Fleiri fréttir

Náðist að bjarga rútu sem barst niður með Krossá

Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöld þegar óttast var um afdrif bílstjóra, sem var einn í rútubíl, sem festist í Krossá í Þórsmörk. Bílstjóranum tókst að sparka út rúðu og komast í land og var aðstoð þá afturkölluð. Rútan barst eitthvað undan straumi og um tíma var óttast að hún ylti, en öðrum rútubílstjórum og fleirum, tóks með ærinni fyrirhöfn að ná henni upp úr ánni.

Loksins flogið til Eyja

Rétt um hádegisbilið rofaði til í þoku og súld í Vestmannaeyjum þannig að hægt var að fljúga þangað á ný. Fyrsta flugvélin fór um hálfeitt og þá tekur við að vinna upp tafir morgunsins. Um 300 manns áttu bókað flug til Vestmannaeyja í dag með Flugfélagi Íslands frá Reykjavík. Þá eru ótaldir þeir sem fljúga með öðrum flugfélögum og frá öðrum stöðum.

Flúðu dalinn og gistu í íþróttahúsinu

Um 150 mann þurftu að flýja Herjólfsdal í nótt þegar tjöld fóru að fjúka og gista í íþróttahúsinu. Aðrir skelltu sér á húkkaraball og var einn maður handtekinn eftir að hafa barið dyravörð.

Reynt að stilla til friðar á Sri Lanka

Sendinefnd norskra sáttasemjara kom til Sri Lanka í morgun, til að reyna að stilla til friðar eftir að ástandið þar versnaði til muna í vikunni.

Íbúðablokk hrundi á Alicante

Sex slösuðust þegar íbúðablokk í Alicante á Spáni hrundi um hádegi í gær. Slökkviliðsmenn segja gashylki hafa sprungið með þessum afleiðingum.

Bíll festist í Krossá í Þórsmörk

Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöld þegar óttast var um afdrif bílstjóra, sem var einn í rútubíl, sem festist í Krossá í Þórsmörk. Bílstjóranum tókst að sparka út rúðu og komast í land og var aðstoð þá afturkölluð. Rútan barst eitthvað undan straumi og um tíma var óttast að hún ylti, en öðrum rútubílstjórum og fleirum, tókst með ærinni fyrirhöfn að ná henni upp úr ánni.-

Maður handtekinn í Vestmannaeyjum

Ungur maður var handtekinn í Vestmannaeyjum i nótt eftir að hann hafði barið dyravörð á veitingahúsi þannig að hann hlaut nokkurn áverka.

Fjörutíu hrefnur veiddar

Alls hafa fjörutíu hrefnur verið veiddar af fimmtíu dýra kvóta í ár. Á fréttavefnum dagur punktur net kemur fram að samkvæmt áætlun megi veiða 200 hrefnur á fjögurra ára tímabili árin 2003 til 2007.

VR stendur ekki fyrir hátíðarhöldum um helgina

Verslunarmannafélag Reykjavíkur mun ekki standa fyrir neinum hátíðarhöldum í tilefni frídags verslunarmanna, en undanfarin ár hefur félagið staðið fyrir fjölskylduhátíð í fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Karlmaður handtekinn eftir átök

Karlmaður var handtekinn og kona flutt handleggsbrotin á sjúkrahúsið á Selfossi, eftir að til átaka kom á milli þeirra í sumarbústað við þingvelli í gærkvöldi.

Þrír ísraelskir hermenn létust

Þrír ísraelskir hermenn létust og tveir særðust í eldflaugaárás Hizbolla-skæruliða í Suður-Líbanon í morgun, að sögn Al Arabiya fréttastöðvarinnar.

Tveggja ára undrabarn á sjóskíðum

Cole Marsolek er rétt tæplega tveggja ára, en er afar fær á sjóskíðum þrátt fyrir ungan aldur. Færni hans uppgötvaðist þegar fjölskylda hans var á ferð í Wisconsin í Bandaríkjunum.

Blóðugur dagur í Afganistan

Fjöldi óbreyttra borgara og kanadískra hermanna var drepinn í sprengjuárásum í Afganistan í dag. Dagurinn var einn sá blóðugasti í landinu í marga mánuði.

Bjargaðist úr sjálfheldu í Krossá

Rúta festist í Krossá inni í Þórsmörk um áttaleytið í kvöld. Bílstjóri rútunnar var einn um borð og að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli bjargaðist hann á þurrt eftir að hann hafði sparkað upp afturrúðu rútunnar.

Lík hlaðast upp í Líbanon

Ísraelar segjast hafa náð um tuttugu þorpum í Suður-Líbanon á sitt vald og þar með tryggt öryggissvæði sem þeir vilja stækka enn frekar á næstu dögum. Forsætisráðherra Líbanons segir níu hundruð manns hafa fallið í átökum liðinna vikna og einn fjórða landsmanna hafa lent á vergangi.

Árni Johnsen vill ekkert gefa upp um framboð

Árni Johnsen segir ótímabært að gefa upp hvort hann hyggist bjóða sig fram ef prófkjör verður hjá Sjálfstæðisflokknum í Suðurkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningar. Stuðningsmenn hans hafa hafið undirskriftasöfnun til að skora á Árna að bjóða sig fram.

Málinu frestað

Dómari ákvað í dag að fresta máli Íslendings sem ákærður er í Bretlandi fyrir kynferðislega misnotkun á fjórtán ára enskri stúlku.

Vill sameina sundraða þjóð

Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að tilnefna helsta andstæðing sinn, Viktor Janúkovitsj, sem forsætisráðherra landsins. Júsjenkó segist með þessu vera að sameina sundraða þjóð. Jústsjenkó og Janúkovitsj börðust af hörku um forsetaembættið árið 2004. Þá varð sá síðarnefndi forseti.

Borgarastríð í Írak líklegt

Borgarastríð er mun líklegri niðurstaða í Írak en að lýðræði skjóti þar rótum að mati fráfarandi sendiherra Breta þar í landi. Þetta kemur fram í minnisblaði sem hann hefur sent Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og var lekið í breska fjölmiðla.

Stakk göt á dekk lögreglubíls

Stungin voru göt á öll dekk lögreglubíls á Höfn í Hornafirði í síðastliðna nótt, þar sem bíllinn stóð á bílaverkstæði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að um mislukkað skemmdarverk hafi verið að ræða en dekkin hafi verið orðið slitin og til stóð að setja ný dekk undir bílinn. Lögreglan hefur þó í huga að hafa hendur í hári dekkjadólgsins. Lögreglan vill koma því áleiðis að viðkomandi gefi sig fram og þiggi aðstoð í sínum málum, því athæfi sem þetta beri vott um alvarlega hugarbresti.

Tekinn fyrir hraðakstur í fimmta sinn á árinu

Tæplega þrítugur karlmaður var tekinn fyrir hraðakstur í Reykjavík í gær. Það er vart í frásögur færandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að þetta var í fimmta sinn á árinu sem viðkomandi er tekinn fyrir hraðakstur.

Búið að veiða 40 á þessu ári

Alls hafa 40 hrefnur verið veiddar af 50 dýra kvóta í ár. Á fréttavefnum Dagur.net kemur fram að samkvæmt áætlun megi veiða 200 hrefnur á fjögurra ára tímabili árin 2003 til 2007. Alls hafa 141 hrefna verið veidd. Hrefnur eru veiddar samkvæmt ákveðnu skipulagi á níu svæðum í kringum landið og í hlutfalli við þéttleika hrefnu. Fjögur skip hafa verið á veiðunum en upphaflega var áætlað að veiðunum lyki í dag. Hugsanlega verður því sótt um framlengingu á veiðunum svo hægt sé að veiða þær tíu hrefnur sem eftir standa á næsta ári.

Verslunarmannahelgin að bresta á

Hátíðahaldarar bjóða upp á skemmtanir af ýmsum meiði um helgina, fyrir unnendur flugs og harmonikku, íþrótta og útivistar og ekki síst tónlistar. Allt er þetta að bresta á og erill verslunarmannahelgarinnar er einnig að hefjast hjá lögregluembættum landsins.

Smygluðu sjaldgæfum fuglum á milli landa

Yfirvöld á Spáni hafa upprætt smyglhring þar í landi sem útvegaði áhugasömum víða um heim sjaldgæfar tegundir fugla. Sex hafa verið handteknir og húsleitir gerðar víða um Spán.

12 óbreyttir borgarar féllu í Bagdad

Að minnsta kosti tólf óbreyttir borgarar féllu og um þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í miðborg Bagdad, höfuðborgar Íraks, í dag. Sprengjan hafði verið bundin við vélhjól sem lagt var við verslanagötu.

Heilbrigðisstarfsmenn aðstoðuðu samferðakonu sína

Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út fyrir skömmu vegna konu sem fótbrotnaði á leið sinni um Laugaveginn. Sveitarmenn lögðu af stað að sækja konuna, í Jökultungur milli Landmannalauga og Álftavatns, og var búist við þyrfti að bera hana langan veg. Betur fór þó en á horfðist því ferðafélagar hennar komu henni niður í skála við Álftavatn, en bæði læknir og hjúkrunarfræðingur voru með í för. Flugbjörgunarsveitin var því kölluð til baka en einn bíll er á leið í skálann að sækja konuna.

Enn og aftur bent á að virða fjárlög

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 2005 er enn og aftur bent á mikilvægi þess að ráðuneyti og stofnanir ríkisins virði fjárlög. Í árslok 2005 hafði ríflega fjórðungur fjárlagaliða ráðstafað fjármunum umfram heimildir og á sama tíma áttu tæplega tveir þriðju allra fjárlagaliða inneign hjá ríkissjóði.

Janúkovítsj tilnefndur forsætisráðherra Úkraínu

Viktor Júsjenkó, forseti Úkraínu, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að tilnefna Viktor Janúkovítsj sem forsætisráðherra landsins. Júsjenkó bað landa sína um að sýna sér skilning en hann telur að með þessu sé hægt að sameina sundurleita þjóðina.

Mýrin fær 45 milljónir

Kvikmyndamiðstöð Íslands tilkynnti í gær hvað kvikmyndir hefðu fengið styrki eða vilyrði fyrir styrk úr sjóð þess. Fjórar kvikmyndir eru nú í tökum eða í lokastigi og fengu þær allar styrk. Mýrin eftir Baltasar Kormák fékk 45 milljónir, Köld Slóð í leikstjórn Björns Brynjólfs Björnssonar fékk 40 milljónir og kvikmynd Gunnars Björns Guðmundssonar, Astrópía, fékk 37 milljónir. Þá fékk framleiðslufyrirtækið Zik Zak sjö og hálfa milljón fyrir þátt sinn í kvikmynd Lars Von Trier, The Boss of it All.

Vöruskiptahallinn við útlönd sá mesti í sögunni

Vöruskiptahallinn við útlönd í síðasta mánuði var sá mesti í sögunni og fór tvo og hálfan milljarð yfir metið frá því í júní. Fluttar voru út vörur fyrir 17 milljarða en inn fyrir röska 35 milljarða þannig að hallinn nemur 18,3 milljörðum króna.

20 létust í árásum á knattspyrnuvelli

Tuttugu manns létust og að minnsta kosti 14 særðust í tveimur sprengingum á sitt hvorum knattspyrnuvellinum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. Flestir hinna látnu voru börn sem voru að leik í einu af fátækrarhverfum borgarinnar. Íbúar hverfisins eru flestir sjítar.

Avion gerir tilboð í kanadískt fyrirtæki

Avion Group hefur gert tilboð í kanadíska fyrirtækið Atlas Cold Storage Income Trust, sem metið er á 37 milljarða íslenskra króna. Avion Group gerir tilboðið fyrir hönd nýstofnaðs dótturfélags, sem heitir Eimskip Atlas Canada.

10 létust á Sri Lanka

Að minnsta kosti tíu almennir borgarar féllu og tuttugu særðust þegar spregja skall á háskóla í austur hluta Srí Lanka í morgun. Það voru uppreisnarmenn Tamíltígra sem vörpuðu sprengjunni.

Sjá næstu 50 fréttir