Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Deep Purple lofar dúndurfjöri Stórtónleikar í Laugardalshöll verða haldnir í Laugardalshöll þar sem Íslandsvinirnir í Uriah Heep og Deep Purple ætla að leika öll sín frægustu lög. Bassaleikari Deep Purple lofar óvæntri uppákomu í kvöld. 27.5.2007 20:00
Krókódílum komið burt Íbúum Miami Lakes í Flórída brá nokkuð í brún þegar þeir tóku eftir því að tveir krókódílar höfðu hreiðrað um sig í skurði í bænum. Starfsmenn áhaldahúss bæjarins voru kallaðir til og höfðu þeir hröð tök við að handsama þessar háskalegu skepnur. 27.5.2007 19:30
Ræðismaður Portúgals fer væntanlega á Kárahnjúka Helga Lára Guðmundsdóttir ræðismaður Portúgals á Íslandi, mun kanna til hlítar ásakanir um að portúgalskir verkamenn við Kárahnjúka sæti harðræði. 27.5.2007 19:25
Verndartollar á landbúnaðarvörum ekki ástæðan fyrir háu matarverði Nýr landbúnaðarráðherra segir verndartolla á íslenskum landbúnaðarafurðum ekki ástæðuna fyrir háu matarverði hér á landi. Hann segist ekki ætla að rústa íslenskum landbúnaði með því að hefja innflutning á erlendri matvöru. 27.5.2007 19:05
Fjögurra leitað og einn í yfirheyrslu Mennirnir tveir, sem fluttir voru meðvitundarlausir á slysadeild Landspítalans í nótt eftir fólskulegar líkamsárásir í Reykjavík, eru báðir á batavegi. Tveggja árásarmanna er enn leitað og sömuleiðis tveggja, sem tengjast ráni í nótt. 27.5.2007 19:02
Ráðist að samkynhneigðum Rússneska lögreglan handtók í dag hóp fólks sem barðist fyrir réttindum samkynhneigðra í landinu. Áður höfðu öfgamenn ráðist að þeim með barsmíðum, en enginn þeirra var tekinn höndum. 27.5.2007 19:00
Meinaður aðgangur að skrifstofu Landsambands eldri borgara Formanni Landssambands eldri borgara hefur verið meinaður aðgangur að skrifstofu félagsins. Uppstillinganefnd Landssambands eldri borgara telur formanninn of harðan og vill fá nýjan formann. 27.5.2007 18:56
Erfðabreytileikar sem auka hættu á brjóstakrabbameini uppgötvaðir Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsaðilar þeirra hafa uppgötvað tvo nýja erfðabreytileika, sem auka áhættu á brjóstakrabbameini hjá konum af evrópskum uppruna. Þessi uppgötvun verður væntanlega notuð til að þróa öruggari greiningaraðferðir en þekkst hafa hingað til 27.5.2007 18:49
Snjóflóð í Hlíðarfjalli Snjóflóð féll í Hlíðarfjalli á Akureyri upp úr klukkan eitt í dag. Skíðasvæðið var opið þegar flóðið féll en engin slys urðu á fólki og engar skemmdir á lyftum, að sögn lögreglunnar á Akureyri. Flóðið sem mun ekki hafa verið stórt í sniðum, rann um 200 metra en stöðvaðist áður en það komst í námunda við lyftur og önnur mannvirki á svæðinu. 27.5.2007 18:23
Ellefu ára strákur felldi ófreskju í Alabama Ellefur ára strákur frá Alabama gæti hafa drepið heimsins stærsta villisvín í síðasta mánuði ef fréttir af stærð skepnunar reynast réttar. Strákurinn elti svínið í marga tíma með föður sínum og hann fékk heiðurinn af því að veita því náðarskotið. Það var níunda kúlan sem felldi svínið því þeir feðgar höfðu skotið það átta sinnum án þess að fella það. 27.5.2007 17:44
Beið dauðans á Everest fjalli 22 ára gömul fjallgöngukona, Usha Bista, sem bjargað var úr hlíðum Everest fjalls á dögunum, segir að klifurfélagar hennar hafi skilið hana eftir. Það var annar hópur klifurgarpa sem gekk fram á stúlkuna sem lá meðvitundarlaus á „dauðasvæðinu“ svokallaða á Everest. 27.5.2007 17:25
Ofbeldi í Moskvu Rússneska lögreglan handtók í dag samkynhneigða mótmælendur sem kröfðust þess að fá að halda Gay Pride hátíð á götum Moskvuborgar. Mótmælendurnir sættu miklu harðræði frá öfgafullum þjóðernissinumm sem börðu fólkið og hreyttu í það ókvæðisorðum. 27.5.2007 16:50
Lugovoi staðhæfir að hann sé saklaus Maðurinn sem sakaður er um að hafa eitrað fyrir Alexander Litvinenko hefur ítrekað sakleysi sitt. Hann segist hafa talað við Litvinenko á dánarbeðinu. Mynd um Litvinenko var frumsýnd í gær á kvikmyndahátíðinni í Cannes. 27.5.2007 16:19
Sluppu ómeiddar úr bílveltu Bíll fór út af veginum á leiðinni til Þingvalla skammt frá Nesjavallaafleggjara, rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Bíllinn fór tvær til þrjár en þegar ökumaðurinn missti stjórn á bílnum þegar hann fór út á vegöxlina og lenti í lausamöl. 27.5.2007 15:03
Einn virtasti skrautritari múslíma myrtur Khalil al-Zahawi, einn virtasti skrautritari arabísks leturs í heiminum, var myrtur fyrir utan heimili sitt í Baghdad í gær. Listgreinin er afar hátt skrifuð í Írak jafnt sem í öðrum löndum hins múslímska heims og skrautritarar njóta mikillar virðingar. 27.5.2007 14:50
Fjöldi ábendinga vegna Madeleine Lögreglan í Portúgal segist hafa fengið mikinn fjölda ábendinga í máli Madeleine McCann eftir að ítarlegri lýsing var gefin af manni sem grunaður er í málinu. 24 dagar eru nú liðnir síðan hinni fjögurra ára gömlu telpu var rænt. 27.5.2007 14:10
Hernaðaraðgerðir í Sadr borg Bandarískir og íraskir hermenn gerði í dag árás á Sadr borg, fátækrahverfi í Baghdad, þar sem shía uppreisnarmenn hafa mikil ítök. Hverfið er kennt við múslímaklerkinn shía klerkinn Muqtada al-Sadr sem kom úr felum á föstudaginn var og hvatti shía og súnnía til þess að sameiast gegn innrásarliðinu. 27.5.2007 13:23
Stjórnmálakreppunni afstýrt Vonast er til að stjórnmálakreppan í Úkraínu sé að leysast eftir að Viktor Jústsjenkó, forseti landsins, og Viktor Janukovits, forsætisráðherra, tókst loks að koma sér saman um kjördag fyrir þingkosningarnar í landinu. Ólgan náði hámarki í gær þegar Jústsjenkó lét setja herlið í viðbragðsstöðu. 27.5.2007 13:00
Ráðuneyti sameinuð, en þó ekki að öllu leyti Sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra segir að sameining ráðuneytanna tveggja sé fyrirhuguð á kjörtímabilinu en þó ekki að öllu leyti. Hugmyndir séu um að allur skólaþáttur landbúnaðarráðuneytisins færist yfir til menntamálaráðuneytisins og skógrækt og landgræðsla verði færð annað. 27.5.2007 12:52
Breskir skólar skiptast eftir kynþáttum Skólar á Englandi eru sífellt að verða einsleitnari þegar kemur að kynþætti. Nýjar tölur frá breskum stjórnvöldum þykja sína fram á þessa þróun en þar kemur fram að mörg sveitarfélög séu að skipuleggja skóla þar sem nemendur eru að miklum meirihluta annað hvort hvítir, svartir eða af asískum uppruna 27.5.2007 11:38
Fréttaritari BBC heill á húfi Alan Johnston, fréttaritari BBC, sem rænt var á Gaza ströndinni 12. mars síðastliðinn, er heill á húfi. Þetta er haft eftir Dr. Ghazi Hamad, háttsettum meðlimi í Hamas. Hamad segist vita hverjir það voru sem stóðu að mannráninu og að hann sé sjálfur að vinna í því að fá hann leystan úr haldi. 27.5.2007 10:56
Stormur og flóð granda fimm í Texas Fimm létust og tugum manna var bjargað úr flóðum í stormi í Texas í Bandaríkjunum í dag. Frekari veðurham og rigningu er spáð um helgina. Þjóðvarðarlið hefur verið sent til Waco, Austin og San Antonio. Fréttastofa CNN segir að um 100 heimili og fyrirtæki hafi skemmst í veðurhamnum auk þess sem minniháttar meiðsl hafi verið tilkynnt. 26.5.2007 20:45
Uriah Heep enn í fullu fjöri Tvöfaldur skammtur Íslandsvina stígur á stokk í Laugardalshöllinni annað kvöld, hljómsveitirnar Deep Purple og Uriah Heep, tvær af goðsögnum rokksögunnar. Þótt Uriah Heep hafi rokkað í hartnær fjóra áratugi sýnir sveitin á sér lítil ellimerki. 26.5.2007 20:30
Simbabve: 200 stjórnarandstæðingar fangelsaðir Lögreglan í Simbabve handtók meira en 200 meðlimi stjórnarandstöðunnar sem funduðu um pólitísk mál í höfuðborginni Harare í dag. Nelson Chamisa talsmaður stærsta stjórnarandstöðuflokks landsins sagði CNN að lögreglan hefði brotist inn með því að brjóta niður hurðar og hefði síðan tekið fólkið höndum. 26.5.2007 19:51
„Kleppur er ekki endastöð heldur endurhæfingarstöð“, segir fyrrverandi vistmaður Kleppur er ekki endastöð heldur endurhæfingarstöð, segir þrítug kona sem lögð var inn á spítalann í vetur vegna geðsjúkdóms. Hún segir mikla fordóma gagnvart vistmönnum Klepps í samfélaginu. 26.5.2007 19:22
Herinn settur í viðbragðsstöðu Viktor Jústsjenkó, forseti Úkraínu, setti hersveitir sínar í viðbragðsstöðu í dag og skipaði þeim að halda til höfuðborgarinnar Kænugarðs. Sáttaumleitanir á milli þeirra Viktors Janukovits forsætisráðherra hafa engan árangur borið. 26.5.2007 19:15
Flest ungmenni sem beita önnur börn kynferðisofbeldi hafa sjálf verið misnotuð Nær flest ungmenni undir átján ára aldri sem misnota börn kynferðislega, hafa sjálf verið misnotuð eða lifað við einhverskonar ofbeldi í uppvexti sínum. Þetta segir Robert E. Lango bandarískur meðferðarsérfræðingur. 26.5.2007 19:08
Jabba og Jóda mættu á svæðið Þrjátíu ár eru um þessar myndir frá því að fyrsta Stjörnustríðskvikmyndin var frumsýnd og af því tilefni komu þúsundir aðdáenda myndanna saman í Los Angeles í Bandaríkjunum. Litríkar persónur úr myndunum létu sig ekki vanta á svæðið og geislasverðum var brugðið á loft. 26.5.2007 19:02
Bátar í eigu Kambs seldir frá Flateyri Samkomulag er um að tveir bátar í eigu Kambs á Flateyri verði seldir til nærliggjandi plássa á Vestfjörðum. Þeir taka ríflega helming kvótans sem Kambur hafði til umráða. Bæjarstjórn Ísafjarðar ætlar að gera úttekt á því hvort hægt sé að stofna félag sem gæti keypt aflaheimildir í þeim tilgangi að halda fiskvinnslu á staðnum. 26.5.2007 18:58
Fermingarbörn mögulegir hryðjuverkamenn Kona sem hugðist gefa fermingarbarni fimmþúsund króna inneign á lokaðri bankabók var krafin svara um þjóðerni, hjúskaparstöðu og uppruna fimmþúsundkrónanna í Sparisjóðnum. 26.5.2007 18:45
Eldur í timburhúsi á Sólheimum Stórt timburhús á Sólheimum í Grímsnesi logar nú glatt og leggur svartan reyk yfir nágrennið. Slökkvilið vinnur að því að ná tökum á eldinum og eru slökkvibílar frá Selfossi, Laugarvatni og Reykholti á staðnum. Ekki er talið að neinn hafi verið inni í húsinu. Það er að hruni komið en slökkvilið reynir einnig að slökkva sinuelda sem kviknað hafa í norðanvindinum. 26.5.2007 18:40
Síðasta reykingahelgi Íslands Síðasta reykingahelgin er runnin upp á veitinga- og skemmtistöðum landsins. Hópur veitingamanna í miðborg Reykjavíkur fór nýverið til Stokkhólms til að kynna sér lausnir þarlendra veitingamanna á reykingabanninu. 26.5.2007 18:30
Ísraelar vissu að sex daga stríðið var ólöglegt Háttsettur lögfræðingur sem varaði ríkisstjórn Ísraels við því að það væri ólöglegt að byggja gyðingabyggð á hernumdum svæðum Palestínumanna eftir sex daga stríðið árið 1967, hefur nú í fyrsta sinn komið fram og sagt að hann trúi að hann hafi haft rétt fyrir sér. Theodor Meron var lagalegur ráðgjafi utanríkisráðherra ísraels á þessum tíma. Hann er í dag einn virtasti dómari á alþjóðavísu. 26.5.2007 16:58
Mikil hætta vegna kappakstur í Garðabæ Mikil hætta skapaðst á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ nú á þriðja tímanum þegar tveir ökumenn voru að spyrna skammt frá Olís. Hámarkshraði þar eru 80 km á klukkustund, en mennirnir voru báðir á 170 km hraða þegar þeir voru mældir. Um var að ræða karlmann um tvítugt, og annan á þrítugsaldri. Þeir voru stöðvaðir til móts við Stórás í Garðabæ og fluttir á svæðisstöðina í Hafnarfirði þar sem þeir voru sviptir ökuleyfi. 26.5.2007 14:53
Kínverjar ögra stefnu um eitt barn Það færist í vöxt í Kína að almenningur komist hjá stefnu stjórnvalda um eitt barn á fjölskyldu með frjósemislyfjum. Stefna stjórnvalda er sú að kona geti aðeins fætt einu sinni. Fjölburafæðingum hefur hins vegar fjölgað mjög síðustu ár, sérstaklega þar sem aðgengi að frjósemislyfjum er auðvelt. 26.5.2007 14:25
Hvölum sprautað á haf út Líffræðingar hjá bandarísku strandgæslunni brugðu í gær á nýstárlegt ráð til að koma tveimur hnúfubökum sem villst höfðu upp í Sacramento-fljót í Kaliforníu aftur út haf. Þeir sprautuðu einfaldlega vatni á hvalina með kröftugum vatnsdælum og við þær aðfarir hröktust þeir frá bátnum og niður með ánni. 26.5.2007 13:30
Opið í Hlíðarfjalli um helgina Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli á Akureyri er opið um helgina. Veður er hið besta, en hiti rétt við frostmark. Að sögn Guðmundar Karls Jónssonar forstöðumanns eru um 100 manns í brekkunum í dag. Hann þakkar kuldakasti síðustu daga og vikna fyrir að hægt sé að hafa opið þessa helgi. 26.5.2007 13:20
Írska stjórnin líklega fallin Allt bendir til að Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, haldi embætti sínu eftir þingkosningarnar sem fram fóru í landinu í gær. Slæmu fréttirnar fyrir Ahern eru hins vegar þær að samstarfsflokkurinn í ríkisstjórninni þurrkaðist nánast út og stjórnin því að líkindum fallin. 26.5.2007 12:45
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins Einn af vorboðunum sigldi inn Reykjavíkurhöfn í morgun. Það var fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins, MS Fram, sem liggur við Miðbakkann í dag. 26.5.2007 12:37
Öðrum ráðherra rænt Að minnsta kosti fimm manns hafa fallið í loftárásum Ísraelshers á Gaza-ströndina það sem af er degi. Þá var einum af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar rænt á Vesturbakkanum í morgun. 26.5.2007 12:30
Kona sem greindist með berkla á batavegi Portúgölsk kona, starfsmaður á Kárahnjúkum sem greindist nýlega með berkla og var send á Landspítala Háskólasjúkrahús til nánari rannsókna er á batavegi að sögn vakthafandi læknis á smitsjúkdómadeild. 26.5.2007 12:22
Hvetur til að hvítasunna verði þjóðahátíð Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands hvetur presta til að gera messu hvítasunnunnar að þjóðahátíð kirkjunnar. Þar verði útlendingum og aðkomufólki boðið að lesa texta Postulasögunnar á sínu eigin tungumáli. 26.5.2007 12:19
Herlið sagt á leið til Kænugarðs Sáttafundur Viktors Jústjenskó, forseta Úkraínu og Viktors Janukovits forsætisráðherra Úkraínu í nótt skilaði engum árangri en áframhaldandi fundir hafa verið boðaðir í dag. Í morgun bárust fregnir af því að sá armur hersveitanna sem væri hliðhollur Jústsjenkó væri á leið til höfuðborgarinnar en á tólfta tímanum fullyrti AFP-fréttastofan að liðsflutningarnir hefðu stöðvast. 26.5.2007 12:11
Fjórir létust í árásum Ísraela á Gasa Fjórir létu lífið og tíu særðust þegar ísraelskar herþotur héldu áfram loftárásum á Gasa í morgun. Ísraelar segja árásirnar svar við ítrekuðum flugskeytaárásum yfir landamærin. Ísraelskar hersveitir réðust einnig inn í hús í Jenín á Vesturbakkanum og tóku þar fastan einn af ráðherrum palestínsku heimastjórnarinnar, án nokkurra skýringa. 26.5.2007 11:09
Ásókn í lóðir á Urriðaholti Tilboð bárust í allar þær fjörutíu og sjö lóðir sem opnað var fyrir í Urriðaholti í Garðabæ í gær. Tilboðum var tekið í rúmlega helming lóðanna. Í boði voru lóðir undir fjölbýli, raðhús, parhús og sérbýli. Þar á meðal voru sex óvenju stórar einbýlishúsalóðir sem standa næst Urriðavatni og er heimilt að reisa allt að 900 fermetra hús á þeim. 26.5.2007 11:03