Fleiri fréttir Íbúðaverð á hækkaði um rúm 2 prósent Verð á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um tvö komma þrjú prósent í janúar, miðað við desember, þar af hækkaði sérbýli um tvö komma tvö prósent og fjölbýli um tvö komma fjögur. Verð á íbúðum hefur sveiflast nokkuð milli mánaða undanfarið til hækkunar eða lækkunar. 17.2.2007 11:00 Stakk lögreglu í Keflavík af Sextán ára ökumaður var stöðvaður, grunaður um ölvunarakstur, við reglubundið eftirlit lögreglu í Keflavík um ellefuleytið í gærkvöldi. Drengurinn kom út úr bílnum en þegar hann gekk með lögreglumanni í átt að bíl lögreglunnar tók pilturinn á rás. Lögregla náði ekki að elta hann uppi en fann hann skömmu síðar. 17.2.2007 10:42 Sprengja í stúlknaskóla í Íran Sprengja sprakk í stúlknaskóla í Zahedan í Íran klukkan tíu í kvöld að staðartíma. Byssumenn skutu á fólk á svæðinu eftir að sprengjan sprakk. Þetta er önnur sprengjan í bænum á þremur dögum. Ekki er vitað hvort einhver lést eða slasaðist í tilræðinu. Öryggisverðir lokuðu götum og umkringdu hús sem þeir töldu byssumennina vera í. 16.2.2007 22:14 Ákvarðanir Bush fordæmdar Ályktun gegn fjölgun bandaríska heraflans í Írak var samþykkt í fulltrúadeild bandaríska þingsins í dag. Ályktunin fordæmir ákvarðanir forsetans um fjölgun í heraflanum í Írak. 246 þingmenn greiddu atkvæði með ályktuninni en 182 gegn. Samþykktin neyðir Bush ekki til aðgerða, en sendir skýr skilaboð um að byrja að senda bandaríska hermenn heim frá Írak. 16.2.2007 21:14 Nasistavín undir hamarinn Flaska af Nasistavíni með mynd af Hitler verður boðin upp í Plymouth í Bretlandi á næstunni. Rauðvínsflaskan “Fuhrerwein” er frá árinu 1943 og markaði 54 ára afmæli Hitlers. Á miðanum á flöskunni er mynd af Hitler í hátísku jakkafötum með bindi. Annar miði á hálsinum skartar mynd af erni sem situr ofan á hakakrossinum. 16.2.2007 20:56 Slapp úr snjóflóði á Hrafnseyrarheiði Maður slapp úr snjóflóði á Hrafnseyrarheiði í dag. Hann var að vinna við að opna veg, sem var ófær vegna snjóþyngsla, þegar snjóflóðið féll. Manninum tókst að handmoka sig út úr tækinu og komast þannig úr flóðinu. Mikil mildi eru að snjóflóðið hreif moksturstækið ekki með sér, því snarbrött hlíð er hinum megin við veginn. 16.2.2007 20:30 Skutu sprengjuvörpum að hersveitum í Sómalíu Árásarmenn í Sómalíu skutu sprengjuvörpum að hersveitum stjórnarinnar og eþíópískum hermönnum í Mogadishu höfuðborg Sómalíu í dag. Engan sakaði í tilræðinu. Fjórir óbreyttir borgarar létust í röð sprenginga í borginni í gær. Árásin í dag er sú síðasta í röð árása öfgasinna í borginni. 16.2.2007 20:15 Hefur hikstað í þrjár vikur Bandarísk unglingsstúlka virðist hafa orðið fyrir sérlega illu umtali því undanfarnar þrjár vikur hefur hún hikstað án afláts. Stúlkan hikstar um það bil fimmtíu sinnum á mínútu og eru læknar sem hafa rannsakað hana gersamlega ráðþrota yfir þessum hamagangi. 16.2.2007 20:15 73 prósent Reykvíkinga á einkabíl til vinnu 73 prósent Reykvíkinga aka sjálfir til vinnu eða í skóla. Aðeins fjögur prósent eru farþegar í bíl á leið til vinnu. Af sjö stórum borgum á Norðurlöndunum er langmest bílaeign íbúa í Reykjavík. Þá er fjöldi ferða í einkabíl mestur og fjöldi ekinna kílómetra. Þetta kemur fram í símakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Umhverfissvið Reykjavíkurborgar. 16.2.2007 20:03 Enn logar í japanska hvalskipinu Óttast er að umhverfisslys geti verið í uppsiglingu í Suður-Íshafinu eftir að eldur kom upp í japönsku hvalveiðiskipi þar í gær. Hafsvæðið er eitt hið tærasta í heiminum og þar eru einnig varpstöðvar mörgæsa. Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að koma böndum á eldinn hafa skipverjar ekki viljað þiggja hjálp frá umhverfisverndarsinnum á svæðinu. 16.2.2007 19:45 Fiskur á meðgöngu meinhollur Fiskneysla á meðgöngu gerir börnin bæði gáfaðri og betri í samskiptum þegar þau vaxa úr grasi. Þetta er niðurstaða könnunar sem birtist í breska læknatímaritinu Lancet í dag. 16.2.2007 19:15 Sjö al-Kaída liðar fengu lífstíðardóm Tyrkneskur dómstóll hefur dæmt sjö al-Kaída liða í lífstíðarfangelsi vegna sprenginganna í Istanbul árið 2003. Sextíu manns létust í sprengingunum sem var miðað að Bretum og gyðingum. Höfuðpaur sprenginganna Louai al Sakka var einn hinna dæmdu, en hann tryggði fjármagn fyrir bílasprengingarnar. Þær sprungu við tvö samkomuhús gyðinga, bresku ræðismannsskrifstofuna og útibú HSBC bankans. 16.2.2007 19:10 CIA-mönnum stefnt fyrir rétt Ítalskur dómari hefur stefnt 26 bandarískum mönnum fyrir rétt vegna ráns á egypskum kennimanni í Mílanó árið 2003. Flestir mannanna starfa fyrir leyniþjónustuna CIA en þeir eru sagðir hafa flutt klerkinn Osama Mustafa Hassan nauðugan í fangelsi í Egyptalandi vegna gruns um að hann tengdist hryðjuverkum. 16.2.2007 19:00 Sveitarfélögin fá ekkert af fjármagnstekjum og einkahlutafélögum Fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga ætla að koma fram með hugmyndir um tekjutilfærslu frá ríki til sveitarfélaga fyrir lok næsta mánaðar. Í dag fá sveitarfélögin engar tekjur af einkahlutafélögum og einstaklingum sem eingöngu hafa fjármagnstekjur. 16.2.2007 18:45 Landsbanki og Landsvirkjun í alþjóðleg orkuviðskipti Landsbankinn og Landsvirkjun sameinuðust um stofnun alþjóðlegs fjárfestingafélags sem ætlað er að fjárfesta í endurnýjanlegri orkuvinnslu með áherslu á vatnsafl. Hvort fyrirtæki um sig leggur tvo milljarða til hins nýja félags. 16.2.2007 18:37 Vill banna klámráðstefnu Talskona Stígamóta telur fullvíst að íslensk stjórnvöld muni banna fyrirhugaða ráðstefnu dreifingaraðila á klámi sem fram á að fara í Reykjavík í byrjun mars. Stígamótakonur segja að tenglar á heimasíðu ráðstefnunnar vísi á efni þar sem ýtt er undir mansal og barnaklám. 16.2.2007 18:30 Kostnaður óljós við tafir á byggingu nýrrar sundlaugar í Mosfellsbæ Ekki er vitað hvaða tafir og tæknilegir örðugleikar við byggingu nýrrar sundlaugar í Mosfellsbæ munu kosta, segir forseti bæjarstjórnar. Hann segir þó að ekkert muni koma í veg fyrir að sundlaugin verði opnuð á sumardaginn fyrsta, en til stóð að taka hana í notkun í október síðastliðnum. 16.2.2007 18:30 Seðlabankinn hefur brugðist Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið ættu að snúa sér að því að vinna fyrir almenning, segir Guðmundur Ólafsson lektor við Háskóla Íslands, og telur bankana ekkert muna um að bæta vaxtakjör til almennings. 16.2.2007 18:30 Tvöhundruð manns íhuga málsókn ef hæstiréttur staðfestir Essodóminn 16.2.2007 18:28 Tvíburar skýring DNA gátu Lögreglan í Shuangcheng borg í Kína var ráðþrota þegar DNA sýni leiddi í ljós að einn og sami maðurinn hafði framið glæp á tveimur stöðum á sama tíma. Rannsóknarlögreglumenn fengu tvær tilkynningar um innbrot og nauðgun frá mismunandi stöðum. 16.2.2007 18:09 Fer fram á barnaklámrannsókn ráðstefnugesta Borgarstjóri hefur óskað eftir að lögregla rannsaki hvort þátttakendur á klámráðstefnu kunni að vera framleiðendur barnakláms, eða annars ólögmæts klámefnis. Í yfirlýsingu segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson að rannsóknin yrði til að upplýsa um ólögmæta starfsemi og gæti orðið til að koma í veg fyrir dvöl meintra kynferðisbrotamanna hér á landi. 16.2.2007 17:31 Yfirheyrslur yfir Tryggva halda áfram á mánudag Yfirheyrslur yfir Tryggva Jónssyni, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, verður fram haldið á mánudaginn. Tryggvi sat í dómssal í allan dag og svaraði spurningum um meint bókhaldsbrot. 16.2.2007 16:58 Neytendasamtökin skoða næstu skref Neytendasamtökin telja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sigurðar Hreinssonar í dag afar mikilvæga. Samtökin tóku að sér mál Sigurðar og var það hugsað sem prófmál fyrir fleiri neytendur sem þangað höfðu leitað. Samtökin skoða nú næstu skref. 16.2.2007 16:39 Tilfærslur hjá lögreglunni Jónmundur Kjartansson yfirlögregluþjónn flyst frá embætti ríkislögreglustjóra til starfa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hinn 1. mars næstkomandi. Þar mun hann sinna innri endurskoðun embættisins. 16.2.2007 16:07 Skýjaborgir veita engum atvinnu Eitt mikilvægasta verkefni íslenskra stjórnamálamanna á næstu árum er að finna leiðir til að sætta náttúruverndar- og nýtingarsjónarmið. Þetta sagði Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra á aðalfundi Félags íslenskra stórkaupmanna í dag. Valgerður sagði slíkt hins vegar ekki mega vera á forsendum höfuðborgarsvæðisins. 16.2.2007 15:45 Rússar boða friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna Utanríkisráðherra Rússlands segir líklegt að Ísraelar og Palestínumenn fallist á að hefja friðarviðræður á nýjan leik, þegar leiðtogar landanna hittast hinn nítjánda þessa mánaðar. Sergei Lavrov, sagði á fundi með fréttamönnum að hann búist við því að leiðtogarnir samþykki að hefja viðræður um rammasamkomulag um endanlega lausn á deilum sínum. 16.2.2007 15:35 Kröfur beinast fyrst og fremst að atvinnulífinu Ný stefnumörkun ríkisstjórnar Íslands í loftslagsmálum getur að mati Samtaka atvinnulífsins haft mikil áhrif á efnahag landsins. Samtökin segja kröfur ríkisstjórnarinnar beinast fyrst og fremst að atvinnulífinu. 16.2.2007 15:27 Fært aftur um Hrafnseyrarheiði Fært er orðið um Hrafnseyrarheiði en hún var lokuð um tíma vegna snjóflóð sem þar féll. Greiðfært er um allt Suður- og Vesturland en þó er hálka sumstaðar á Snæfellsnesi. 16.2.2007 14:40 Sumarbústaður fuðraði upp Slökkviliðið er að ljúka slökkvistarfi við sumarbústað við Úlfarsfell sem brann til kaldra kola. Vegfarandi tilkynnti um eld í bústaðnum um eitt leytið og var bústaðurinn alelda þegar slökkvilið kom á svæðið. 16.2.2007 14:26 Seldi 10 ára dóttur sína Pakistanskur maður seldi tíu ára gamla dóttur sína fyrir 350.000 krónur til þess að borga augnaðgerð fyrir sjálfan sig. Talsmaður lögregelunnar í þorpinu þar sem þetta gerðist segir að faðirinn hafi lofað að afhenda öðrum þorpsbúa dóttur sína þegar hún næði kynþroskaaldri. 16.2.2007 14:21 Ker þarf að greiða bætur vegna olíusamráðs Ker, sem áður átti Esso, var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmt til að greiða Sigurði Hreinssyni, húsasmiði frá Húsavík, 15.000 krónur í bætur með vöxtum. Sigurður krafði félagið um bætur vegna bensíns sem hann keypti á því tímabili sem meint samráð olíufélaganna stóð yfir. 16.2.2007 13:59 Hrafnseyrarheiði lokuð vegna snjóflóðs Hrafnseyrarheiði er lokuð vegna snjóflóðs sem féll á heiðina. Á Vestfjörðum er víða hálka en fært um Dynjandisheiði. 16.2.2007 13:55 Stígamót vilja að ráðamenn komi í veg fyrir klámþing Samtökin Stígamót skora á marga af helstu ráðamönnum landsins að koma í veg fyrir að klámþing verði haldið á Íslandi. 16.2.2007 13:31 Alelda sumarbústaður við Úlfarsfell Slökkvilið berst nú við eld í sumarbústað undir Úlfarsfelli við Vesturlandsveg. Bústaðurinn er alelda. Ekki er vitað til þess að neinn hafi verið inni í bústaðnum. 16.2.2007 13:15 Óttast þjóðarmorð Að mati Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna er hætta á að ófriður í Afríkuríkinu Tsjad geti orðið að þjóðarmorði af svipaðri stærðargráðu og í Rúanda 1994 verði ekkert að gert. 16.2.2007 13:15 Miklu fleiri vilja en fá Ríflega 2700 umsóknir bárust um leyfi til hreindýaveiða áður en umsóknarfrestur rann út á miðnætti. Ljóst er að ekki geta allir veitt sem vilja því hreindýrakvótinn í ár er tæplega 1140 dýr. 16.2.2007 13:08 Sonur Castros segir föður sinn á batavegi Fidel Castro Diaz Balart, sonur Castros Kúbuleiðtoga, kveðst fullviss um að faðir sinn nái fullri heilsu innan skamms. Balart, sem er 57 ára, sagði á bókasýningu í Havana í gær að skýr teikn væru um bata hins aldna leiðtoga en hann gekkst undir erfiða skurðaðgerð í júlí síðastliðnum. 16.2.2007 13:00 Fjölskylda borin röngum sökum í Borgarnesi Fjölskylda í Borgarnesi hefur leitað ásjár lögreglunnar vegna þess að þar ganga sögur fjöllunum hærra um að lögreglan hafi gert húsleit hjá fjölskyldunni og fundið fíkniefni. Fjölskyldan er sökuð um að stunda fíkniefnasölu og hefur orðið fyrir aðkasti vegna þess. 16.2.2007 12:45 Reynt að bregðast við hlýnuninni Á ráðstefnu stjórnmálamanna frá áhrifamestu ríkjum heims náðist samkomulag um aðgerðir gegn hlýnun jarðar. Þótt ráðstefnan hafi engin formleg völd er hún talin eiga eftir að hafa fordæmisgildi fyrir þær áðstafanir sem gripið verður til í þessum efnum í framtíðinni. 16.2.2007 12:15 Árni Johnsen hefur enga aðkomu að samgöngum milli Eyja og lands Árni Johnsen hefur enga aðkomu að samgöngumálum milli Vestamannaeyja og lands eins og staðan er nú, segir Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra. Hann segir að sérstaka samþykkt þurfi hjá Alþingi til að ráðast í rannsóknir á hagkvæmni jarðganga milli lands og Eyja. 16.2.2007 12:15 Kókaín í tonnavís á Spáni Spænska tollgæslan komst í feitt í vikunni þegar hún fann þrjú og hálft tonn af kókaíni um borð í finnsku kaupskipi. Rökstuddur grunur um að ellefu tonnum til viðbótar hafi verið hent útbyrðis. 16.2.2007 12:00 Handrukkurum sleppt úr haldi Karli og konu á þrítugsaldri, sem voru handtekin í SPRON í gær, var í morgun sleppt úr haldi. Fólkið var handtekið eftir að hafa numið á brott ungan mann af heimili sínu, ógnað honum með hnúum og hnefum og farið með hann nauðugan í SPRON í Skeifunni þar sem hann átti að taka út pening til að borga skuld. 16.2.2007 12:00 Þurfa að sæta réttarhaldi Dómari í Mílanó hefur skipað 26 Bandaríkjamönnum að mæta fyrir rétt vegna ákæra um mannrán. Talið er að flestir þeirra séu starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa rænt manni sem var grunaður um hryðjuverk og flutt hann til Egyptalands þar sem hann var síðar pyntaður. 16.2.2007 11:36 Pornographers To Convene In Reykjavík Uncovering a story that has already enraged Iceland’s feminist collective to an oft-reached boiling point, RÚV reported yesterday that up to 150 veterans of the international pornography industry will convene for a week of networking and fun in Iceland next month. The annual convention is referred to as Snowgathering and is apparently one of the largest aggregations of web-based porn-merchants in the world. 16.2.2007 11:24 Tsjad gæti orðið nýtt Rúanda Ofbeldið í Tsjad gæti stigmagnast og orðið sambærilegt þjóðarmorðunum í Rúanda. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði frá þessu í morgun. Hún sagði að ofbeldið í suðausturhluta Tsjad væri farið að líkjast því í Darfur héraði Súdan. 16.2.2007 11:22 Sjá næstu 50 fréttir
Íbúðaverð á hækkaði um rúm 2 prósent Verð á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um tvö komma þrjú prósent í janúar, miðað við desember, þar af hækkaði sérbýli um tvö komma tvö prósent og fjölbýli um tvö komma fjögur. Verð á íbúðum hefur sveiflast nokkuð milli mánaða undanfarið til hækkunar eða lækkunar. 17.2.2007 11:00
Stakk lögreglu í Keflavík af Sextán ára ökumaður var stöðvaður, grunaður um ölvunarakstur, við reglubundið eftirlit lögreglu í Keflavík um ellefuleytið í gærkvöldi. Drengurinn kom út úr bílnum en þegar hann gekk með lögreglumanni í átt að bíl lögreglunnar tók pilturinn á rás. Lögregla náði ekki að elta hann uppi en fann hann skömmu síðar. 17.2.2007 10:42
Sprengja í stúlknaskóla í Íran Sprengja sprakk í stúlknaskóla í Zahedan í Íran klukkan tíu í kvöld að staðartíma. Byssumenn skutu á fólk á svæðinu eftir að sprengjan sprakk. Þetta er önnur sprengjan í bænum á þremur dögum. Ekki er vitað hvort einhver lést eða slasaðist í tilræðinu. Öryggisverðir lokuðu götum og umkringdu hús sem þeir töldu byssumennina vera í. 16.2.2007 22:14
Ákvarðanir Bush fordæmdar Ályktun gegn fjölgun bandaríska heraflans í Írak var samþykkt í fulltrúadeild bandaríska þingsins í dag. Ályktunin fordæmir ákvarðanir forsetans um fjölgun í heraflanum í Írak. 246 þingmenn greiddu atkvæði með ályktuninni en 182 gegn. Samþykktin neyðir Bush ekki til aðgerða, en sendir skýr skilaboð um að byrja að senda bandaríska hermenn heim frá Írak. 16.2.2007 21:14
Nasistavín undir hamarinn Flaska af Nasistavíni með mynd af Hitler verður boðin upp í Plymouth í Bretlandi á næstunni. Rauðvínsflaskan “Fuhrerwein” er frá árinu 1943 og markaði 54 ára afmæli Hitlers. Á miðanum á flöskunni er mynd af Hitler í hátísku jakkafötum með bindi. Annar miði á hálsinum skartar mynd af erni sem situr ofan á hakakrossinum. 16.2.2007 20:56
Slapp úr snjóflóði á Hrafnseyrarheiði Maður slapp úr snjóflóði á Hrafnseyrarheiði í dag. Hann var að vinna við að opna veg, sem var ófær vegna snjóþyngsla, þegar snjóflóðið féll. Manninum tókst að handmoka sig út úr tækinu og komast þannig úr flóðinu. Mikil mildi eru að snjóflóðið hreif moksturstækið ekki með sér, því snarbrött hlíð er hinum megin við veginn. 16.2.2007 20:30
Skutu sprengjuvörpum að hersveitum í Sómalíu Árásarmenn í Sómalíu skutu sprengjuvörpum að hersveitum stjórnarinnar og eþíópískum hermönnum í Mogadishu höfuðborg Sómalíu í dag. Engan sakaði í tilræðinu. Fjórir óbreyttir borgarar létust í röð sprenginga í borginni í gær. Árásin í dag er sú síðasta í röð árása öfgasinna í borginni. 16.2.2007 20:15
Hefur hikstað í þrjár vikur Bandarísk unglingsstúlka virðist hafa orðið fyrir sérlega illu umtali því undanfarnar þrjár vikur hefur hún hikstað án afláts. Stúlkan hikstar um það bil fimmtíu sinnum á mínútu og eru læknar sem hafa rannsakað hana gersamlega ráðþrota yfir þessum hamagangi. 16.2.2007 20:15
73 prósent Reykvíkinga á einkabíl til vinnu 73 prósent Reykvíkinga aka sjálfir til vinnu eða í skóla. Aðeins fjögur prósent eru farþegar í bíl á leið til vinnu. Af sjö stórum borgum á Norðurlöndunum er langmest bílaeign íbúa í Reykjavík. Þá er fjöldi ferða í einkabíl mestur og fjöldi ekinna kílómetra. Þetta kemur fram í símakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Umhverfissvið Reykjavíkurborgar. 16.2.2007 20:03
Enn logar í japanska hvalskipinu Óttast er að umhverfisslys geti verið í uppsiglingu í Suður-Íshafinu eftir að eldur kom upp í japönsku hvalveiðiskipi þar í gær. Hafsvæðið er eitt hið tærasta í heiminum og þar eru einnig varpstöðvar mörgæsa. Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að koma böndum á eldinn hafa skipverjar ekki viljað þiggja hjálp frá umhverfisverndarsinnum á svæðinu. 16.2.2007 19:45
Fiskur á meðgöngu meinhollur Fiskneysla á meðgöngu gerir börnin bæði gáfaðri og betri í samskiptum þegar þau vaxa úr grasi. Þetta er niðurstaða könnunar sem birtist í breska læknatímaritinu Lancet í dag. 16.2.2007 19:15
Sjö al-Kaída liðar fengu lífstíðardóm Tyrkneskur dómstóll hefur dæmt sjö al-Kaída liða í lífstíðarfangelsi vegna sprenginganna í Istanbul árið 2003. Sextíu manns létust í sprengingunum sem var miðað að Bretum og gyðingum. Höfuðpaur sprenginganna Louai al Sakka var einn hinna dæmdu, en hann tryggði fjármagn fyrir bílasprengingarnar. Þær sprungu við tvö samkomuhús gyðinga, bresku ræðismannsskrifstofuna og útibú HSBC bankans. 16.2.2007 19:10
CIA-mönnum stefnt fyrir rétt Ítalskur dómari hefur stefnt 26 bandarískum mönnum fyrir rétt vegna ráns á egypskum kennimanni í Mílanó árið 2003. Flestir mannanna starfa fyrir leyniþjónustuna CIA en þeir eru sagðir hafa flutt klerkinn Osama Mustafa Hassan nauðugan í fangelsi í Egyptalandi vegna gruns um að hann tengdist hryðjuverkum. 16.2.2007 19:00
Sveitarfélögin fá ekkert af fjármagnstekjum og einkahlutafélögum Fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga ætla að koma fram með hugmyndir um tekjutilfærslu frá ríki til sveitarfélaga fyrir lok næsta mánaðar. Í dag fá sveitarfélögin engar tekjur af einkahlutafélögum og einstaklingum sem eingöngu hafa fjármagnstekjur. 16.2.2007 18:45
Landsbanki og Landsvirkjun í alþjóðleg orkuviðskipti Landsbankinn og Landsvirkjun sameinuðust um stofnun alþjóðlegs fjárfestingafélags sem ætlað er að fjárfesta í endurnýjanlegri orkuvinnslu með áherslu á vatnsafl. Hvort fyrirtæki um sig leggur tvo milljarða til hins nýja félags. 16.2.2007 18:37
Vill banna klámráðstefnu Talskona Stígamóta telur fullvíst að íslensk stjórnvöld muni banna fyrirhugaða ráðstefnu dreifingaraðila á klámi sem fram á að fara í Reykjavík í byrjun mars. Stígamótakonur segja að tenglar á heimasíðu ráðstefnunnar vísi á efni þar sem ýtt er undir mansal og barnaklám. 16.2.2007 18:30
Kostnaður óljós við tafir á byggingu nýrrar sundlaugar í Mosfellsbæ Ekki er vitað hvaða tafir og tæknilegir örðugleikar við byggingu nýrrar sundlaugar í Mosfellsbæ munu kosta, segir forseti bæjarstjórnar. Hann segir þó að ekkert muni koma í veg fyrir að sundlaugin verði opnuð á sumardaginn fyrsta, en til stóð að taka hana í notkun í október síðastliðnum. 16.2.2007 18:30
Seðlabankinn hefur brugðist Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið ættu að snúa sér að því að vinna fyrir almenning, segir Guðmundur Ólafsson lektor við Háskóla Íslands, og telur bankana ekkert muna um að bæta vaxtakjör til almennings. 16.2.2007 18:30
Tvíburar skýring DNA gátu Lögreglan í Shuangcheng borg í Kína var ráðþrota þegar DNA sýni leiddi í ljós að einn og sami maðurinn hafði framið glæp á tveimur stöðum á sama tíma. Rannsóknarlögreglumenn fengu tvær tilkynningar um innbrot og nauðgun frá mismunandi stöðum. 16.2.2007 18:09
Fer fram á barnaklámrannsókn ráðstefnugesta Borgarstjóri hefur óskað eftir að lögregla rannsaki hvort þátttakendur á klámráðstefnu kunni að vera framleiðendur barnakláms, eða annars ólögmæts klámefnis. Í yfirlýsingu segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson að rannsóknin yrði til að upplýsa um ólögmæta starfsemi og gæti orðið til að koma í veg fyrir dvöl meintra kynferðisbrotamanna hér á landi. 16.2.2007 17:31
Yfirheyrslur yfir Tryggva halda áfram á mánudag Yfirheyrslur yfir Tryggva Jónssyni, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, verður fram haldið á mánudaginn. Tryggvi sat í dómssal í allan dag og svaraði spurningum um meint bókhaldsbrot. 16.2.2007 16:58
Neytendasamtökin skoða næstu skref Neytendasamtökin telja niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Sigurðar Hreinssonar í dag afar mikilvæga. Samtökin tóku að sér mál Sigurðar og var það hugsað sem prófmál fyrir fleiri neytendur sem þangað höfðu leitað. Samtökin skoða nú næstu skref. 16.2.2007 16:39
Tilfærslur hjá lögreglunni Jónmundur Kjartansson yfirlögregluþjónn flyst frá embætti ríkislögreglustjóra til starfa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hinn 1. mars næstkomandi. Þar mun hann sinna innri endurskoðun embættisins. 16.2.2007 16:07
Skýjaborgir veita engum atvinnu Eitt mikilvægasta verkefni íslenskra stjórnamálamanna á næstu árum er að finna leiðir til að sætta náttúruverndar- og nýtingarsjónarmið. Þetta sagði Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra á aðalfundi Félags íslenskra stórkaupmanna í dag. Valgerður sagði slíkt hins vegar ekki mega vera á forsendum höfuðborgarsvæðisins. 16.2.2007 15:45
Rússar boða friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna Utanríkisráðherra Rússlands segir líklegt að Ísraelar og Palestínumenn fallist á að hefja friðarviðræður á nýjan leik, þegar leiðtogar landanna hittast hinn nítjánda þessa mánaðar. Sergei Lavrov, sagði á fundi með fréttamönnum að hann búist við því að leiðtogarnir samþykki að hefja viðræður um rammasamkomulag um endanlega lausn á deilum sínum. 16.2.2007 15:35
Kröfur beinast fyrst og fremst að atvinnulífinu Ný stefnumörkun ríkisstjórnar Íslands í loftslagsmálum getur að mati Samtaka atvinnulífsins haft mikil áhrif á efnahag landsins. Samtökin segja kröfur ríkisstjórnarinnar beinast fyrst og fremst að atvinnulífinu. 16.2.2007 15:27
Fært aftur um Hrafnseyrarheiði Fært er orðið um Hrafnseyrarheiði en hún var lokuð um tíma vegna snjóflóð sem þar féll. Greiðfært er um allt Suður- og Vesturland en þó er hálka sumstaðar á Snæfellsnesi. 16.2.2007 14:40
Sumarbústaður fuðraði upp Slökkviliðið er að ljúka slökkvistarfi við sumarbústað við Úlfarsfell sem brann til kaldra kola. Vegfarandi tilkynnti um eld í bústaðnum um eitt leytið og var bústaðurinn alelda þegar slökkvilið kom á svæðið. 16.2.2007 14:26
Seldi 10 ára dóttur sína Pakistanskur maður seldi tíu ára gamla dóttur sína fyrir 350.000 krónur til þess að borga augnaðgerð fyrir sjálfan sig. Talsmaður lögregelunnar í þorpinu þar sem þetta gerðist segir að faðirinn hafi lofað að afhenda öðrum þorpsbúa dóttur sína þegar hún næði kynþroskaaldri. 16.2.2007 14:21
Ker þarf að greiða bætur vegna olíusamráðs Ker, sem áður átti Esso, var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmt til að greiða Sigurði Hreinssyni, húsasmiði frá Húsavík, 15.000 krónur í bætur með vöxtum. Sigurður krafði félagið um bætur vegna bensíns sem hann keypti á því tímabili sem meint samráð olíufélaganna stóð yfir. 16.2.2007 13:59
Hrafnseyrarheiði lokuð vegna snjóflóðs Hrafnseyrarheiði er lokuð vegna snjóflóðs sem féll á heiðina. Á Vestfjörðum er víða hálka en fært um Dynjandisheiði. 16.2.2007 13:55
Stígamót vilja að ráðamenn komi í veg fyrir klámþing Samtökin Stígamót skora á marga af helstu ráðamönnum landsins að koma í veg fyrir að klámþing verði haldið á Íslandi. 16.2.2007 13:31
Alelda sumarbústaður við Úlfarsfell Slökkvilið berst nú við eld í sumarbústað undir Úlfarsfelli við Vesturlandsveg. Bústaðurinn er alelda. Ekki er vitað til þess að neinn hafi verið inni í bústaðnum. 16.2.2007 13:15
Óttast þjóðarmorð Að mati Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna er hætta á að ófriður í Afríkuríkinu Tsjad geti orðið að þjóðarmorði af svipaðri stærðargráðu og í Rúanda 1994 verði ekkert að gert. 16.2.2007 13:15
Miklu fleiri vilja en fá Ríflega 2700 umsóknir bárust um leyfi til hreindýaveiða áður en umsóknarfrestur rann út á miðnætti. Ljóst er að ekki geta allir veitt sem vilja því hreindýrakvótinn í ár er tæplega 1140 dýr. 16.2.2007 13:08
Sonur Castros segir föður sinn á batavegi Fidel Castro Diaz Balart, sonur Castros Kúbuleiðtoga, kveðst fullviss um að faðir sinn nái fullri heilsu innan skamms. Balart, sem er 57 ára, sagði á bókasýningu í Havana í gær að skýr teikn væru um bata hins aldna leiðtoga en hann gekkst undir erfiða skurðaðgerð í júlí síðastliðnum. 16.2.2007 13:00
Fjölskylda borin röngum sökum í Borgarnesi Fjölskylda í Borgarnesi hefur leitað ásjár lögreglunnar vegna þess að þar ganga sögur fjöllunum hærra um að lögreglan hafi gert húsleit hjá fjölskyldunni og fundið fíkniefni. Fjölskyldan er sökuð um að stunda fíkniefnasölu og hefur orðið fyrir aðkasti vegna þess. 16.2.2007 12:45
Reynt að bregðast við hlýnuninni Á ráðstefnu stjórnmálamanna frá áhrifamestu ríkjum heims náðist samkomulag um aðgerðir gegn hlýnun jarðar. Þótt ráðstefnan hafi engin formleg völd er hún talin eiga eftir að hafa fordæmisgildi fyrir þær áðstafanir sem gripið verður til í þessum efnum í framtíðinni. 16.2.2007 12:15
Árni Johnsen hefur enga aðkomu að samgöngum milli Eyja og lands Árni Johnsen hefur enga aðkomu að samgöngumálum milli Vestamannaeyja og lands eins og staðan er nú, segir Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra. Hann segir að sérstaka samþykkt þurfi hjá Alþingi til að ráðast í rannsóknir á hagkvæmni jarðganga milli lands og Eyja. 16.2.2007 12:15
Kókaín í tonnavís á Spáni Spænska tollgæslan komst í feitt í vikunni þegar hún fann þrjú og hálft tonn af kókaíni um borð í finnsku kaupskipi. Rökstuddur grunur um að ellefu tonnum til viðbótar hafi verið hent útbyrðis. 16.2.2007 12:00
Handrukkurum sleppt úr haldi Karli og konu á þrítugsaldri, sem voru handtekin í SPRON í gær, var í morgun sleppt úr haldi. Fólkið var handtekið eftir að hafa numið á brott ungan mann af heimili sínu, ógnað honum með hnúum og hnefum og farið með hann nauðugan í SPRON í Skeifunni þar sem hann átti að taka út pening til að borga skuld. 16.2.2007 12:00
Þurfa að sæta réttarhaldi Dómari í Mílanó hefur skipað 26 Bandaríkjamönnum að mæta fyrir rétt vegna ákæra um mannrán. Talið er að flestir þeirra séu starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa rænt manni sem var grunaður um hryðjuverk og flutt hann til Egyptalands þar sem hann var síðar pyntaður. 16.2.2007 11:36
Pornographers To Convene In Reykjavík Uncovering a story that has already enraged Iceland’s feminist collective to an oft-reached boiling point, RÚV reported yesterday that up to 150 veterans of the international pornography industry will convene for a week of networking and fun in Iceland next month. The annual convention is referred to as Snowgathering and is apparently one of the largest aggregations of web-based porn-merchants in the world. 16.2.2007 11:24
Tsjad gæti orðið nýtt Rúanda Ofbeldið í Tsjad gæti stigmagnast og orðið sambærilegt þjóðarmorðunum í Rúanda. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði frá þessu í morgun. Hún sagði að ofbeldið í suðausturhluta Tsjad væri farið að líkjast því í Darfur héraði Súdan. 16.2.2007 11:22