Fleiri
Þrjár bílsprengjur í einu 23.11.2006 13:51 Landsvirkjun styrkir Ómar Landsvirkjun ætlar að styrkja verkefni Ómars Ragnarssonar, Örkina, um fjórar milljónir króna. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, lýsti þessu yfir í opnum fundi í morgun. Ómar óskaði eftir því að Landsvirkjun styrkti verkefni hans en Ómar hefur verið að kvikmynda myndun Hálslóns. 23.11.2006 13:45 Orkumál í myrkri Það varð nokkur þögn þegar ljósin slokknuðu í Brussel, á enn einum ráðherrafundi Evrópusambandsins, í dag. Eftir nokkurt þóf var ákveðið að halda fundinum áfram, við kertaljós. 23.11.2006 13:43 Flugvél lenti í Marseille vegna sprengjuhótunar Flugvél á leið frá París til Fílabeinsstrandarinnar var skipað að lenda í Marseilli fyrr í dag vegna tilkynningar um að sprengja væri um borð. Vélin lenti heilu og höldnu í Marseille og farþegar fóru frá borði en sprengjusveit leitar nú að hugsanlegri sprengju. 23.11.2006 13:19 Töluvert tjón í innbroti hjá Bræðrunum Ormsson Töluvert tjón varð í raftækjaverslun Bræðranna Ormsson í Síðumúla í nótt þegar þjófur eða þjófar réðust þar inn og höfðu á brott með sér tvö dýr sjónvarpstæki. 23.11.2006 13:15 Sjá næstu 50 fréttir
Fjárlögum vísað til þriðju umræðu Atkvæðagreiðslu eftir aðra umræðu um fjárlög ársins 2007 lauk nú fyrir stundu og var samþykkt að vísa þeim til þriðju umræðu. Þingmenn stjórnarmeirihlutans greiddu því atkvæði en stjórnarandstaðan sat hjá við atkvæðagreiðsluna. 24.11.2006 11:57
Tillaga að framboðslista í NV-kjördæmi kynnt á morgun Tillaga að endanlegum lista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar verður kynnt á kjördæmisþingi í Reykjaskóla í Hrútafirði um helgina, en samkvæmt henni skipa þátttakendur úr prófkjöri flokksins í kjördæminu sjö af níu efstu sætum listans. Skessuhorn birtir listann og segist hafa hann samkvæmt áreiðanlegum heimildum. 24.11.2006 11:49
"Föstudagurinn svarti" að renna upp Bandarískir neytendur búa sig nú undir "Föstudaginn svarta" en sá dagur, dagurinn eftir að Þakkagjörðarhátíðinni lýkur þar ytra, er upphafsdagur jólaverslunar í Bandaríkjunum. Á þeim degi í fyrra streymdu tvær milljónir bandaríkjamanna í verslunarleiðangur og þá bara í Wal-Mart. Og það aðeins á fyrsta klukkutímanum sem opið var. 23.11.2006 23:40
Litvinenko látinn Alexander Litvinenko, fyrrum rússneskur njósnari sem var eitrað fyrir í upphafi mánaðarins, er látinn. Frá þessu skýrði sjúkrahúsið sem hann dvaldist á nú rétt í þessu. 23.11.2006 23:07
Slagsmál í flugvél Slagsmál urðu í flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Egilsstöðum í kvöld. Átökin hófust þegar að vélin var í aðflugi. Var árásarmaðurinn tekinn höndum þegar vélin lenti og er maðurinn á slysadeild þar sem hlúð er að sárum hans. Lögreglan lítur málið mjög alvarlegum augum og mun hún yfirheyra árásarmanninn í fyrramálið. 23.11.2006 22:38
Fjölskylda falsar tvo milljarða Níu peningafalsarar voru í dag dæmdir í samtals 41 árs fangelsi fyrir að hafa ætlað að koma 14 milljónum punda, eða um tveimur milljörðum íslenskra króna, í umferð í Bretlandi. Breskir lögreglumenn segja að þetta sé stærsta peningafölsunarmál í sögu landsins og að hægt sé að rekja tvo þriðju af öllum fölsuðum seðlum sem lögreglan hefur lagt hald á á árinu til þeirra. 23.11.2006 22:21
Reyndi að koma syni sínum ólöglega úr landi Maður var handtekinn á Akureyrarflugvelli í morgun þegar hann reyndi að koma nokkurra mánaða syni sínum ólöglega úr landi. Feðganna hafði verið leitað dögum saman eftir að maðurinn rændi barninu. 23.11.2006 21:36
Blaine laus úr enn annarri prísundinni Töframaðurinn David Blaine losaði sig úr snúðnum sem hann hékk í yfir Times-torgi í New York á fáeinum mínútum. Alls hafði hann hangið í snúðnum í tvo daga og snerist þar í allar áttar, óvarinn fyrir veðri og vindum. Aðspurður sagði hann að þetta hefði verið merkilega erfitt. 23.11.2006 21:16
Hisbollah kemur í veg fyrir mótmæli Leiðtogi Hisbollah samtakanna, Sayyed Hassan Nasrallah, biðlaði til stuðningsmanna samtakanna að hætta mótmælum sínum í Beirút í kvöld. Hann kom fram í símaviðtali á sjónvarpsstöð Hisbollah og hvatti fólk til þess að hverfa til síns heima þar sem þeir vildu engan á götum úti. 23.11.2006 20:46
Palestínumenn bjóða frið Herskáir hópar Palestínumanna hafa gert Ísraelum friðartillögu. Ætla þeir sér að hætta öllum eldflaugaárásum á Ísrael gegn því að Ísraelar muni hætta öllum hernaðaraðgerðum á Gaza svæðinu og Vesturbakkanum svokallaða. Þessu skýrði talsmaður hópanna frá í dag. 23.11.2006 20:24
Heilsu Litvinenkos hrakar enn Alexander Litvinenko, hinn fyrrum rússneski njósnari sem var eitrað fyrir í London fyrir þremur vikum síðan, er alvarlega veikur eftir að ástand hans versnaði til muna. Læknar hafa nú útilokað að honum hafi verið byrlað þallíum eða álíku efni. Hann fékk hjartaáfall síðastliðna nótt og er nú haldið sofandi en þrátt fyrir það er ekki talið að miklar skemmdir hafi orðið á hjarta hans. 23.11.2006 19:09
Með golfkylfur í geimnum Rússneski geimfarinn Mikhail Tyurin sló í nótt lengsta golfhögg sögunnar. Það er reyndar svo langt að kúlan er enn á flugi. 23.11.2006 18:54
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar stofnuð Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar var stofnuð í dag. Það var tónlistarkonan Lay Low sem opnaði fundinn í þjóðmenningarhúsinu með lagi sínu Mojo love. Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sagði mikilvægt skref stigið og útflutningur á tónlist gæti numið um meira en 1% af landsframleiðslu. 23.11.2006 18:48
Mannskæðasta árásin hingað til Að minnsta kosti 144 týndu lífi í sprengjuárás á fátækrahverfi sjía í Bagdad í dag. Árásin er sú mannskæðasta sem framin hefur verið í landinu frá því að Bandaríkjamenn réðust þar inn. 23.11.2006 18:45
Iðgjöld trygginga hækka um áramót Íslandstrygging hækkaði iðgjöld sín í október um 6-8% og nú hafa Tryggingamiðstöðin og VÍS tilkynnt hækkun um áramótin. Hjá VÍS er hækkunin mest á bílrúðutryggingu, 20%, en annars frá 5-9%. Hjá Tryggingamiðstöðinni er hækkun bifreiðatrygginga rúmlega 4%. Ásgeir Baldursson framkvæmdastjóri VÍS segir að ástæðuna fyrir hækkuninni nú vera aukningu tjóna og gjöld vegna þeirra. 23.11.2006 18:43
Tillögur um milljarða útgjaldaaukningu Stjórnarandstaðan leggur til að rúmum sjö milljöðrum króna verði varið til að bæta hag elli- og örorkulífeyrisþega, við aðra umræðu fjárlaga sem hófst á Alþingi í dag. Stjórnarmeirihlutinn leggur einnig til að útgjöld verði aukin verulega á næsta ári en fjármálaráðherra segir engu að síður ekki hægt að tala um kosningafjárlög. 23.11.2006 18:30
Fimm ára fangelsi Rúmlega tvítugur maður var, í Hérðasdómi Reykjaness, dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot. Maðurinn stakk annann mann fyrir utan íbúðarhús í Hafnarfirði, fjórtanda maí, og hlaut sá lífshættulega áverka. Árásarmaðurinn kom óboðinn að húsinu en þar stóð yfir afmælisveisla þess sem var stunginn. Með árásarmanninum var átján ára piltur sá fékk tólf mánaða skilorðsbundinn dóm. Afleiðingar af völdum hnífsstungunnar eru varanlegar. Ástæður árásarinnar eru óljósar. 23.11.2006 18:26
Afríkuríki verða að verja sig gegn fuglaflensu Leiðtogar Alþjóðaheilbrigðissamtakanna sögðu í dag að ríki í Afríku þyrftu að fjárfesta mikið og fljótt í forvörnum gegn fuglaflensunni. Sögðu þeir að ríkin hefðu hreinlega ekki efni á því að leiða hættuna hjá sér öllu lengur. Þetta kom fram í ræðu þeirra á ráðstefnu um heilsuþjónustu í Afríku en hún fer fram í Suður-Afríku. 23.11.2006 18:08
Pútin ver bann við kjötinnflutningi Vladimir Pútin, Rússlandsforseti, hefur varið þá ákvörðun Rússa að banna allan innflutning á kjöti frá Póllandi. Bannið hefur staðið í nærri ár og eru Pólverjar hreint ekki sáttir við það. Hafa þeir meðal annars komið í veg fyrir viðræður milli Evrópusambandsins og Rússa um nýjan samstarfssamning. 23.11.2006 17:33
Skipulagsbreytingum laumað inn bakdyramegin Skipulagsbreytingum, sem gætu allt að tvöfaldað íbúafjölda Kársness, er lætt inn bakdyramegin án þess að kynna framtíðarskipulag svæðisins fyrir íbúum í vesturbæ Kópavogs, segir oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. 23.11.2006 17:23
Forsætisráðherra í Íslandi í dag Geir H. Haarde mun verða gestur í Íslandi í dag að loknum kvöldfréttum. Þar mun Geir meðal annars ræða um frammistöðu Árna Johnsen í nýafstöðnu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, ástandið í Írak og hvaða mál ríkisstjórnin leggur áherslu á að klára áður en kjörtímabilinu lýkur. 23.11.2006 17:11
Hæstiréttur sýknar 3X af kröfu Style ehf. Hæstiréttur sýknaði í dag fyrirtækið 3X af kröfum fyrirtækisins Style ehf. og vísaði um leið frá kröfu þess á staðfestingu á lögbanni vegna sölu þess fyrrnefnda á tiltekinni vél. 23.11.2006 17:07
Kærður fyrir að byrla konu svefnlyf og nauðga henni Rúmlega þrítug kona hefur kært karlmann fyrir nauðgun sem varð um miðjan mánuðinn. Konan telur að maðurinn hafi byrlað sér svefnlyf á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Lögreglan í Reykjavík rannsakar málið. 23.11.2006 16:52
Fimm fíkniefnamál í Reykjavík í gær og nótt Fimm karlmenn komu við sögu lögreglunnar í Reykjavík í fimm fíkniefnamálum í gær og nótt en í öllum tilfellum fundust ætluð fíkniefni eins og lögreglan kallar það. 23.11.2006 16:48
Umhverfissamtök eru æf út í Íslendinga vegna togveiða Íslendingar eru sagðir hafa unnið vondan sigur hjá Sameinuðu þjóðunum með því að koma í veg fyrir að botnvörpuveiðar verði bannaðar á alþjóðlegum hafsvæðum. Sjávarútvegsráðherra segir að margar þjóðir standi með Íslendingum. 23.11.2006 16:39
Lögreglan á Blönduósi fær Umferðarljósið Lögreglan á Blönduósi fékk í dag verðlaunagripinn Umferðarljósið fyrir að hafa unnið með árangursríkum og eftirtektarverðum hætti að umferðaröryggismálum. Verðlaunin voru afhent á Umferðarþingi sem nú er haldið á Hótel Loftleiðum. 23.11.2006 16:38
Fékk þrjú og hálft ár fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Önnur stúlknanna var stjúpdóttir mannsins en hin vinkona hennar. Stjúpdóttir mannsins var aðeins sex ára gömul þegar brotin hófust. 23.11.2006 16:33
Virðisaukaskattur á geisladiska lækkaður í sjö prósent Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í fyrradag, að tillögu Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra, að leggja til við alþingi að virðisaukaskattur á geisladiska verði lækkaður í 7 prósent. Mun lækkunin taka gildi þann 1. mars 2007 um leið og aðrar boðaðar breytingar taka gildi á virðisaukaskattslögunum. 23.11.2006 16:27
Sjö ára fangelsi fyrir amfetamínsmygl Tveir Litháar voru í dag dæmdir í sjö ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að reyna að smygla tæpum tólf kílóum af amfetamíni til landsins með Norrænu í sumar. 23.11.2006 15:57
Michael Shields snýr aftur til Bretlands Tvítugur Breti, Michael Shields, sem dæmdur var fyrir morðtilraun í Búlgaríu í fyrra snýr í dag til síns heima. Málið vakti mikla athygli þegar það kom upp en Shields var staddur í fríi í Varna í Búlgaríu í maí í fyrra og fylgdist með uppáhaldsliði sínu, Liverpool, tryggja sér Meistaradeildartitilinn í knattspyrnu. 23.11.2006 15:48
Gripinn þrisvar fyrir þjófnað í gær Karlmaður á fertugsaldri var tekinn þrisvar fyrir þjófnað í verslunum í borginni í gær. Fram kemur á vef lögreglunnar að maðurinn hafi fyrst farið ránshendi í verslunarmiðstöð og stolið varningi frá tveimur fyrirtækjum. Hann náðist hins vegar og var fluttur á lögreglustöð. 23.11.2006 15:45
Hafnaði kröfu ríkisins um að flugskýli yrði flutt af Akureyrarflugvelli Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu íslenska ríkisins um að eigandi flugskýlis á lóð Akureyrarflugvallar yrði borinn af lóðinni. 23.11.2006 15:25
Fangelsi fyrir hatursraus Breskur maður hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hrækja framan í múslimakonu, og svívirða trú hennar með því að líkja henni við hryðjuverk. 23.11.2006 15:14
Stofnfundur samráðsvettvangs trúfélaga á morgun Samráðsvettvangur trúfélaga heldur stofnfund sinn á morgun í Tjarnarsal Ráðhússins. Að vettvangnum standa þrettán trúfélög og er markmiðið að stuðla að umburðarlyndi og virðingu milli fólks af ólíkum lífsviðhorfum, trúarhópum og trúarbrögðum og standa vörð um trúfrelsi og önnur mannréttindi. 23.11.2006 14:56
Rúmlega 140 fórust í árásinni Tala látinna í sprengjuárásunum í Bagdad í dag er komin upp í rúmlega 140. Á þriðja hundrað eru særðir, sumir lífshættulega. Þetta er eitthvert mesta blóðbað sem orðið hefur í svona árásum í Íraksstríðinu frá upphafi. 23.11.2006 14:51
Félagsmálanefnd fjallar um búsetu fólks í atvinnuhúsnæði Félagsmálanefnd Alþingis hefur nú til umfjöllunar hvort hægt sé að breyta lögum í tengslum við búsetu fólks í atvinnuhúsnæði. Þetta kom fram í máli Dagnýjar Jónsdóttur, formanns nefndarinnar, á Alþingi í dag. 23.11.2006 14:41
Eltast við þjóðarmorðingja í Rúanda Franskur dómari hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur níu embættismönnum í Rúanda sem eru grunaðir um að hafa skipulagt morðið á forseta landsins árið 1994. Dauði forsetans var kveikjan að þjóðarmorðinu sem framið var í landinu. 23.11.2006 14:40
Framkvæmdastjóri SI leggst gegn atkvæðagreiðslu um álversstækkun Sveini Hannessyni, framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, finnst ekki góð hugmynd að láta fara fram almenna atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði um stækkun álversins í Straumsvík. Hann segir að kjósendur hafi engar forsendur til að taka efnislega afstöðu. Menn greiði atkvæði á þeirri forsendu, að öruggast sé að vera á móti því sem þeir þekki ekki. Sveinn segir að ef auka eigi íbúalýðræði í reynd, væri rétt að leyfa almenningi ap hafa skoðun og jafnvel áhrif á skipulagsmál almennt. 23.11.2006 14:35
Dularfulla löggan Þýsku lögregluþjónarnir héldu að þá væri að dreyma, þegar vel merktur amerískur lögreglubíll renndi fram úr þeim á hraðbrautinni. Við stýrið sat amerískur lögregluþjónn, með kaskeyti og Smith&Wesson skammbyssu. 23.11.2006 14:09
Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar stofnuð Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar var í dag formlega stofnuð við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Með henni á að leitast við að efla og skapa sóknarfæri til handa rétthöfum tónlistar og auka möguleika íslenskra fyrirtækja og einstaklinga í tónlistarútrás og í að ná árangri í alþjóðlegum viðskiptum á þessu sviði, eins og segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 23.11.2006 14:07
Landsvirkjun styrkir Ómar Landsvirkjun ætlar að styrkja verkefni Ómars Ragnarssonar, Örkina, um fjórar milljónir króna. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, lýsti þessu yfir í opnum fundi í morgun. Ómar óskaði eftir því að Landsvirkjun styrkti verkefni hans en Ómar hefur verið að kvikmynda myndun Hálslóns. 23.11.2006 13:45
Orkumál í myrkri Það varð nokkur þögn þegar ljósin slokknuðu í Brussel, á enn einum ráðherrafundi Evrópusambandsins, í dag. Eftir nokkurt þóf var ákveðið að halda fundinum áfram, við kertaljós. 23.11.2006 13:43
Flugvél lenti í Marseille vegna sprengjuhótunar Flugvél á leið frá París til Fílabeinsstrandarinnar var skipað að lenda í Marseilli fyrr í dag vegna tilkynningar um að sprengja væri um borð. Vélin lenti heilu og höldnu í Marseille og farþegar fóru frá borði en sprengjusveit leitar nú að hugsanlegri sprengju. 23.11.2006 13:19
Töluvert tjón í innbroti hjá Bræðrunum Ormsson Töluvert tjón varð í raftækjaverslun Bræðranna Ormsson í Síðumúla í nótt þegar þjófur eða þjófar réðust þar inn og höfðu á brott með sér tvö dýr sjónvarpstæki. 23.11.2006 13:15