Fleiri fréttir Huga ekki allir að framtíðinni 20.7.2006 07:45 Hitamet slegið á Bretlandi 20.7.2006 07:45 Aðstæður til einkaframkvæmdar í samgöngum kannaðar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað nefnd til að leggja fram tillögur um við hvaða aðstæður einkaframkvæmd í samgöngum getur talist vænlegur kostur. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að nefndinni sé falið að skila inn tillögum 1. september næstkomandi svo hægt sé að hafa álit hennar til hliðsjónar við afgreiðslu samgönguáætlunar 2007 til 2018. 20.7.2006 07:45 Segist ekki deila við dómarann 20.7.2006 07:30 Aðeins tímabundin ráðstöfun Aðkoma einkaaðila að öryggisleit á Keflavíkurflugvelli er tímabundin ráðstöfun sem verður endurskoðuð á haustmánuðum að sögn Björns Inga Knútssonar, flugvallarstjóra á Keflavíkurflugvelli. Álíta margir þetta fyrsta skrefið í átt að einkavæðingu öryggisgæslu á vellinum. 20.7.2006 07:30 Íbúðarlán halda áfram að dragast saman Íbúðalán viðskiptabankanna hafa dregist saman um 75% síðustu tuttugu mánuðina. Samkvæmt samantekt Fréttablaðsins námu þau röskum 34 milljörðum króna þegar mest var í október árið 2004, en sú tala var fallinn niður í 7,5 milljarð í maí síðastliðnum. Fasteignaverð snar hækkaði þegar bankarnir hófi innreið sína á húsnæðislánamarkaðinn, en nú spá greiningadeildir bankanna allt að tíu prósetna raunlækkun á húsnæði. 20.7.2006 07:30 Hitabylgja verður mönnum að aldurtila Hitamet falla nú víða um Evrópu og hefur hitinn orðið nokkrum Evrópubúum að aldurtila. Segja heilbrigðisyfirvöld víða um Evrópu að hitabylgjan nú sé farin að minna á alræmda hitabylgju sumarið 2003 þegar í það minnsta 20 þúsund manns létust í Evrópu af völdum hitaslags og ofþornunar. 20.7.2006 07:20 Fleiri útköll í sumar en áður 20.7.2006 07:15 Spenna eykst á Kóreuskaga Samskipti milli Norður- og Suður-Kóreu versna dag frá degi vegna deilunnar um flugskeytatilraunir Norður-Kóreumanna. Japanar bíða hins vegar átekta. 20.7.2006 07:15 Segir fjölda morða flokkast undir stríðsglæpi Mannréttindasérfræðingur Sameinuðu þjóðanna segir að fjöldi morða í Líbanon, Ísrael og Palestínu gæti flokkast undir stríðsglæpi. Erindrekar Sameinuðu þjóðanna leggja nú til að líbanskir hermenn verði sendir til Suður-Líbanons til að freista þess að stöðva bardaga milli skæruliða Hisbollah og ísraelskra hermanna. 20.7.2006 07:15 Aldrei fleiri sótt um nám 20.7.2006 07:00 Milljónir yfirfærðar af bankareikningum Rannsókn lögreglunnar í Reykjavík á umfangsmiklum fjársvikamálum leiðir meðal annars til gruns um peningaþvætti hér á landi. Upphæðum sem nema nær 20 milljónum króna hefur verið stolið af bankareikningum Íslendinga. 20.7.2006 07:00 Þyrlusveitin fer hvergi Rekstur þyrlubjörgunarsveitar Landhelgisgæslunnar verður tryggður með leiguþyrlum næstu árin. Kaup á þremur nýjum þyrlum geta dregist til ársins 2015. 20.7.2006 07:00 Flóttamenn verði yfirheyrðir 20.7.2006 07:00 Ísraelar hafa viku til að gera árásir Ísraelski herinn ætlar sér að eyðileggja allan vígbúnað Hizbollah áður en árásum á Líbanon verður hætt. Evrópuríki eru ósátt við afstöðu Bandaríkjanna. Forsætisráðherra Líbanons ætlar að krefja Ísrael um skaðabætur. 20.7.2006 07:00 Fjögurra manna fjölskyldu bjargað út úr brennandi húsi Fjögurra manna fjölskyldu var bjargað út um gluga á brennandi húsi í Keflavík í nótt og varð engum meint af. Eldur kviknaði á annari hæð hússins og komust tveir feðgar þar út með snert af reykeitrun og dvöldu þeir á heilsugæslustöð Suðurnesja í nótt. Reykur fyllti stigaganginn þannig að fjölskyldan, sem bjó á efri hæðinni, komst ekki þar út. Slökkviliðsmenn björguðu fólkinu og gekk greiðlega að slökkva eldinn, en íbúð feðganna er stór skemmd. Eldsupptök eru ókunn. 20.7.2006 06:53 Dragast saman um 75 prósent 20.7.2006 06:45 Telja ekki tilefni til aðgerða 20.7.2006 06:45 Hagsældin vex hratt 20.7.2006 06:45 Hafa borist 2500 ábendingar um barnaklám á Netinu Barnaheillum hafa borist 2500 ábendingar um barnaklám á Netinu síðustu ár. Talsmenn tengslasíðna eins og MySpace og Bebo viðurkenna að þeir geti lagt meira á sig til að halda kynferðisglæpamönnum frá börnum. 19.7.2006 20:14 Tvö dauðsföll rakin til hitabylgju Þótt sólskinsbros leiki um varir Reykvíkinga, bölva ýmsir hitanum í sand og ösku. Mannskepnan vill alltaf það sem hún ekki hefur. Á meðan Íslendingar þrá ekkert heitar en sól og hita geta sumir ekki beðið eftir næsta kalda rigningardegi. 19.7.2006 20:08 Kvartað undan vopnaleit Securitas á farþegum Öryrkjabandalagið kvartar undan því við Flugmálastjórn að starfsmenn Securitas, en ekki þrautþjálfaðir lögreglumenn, sjái um vopnaleit á hreyfihömluðum farþegum. 19.7.2006 19:57 Átökin breiðast hratt út í Líbanon Dagurinn í dag var sá mannskæðasti síðan stríðið í Líbanon hófst og átökin eru að breiðast út. Forsætisráðherra Ísraels hótar áframhaldandi loftárásum á Líbanon. Tugþúsundir útlendinga eru fastir í landinu og komast hvorki lönd né strönd. Íslendingarnir sem komu heim frá Líbanon í gær grétu af gleði við heimkomuna. 19.7.2006 19:48 Sökuð um morð eftir fellibylinn Katrínu Læknir og tveir hjúkrunarfræðingar hafa verið handtekin, sökuð um morð á fjórum sjúklingum á spítala í New Orleans eftir fellibylinn Katrínu. 19.7.2006 19:16 Einkavæðingu á almennum öryggishagsmunum mótmælt Öryrkjabandalagið kvartar undan því við Flugmálastjórn að starfsmenn Securitas, en ekki þrautþjálfaðir lögreglumenn, sjái um vopnaleit á hreyfihömluðum farþegum. 19.7.2006 19:11 Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara hækka Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara hækka og bótakerfið verður einfaldað. Þessu lofar ríkið í nýju samkomulagi við Landssamband eldri borgara. 19.7.2006 19:07 Deilir hart á fundarstjóra Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, sakaði Pétur Guðmundarson fundarstjóra á hluthafafundi Straums-Burðaráss um gerræðisleg vinnubrögð. Pétur bannaði Víglundi að spyrja stjórnina út í átökin um yfirráð í félaginu. 19.7.2006 18:45 Ekið á dreng Ekið var á fimm ára gamlan dreng við Urðarstekk í Breiðholti rétt eftir klukkan eitt í dag. Drengurinn var á hlaupahjóli og ekki með hjálm. Hann hlaut höfuðáverka en er ekki alvarlega slasaður. Drengurinn var lagður inn á Landspítalann til eftirlits. 19.7.2006 18:37 Könnuðu hug almennings lítið Stjórnendur Strætós leituðu ekki kerfisbundið til almennings eftir hugmyndum, þegar nýja leiðakerfið var tekið upp. Þeir töldu meðal annars fjármunum félagsins betur varið í daglega starfsemi en ítarlega athugun. 19.7.2006 18:31 Ríkiskaupum gert að afhenda Altantsolíu gögn Ríkiskaupum er gert skylt að afhenda Atlantsolíu gögn um niðurstöðu útboðs frá árinu 2003 vegna eldsneytiskaupa ríkisstofnanna. Atlantsolía fékk sigur hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál, því að Ríkiskaup höfðu neitað að láta gögnin af hendi. Gögnin verða afhent á morgun. 19.7.2006 18:09 Rannsóknarskipið Gæfa komin heim úr leiðangri Tveggja vikna rannsóknarleiðangri Gæfu VE 11 lauk fyrir skömmu, þar sem útbreiðsla og ástand sandsílastofna var kannað , en síli eru mikilvæg fæða nytjafiska, hvala og sjófugla. 19.7.2006 18:04 Tafir á umferð sunnan við Borgarnes Umferðarljósum hefur verið komið upp á þjóðvegi eitt, 15 kílómetrum sunnan við Borgarnes, vegna vegaframkvæmda. 19.7.2006 17:54 Verulega vonsvikinn yfir ákvörðun samgönguráðherra Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segist verulega vonsvikinn yfir því að samgönguráðherra skuli ekki ætla að beita sér fyrir því að nýtt vaktafyrirkomulag verði fellt úr gildi. Sáttin sem ríkt hafi milli yfirmanna og starfsmanna sé því enn í uppnámi. 19.7.2006 17:50 Back Safe and Sound 19.7.2006 17:41 Look Both Ways Before Looking up to Somebody 19.7.2006 17:38 Fólksbíll hafnaði ofan í skurði Fólksbíll fór út af veginum skammt frá norðurenda Hvalfjarðarganganna rétt fyrir klukkan fimm í dag og hafnaði ofan í skurði. Að sögn lögreglunnar á Akranesi hlaut ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, höfuðhögg en talið er að meiðsl hans séu ekki alvarleg. 19.7.2006 17:38 Samtök verslunar og þjónustu óska skýringa frá forsætisráðherra Samtök verslunar og þjónustu óska skýringar á orðum forsætisráðherra um tillögur matvælanefndar, þar sem hann segir að innflytjendum, heildsölum og smásölum sé ekki treystandi til að láta lækkun tolla og skatta á matvæli skila sér til neytenda í lægra verði. 19.7.2006 17:36 Met aðsókn í Háskólann í Reykjavík Aldrei hafa borist fleiri umsóknir um skóavist til Háskólans í Reykjavík. Um 1800 manns hafa nú sótt um skólavist fyrir næsta skólaár, sem hefst 18. ágúst næstkomandi. 19.7.2006 17:18 Ósáttur við ummæli forsætisráðherra Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segist fullviss um að lækkum á sköttum og álagningu á matvælum muni skila sér til neytenda. Hann er ósáttur við ummæli forsætisráðherra um að verslunin gætu tekið slíkar lækkanir til sín. 19.7.2006 15:54 Tómas Zoëga áfram yfirlæknir hjá LSH Náðst hefur samkomulag milli forstjóra LSH og Tómasar Zoëga um að Tómas haldi áfram yfirlæknisstarfi sínu við geðsvið spítalans með sama hætti og áður. 19.7.2006 15:51 Bensínverð hækkar Bensínlítrinn hér á landi færi yfir 140 krónur, ef verðið væri látið fyglja hækkuninni á Rotterdammarkaði í gær. 19.7.2006 15:19 Samið við eldri borgara Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara frá Tryggingastofnun ríkisins hækka og bótakerfið verður einfaldað með fækkun og sameiningu bótaflokka, samkvæmt samkomulagi sem Landsamband eldri borgara og ríkisstjórnin skrifuðu undir í dag. Þá munu bætur lækka minna vegna tekna maka og annarra tekna bótaþega en nú er. Samkomulagið var undirritað af forsætisráðherra, fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og landbúnaðarráðherra og fulltrúum eldri borgara í Ráðherrabústaðnum í dag. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að tekið verði upp frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega og vasapeningar hækkaðir. Þá verði starfslok sveigjanleg, þannig að lífeyrisgreiðslur hækki við frestun á töku lífeyris. Heimaþjónusta verði stóraukin og áhersla færð frá stofnanaþjónustu. Þá mun fjármagn sem nú gengur til reksturs stofnana úr Framkvæmdasjóði aldraðra ganga til uppbyggingar öldrunarstofnana. 19.7.2006 14:45 Áfrýjar til Hæstaréttar Jónas Garðarsson, fyrrverandi formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi sem kveðinn var upp yfir honum um manndráp af gáleysi. 19.7.2006 13:56 Landhelgisgæslan áfram á Reykjarvíkurflugvelli Hugmyndir um að flytja þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar upp á Keflavíkurflugvöll fá ekki hljómgrunn í nýjum tillögum að framtíðarskipulagi sveitarinnar. Þar er lagt til að sveitin verði áfram á Reykjavíkurflugvelli. 19.7.2006 13:38 Mikil fjölgun ferðamanna í maí Rúmlega 31 þúsund erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í maí síðastliðnum, samkvæmt talningum Ferðamálastofu. Þetta er aukning um 12,5% miðað við maí í fyrra. 19.7.2006 13:04 Sjá næstu 50 fréttir
Aðstæður til einkaframkvæmdar í samgöngum kannaðar Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað nefnd til að leggja fram tillögur um við hvaða aðstæður einkaframkvæmd í samgöngum getur talist vænlegur kostur. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að nefndinni sé falið að skila inn tillögum 1. september næstkomandi svo hægt sé að hafa álit hennar til hliðsjónar við afgreiðslu samgönguáætlunar 2007 til 2018. 20.7.2006 07:45
Aðeins tímabundin ráðstöfun Aðkoma einkaaðila að öryggisleit á Keflavíkurflugvelli er tímabundin ráðstöfun sem verður endurskoðuð á haustmánuðum að sögn Björns Inga Knútssonar, flugvallarstjóra á Keflavíkurflugvelli. Álíta margir þetta fyrsta skrefið í átt að einkavæðingu öryggisgæslu á vellinum. 20.7.2006 07:30
Íbúðarlán halda áfram að dragast saman Íbúðalán viðskiptabankanna hafa dregist saman um 75% síðustu tuttugu mánuðina. Samkvæmt samantekt Fréttablaðsins námu þau röskum 34 milljörðum króna þegar mest var í október árið 2004, en sú tala var fallinn niður í 7,5 milljarð í maí síðastliðnum. Fasteignaverð snar hækkaði þegar bankarnir hófi innreið sína á húsnæðislánamarkaðinn, en nú spá greiningadeildir bankanna allt að tíu prósetna raunlækkun á húsnæði. 20.7.2006 07:30
Hitabylgja verður mönnum að aldurtila Hitamet falla nú víða um Evrópu og hefur hitinn orðið nokkrum Evrópubúum að aldurtila. Segja heilbrigðisyfirvöld víða um Evrópu að hitabylgjan nú sé farin að minna á alræmda hitabylgju sumarið 2003 þegar í það minnsta 20 þúsund manns létust í Evrópu af völdum hitaslags og ofþornunar. 20.7.2006 07:20
Spenna eykst á Kóreuskaga Samskipti milli Norður- og Suður-Kóreu versna dag frá degi vegna deilunnar um flugskeytatilraunir Norður-Kóreumanna. Japanar bíða hins vegar átekta. 20.7.2006 07:15
Segir fjölda morða flokkast undir stríðsglæpi Mannréttindasérfræðingur Sameinuðu þjóðanna segir að fjöldi morða í Líbanon, Ísrael og Palestínu gæti flokkast undir stríðsglæpi. Erindrekar Sameinuðu þjóðanna leggja nú til að líbanskir hermenn verði sendir til Suður-Líbanons til að freista þess að stöðva bardaga milli skæruliða Hisbollah og ísraelskra hermanna. 20.7.2006 07:15
Milljónir yfirfærðar af bankareikningum Rannsókn lögreglunnar í Reykjavík á umfangsmiklum fjársvikamálum leiðir meðal annars til gruns um peningaþvætti hér á landi. Upphæðum sem nema nær 20 milljónum króna hefur verið stolið af bankareikningum Íslendinga. 20.7.2006 07:00
Þyrlusveitin fer hvergi Rekstur þyrlubjörgunarsveitar Landhelgisgæslunnar verður tryggður með leiguþyrlum næstu árin. Kaup á þremur nýjum þyrlum geta dregist til ársins 2015. 20.7.2006 07:00
Ísraelar hafa viku til að gera árásir Ísraelski herinn ætlar sér að eyðileggja allan vígbúnað Hizbollah áður en árásum á Líbanon verður hætt. Evrópuríki eru ósátt við afstöðu Bandaríkjanna. Forsætisráðherra Líbanons ætlar að krefja Ísrael um skaðabætur. 20.7.2006 07:00
Fjögurra manna fjölskyldu bjargað út úr brennandi húsi Fjögurra manna fjölskyldu var bjargað út um gluga á brennandi húsi í Keflavík í nótt og varð engum meint af. Eldur kviknaði á annari hæð hússins og komust tveir feðgar þar út með snert af reykeitrun og dvöldu þeir á heilsugæslustöð Suðurnesja í nótt. Reykur fyllti stigaganginn þannig að fjölskyldan, sem bjó á efri hæðinni, komst ekki þar út. Slökkviliðsmenn björguðu fólkinu og gekk greiðlega að slökkva eldinn, en íbúð feðganna er stór skemmd. Eldsupptök eru ókunn. 20.7.2006 06:53
Hafa borist 2500 ábendingar um barnaklám á Netinu Barnaheillum hafa borist 2500 ábendingar um barnaklám á Netinu síðustu ár. Talsmenn tengslasíðna eins og MySpace og Bebo viðurkenna að þeir geti lagt meira á sig til að halda kynferðisglæpamönnum frá börnum. 19.7.2006 20:14
Tvö dauðsföll rakin til hitabylgju Þótt sólskinsbros leiki um varir Reykvíkinga, bölva ýmsir hitanum í sand og ösku. Mannskepnan vill alltaf það sem hún ekki hefur. Á meðan Íslendingar þrá ekkert heitar en sól og hita geta sumir ekki beðið eftir næsta kalda rigningardegi. 19.7.2006 20:08
Kvartað undan vopnaleit Securitas á farþegum Öryrkjabandalagið kvartar undan því við Flugmálastjórn að starfsmenn Securitas, en ekki þrautþjálfaðir lögreglumenn, sjái um vopnaleit á hreyfihömluðum farþegum. 19.7.2006 19:57
Átökin breiðast hratt út í Líbanon Dagurinn í dag var sá mannskæðasti síðan stríðið í Líbanon hófst og átökin eru að breiðast út. Forsætisráðherra Ísraels hótar áframhaldandi loftárásum á Líbanon. Tugþúsundir útlendinga eru fastir í landinu og komast hvorki lönd né strönd. Íslendingarnir sem komu heim frá Líbanon í gær grétu af gleði við heimkomuna. 19.7.2006 19:48
Sökuð um morð eftir fellibylinn Katrínu Læknir og tveir hjúkrunarfræðingar hafa verið handtekin, sökuð um morð á fjórum sjúklingum á spítala í New Orleans eftir fellibylinn Katrínu. 19.7.2006 19:16
Einkavæðingu á almennum öryggishagsmunum mótmælt Öryrkjabandalagið kvartar undan því við Flugmálastjórn að starfsmenn Securitas, en ekki þrautþjálfaðir lögreglumenn, sjái um vopnaleit á hreyfihömluðum farþegum. 19.7.2006 19:11
Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara hækka Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara hækka og bótakerfið verður einfaldað. Þessu lofar ríkið í nýju samkomulagi við Landssamband eldri borgara. 19.7.2006 19:07
Deilir hart á fundarstjóra Víglundur Þorsteinsson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, sakaði Pétur Guðmundarson fundarstjóra á hluthafafundi Straums-Burðaráss um gerræðisleg vinnubrögð. Pétur bannaði Víglundi að spyrja stjórnina út í átökin um yfirráð í félaginu. 19.7.2006 18:45
Ekið á dreng Ekið var á fimm ára gamlan dreng við Urðarstekk í Breiðholti rétt eftir klukkan eitt í dag. Drengurinn var á hlaupahjóli og ekki með hjálm. Hann hlaut höfuðáverka en er ekki alvarlega slasaður. Drengurinn var lagður inn á Landspítalann til eftirlits. 19.7.2006 18:37
Könnuðu hug almennings lítið Stjórnendur Strætós leituðu ekki kerfisbundið til almennings eftir hugmyndum, þegar nýja leiðakerfið var tekið upp. Þeir töldu meðal annars fjármunum félagsins betur varið í daglega starfsemi en ítarlega athugun. 19.7.2006 18:31
Ríkiskaupum gert að afhenda Altantsolíu gögn Ríkiskaupum er gert skylt að afhenda Atlantsolíu gögn um niðurstöðu útboðs frá árinu 2003 vegna eldsneytiskaupa ríkisstofnanna. Atlantsolía fékk sigur hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál, því að Ríkiskaup höfðu neitað að láta gögnin af hendi. Gögnin verða afhent á morgun. 19.7.2006 18:09
Rannsóknarskipið Gæfa komin heim úr leiðangri Tveggja vikna rannsóknarleiðangri Gæfu VE 11 lauk fyrir skömmu, þar sem útbreiðsla og ástand sandsílastofna var kannað , en síli eru mikilvæg fæða nytjafiska, hvala og sjófugla. 19.7.2006 18:04
Tafir á umferð sunnan við Borgarnes Umferðarljósum hefur verið komið upp á þjóðvegi eitt, 15 kílómetrum sunnan við Borgarnes, vegna vegaframkvæmda. 19.7.2006 17:54
Verulega vonsvikinn yfir ákvörðun samgönguráðherra Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segist verulega vonsvikinn yfir því að samgönguráðherra skuli ekki ætla að beita sér fyrir því að nýtt vaktafyrirkomulag verði fellt úr gildi. Sáttin sem ríkt hafi milli yfirmanna og starfsmanna sé því enn í uppnámi. 19.7.2006 17:50
Fólksbíll hafnaði ofan í skurði Fólksbíll fór út af veginum skammt frá norðurenda Hvalfjarðarganganna rétt fyrir klukkan fimm í dag og hafnaði ofan í skurði. Að sögn lögreglunnar á Akranesi hlaut ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, höfuðhögg en talið er að meiðsl hans séu ekki alvarleg. 19.7.2006 17:38
Samtök verslunar og þjónustu óska skýringa frá forsætisráðherra Samtök verslunar og þjónustu óska skýringar á orðum forsætisráðherra um tillögur matvælanefndar, þar sem hann segir að innflytjendum, heildsölum og smásölum sé ekki treystandi til að láta lækkun tolla og skatta á matvæli skila sér til neytenda í lægra verði. 19.7.2006 17:36
Met aðsókn í Háskólann í Reykjavík Aldrei hafa borist fleiri umsóknir um skóavist til Háskólans í Reykjavík. Um 1800 manns hafa nú sótt um skólavist fyrir næsta skólaár, sem hefst 18. ágúst næstkomandi. 19.7.2006 17:18
Ósáttur við ummæli forsætisráðherra Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segist fullviss um að lækkum á sköttum og álagningu á matvælum muni skila sér til neytenda. Hann er ósáttur við ummæli forsætisráðherra um að verslunin gætu tekið slíkar lækkanir til sín. 19.7.2006 15:54
Tómas Zoëga áfram yfirlæknir hjá LSH Náðst hefur samkomulag milli forstjóra LSH og Tómasar Zoëga um að Tómas haldi áfram yfirlæknisstarfi sínu við geðsvið spítalans með sama hætti og áður. 19.7.2006 15:51
Bensínverð hækkar Bensínlítrinn hér á landi færi yfir 140 krónur, ef verðið væri látið fyglja hækkuninni á Rotterdammarkaði í gær. 19.7.2006 15:19
Samið við eldri borgara Lífeyrisgreiðslur til eldri borgara frá Tryggingastofnun ríkisins hækka og bótakerfið verður einfaldað með fækkun og sameiningu bótaflokka, samkvæmt samkomulagi sem Landsamband eldri borgara og ríkisstjórnin skrifuðu undir í dag. Þá munu bætur lækka minna vegna tekna maka og annarra tekna bótaþega en nú er. Samkomulagið var undirritað af forsætisráðherra, fjármálaráðherra, félagsmálaráðherra og landbúnaðarráðherra og fulltrúum eldri borgara í Ráðherrabústaðnum í dag. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að tekið verði upp frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega og vasapeningar hækkaðir. Þá verði starfslok sveigjanleg, þannig að lífeyrisgreiðslur hækki við frestun á töku lífeyris. Heimaþjónusta verði stóraukin og áhersla færð frá stofnanaþjónustu. Þá mun fjármagn sem nú gengur til reksturs stofnana úr Framkvæmdasjóði aldraðra ganga til uppbyggingar öldrunarstofnana. 19.7.2006 14:45
Áfrýjar til Hæstaréttar Jónas Garðarsson, fyrrverandi formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi sem kveðinn var upp yfir honum um manndráp af gáleysi. 19.7.2006 13:56
Landhelgisgæslan áfram á Reykjarvíkurflugvelli Hugmyndir um að flytja þyrlubjörgunarsveit Landhelgisgæslunnar upp á Keflavíkurflugvöll fá ekki hljómgrunn í nýjum tillögum að framtíðarskipulagi sveitarinnar. Þar er lagt til að sveitin verði áfram á Reykjavíkurflugvelli. 19.7.2006 13:38
Mikil fjölgun ferðamanna í maí Rúmlega 31 þúsund erlendir ferðamenn heimsóttu Ísland í maí síðastliðnum, samkvæmt talningum Ferðamálastofu. Þetta er aukning um 12,5% miðað við maí í fyrra. 19.7.2006 13:04