Fleiri
Volta Debut and More 29.3.2007 12:47 Foreldrar vilja að mannræningja verði gefið frelsi Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, hitti í morgun börnin sem tekin voru í gíslingu í rútu í höfuðborginni, Maníla, í gær. Börnunum var boðið í forsetahöllina þar sem Arroyo ræddi við þau og foreldra þeirra. 29.3.2007 12:46 Wilson Muuga þriðja erlenda flutningaskipið sem lifir af? Flutningaskipið Wilson Muuga, sem situr á strandstað á Reykjanesi, gæri orðið þriðja erlenda flutningaskipið til að lifa af strand við Íslandsstrendur, ef það verður dregið á flot í stað þess að rífa það á staðnum. 29.3.2007 12:42 Vinstri grænir í sókn í Norðvesturkjördæmi Vinstri hreyfingin - grænt framboð er í mikilli sókn í Norðvesturkjördæmi samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Stöð 2 og kynnt var á fyrsta kosningafundi Stöðvar 2 í Stykkishólmi í gærkvöldi. 29.3.2007 12:39 Tekur viku að afferma súrálið Það tekur starfsmenn Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði viku að afferma skip sem kom með fyrsta súrálsfarminn til Reyðarfjarðar í gær. Reiknað er með að byrjað verði að framleiða ál í verksmiðjunni um páskana. 29.3.2007 12:30 Segir gögn sem sanni sakleysi ekki rannsökuð Jón Ásgeir Jóhannesson afhenti lögreglu í maí 2003 þrjár möppur með upplýsingum um bankareikninga Nordica. Þær áttu að renna stoðum undir framburð hans og Tryggva Jónssonar varðandi peningafjárhæðir sem runnu frá Baugi til Nordica. Gestur Jónsson gagnrýndi harðlega í Héraðsdómi í dag að þær hafi ekki verið rannsakaðar af lögreglu. Og að engin heildstæð rannsókn hafi farið fram á bókhaldi Nordica. 29.3.2007 12:27 Baráttusamtökin bjóða fram í öllum kjördæmum Nýtt framboðsafl, Baráttusamtökin, sem berjast fyrir hagsmunum aldraðra, öryrkja og breyttu skipulagi borgarinnar, býður fram í öllum kjördæmum fyrir alþingiskosningarnar í vor. Ein meginkrafan er að lágmarksbætur verði 210 þúsund krónur á mánuði. 29.3.2007 12:24 Nóg komið af uppbyggingu í Laugardal Íbúasamtök í Laugardal kalla eftir sterkum rökum frá yfirvöldum fyrir frekari uppbyggingu í dalnum. Þau telja nóg komið af byggingarframkvæmdum. Nú er fyrirhugað að byggja tvö fjölbýlishús á einum af fáum grænum blettum sem eftir eru í dalnum. Þetta segir í tilkynningu frá umhverfis-og útivistarhóp íbúasamtakanna. 29.3.2007 12:03 Hver eru lengstu fljót í heimi? Að mæla nákvæma lengd vatnsfalla er ekki alltaf eins einfalt og það kann að virðast í fyrstu. Þrír þættir skipta þar töluverðu máli: Hver skilgreind upptök vatnsfallsins eru, hvar það endar nákvæmlega og hversu nákvæm gögn eru notuð til þess að mæla fjarlægðina þar á milli. 29.3.2007 11:51 Lilja og Steinunn gefa íbúum Hofsóss sundlaug Lilja Pálmadóttir og Steinunn Jónsdóttir ætla að gefa íbúum Hofsóss 25 metra langa sundlaug með tilheyrandi aðstöðu. Frá þessu er greint á forsíðu héraðsfréttablaðsins Feykis sem gefið er út á norðurlandi vestra og kom út í dag. 29.3.2007 11:42 Norðmenn fela tóbakið Heilbrigðisráðherra Noregs, Sylvía Brustad, vill að bannað verði að hafa tóbaksvörur uppivið, í verslunum. Þær eiga að fara undir borðið þar sem engin sér þær. Rökin eru þau að börn og unglingar eigi ekki að þurfa að hafa sígarettur fyrir augunum þegar þeir fara út í búð. Einnig sé auðveldara fyrir fólk að hætta að reykja, ef ekki sé sífellt verið að minna það á ósiðinn. 29.3.2007 11:04 Íranar að leyfa breskum erindrekum að hitta sjóliðana Samkvæmt nýjust fregnum hafa Íranar sæst á að leyfa breskum erindrekum að hitta sjóliðana 15 sem handteknir voru á föstudaginn var. Þetta kemur fram á fréttasíðu Sky News í kvöld. Samkvæmt henni hafa Íranar einnig sagt að deilan eigi ekki eftir að leysast ef Bretar fallast ekki á að sjóliðarnir hafi verið á írönsku hafsvæði. 28.3.2007 23:21 Náðu samkomulagi um aðstoð við flóttamenn í Darfur Yfirvöld í Súdan og Sameinuðu þjóðirnar skýrðu í dag frá samkomulagi sem að hefði náðst um að auðvelda aðgang hjálparsveita að flóttamönnum í Darfur héraði Súdan. Sagt var frá þessu á sama tíma og sérstakur yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, John Holmes, var á ferðalagi um flóttamannabúðir í Chad, nágrannaríki Súdan. Þar átti hann í viðræðum við ættbálkahöfðingja á svæðinu sem og fólk sem býr í búðunum. 28.3.2007 22:46 Tekinn á 148 kílómetra hraða Ökumaður var tekinn á 148 kílómetra hraða í Ártúnsbrekkunni um klukkan tíu í kvöld. Maðurinn var á leið upp brekkuna og út úr bænum. Lögregla segir að hann megi búast við 90 þúsund króna sekt og tveggja mánaða sviptingu á ökuréttindum en hámarkshraði í Ártúnsbrekkunni er 80 kílómetrar á klukkustund. Annar ökumaður var síðan tekinn í kvöld á 113 kílómetra hraða á 70 kílómetra svæði. Hann má búast við sektum. 28.3.2007 22:17 Segir Fidel á batavegi Ramon Castro, einn af eldri bræðrum Fidels Castro, sagði fréttamönnum í dag að Fidel væri á batavegi og hefði það gott. Spurður um hvort að búast mætti við Fidel opinberlega á næstunni svaraði hann engu. Forseti Bólivíu sagði nýverið að hann byggist við því að Fidel myndi láta sjá sig á leiðtogaráðstefnu sem haldin verður þann 28. apríl næstkomandi. 28.3.2007 22:11 Sjá næstu 50 fréttir
Tíu ára fangelsi fyrir að móðga kónginn Svissneskur maður var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að móðga konung Taílands. Oliver Jufer, 57 ára, var dæmdur fyrir að hafa eyðilagt fimm myndir af konunginum með því að spreyja á þær. Jufer var fullur þegar hann móðgaði kónginn. 29.3.2007 21:19
Segja veru hersins í Írak löglega Bandaríkjamenn hafna þeirri fullyrðingu Sádi-Araba að vera bandaríska hersins í Írak sé ólögleg. Þeir segja að herinn sé þar í boði írösku stjórnarinnar og samkvæmt reglugerðum frá Sameinuðu þjóðunum. Konungur Sádi-Arabíu, Abdullah, lýsti þessari skoðun sinni á leiðtogafundi Arabaríkja í gær. 29.3.2007 20:52
Kynntu aðgerðaáætlun í málefnum barna og barnafólks Samfylkingin kynnti í dag ítarlega aðgerðaáætlun í málefnum barna og barnafólks undir yfirskriftinni Unga Ísland. Tilgangurinn er sá að vekja athygli á mikilvægi barnastefnu og vill Samfylkingin að málefni barna verði í forgangi á verkefnalista næstu ríkisstjórnar. 29.3.2007 20:27
Stafar meiri hætta af hvalveiðum en stóriðju Íslenskri ferðaþjónustu stafar mun meiri hætta af hvalveiðum en stóriðjuuppbyggingu, segir forstjóri Icelandair. Ríkisstjórnir víða um heim mótmæla enn hvalveiðum Íslendinga. 29.3.2007 20:00
Tyrkir biðja Írana að láta Turner lausa Forsætisráðherra Tyrklands, Tayyip Erdogan, hringdi í forseta Íran, Mahmoud Ahmadinejad, í dag og bað hann að láta Faye Turner lausa. Íranar ætluðu upphaflega að sleppa henni en skiptu svo um skoðun og sögðu viðbrögð Breta vera ástæðuna. Turner er eina konan í hópi sjóliðanna sem Íranar handtóku síðastliðinn föstudag. Ahmadinejad er víst að íhuga bón Erdogans um þessar mundir. Ríkissjónvarpið í Íran skýrði frá þessu í dag. 29.3.2007 19:54
Seðlabankinn hvetur til varfærni Seðlabankinn telur að ef farið verði of geyst í stóriðjuframkvæmdir á næstu árum geti það leitt til hærri verðbólgu og stýrivaxta og því brýnt að frekari uppbygging taki mið af því. Bankinn ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í morgun en varar við að áframhaldandi þensla geti þvingað bankann til vaxtahækkana. Stýrivextir eru nú 14,25 % og hafa verið það frá því í desember. 29.3.2007 19:45
Nú get ég andað léttar Formaður MND-félagsins á Íslandi fagnaði í dag áfangasigri í baráttunni fyrir vali fatlaðra til að lifa með hjálp öndunarvélar heima. Þeir sem þurfa á hjálp öndunarvélar að halda eiga nú kost á því að fá slíka þjónustu. Um tilraunaverkefni er að ræða sem nær til sex einstaklinga næstu tvö árin. Rúmlega fimm starfsmenn þarf til að sinna hverjum sjúklingi og kostnaður á ári er um 20 milljónir króna. 29.3.2007 19:32
Vilja landnýtingaráætlun fyrir ferðaþjónustuna Á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar, sem haldinn var í dag, var samþykkt áskorun á stjórnvöld um að vinna að landnýtingaráætlun með þarfir ferðaþjónustunnar í huga. Lagt var til að hún yrði með sama hætti og fyrirliggjandi tillaga á Alþingi um nýtingaráætlun og verndaráætlun fyrir auðlindir landsins til lands og sjávar. Jafnframt var sagt að nýting náttúruauðlinda til ferðaþjónustu sé mikilvæg og að undibúa þurfi fjárfestingu í innviðum og markaðsstarfi. 29.3.2007 19:24
Bretar hafni stjórnarskrá ESB Bretar taka ekki upp evruna og hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins nái íhaldsmenn völdum í næstu kosningum. Þetta segir William Hague, fyrrverandi leiðtogi breska Íhaldsflokksins og núverandi talsmaður hans í utanríkismálum. Hann er vongóður um sigur flokks síns í næstu kosningum. 29.3.2007 18:45
Mikil ábyrgð hvílir á dómendum Bæði settur saksóknari í Baugsmálinu og verjendur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra fyrirtækisins, lögðu á það áherslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag að mikil ábyrgð hvíldi á dómendum í málinu en þó á misjöfnum forsendum. Aðalmeðferð í Baugsmálinu lauk í Héraðsdómi í dag. 29.3.2007 18:41
Íhuga að stefna ríki vegna reykingabanns Eigandi Ölstofunnar í miðbæ Reykjavíkur óskar eftir fundi með heilbrigðisráðherra til að leita úrræða fyrir þá viðskiptavini ríkissjóðs sem krárnar þjónusta. Það er að segja - reykingamenn. Reykingabann gengur í gildi eftir tvo mánuði og eigendur Ölstofunnar íhuga að stefna ríkinu fyrir skerðingu á atvinnuréttindum. 29.3.2007 18:41
Krónikan hættir og seld til DV Útgáfu Krónikunnar hefur verið hætt og var útgáfufélag hennar selt DV í dag. Ritstjóri og framkvæmdastjóri Krónikunnar hafa ráðið sig til DV. Tólf manns störfuðu hjá Krónikunni og hefur öllum starfsmönnum verið boðið starf hjá DV, en óvíst hve margir þiggja það. 29.3.2007 18:39
10 gagnageymslur skapa 200 hátæknistörf Tíu gagnavistunarbú verða komin upp innan tveggja ára ef áætlanir Data Íslandía ganga eftir og tvö hundruð störf verða til. Áhugi stórfyrirtækja á borð við British Telecom á gagnavistun á hinu friðsæla Íslandi hefur tvíeflst eftir að upp komst um áætlanir Al Kaída um að lama internetið í Bretlandi. 29.3.2007 18:36
Fram til baráttu fyrir aldraða og öryrkja Baráttusamtökin segja ljóst að núverandi stórnarflokkar muni ekki bæta hag elli- og örorkulífeyrisþega og ætla að beita sér fyrir að lágmarkslífeyrir verði 210 þúsund krónur á mánuði. Baráttusamtökin tilkynntu í morgun að þau muni bjóða fram í öllum kjördæmum í vor, en þau berjast fyrir hagsmunum aldraðra, öryrkja og breyttu skipulagi Reykjavíkur. 29.3.2007 18:30
Aðgerðir til að bæta stöðu barna Samfylkingin hyggst beita sér fyrir markvissum aðgerðum til að bæta stöðu barna og barnafjölskyldna á Íslandi á næsta kjörtímabili, samkvæmt stefnu sem kynnt var í dag. 29.3.2007 18:27
Vísir opnar kosningavef Sérstakur vefur vegna Alþingiskosninganna 2007 hefur verið opnaður á hér á Vísi. Vefurinn er nýstárlegur á margan hátt. Notendur geta til dæmis spáð í spilin varðandi fylgi og þingmannafjölda einstakra framboða á gagnvirkan hátt miðað við kannanir eða eigin forsendur og séð niðurstöðurnar jafnóðum birtar með grafískum hætti. 29.3.2007 18:24
Björn vill stofna 240 manna varalið lögreglu Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, ætlar sér að stofna 240 manna launað varalið lögreglu sem hægt yrði að kalla út þegar á þyrfti að halda. Þetta kom fram í erindi sem Björn hélt á fundi Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu. 29.3.2007 18:14
Hugmyndakeppni um skipulagningu Vatnsmýrar hafin Í dag hófst hugmyndakeppni um skipulag Vatnsmýrar. Keppnin er á vegum Reykjavíkurborgar. Hún er jafnframt alþjóðleg og fer fram í tveimur þrepum. Úrslit verða ljós í nóvember á þessu ári og gert er ráð fyrir því að Reykjavíkurborg semji við einn eða fleiri vinningshafa um skipulagningu hluta af Vatnsmýrarsvæðinu. 29.3.2007 18:07
Forseti Suður-Afríku að miðla málum í Zimbabwe Afrískir leiðtogar samþykktu í dag að forseti Suður-Afríku, Thabo Mbeki, muni reyna að miðla málum í Zimbabwe. Þetta var ákveðið á leiðtogafundi sem haldinn var í Dar Es Salaam í Tanzaníu. Þeir hvöttu vesturveldin einnig til þess að hætta refsiaðgerðum gegn landinu. Robert Mugabe, forseti Zimbabwe, hefur undanfarið sætt harðri gagnrýni alþjóðasamfélagsins fyrir meðferð sína á stjórnarandstöðu landsins. 29.3.2007 17:34
Aðalmeðferð Baugsmálsins lokið Aðalmeðferð í Baugsmálinu lauk nú fyrir stundu eftir að saksóknari og verjendur sakborninga höfðu flutt seinni ræður sínar í munnlegum málflutningi. Rúmar sex vikur eru síðan aðalmeðferðin hófst með skýrslutöku af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Hann er ákærður í 17 af 18 ákæruliðum. Kostnaður embættis saksóknara vegna sérfræðiaðstoðar er rúmar 55 milljónir og þá er ekki tekið tillit til launa setts saksóknara og aðstoðarmanna hans. 29.3.2007 17:28
Arabaríkin bjóða Ísrael stjórnmálasamband Öll Arabaríkin samþykktu í dag að taka upp stjórnmálasamband og eðlileg samskipti við Ísrael, að uppfylltum vissum skilyrðum. Þau eru meðal annars að Ísrael hverfi aftur til landamæranna eins og þau voru fyrir sex daga stríðið árið 1967. Að stofnað verði sjálfstætt ríki Palestínumanna, og að fundinn verði réttlát lausn á málum þeirra araba sem flýðu heimili sín í hinum fjölmörgu stríðum sem Arabar og Gyðingar hafa háð. 29.3.2007 16:41
Forsetafrúin gekkst undir mikla aðgerð á þriðjudagskvöld Dorrit Moussaieff forsetafrú slasaðist töluvert mikið á skíðum í Aspen í Bandaríkjunum á þriðjudag. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands fór til Bandaríkjanna í gærdag og hefur fylgst náið með framvindu mála, en hann hittir eiginkonu sína í kvöld. Forsetafrúin lærbrotnaði og brákaði nokkur bein. 29.3.2007 16:27
Upphæð kreditreiknings fáránleg Brynjar Níelsson verjandi Jóns Geralds Sullenberger hélt lokaræðu sína nú rétt í þessu í Héraðsdómi. Hann sagði upphæð kreditreiknings frá Nordica upp á 62 milljónir króna fáránlega. Hún jafngilti nánast öllum viðskiptum Baugs og Nordica á árinu 2001. Jón Gerald er ákærður fyrir að hafa aðstoðað Jón Ásgeir og Tryggva við að rangfæra bókhald Baugs með því að útbúa tilhæfulausan reikning. 29.3.2007 16:06
Sakfelling þýði að Jón Ásgeir þurfi að hætta störfum fyrir Baug í þrjú ár Gestur Jónsson verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar flutti lokaorð sín í Baugsmálinu nú rétt í þessu. Hann sagði að alþjóðleg greiningarfyrirtæki teldu meginverðmæti Baugs liggja í heilabúi Jóns Ásgeirs. Ásakanirnar í málinu væru mjög alvarlegar fyrir hann. Minnsta sakfelling yrði til þess að hann yrði að láta af stjórnarstörfum og sem forstjóri Baugs í þrjú ár. Gestur var þeirrar skoðunar að ekki gæti komið til sakfellingar. Það yrði hins vegar engin smá ákvörðun að sakfella Jón Ásgeir. 29.3.2007 15:29
Öldungadeildin samþykkir heimflutning frá Írak Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag frumvarp um að hefja heimflutning herliðsins í Írak eftir fjóra mánuði og að reynt skuli að ljúka honum á einu ári. Fullvíst þykir að forsetinn beiti neitunarvaldi gegn þessu frumvarpi, sem var hengt aftan í annað frumvarp um fjárframlög til stríðsrekstrar í Írak og Afganistan. 29.3.2007 15:26
Króníkan hættir útgáfu Ákveðið hefur verið að hætta útgáfu vikublaðsins Króníkunni í núverandi mynd. Blaðið hóf göngu sína um miðjan febrúar. Fundur stendur nú yfir, þar sem starfsmönnum er tilkynnt þessi ákvörðun. Samkvæmt bloggsíðu Steíngríms S. Ólafssonar verður starfsfólkinu boðin vinna á DV. 29.3.2007 14:42
Rafmagnstruflanir á Austurlandi Rafmagnsnotendur á Austurlandi mega búast við tímabundnum spennubreytingum vegna spennusetningar og prófana á rafbúnaði í Fljótsdalsstöð og hjá Fjarðaráli. Afleiðingarnar geta verið blikk í ljósum notenda en þær eiga hvorki að valda tjóni á búnaði né straumleysi. Einungis er um tímabundið ástand að ræða þar til rekstur Fljótsdalsstöðvar og Fjarðaráls hefst. 29.3.2007 14:36
Bretar meta ekki manngæsku okkar Ástæðan fyrir því að Íranar hættu við að láta lausan kvenkyns sjóliða sem þeir hafa í haldi var sú að þeim þótti Bretar ekki kunna nógu vel að meta manngæskuna sem í því fælist. Írönsk fréttastofa hefur eftir Alireza Afshar, hershöfðingja að; "Röng hegðun þeirra sem búa í Lundúnum, er ástæðan fyrir því að hætta var við." 29.3.2007 14:34
Flugvél slapp naumlega við geimrusl Það munaði 40 sekúndum að farþegaflugvél frá Chile yrði fyrir braki úr geimfari sem féll til jarðar yfir Suður-Kyrrahafi. Vélin var á leið til Auckland á Nýja Sjálandi. Rússar höfðu varað við því að eitt af geimförum þeirra væri að koma inn í gufuhvolfið, og myndi þar brotna upp og brenna. 29.3.2007 14:30
Missti ökuskírteinið á fyrsta degi Sautján ára piltur var tekinn fyrir hraðakstur í Ártúnsbrekku í gærkvöldi á 136 km hraða. Skírteinið var gefið út í gær en pilturinn er nýorðinn 17 ára. Hann má búast við að fá 75 þúsund króna sekt og missa ökuleyfið í einn mánuð. Hinn nýbakaði bílstjóri fær því að hugsa ráð sitt í um mánaðartíma áður en hann snýr aftur út í umferðina. 29.3.2007 14:25
Foreldrar vilja að mannræningja verði gefið frelsi Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, hitti í morgun börnin sem tekin voru í gíslingu í rútu í höfuðborginni, Maníla, í gær. Börnunum var boðið í forsetahöllina þar sem Arroyo ræddi við þau og foreldra þeirra. 29.3.2007 12:46
Wilson Muuga þriðja erlenda flutningaskipið sem lifir af? Flutningaskipið Wilson Muuga, sem situr á strandstað á Reykjanesi, gæri orðið þriðja erlenda flutningaskipið til að lifa af strand við Íslandsstrendur, ef það verður dregið á flot í stað þess að rífa það á staðnum. 29.3.2007 12:42
Vinstri grænir í sókn í Norðvesturkjördæmi Vinstri hreyfingin - grænt framboð er í mikilli sókn í Norðvesturkjördæmi samkvæmt nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Stöð 2 og kynnt var á fyrsta kosningafundi Stöðvar 2 í Stykkishólmi í gærkvöldi. 29.3.2007 12:39
Tekur viku að afferma súrálið Það tekur starfsmenn Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði viku að afferma skip sem kom með fyrsta súrálsfarminn til Reyðarfjarðar í gær. Reiknað er með að byrjað verði að framleiða ál í verksmiðjunni um páskana. 29.3.2007 12:30
Segir gögn sem sanni sakleysi ekki rannsökuð Jón Ásgeir Jóhannesson afhenti lögreglu í maí 2003 þrjár möppur með upplýsingum um bankareikninga Nordica. Þær áttu að renna stoðum undir framburð hans og Tryggva Jónssonar varðandi peningafjárhæðir sem runnu frá Baugi til Nordica. Gestur Jónsson gagnrýndi harðlega í Héraðsdómi í dag að þær hafi ekki verið rannsakaðar af lögreglu. Og að engin heildstæð rannsókn hafi farið fram á bókhaldi Nordica. 29.3.2007 12:27
Baráttusamtökin bjóða fram í öllum kjördæmum Nýtt framboðsafl, Baráttusamtökin, sem berjast fyrir hagsmunum aldraðra, öryrkja og breyttu skipulagi borgarinnar, býður fram í öllum kjördæmum fyrir alþingiskosningarnar í vor. Ein meginkrafan er að lágmarksbætur verði 210 þúsund krónur á mánuði. 29.3.2007 12:24
Nóg komið af uppbyggingu í Laugardal Íbúasamtök í Laugardal kalla eftir sterkum rökum frá yfirvöldum fyrir frekari uppbyggingu í dalnum. Þau telja nóg komið af byggingarframkvæmdum. Nú er fyrirhugað að byggja tvö fjölbýlishús á einum af fáum grænum blettum sem eftir eru í dalnum. Þetta segir í tilkynningu frá umhverfis-og útivistarhóp íbúasamtakanna. 29.3.2007 12:03
Hver eru lengstu fljót í heimi? Að mæla nákvæma lengd vatnsfalla er ekki alltaf eins einfalt og það kann að virðast í fyrstu. Þrír þættir skipta þar töluverðu máli: Hver skilgreind upptök vatnsfallsins eru, hvar það endar nákvæmlega og hversu nákvæm gögn eru notuð til þess að mæla fjarlægðina þar á milli. 29.3.2007 11:51
Lilja og Steinunn gefa íbúum Hofsóss sundlaug Lilja Pálmadóttir og Steinunn Jónsdóttir ætla að gefa íbúum Hofsóss 25 metra langa sundlaug með tilheyrandi aðstöðu. Frá þessu er greint á forsíðu héraðsfréttablaðsins Feykis sem gefið er út á norðurlandi vestra og kom út í dag. 29.3.2007 11:42
Norðmenn fela tóbakið Heilbrigðisráðherra Noregs, Sylvía Brustad, vill að bannað verði að hafa tóbaksvörur uppivið, í verslunum. Þær eiga að fara undir borðið þar sem engin sér þær. Rökin eru þau að börn og unglingar eigi ekki að þurfa að hafa sígarettur fyrir augunum þegar þeir fara út í búð. Einnig sé auðveldara fyrir fólk að hætta að reykja, ef ekki sé sífellt verið að minna það á ósiðinn. 29.3.2007 11:04
Íranar að leyfa breskum erindrekum að hitta sjóliðana Samkvæmt nýjust fregnum hafa Íranar sæst á að leyfa breskum erindrekum að hitta sjóliðana 15 sem handteknir voru á föstudaginn var. Þetta kemur fram á fréttasíðu Sky News í kvöld. Samkvæmt henni hafa Íranar einnig sagt að deilan eigi ekki eftir að leysast ef Bretar fallast ekki á að sjóliðarnir hafi verið á írönsku hafsvæði. 28.3.2007 23:21
Náðu samkomulagi um aðstoð við flóttamenn í Darfur Yfirvöld í Súdan og Sameinuðu þjóðirnar skýrðu í dag frá samkomulagi sem að hefði náðst um að auðvelda aðgang hjálparsveita að flóttamönnum í Darfur héraði Súdan. Sagt var frá þessu á sama tíma og sérstakur yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, John Holmes, var á ferðalagi um flóttamannabúðir í Chad, nágrannaríki Súdan. Þar átti hann í viðræðum við ættbálkahöfðingja á svæðinu sem og fólk sem býr í búðunum. 28.3.2007 22:46
Tekinn á 148 kílómetra hraða Ökumaður var tekinn á 148 kílómetra hraða í Ártúnsbrekkunni um klukkan tíu í kvöld. Maðurinn var á leið upp brekkuna og út úr bænum. Lögregla segir að hann megi búast við 90 þúsund króna sekt og tveggja mánaða sviptingu á ökuréttindum en hámarkshraði í Ártúnsbrekkunni er 80 kílómetrar á klukkustund. Annar ökumaður var síðan tekinn í kvöld á 113 kílómetra hraða á 70 kílómetra svæði. Hann má búast við sektum. 28.3.2007 22:17
Segir Fidel á batavegi Ramon Castro, einn af eldri bræðrum Fidels Castro, sagði fréttamönnum í dag að Fidel væri á batavegi og hefði það gott. Spurður um hvort að búast mætti við Fidel opinberlega á næstunni svaraði hann engu. Forseti Bólivíu sagði nýverið að hann byggist við því að Fidel myndi láta sjá sig á leiðtogaráðstefnu sem haldin verður þann 28. apríl næstkomandi. 28.3.2007 22:11
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent