Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Atvinnuleysi 4% á öðrum ársfjórðungi Að meðaltali 7.200 manns voru án vinnu á öðrum ársfjórðungi 2006 eða fjögur prósent af vinnuafli samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Atvinnuleysi mældist 3,9% hjá körlum en 4,1% hjá konum. Meirihluti atvinnulausra voru námsmenn. Á öðrum ársfjórðungi 2005 mældist atvinnuleysi þrjú prósent. 19.7.2006 10:29
Handtekin fyrir morð Bandarískur læknir og tveir hjúkrunarfræðingar sem unnu í ringulreiðinni sem varð í New Orleans eftir fellibylinn Katrínu voru handtekin í gær. Þeim var gefið að sök að hafa myrt fjóra fárveika sjúklinga sem morfíni og öðrum kvalastillandi efnum. Það var læknanemi sem tilkynnti málið. 19.7.2006 09:14
Ók niður ljósastaur Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar hann ók niður ljósastaur við þjóðveginn í Mosfellsdal undir kvöld í gær. Bíllinn stórskemmdist. Þá slapp ökumaður ómeiddur þegar hann velti bíl sínum í Tungudal við Ísafjörð í gærkvöldi. Það gerðist skammt frá gangamunnanum og eru tildrög óljós. 19.7.2006 08:51
Hreindýraveiðar á Austurlandi hafnar Hreindýraveiðitíminn á Austurlandi er hafinn og er þegar búið að fella þó nokkra tarfa. Um það bil áttatíu manns hafa atvinnu af leiðsögn fyrir veiðimennina, en þeir aðstoða líka við að bera bráðina til byggða. Á þessu veiðitimabili, sem lýkur fimmtánda september, má fella rúmlega níu hundruð dýr, sem er stærsti veiðikvóti til þessa.- 19.7.2006 08:11
Bjart og hlýtt næstu daga „Sólin fer að leika stærra hlutverk í okkar lífi á næstunni,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur sem spáir góðu veðri um allt land næstu vikuna. 19.7.2006 08:00
Bush og Blair töluðu af sér Á G8-fundinum náðist á band einkasamtal George W. Bush og Tony Blair um ástandið í Líbanon. Þar kveður við annan hljóm en í opinberum yfirlýsingum þeirra. Hluti samtalsins fer hér á eftir. 19.7.2006 07:45
Listaverk RÚV eru metin á 52 milljónir Nefnd á vegum Ríkisendurskoðanda vinnur að mati á eignum Ríkisútvarpsins. Forvörður í Morkinskinnu verðmat listaverk í eigu stofnunarinnar. Hann telur þau eiga að vera á Listasafni Íslands. Hluti af ásjónu RÚV, segir útvarpsstjóri. 19.7.2006 07:45
Rúmlega fimmhundruð manns hafa fundis látnir á Jövu Enn er leitað í rústum húsa sem holskeflan á Jövu jafnaði við jörðu. 525 manns hafa nú fundist látnir og 160 til viðbótar er enn saknað. Flóðbylgjan skall á suðurströnd Jövu eftir að jarðskjálfti upp á 7,7 á Richter varð fyrir utan suðurströnd eyjarinnar í fyrradag. Þriggja metra háar öldur skullu fyrirvaralaust á suðurströnd Jövu skömmu eftir skjálftann. Fjöldi þeirra látnu á enn eftir að hækka meðan björgunarfólk leitar í rústum húsa og hótela að eftirlifendum eða líkum. Neyðaraðstoð er nú farin að berast til Jövu, hjálpargögn, matvæli og líkpokar. 19.7.2006 07:34
Bush beitir neitunarvaldi George W. Bush Bandaríkjaforseti hyggst beita neitunarvaldi gegn lögum um fósturstofnfrumur, sem Bandaríkjaþing hefur samþykkt og sent forsetanum til undirritunar. 19.7.2006 07:30
Ísraelar ganga mjög hart fram Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra segir frábært til þess að vita að tekist hafi að flytja alla Íslendinga heilu og höldnu frá Beirút í Líbanon. Eftir því sem næst verði komist séu ekki fleiri Íslendingar eftir í landinu. 19.7.2006 07:30
Óvíst að lægri gjöld skili sér til neytenda Forsætisráðherra segir ekki víst að þótt skattar á matvöru lækki hafi það áhrif til verðlækkunar. Ígildi skattsins gæti runnið eitthvað annað. Skýrsla matvælaverðsnefndar forsætisráðherra var rædd á fundi ríkissins. 19.7.2006 07:30
Jónas áfrýjar til Hæstaréttar Jónas Garðarsson, sem dæmdur var í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðasta mánuði í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi, hefur áfrýjað dómnum til Hæstaréttar. 19.7.2006 07:30
Flöskuháls í skólakerfinu Rektor Listaháskólans er ánægður með tillögur nefndar menntamálaráðuneytisins um eflingu starfsnáms. Hann segir framhaldsskólastigið flöskuháls í skólakerfinu þegar kemur að listnámi. 19.7.2006 07:30
Ók niður ljósastaur Ökumaður bíls slapp lítið meiddur þegar hann ók niður ljósastaur við þjóðveginn í Mosfellsdal undir kvöld í gær. Bíllinn stórskemmdist. Þá slapp ökumaður ómeiddur þegar hann velti bíl sínum í Tungudal við Ísafjörð í gærkvöldi. Það gerðist skammt frá gangamunnanum og eru tildrög óljós.- 19.7.2006 07:27
Landgöngulið Ísraela komið inn í Líbanon Ísraelskir skriðdrekar og landgöngulið réðust í nótt inn í Suður-Líbanon. Hingað til hafa Ísraelar einungis gert loftárásir á Líbanon. 277 líbanskur borgari hefur nú látist í árásunum, þar af 42 í árásum í nótt en 25 Ísraelar hafa látist á rúmri viku í sprengjuárásum Hisbollah. Bush Bandaríkjaforseti ásakar nú Sýrlendinga um að kynda undir átökum milli Hisbollah og Ísraelshers til að styrkja áhrif sín í Líbanon. Ísraelskir hermenn réðust einnig inn í flóttamannabúðir í Gaza en þar létust tveir Palestínumenn í skotárásum og fimm í sprengjuárás Ísraela. 19.7.2006 07:16
Níðingar í framboð Hollenskur dómstóll neitaði á mánudag að banna stjórnmálaflokk barnaníðinga, sem berst fyrir því að kynlífsaldur verði lækkaður niður í tólf ár úr sextán árum. Dómarinn sagði það vera rétt kjósenda að dæma um lögmæti stjórnmálaflokka. 19.7.2006 07:15
Ég vil að veturinn komi bara strax „Bara allt gott, þakka þér fyrir. Ég er búinn að vera í fæðingarorlofi í tvo mánuði og hef notið þess að vera með fjölskyldunni,“ segir þriggja barna faðirinn Guðmundur Karl Jónsson, framkvæmdastjóri Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands og skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. „Þó að það sé fullt starf að vera með lítil börn nýtur maður þess út í ystu æsar að vera með fjölskyldunni.“ 19.7.2006 07:15
Átta sinnum meira magn fíkniefna Lögreglan á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði gerði upptækt áttfalt magn fíkniefna á fyrri helmingi þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum afbrotatölum frá lögreglustjóranum í Hafnarfirði. Upptækt magn fíkniefna á fyrstu sex mánuðum þessa árs nam rúmum 6,5 kílóum á móti 850 grömmum á sama tímabili síðasta árs. 19.7.2006 07:15
Komin heilu og höldnu Það voru vægast sagt fagnaðarfundir þegar tvær íslenskar fjölskyldur, sjö manns alls, lentu heilu og höldnu í Keflavík í gærkvöld eftir langt og strangt ferðalag frá vígvellinum í Líbanon. Brosið á ferðalöngunum og ættingjum þeirra var breitt, en tárin voru ekki langt undan. Sigríður Snævarr, starfandi ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, tók á móti hópnum fyrir hönd ráðuneytisins en það sendi flugvél eftir fólkinu til Damaskus í Sýrlandi í fyrradag sem flaug með það til Kaupmannahafnar, þaðan sem það kom fljúgandi í gærkvöld. Flugvirkjarnir þrír sem einnig voru í hópnum koma ekki strax til Íslands heldur halda til starfa á vegum Atlanta. 19.7.2006 07:10
Búist við langvinnu stríði Níu af hverjum tíu Ísraelum telja árásir ísraelska hersins á Líbanon eiga fullan rétt á sér, samkvæmt ísraelskri skoðanakönnun sem birt var í gær. Sextíu prósent aðspurðra Ísraela eru þeirrar skoðunar að herinn eigi að halda árásunum áfram þangað til Hizbollah-samtökunum í Líbanon hefur verið tortímt. 19.7.2006 07:00
350 létust í flóðbylgjunni Tala þeirra sem létust í flóðbylgjunni sem reið yfir Jövu á Indónesíu á mánudag er komin yfir 340 og vara yfirvöld við því að fleiri muni líklega finnast látnir á næstu dögum. Meðal hinna látnu var sænskur karlmaður, en tvö sænsk börn fundust á lífi í gær. 19.7.2006 07:00
Ekki víst að sjóðurinn veikist Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra segir ekki sjálfgefið að lækkun matsfyrirtækisins Standard & Poor‘s á lánshæfismati Íbúðalánasjóðs veiki sjóðinn. „Það þarf ekki að vera til lengri tíma,“ sagði Magnús í gær en tók fram að hann ætti eftir að fara yfir málið með sérfræðingum. Hann benti á að breyting á mati S&P hefði svifið yfir vötnum í nokkurn tíma en Moodys, sem er sambærilegt fyrirtæki, gæfi sjóðnum áfram bestu einkunn. 19.7.2006 07:00
Vonast eftir friðsemd og ró Andrea Hólm og maður hennar, Hassan Jami Chahla, hafa ekki enn náð sambandi við nánustu fjölskyldu hans sem býr í þeim hluta Beirútborgar þar sem árásir Ísraela hafa aukist dag frá degi að undanförnu. 19.7.2006 07:00
Það er fleira dýrt en maturinn „Það liggur fyrir að á vegum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar er unnið að því að semja um tolla og innanlandsstuðning og þar liggur landbúnaðurinn undir,“ sagði Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra eftir fund ríkisstjórnarinnar í gærmorgun þar sem rætt var um skýrslu formanns matvælaverðsnefndar. 19.7.2006 07:00
Vegið að kókópuffs-kynslóðinni Skýrsla um leiðir til lækkunar matarverðs hefur verið mikið í umræðunni síðan nefnd forsætisráðherra skilaði henni af sér í síðustu viku. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafa lítið tjáð sig um skýrsluna en það breyttist eftir ríkisstjórnarfundinn í gær. 19.7.2006 07:00
Ferðin frá Líbanon gekk vonum framar Íslendingarnar sem utanríkisráðuneytið flutti frá átakasvæðum í Líbanon lentu heilir á höldnu í Kaupmannahöfn í gær. Vel gekk að koma fólki frá Beirút til Damaskus. Stóðu vel að fólksflutningum frá Líbanon, segir Már Þórarinsson. 19.7.2006 07:00
Átján ára mál rannsakað Innri endurskoðandi KB banka sætir nú lögreglurannsókn fyrir að hafa notað skjal frá útlánaeftirliti Búnaðarbankans til að gera kröfur við gjaldþrot Stokkfisks. Eigandi fyrirtækisins kærði málið í nóvember í fyrra eftir að Fjármálaeftirlitið hafði gert athugasemdir við efni skjalsins. 19.7.2006 06:45
Fær ættleiðingu ekki greidda Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu eina milljón króna í bætur frá ríkinu vegna læknamistaka en vísaði hins vegar frá bótakröfu hennar vegna fyrirhugaðrar ættleiðingar barna frá Kína. 19.7.2006 06:45
Tíu aðrar leiðir vannýttari Stjórn Strætó bs. ákvað að leggja niður leið S5, að sögn Ásgeirs Eiríkssonar framkvæmdastjóra, vegna þess að mestan hluta leiðarinnar aka aðrar leiðir líka. 19.7.2006 06:45
Íbúasamtök Grafarvogs vilja ekki að þverun verði gerð með uppfyllingu í Eiðisvík Íbúasamtök Grafarvogs gagnrýna að ekki sé gert ráð fyrir fleiri en tveimur áþekkum valkostum í drögum að matsáætlun um framkvæmd annars áfanga Sundabrautar og benda á að hvorugur valkostanna komi til móts við hagsmuni nárrúruverndar og lífsgæða íbúa. 18.7.2006 21:07
Betri nýting á fjármunum í forvarnastarfi Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að fela félagsmálaráðherra að leiða samstarf þeirra aðila sem starfa að forvörnum hér á landi og móta heildstæða forvarnastefnu sem byggi á betri nýtingu þeirra fjármuna sem þegar er veitt í verkefni á þessu sviði. 18.7.2006 21:00
Fólksflótti frá Líbanon Íbúar Líbanons eru tæplega fjórar milljónir en í landinu býr jafnframt nokkur fjöldi útlendinga víðs vegar að úr heiminum sem nú vill komast burt. Þorri þeirra kemur frá nágrannaríkjunum og kemst því heim af eigin rammleik en tugþúsundir þegna fjarlægari landa hafa verið strandaglópar síðustu daga. 18.7.2006 19:41
Jarðskjálfinn á Jövu Jarðskjálftar eru tíðir í og við Indónesíu enda gengur þar Indó-Ástralíuflekinn undir Evrasíuflekann. 18.7.2006 19:35
Átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-samtakanna ekki í rénun Hafi einhver búist við að átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-samtakanna væru í rénun þá skjátlast hinum sama hrapalega. 18.7.2006 19:24
Búskap hætt á Hrafnseyri Hrafnseyri við Arnarfjörð, fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar, er komin í röð eyðijarða. Þetta fyrrum höfuðból var mannlaust í vetur, í fyrsta sinn frá landnámi. Þar er þó reynt að halda uppi öflugri starfsemi yfir sumartímann, en það nýjasta er að bjóða upp á háskólanám. 18.7.2006 18:57
2500 ábendingar um barnaklám Ábendingalínu Barnaheillar vegna barnakláms á Netinu hafa borist 2500 ábendingar síðustu ár. Talsmenn tengslasíðna eins og MySpace og Bebo hafa viðurkennt að þeir geti lagt meira á sig til að halda kynferðisglæpamönnum frá börnum. 18.7.2006 18:45
Húsavíkurdagar framundan Húsavíkurhátíðin, Mærudagar og Sænskir dagar, verður haldin 24. til 30. júlí. 18.7.2006 18:44
Vel sótt sýning Sýning á hönnun Steinunnar Sigurðardóttir vakti mikla athygli á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn en sýningin er ný nýafstaðin. 18.7.2006 17:51
Framtíðarskipulag þyrlubjörgunarþjónustu á Íslandi Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur kynnt í ríkisstjórn skýrslu með tillögum um framtíðarskipulag þyrlubjörgunarþjónustu á Íslandi. 18.7.2006 17:50
Fullveldishátíð Hríseyjar haldin um næstu helgi Fullveldishátíðin í Hrísey verður haldin hátíðlega um næstu helgi. Þetta er í tíunda sinn sem hátíðin er haldin en hún var upphaflega haldin árið 1997 til að fagna því að tillaga um sameiningu Hríseyjar og Dalvíkur var felld. 18.7.2006 17:47
Rafmagn komið á í Kópavogi Rafmagn er komið aftur á í Kópavogi en grafið var í háspennustreng við Smiðjuveg um klukkan þrjú í dag. Rafmagnslaust varð í Engihjalla, Hlíðarhjalla, Stórahjalla og hluta Smiðjuvegs. Rafmagn kom á að nýju rétt fyrir klukkan fjögur í dag. 18.7.2006 17:45
Brugðust ekki við þrátt fyrir viðvörun Þrátt fyrir að stjórnvöld á Indónesíu hafi fengið viðvörun um að jarðskjálftinn við eynna Jövu í gær, gæti valdið flóðbylgju, þá voru ekki gerðar neinar ráðstafanir til að vara fólk við á þeim svæðum sem voru í hættu. 18.7.2006 17:35
Biðtími hámark 3 mínútur Strætó bs. segir að með breytingum á tímatöflum verði biðtími við tengingu á milli leiðar 19 og stofnleiðar 6 að hámarki 3 mínútur. 18.7.2006 17:34
Japanir leggja drög að viðskiptahindrunum Japönsk yfirvöld eru nú að leggja drög að sérstökum viðskiptahindrunum gegn Norður-Kóreumönnum, til viðbótar við takmarkað viðskiptabann sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á laugardaginn. 18.7.2006 17:29
Vottuðu fórnarlömbum virðingu sína Indverjar vottuðu 207 fórnarlömbum sprengjuárásanna á lestakerfið í Mumbai virðingu sína í dag með einnar mínútu þögn. Forseti Indlands, Abdul Kalam, lagði blómsveig á staðinn þar sem fyrsta sprengjan sprakk þegar nákvæmlega vika var frá fyrstu sprengingunni, rétt fyrir eitt að íslenskum tíma. 18.7.2006 17:24