemur fram í bréfi hans sem birt er í opinberu blaði Kommúnistaflokksins, Granma, í dag. 19.2.2008 08:08
Oswald og Ruby ræddu saman fyrir morðið á Kennedy Yfirvöld í Dallas Texas hafa gert opinbert minnisblað sem á er ritað samtal milli Lee Harvey Oswald meints morðingja John F. Kennedy forseta og Jack Ruby sem síðar skaut Oswald til bana. Minnisblaðið fannst í hirslum dómshússins í borginni. 19.2.2008 07:20
Hringvegurinn er enn lokaður við Svignaskarð Hringvegurinn er enn lokaður við Svignaskarð í Borgarfirði eftir að vatnsagi rauf hann í fyrrinótt. Þar stíflaðist ræsi, með fyrrgreindum afleiðingum, og ætlar Vegagerðin að setja mun afkastameira ræsi í staðinn. 19.2.2008 07:16
Fyrstu tölur benda til ósigurs Musharaff í Pakistan Fyrstu tölur í kosningunum í Pakistan benda til að stjórnarandstaðan hafi unnið og stjórnarflokkur undir forystu Musharaff forseta beðið ósigur. 19.2.2008 06:49
Íslenskir feðgar flugu til Danmerkur - lömdu kærasta fyrrum konunnar 49 ára gamall maður varð fyrir líkamsárás í Langebæk skammt frá Vordingsborg á Sjálandi. Það voru íslenskir feðgar sem gengu í skrokk á manninum og notuðu til þess meðal annars járnrör. 18.2.2008 20:30
Lýst eftir ungri stúlku Lögreglan lýsir eftir Sigrúnu Maríu Líndal. Hún er fædd árið 1994 og er klædd í brúna hettupeysu, gallabuxur og er með dökkt millisítt hár. Hún er 160 sm á hæð. 18.2.2008 23:15
Lögreglan kölluðu til vegna unglinga í Kringlunni Lögreglan var kölluð til vegna óláta í unglingum í Kringlunni rétt fyrir klukkan 16:00 í dag. Var einhver hópamyndun í Kringlunni en ekki kom til óláta. 18.2.2008 22:15
Mafíósi handtekinn á Ítalíu Ítalska lögreglan handtók leiðtoga hinnar öflugu Calabrian mafíu í dag. Pasquale Condello, 57 ára, var handtekinn í húsi í Reggio Calabria í suðurhluta Ítalíu. 18.2.2008 21:45
Þriggja ára áætlun borgarinnar kynnt á morgun Mikill stormur hefur verið í borgarstjórn Reykjavíkur undanfarið. Á morgun verður hinsvegar þriggja ára áætlun borgarinnar kynnt. 18.2.2008 20:04
Haldið sofandi í öndunarvél Annar piltanna sem lenti í hörðum árekstri á Akranesi seinni partinn í dag er haldið sofandi í öndunarvél. Líðan hans er stöðug að sögn vakthafandi læknis. 18.2.2008 19:52
Samningar ASÍ aldrei fyrirmynd að kennarasamningum Kjarasamningar Alþýðusambandsins við atvinnurekendur verða aldrei fyrirmynd að samningum við kennara, segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. Sterkari aðgerðir þurfi til að stöðva flóttann úr stéttinni. Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM, segir ríkið ekki geta tekið upp hráa samningastefnu atvinnurekenda. 18.2.2008 19:07
Mjólkurvörur gætu hækkað um allt að 20 prósent Verðhækkun á áburði og fóðri gæti orðið til þess að stærstu kúabú landsins fari á hausinn. Viðbúið er að mjólkurvörur til neytenda hækki um allt að 20% vegna ástandsins. 18.2.2008 18:41
Datt af þaki og handleggsbrotnaði Maður féll afturfyrir sig fram af þaki þar sem hann var við vinnu í Dalshverfi í Innri-Njarðvík. 18.2.2008 18:29
Hringvegurinn ekki opnaður fyrr en á morgun Hringvegurinn, sem lokaður er við Svignaskarð í Borgarfirði vegna vatnaskemmda verður ekki opnaður fyrr en um miðjan dag á morgun, þriðjudag, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 18.2.2008 18:20
Niðurstöðu í flóttarannsókn að vænta í fyrramálið Lögreglan vill ekki gefa neitt upp í tengslum við rannsókn á flótta Annþórs Kristjáns Karlssonar fyrr en í fyrramálið. 18.2.2008 17:28
Fleiri konur en karlar smituðust af HIV í fyrra Þrettán einstaklingar greindust með HIV-smit á síðasta ári samkvæmt því sem fram kemur í nýjasta hefti Farsóttarfrétta frá Landlæknisembættinu. Þá greindust óvenjumargir með lifrarbólgu B á síðasta ári. 18.2.2008 17:13
Jón Baldvin: Ekki eftir neinu að bíða varðandi Kosovo Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir ekki eftir neinu að bíða fyrir Íslendinga með að viðurkenna sjálfstæði Kosovo. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur sagt að hafa verði samráð við Norðurlöndin í málinu. 18.2.2008 17:05
Dökkt útlit hjá Musharraf Vísbendingar eru um að flokkur Pervez Musharrafs hafi fengið lítið fylgi í nýafstöðnum þingkosningum í Pakistan. 18.2.2008 17:02
Tvær af Norðurlandaþjóðunum styðja sjálfstæði Kosovo Danir og Finnar eru meðal þeirra Evrópusambandsþjóða sem vilja viðurkenna sjálfstæði Kosovo-héraðs fljótt en Svíar hyggjast ræða málið í næsta mánuði. 18.2.2008 17:01
Segjast ekki tengjast heimasíðu til höfuðs Steinþóri Starfsfólk sölu og markaðsdeildar Sláturfélags Suðurlands segist í yfirlýsingu ekki standa fyrir heimasíðunni slaturfelagid.com sem sett hefur verið á laggirnar til höfuðs forstóra SS, Steinþóri Skúlasyni. 18.2.2008 16:40
Norðmenn kláruðu nær allan loðnukvóta sinn við landið Norsku loðnuveiðiskipin sem voru við veiðar hér við land veiddu nær allan kvóta sinn eftir því sem Landhelgisgæslan greinir frá. 18.2.2008 16:29
Sekt og svipting fyrir að aka undir áhrifum Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag sviptur ökuréttindum í tvö ár og dæmdur til þess að greiða 180 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir að hafa í september í fyrra ekið undir áhrifum tetrahýdrókannabínólsýru. 18.2.2008 16:23
Amma Madeleine segir fjölskylduna þjást Susan Healey amma Madeleine McCann segir að kvöl fjölskyldunnar líkist því að hún sé „krossfest“ á hverjum degi. Healey, móðir Kate McCann, biður fólk að hætta að gagnrýna fjölskyldu sína og lýsir yfir árás á fjölmiðla. „Þetta er eins og að vera krossfestur dag eftir dag. Ég las þvílíka hluti um að Kate gréti ekki nóg, eða hvað það nú var,“ sagði hún í viðtali við Sky fréttastofuna. 18.2.2008 16:06
Eins og á svíni Höfuðpaurinn í hópi múslima sem ætluðu að myrða breskan hermann og skera af honum höfuðið "eins og á svíni," var í dag dæmdur í 14 ára fangelsi. 18.2.2008 16:01
Langt á eftir nágrannaþjóðum í þjónustu við geðfatlaða Formaður Geðlæknafélags Íslands segir Íslendinga langt á eftir nágrannaþjóðunum í þjónustu við geðfatlaða og kallar eftir því að yfirvöld fari að sinna þessum hópi í stað þess að minnka við það þjónustuna eins og nú sér gert. 18.2.2008 15:59
ESB náði ekki saman um Kosovo Evrópusambandinu tókst ekki að ná samkomulagi um að sambandið í heild sinni viðurkenndi sjálfstæði Kosovo. 18.2.2008 15:45
Þungt haldinn á gjörgæslu eftir bílslys á Akranesi Bíl var ekið á miklum hraða á hús við Vesturgötu á Akranesi rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Tveir voru í bílnum. Þeir voru báðir fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi en að sögn lögreglu voru þeir báðir meðvitundarlausir þegar að var komið og meiðsl þeirra talin alvarleg. 18.2.2008 15:42
Hljóðlaus geisladiskur mest seldur Lag sem eyra mannsins nemur ekki er nú mest selda lagið á Nýja Sjálandi. Unnið er að útgáfu lagsins á alþjóðavettvangi. Jólalagið „Heims um ból“ var tekið upp á tíðni sem aðeins hundar nema og gefið út í fjáröflunarskyni fyrir samtök sem berjast gegn ofbeldi gegn dýrum. 18.2.2008 15:20
Drakúla fjölskyldan í Buckingham höll Mohammed al-Fayed sparaði ekki stóryrðin þegar hann var kallaður sem vitni í dag vegna rannsóknar á dauða sonar hans Dodi, og Díönu prinsessu. 18.2.2008 15:06
Heyrir Nýja bandalagið sögunni til? Það ræðst í dag eða á morgun hvort hinn nýstofnaði stjórnmálaflokkur í Danmmörku, Nýja bandalagið, leggur upp laupana en mjög hefur sigið á ógæfuhliðina á þeim bænum síðustu daga. 18.2.2008 14:34
Sprengið dönsk sendiráð - drepið danska sendiherra Yfirgnæfandi meirihluti þingmanna á íranska þinginu hefur hvatt forseta landsins til þess að endurskoða tengslin við Danmörku og Holland eftir að Múhameðsteikningarnar umdeildu voru endurbirtar. 18.2.2008 14:25
Rannsókn á flótta Annþórs ætti að ljúka í dag Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvað fór úrskeiðis á föstudaginn var þegar Annþóri Kristjáni Karlssyni tókst að flýja úr klefa sínum á lögreglustöðinni á Hverfisgötu. Reiknað er með að málið skýrist seinnipartinn í dag. Klefinn hans var ólæstur og undir morgun fór hann fram á gang, náði sér í kaðalspotta og braut rúðu á ganginum. Síðan lét hann sig síga niður og fór huldu höfði fram eftir degi. 18.2.2008 14:21
Engin ákvörðun um hvort þrennt verður ákært vegna flótta Ekki hefur verið ákveðið hvort þrjár manneskjur sem handteknar voru í tengslum við flótta Annþórs Kristjáns Karlssonar úr fangageymslu lögreglunnar á föstudag verði ákærðar. 18.2.2008 14:13
Mánaðar fangelsi fyrir að skalla kynsystur sína Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvítuga konu í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ýtt annarri konu upp að húsvegg og skallað hana í andlitið með þeim afleiðingum að hún marðist nokkuð. 18.2.2008 13:49
Bandaríkin viðurkenna Kosovo Bandaríkin hafa viðurkennt sjálfstæði Kosovo. Búist er við að nú fari slíkar tilkynningar að streyma til hins nýja lands. Því fer þó fjarri að allir séu sáttir. 18.2.2008 13:26
Danir vilja grænlenskan olíugróða Danir vilja frá hluta af ágóðanum ef olía finnst á Grænlandi, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Talið er að mikla olíu sé að finna á landgrunni Grænlands og er hennar nú leitað. 18.2.2008 13:14
Varar verslunarfólk við stolnum kortum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brýnir fyrir afgreiðslufólki að skoða vel myndir á bakhlið greiðslukorta til þess að koma í veg fyrir að óprúttnir aðilar misnoti kort sem þeir eiga ekki. 18.2.2008 13:06
Stofna ný samtök gegn kvótakerfinu 34 sjómenn hafa gengið í ný samtök sem stofnuð voru á Akureyri í gær. Þeir undirbúa aðgerðir gegn óréttlátu kvótakerfi og munu jafnvel róa í trássi við lög. 18.2.2008 12:59
Með ólíkindum að fólk hafi sloppið ómeitt Sjónarvottar segja það með ólíkindum að allir skuli hafa sloppið ómeiddir þegar þrír bílar lentu í hörðum árekstri á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar upp úr klukkan tíu í gærkvöldi. 18.2.2008 12:50
Úrslitatilraun til þess að finna loðnu við landið Úrslitatilraun til að finna meira af loðnu við landið á þessari vertíð hófst í morgun með tveimur hafrannsóknaskipum og þremur loðnuskipum. Endanleg niðurstaða gæti legið fyrir á miðvikudag. 18.2.2008 12:37
Kosovo-Albanar á Íslandi fagna sjálfstæði héraðsins Á bilinu fjögur til fimm hundruð Kosovo-Albanar eru búsettir á Íslandi. Þeir fögnuðu sjálfstæði héraðsins frá Serbíu í fjölmennu samkvæmi í gærkvöldi. 18.2.2008 12:33
Þrjátíu særðust í óeirðum við sendiráð Bandaríkjanna í Belgrad Reiknað er með því að Bandaríkin og fjölmörg ríki Evrópusambandsins viðurkenni í dag sjálfstæði Kosovo frá Serbíu. Því var lýst yfir einhliða í gær. Minnst þrjátíu særðust í óeirðum við bandaríska sendiráðið í Belgrad, höfuðborg Serbíu, í gærkvöldi. 18.2.2008 12:23
Lýsir áhyggjum af stöðu ríkissjóðs Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, fagnar því að samningar hafi náðst á vinnumarkaði en lýsir yfir áhyggjum af stöðu ríkissjóðs í ljósi breytinga á markaði og síðustu fjárlagagerðar. 18.2.2008 12:10
Vorhret í Vaglaskógi: Gasgrillið í fullum gangi svo að fortjaldið sligist ekki undan snjónum Innlent