Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Varnarsvæðið opnað almenningi Almenningi verður í fyrsta skipti á sunnudaginn boðið upp á heimsækja gömlu herstöðina á Miðnesheiði. Á sama tíma fer fram kynning á þeim áætlunum sem liggja fyrir varðandi framtíðarnýtingu svæðisins. 18.5.2007 10:25
Lentu í árekstri og veittust að ökumanni Harður árekstur varð á áttunda tímanum í kvöld á gatnamótum Hallsvegar og Strandvegar í Reykjavík. Tveir bílar lentu í árekstri og voru fjórir í öðrum bílnum. Ekki er vitað hversu margir farþegar voru í hinum bílnum. Enginn slasaðist alvarlega þó svo að fjarlægja þurfi báða bílana með krana. Eftir áreksturinn veittust mennirnir fjórir, sem voru allir ölvaðir og á tvítugsaldri, að ökumanni hins bílsins. Lögregla var kölluð á staðinn og mennirnir handteknir. 17.5.2007 20:32
Lögreglan fær súrefnisgeyma gegn mengun Lögreglustöðvar í Kalkútta á Indlandi hafa nú allar fengið súrefnisgeyma til þess að hjálpa lögreglunni að takast á við áhrif mengunarinnar í borginni. Umferðarlögreglumenn í borginni koma til með að njóta góðs af þeim en þeir þurfa að standa í einhverri mestu mengun í heimi. 17.5.2007 20:04
Skemmdarverk unnin á Litlu hafmeyjunni Enn einu sinni hefur Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Þegar menn fóru á stjá í gær sáu þeir að rauðri málningu hafði verið slett á andlit, brjóst og kjöltu þessa frægasta kennileiti borgarinnar. 17.5.2007 19:45
Syngur um ástir og örlög malískra kvenna Malíska söngdívan Oumou Sangare sem komin er til landsins segir fjölkvæni í Malí fara verst með konur þar í landi. Söngdívan ætlar sér að syngja um ástir og örlög malískra kvenna fyrir íslendinga á tónleikum á Nasa í kvöld. 17.5.2007 19:27
Tekist á um tryggingaverðmæti Eigendur húsanna við Lækjargötu tvö og Austurstræti tuttugu og tvö, takast enn á um verðmæti húsanna við tryggingafélag sitt. Þá liggur ekkert samkomulag fyrir milli borgarinnar og eigendanna um framtíð byggingareitsins. 17.5.2007 19:13
Eldur á Akureyri Eldur kom upp í dekkjahrúgu hjá fyrirtækinu Hringrás við Krossanes á Akureyri í dag. Slökkviliðið á Akureyri náði fljótlega tökum á eldinum. Um mikla aðgerð er að ræða en starfið hefur engu að síður gengið vel. Mikill reykur er af eldinum en hann leggur ekki yfir bæinn þar sem austanátt er ríkjandi. 17.5.2007 19:10
Norðmenn fagna þjóðhátíðardegi sínum Norðmenn héldu þjóðhátíðardag sinn hátíðlegan í dag, 17. maí. Á þessum degi árið 1814 lýsti Noregur yfir sjálfstæði sínu frá Dönum og stjórnarskrá landsins var undirrituð. Dagurinn var haldinn hátíðlegur um allt land. 17.5.2007 19:09
Sagan endurtekur sig Sagan frá vorinu 1995, virðist nú vera að endurtaka sig með afar keimlíkum hætti. Þá skipti Davíð Oddsson Alþýðuflokki út fyrir Framsóknarflokk eftir nokkurra daga viðræður. 17.5.2007 19:07
22 fórust í skotbardaga í Mexíkó Blóðugur skotbardagi átti sér stað í Mexíkó í gær og létu 22 lífið. Hann er sá stærsti síðan að stjórnvöld hófu átak gegn eiturlyfjasölum fyrir fimm mánuðum síðan. Átökin hófust þegar lögreglan í Mexíkó, með stuðningi hermanna, réðust inn á búgarð þar sem allt að 50 vopnaðir vígamenn höfðust við. 17.5.2007 18:55
Var haldið föngnum í 13 ár Suður-afrískur maður hefur verið ákærður fyrir ofbeldi eftir í ljós kom að hann hafði haldið ungum dreng föngnum í lokaðri kompu í 13 ár. Sagt er að drengurinn sé enn í áfalli og að hann þoli illa ljós. Talið er að maðurinn hafi rænt honum þegar hann var aðeins fimm ára gamall. Honum var bjargað eftir að nágrannar höfðu heyrt öskrin í honum. 17.5.2007 18:39
Stjórnarandstaðan í Tyrklandi sameinast Tveir stjórnarandstöðuflokkar í Tyrklandi hafa sameinast um framboð í þingkosningum sem fara fram í landinu þann 22. júlí. Kosningunum var flýtt þar sem ekki náðist samkomulag um forseta landsins. 17.5.2007 18:34
Samkomulag næst um innflytjendalög Öldungadeild bandaríska þingsins og Hvíta húsið hafa náð samkomulagi um innflytjendalöggjöf sem veitir milljónum ólöglegra innflytjenda búseturétt í Bandaríkjunum. 17.5.2007 17:48
Stjórnarmyndunarviðræður hefjast á morgun Fundi Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur lauk nú fyrir stundu. Þar sögðu þau að samkomulag hefði náðst um að hefja stjórnarmyndunarviðræður. Geir sagði að hann ætli að ganga á fund Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, klukkan ellefu í fyrramálið og biðjast lausnar. Þá ætlar hann einnig að biðja um umboð til stjórnarmyndunar með Samfylkingunni. 17.5.2007 17:11
Einn lést og fjórir særðust Einn lést og fjórir særðust í loftárásum Ísraelshers á Gaza svæðið í dag. Talsmenn sjúkrahúsa á svæðinu skýrðu frá þessu í dag. Þeir sögðu að sá sem hefði látið lífið hefði verið óbreyttur borgari á unglingsaldri. Ísraelski herinn hefur ekki svarað þessum staðhæfingum. 17.5.2007 17:03
Logar í dekkjum á Akureyri Eldur logar nú í dekkjahrúgu hjá fyrirtækinu Hringrás við Krossanes, þar sem loðnubræðslan var einu sinni, í norðurenda bæjarins. Slökkvilið er á staðnum og er að undirbúa slökkvistarf. Búið er að taka hluta af dekkjahrúgunni til hliðar þess að auðvelda slökkvistarf. 17.5.2007 16:33
Ban stefnir að fundi um loftslagsmál Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-Moon, ætlar sér að koma á fundi háttsettra embættismanna á sama tíma og þjóðarleiðtogar hittast og ávarpa allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í september. Ban sagði að alþjóðasamfélagið væri nú betur að sér um umhverfismál og sérstaklega eftir að skýrsla sérfræðinga á vegum Sameinuðu þjóðana kom út. 17.5.2007 16:05
Geir og Ingibjörg ætla að funda í Alþingishúsinu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde hittast í Alþingishúsinu klukkan hálf fimm í dag. Gert er ráð fyrir að formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar eigi viðræður um möguleika á að mynda ríkisstjórn eftir að viðræðum sjálfstæðismanna við Framsóknarflokkinn var hætt. 17.5.2007 15:36
Stéttarfélög í Nígeríu boða til verkfalls Stéttarfélög í Nígeríu hafa boðað til tveggja daga verkfalls daganna 28. til 29. maí til þess að mótmæla framkvæmd forsetakosninga sem haldnar voru í landinu þann 21. apríl síðastliðinn. Framkvæmdastjóri stéttarfélaga skýrði frá þessu í dag. 17.5.2007 14:44
Stjórnarsamstarfi slitið - Sjálfstæðisflokkur og Samfylking í viðræður Geir H. Haarde og Jón Sigurðsson tilkynntu sameiginlega niðurstöðu sína í stjórnarráðinu í dag um að þeir hefðu slitið 12 ára stjórnarsamstarfi flokkanna. Þá sagði Geir að hans fyrsti valkostur væri viðræður við Samfylkinguna. Samstaða var á milli flokkanna um að ekki væri grundvöllur fyrir áframhaldandi samstarfi. 17.5.2007 14:31
Búist við yfirlýsingu innan nokkurra mínútna Yfirlýsingar er búist við frá stjórnarflokkunum tveimur eftir nokkrar mínútur. Framsóknarflokkurinn fundaði í dag í rúma þrjá klukkutíma. Strax eftir fundinn fóru Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins, og Guðni Ágústsson, varaformaður flokksins, í stjórnarráðið á fund með Geir H. Haarde. Niðurstaða þeirrar fundar verður væntanlega efni yfirlýsingarinnar. 17.5.2007 14:23
Jón og Guðni funda með Geir H. Haarde Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins héldu rakleitt á fund forsætisráðherra í stjórnarráðinu að loknum fundi þingmanna Framsóknarflokksins og fleiri í dag. Fundur þeirra stendur enn yfir. 17.5.2007 14:16
Krían komin á Álftanesið Krían er loksins komin á Álftanesið. Hópur af þeim sást á ströndinni þar um hádegisbil og svo virtist sem hann væri þrekaður. Krían sást fyrst í ár þann 22. apríl síðastliðinn. 17.5.2007 14:01
Viðræður við Þjóðverja um varnamál Þýsk sendinefnd kemur hingað til lands í dag til könnunarviðræðna við íslensk stjórnvöld um hugsanlegt varnarsamstarf. Ekki er um formlegar viðræður að ræða heldur ætla Þjóðverjarnir að skoða varnarsvæðið á Miðnesheiði á morgun með tilliti til aðstöðunnar þar. 17.5.2007 14:00
Jón sagði ekkert eftir fund Framsóknarflokks Fundi Framsóknarflokksins lauk nú fyrir stundu. Jón Sigurðsson formaður flokksins vildi ekkert segja við fjölmiðla þegar hann kom út af fundinum. Aðrir ráðherrar sem sátu fundinn vildu ekkert segja við fjölmiðla. 17.5.2007 13:53
Volta rýkur út Volta, nýjasta plata Bjarkar, hefur rokselst víða um heim og er níunda söluhæsta platan í Bandaríkjunum og sjöunda mest selda í Bretlandi, samkvæmt samantekt Morgunblaðsins. Þetta er besti árangurs íslensks tónlistarmanns á bandaríska listanum. 17.5.2007 13:35
Íslandshreyfingin skuldar tæpar 20 milljónir Íslandshreyfingin - lifandi land skuldar hátt í tuttugu milljónir eftir kosningabaráttu sína. Greitt var fyrir auglýsingar og leiguhúsnæði undir kosningamiðstöðvar um allt land. Samkvæmt lögum um fjárreiður stjórnmálasamtaka og frambjóðenda skal árlega úthluta fé úr ríkissjóði til stjórnmálasamtaka sem hlotið hafa að minnsta kosti tvö og hálft prósent atkvæða í kosningum. 17.5.2007 13:33
Dagar Wolfowitz sagðir taldir Enn einn fundurinn verður haldinn í stjórn Alþjóðabankans í dag um örlög bankastjórans Pauls Wolfowitz en flest bendir nú til að hann muni láta af störfum. 17.5.2007 13:16
Barnaníðingar stöðvaðir Lögregla í Frakklandi og Belgíu hefur handtekið þrjá menn sem voru komnir á fremsta hlunn með að ræna belgískri telpu og misþyrma henni. 17.5.2007 13:15
Sýknaður af morði á Miðnesheiði Herdómstóll í Bandaríkjunum sýknaði í gær hermann sem ákærður var fyrir morð á félaga sínum á varnarsvæðinu á Miðnesheiði í ágúst 2005, þrátt fyrir að sterkar vísbendingar væru fyrir sekt hans. 17.5.2007 13:13
Hamas hóta sjálfsmorðsárásum Hamas samtökin hótuðu því í morgun að hefja aftur sjálfsmorðsárásir gegn Ísrael eftir að ísraelski herinn gerði loftárásir á einar af höfuðstöðvum Hamas á Gaza svæðinu í morgun. „Þetta er opinber stríðsyfirlýsing gegn Hamas. Allir möguleikar standa nú opnir og þar á meðal sjálfsmorðsárásir.“ sagði talsmaður Hamas, Abu Ubaida, í dag. 17.5.2007 12:40
Ker áfrýjar til Hæstaréttar Ker hf. sem áður rak olíufélagið Esso hefur áfrýjað máli Sigurðar Hreinssonar húsasmiðs á Húsavík sem hann vann í héraðsdómi, til Hæstaréttar Íslands. Hinn 20. febrúar dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur Ker hf. til að greiða Sigurði 15 þúsund krónur í bætur með vöxtum, en málið tengdist málaferlum vegna verðsamráðs olíufélaganna. 17.5.2007 12:11
Warhol verk fór á 4,5 milljarða Málverk eftir Andy Warhol var selt á 71,7 milljónir dollara á uppboði hjá christie's í New York. Þetta er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir Warhol. Í íslenskum krónum er upphæðin um 4,5 milljarðar. 17.5.2007 11:58
Ísraelar gerðu loftárásir á Gaza Ísraelski herinn gerði í morgun loftárásir á Gaza. Fólk sem býr í nágrenni við húsið sem ráðist var sagði að Hamas samtökin hefðu þar aðstöðu. Talsmaður ísraelska hersins staðfesti árásina við fjölmiðla. Þá ákærðu yfirvöld í Ísrael í morgun Palestínumann fyrir að hafa lagt á ráðin um að myrða Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. 17.5.2007 11:39
Eistar saka Rússa um netárásir Eistar hafa sakað Rússa um að standa fyrir netárásum á vefþjóna ríkisstjórnarinnar og nokkura dagblaða í landinu. Ef rétt reynist, er þetta í fyrsta sinn sem að ríki ræðst gegn öðru með þessum hætti. 17.5.2007 11:15
Lögreglan lýsir eftir konu Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir 40 ára gamalli konu, Guðríði Björgu Gunnarsdóttur. Guðríður er þéttvaxin, um 160 sentimetrar á hæð og með stutt dökkt hár. Ekki er vitað um klæðaburð hennar. Ef einhver hefur upplýsingar um ferðir Guðríðar síðan þriðjudaginn 15. maí eða veit hvar hún er, er sá hinn sami beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000. 17.5.2007 10:49
Kosið til þings í Alsír Þingkosningar fara fram í Alsír í dag. Talið er líklegt að stjórnin sem nú er við völd haldi meirihluta. Hún samanstendur af flokknum sem barðist fyrir sjálfstæði landsins, FLN, lýðræðisflokknum RND og hófsömum íslömskum flokki, MSP. Einum stærsta flokk landsins er þó bannað að bjóða fram en það er flokkur róttækra múslima. 17.5.2007 10:44
Rússi tekinn til yfirheyrslu vegna Madeleine Lögregla í Portúgal hefur tekið 22 ára rússa til yfirheyrslu vegna hvarfsins á Madeleine McCann. Maðurinn er tölvunarfræðingur og kunningi Roberts Murat sem yfirheyrður var fyrr í vikunni. Hann hjálpaði Murat meðal annars við að setja upp internetsíðu. Sky fréttastofan greinir frá því að lögregla hafi leitað á heimili mannsins sem heitir Sergey Malinka. Hann býr í hverfi innan Praia de Luz, þaðan sem Madelein hvarf fyrir tveimur vikum. 16.5.2007 23:51
Blása af kenningu um ísöld í N-Evrópu Loftslagsfræðingar sem óttast hafa að hlýnun loftslags gæti haft þau þverstæðu áhrif að loftslag í Norðvestur Evrópu yrði kaldara, eru nú hættir að hafa áhyggjur af því. Á tímabili var því haldið fram að möguleiki væri á lítill ísöld á svæðinu. Sú kenning hefur tekið bólfestu í huga almennings segir í New York Times í dag. 16.5.2007 22:45
Uppgötva gen sem örvar hárvöxt Hingað til hefur því verið trúað að ekki væri hægt að laga skemmda hársekki sem hætt hafa að framleiða hár. Lið vísindamanna í Háskóla í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hafa þróað nýjar hárfrumur í músum. Þeir segja að hægt sé að örva hárvöxt með einu geni. 16.5.2007 22:32
Pólsku farandsalarnir farnir frá Ísafirði Þrír Pólverjar sem lögreglan á Ísafirði hafði afskipti af í gær vegna ólöglegrar farandsölu hafa nú greitt sekt og eru farnir frá bænum. Mennirnir voru á sendiferðabíl með erlendum númerum og gengu í heimahús í bænum og reyndu að selja blýantsteikningar og eftirprentanir. Mennirnir höfðu ekki verslunarleyfi og hafði lögreglan þá í haldi þar til rétt undir kvöld. 16.5.2007 22:15
Vissi ekki að hann var á 155 km Karlmaður á þrítugsaldri var tekinn á 155 km hraða á Akureyri þar sem hámarkshraði er 90. Lögregla stöðvaði manninn á Hringvegi við Skógarbakka. Ökumaðurinn keyrði venjulegan fólksbíl og sagði lögreglu að hann hefði ekki gert sér grein fyrir hraðanum. 16.5.2007 21:33
Stjórnarskrá ESB er brýnt verkefni Nicolas Sarkosy forseti Frakklands sagði í dag að brýnt væri að koma Evrópusambandinu úr stjórnarskrárlegri „lömun.“ Ummælin lét hann falla á fundi með Angelu Merkel kanslara Þýskalands í Berlín. Þjóðverjar fara með formennsku í Evrópusambandinu og G8 hópnum. 16.5.2007 21:15
Framtíðarlandið hvetur til bóta á kosningafyrirkomulagi Stjórn Framtíðarlandsins telur misbresti á kosningafyrirkomulagi hafa orðið til þess að sitjandi stjorn fékk minnihluta atkvæða en haldi samt meirihluta á þingi. Samtökin hvetja nýkjörið Alþingi að bæta úr “þessum ágöllum.” Stjórnmálamönnum beri að virða vilja kjósenda. Minnihluti þeirra hafi greitt sitjandi stjórn atkvæði. Talsmenn umhverfisverndar hafi hins vegar fengið byr undir báða vængi. 16.5.2007 20:30
Gordon Brown verður næsti forsætisráðherra Breta Sky sjónvarpsstöðin skýrði frá því fyrir stundu að Gordon Brown yrði næsti forsætisráðherra Bretlands og formaður Verkamannaflokksins. Þetta varð ljóst þegar Andrew MacKinlay, einn þingmanna flokksins, tilkynnti að hann styddi Brown. Fjármálaráðherrann hefur þá fengið 308 stuðningsatkvæði sem nægja til að tryggja honum sætið án þess að keppninautar hans hafi möguleika. 16.5.2007 19:56