Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýjar reglur um lóðaúthlutun Bæjarstjórn Kópavogs náði í gær samkomulagi um nýjar reglur um lóðaúthlutun en síðasta úthlutun var harðlega gagnrýnd fyrir ógegnsæi og klíkuskap. Þá bárust 2300 umsóknir um lóðir við Elliðavatn en bæjarráð handvaldi þá tvö hundruð sem fengu lóðirnar. 14.9.2005 00:01
Taka ekki lengur mark á vopnahléi Bresk stjórnvöld segja að þau taki ekki lengur mark á vopnahléi sambandssinna á Norður-Írlandi. Miklar óeirðir urðu í Belfast um síðustu helgi þegar mótmælendur reyndu að komast inn í hverfi kaþólikka til þess að minnast sigra sem þeir unnu fyrir mörgum öldum. 14.9.2005 00:01
Aðildarumsókn ekkert einkamál "Eðlilega þrýsta Norðurlandaráðherrarnir á okkur. Það var samkomulag um að Ísland færi í þetta ekki aðeins fyrir okkar hönd heldur einnig fyrir hönd allra Norðurlandanna. Þetta eru því líka hagsmunir annarra en okkar," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um aðildarumsókn Íslendinga að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. 14.9.2005 00:01
Bíll fór út af á Reykjanesbraut Bíll fór út af veginum á Strandheiði á Reykjanesbraut, mitt á milli Voga og Kúagerðis, fyrir stundu að sögn lögreglunnar í Keflavík. Talið er að ökumaðurinn sé slasaður en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um tildrög óhappsins að svo stöddu. 14.9.2005 00:01
Óbreytt áætlun Iceland Express Pálmi Haraldsson, einn aðaleiganda Iceland Express og Sterling, segir að ákvörðun Iceland Express um að fljúga til sex nýrra ákvörðunarstaða í Evrópu standi óbreytt þótt Sterling verði selt til FL Group. FL Group ætlar að taka upp viðræður við eignarhaldsfélagið Fons um kaup á Sterling-lágjaldaflugfélaginu, því fjórða stærsta í heimi. 14.9.2005 00:01
Mildi að ekki fór verr Mildi þykir að aðeins einn skyldi farast þegar beljandi flóð og aurskriður féllu á íbúðarhverfi í Björgvin í Noregi, síðastliðna nótt. Skriðan féll um klukkan tvö í nótt þegar flestir voru í fastasvefni. 14.9.2005 00:01
Spurt og svarað: Ríkissáttasemjari Mikið hefur mætt á ríkissáttasemjara að undanförnu en deilu SFR og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu lauk með milligöngu hans í síðustu viku sem og deilum í kjaramálum Starfsmannafélags Suðurnesja og einnig flugumferðarstjóra. Á sama tíma heyrast þær raddir að launahækkanir geti komið þjóðfélaginu um koll á þessum þenslutímum. Ásmundur Stefánsson er ríkissáttasemjari. 14.9.2005 00:01
Bílvelta á Reykjanesbraut Bílvelta varð á Reykjanesbraut á Strandarheiði klukkan sjö í gærkvöld. Varnarliðsmaður sem var á leið til Keflavíkur missti stjórn á bílnum og fór hann ofan í dæld sem er á milli akreinanna en Reykjanesbraut er tvöföld á þessum kafla. Varð að klippa manninn úr bílnum en hann var síðan fluttur á Landspítalann í Fossvogi. 14.9.2005 00:01
Reglusamir menntskælingar Nemendur í 4. bekk Menntaskólans á Akureyri komu til landsins í gær úr skólaferðalagi í Tyrklandi en flugvél þeirra lenti á Akureyri. Gerði lögreglan viðeigandi ráðstafanir og var á svæðinu með fíkniefnaleitarhund frá tollgæslunni. 14.9.2005 00:01
Hrosshúðarþjófar fundnir Fimm Spánverjar sem í fyrrakvöld stálu hrosshúð á Hótel Valhöll á Þingvöllum voru gómaðir af lögreglunni á Egilsstöðum um hádegisbilið í gær á hóteli þar í bænum. Þeir fengust til að skila húðinni og verða því engir frekari eftirmálar. 14.9.2005 00:01
Ásælast flugstjórnarsvæði Íslands Kanadamenn eru farnir að ásælast hluta af flugstjórnarsvæði Íslands. Ástæða þess að Kanadamenn vilja fá stærri hluta er auðvitað fjárhagsleg - svæðinu fylgja miklar gjaldeyristekjur og fjöldi starfa. 14.9.2005 00:01
Ríkið hirðir allt upp í 85% Ellilífeyrisþegar sem freistast til að láta atvinnuauglýsingar lokka sig út á vinnumarkaðinn ættu að hugsa sig vandlega um. Ríkið hirðir nefnilega allt upp í 85 prósent launanna, í formi skatta og bótaskerðinga. 14.9.2005 00:01
Mikil fjöldi átröskunarsjúklinga Þriðja hvern dag kemur nýr átröskunarsjúklingur á bráðavakt geðdeildar Landspítalans. Í haust stendur til að setja á stofn sérstaka göngudeild fyrir fólk með átröskun. 14.9.2005 00:01
Stjórnarflokkar töpuðu 24 sætum Ríkisstjórn Noregs féll í þingkosningunum þar í gær. Vinstriflokkarnir í stjórnarandstöðunni náðu 88 þingsætum en ríkisstjórn Kjell Magne Bondevik fékk aðeins aðeins 81 sæti og tapaði 24 þingsætum frá síðustu kosningum. Bondevik fer á fund Haraldar Noregskonungs í dag og mun þar tilkynna honum um brotthvarf sitt úr embætti eftir að fjárlögin hafa verið kynnt í október. 13.9.2005 00:01
Ekkert innanlandsflug í morgun Innanlandsflug Flugfélags Íslands hefur legið niðri í morgun, en því var hætt eftir hádegi í gær vegna hættu á ísingu í lofti. Reynt verður að hefja flug til nokkurra staða upp úr klukkan níu en víðast hvar á að kanna skilyrði nánar um ellefuleytið. 13.9.2005 00:01
Sjómælingaskip tekur þátt í leit Sjómælingaskipið Baldur frá Landhelgisgæslunni mun í dag taka þátt í leitinni að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað hefur verið frá því á sunnudag, eftir sjóslysið á sundunum. Skipið er búið botnsjám sem gætu komið að gagni. Leit á sjó, sem gerð var í gærkvöldi, bar engan árangur og heldur ekki leit í fjörunni í gær þar sem á fjórða tug vina og ættingja Friðriks leitaði. 13.9.2005 00:01
Yfirmaður almannavarna hættir Michael Brown, yfirmaður almannavarna í Bandaríkjunum, hefur sagt starfi sínu lausu í kjölfar þess að hann var látinn víkja sem stjórnandi aðgerða vegna fellibylsins Katrínar. Brown sagðist í gær telja það forsetanum og stofnun sinni fyrir bestu að hann léti af störfum. Thad Allen, yfirmaður strandgæslunnar, hafði þegar tekið við af honum sem stjórnandi aðgerða við Mexíkóflóa. 13.9.2005 00:01
Ók traktor inn í tölvuverslun Óvenju bíræfinn þjófur ók stolinni traktorsgröfu inn í tölvuverslun við Bæjarlind í Kópavogi undir morgun og braut í leiðinni dyraumbúnað og stóran sýningarglugga. Að því búnu lét hann greipar sópa í verlsuninni og hvarf á brott. Ekki er enn vitað hversu miklu hann stal né hver eða hverjir voru þarna á ferð, en rannsóknarlögreglumenn eru á vettvangi. 13.9.2005 00:01
Árás á veitingastað í Bagdad Tveir létust og sautján slösuðust þegar mjög öflug bílsprengja sprakk fyrir utan vinsælan veitingastað í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gærkvöldi. Ekki er vitað hver stóð fyrir árásinni en árásum af þessu tagi hefur fækkað nokkuð í Írak undanfarnar vikur. 13.9.2005 00:01
Ringulreið í rafmagnsleysi í LA Töluverð ringulreið braust út í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær þegar stórir hlutar borgarinnar urðu rafmagnslausir eftir að opinberir starfsmennn gerðu mistök við tengingar á háspennulínum. Rafmagnsleysið náði til tveggja milljóna manna í borginni og nágrenni hennar. Margir festust í lyftum og umferðarljós á stórum gatnamótum urðu óvirk. 13.9.2005 00:01
Knattspyrnumaður skotinn á leik Argentínskur knattspyrnumaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að lögregla skaut hann með gúmmíkúlu þegar til óeirða kom í leik Mendoza og Godoy Cruz. Leikmaðurinn reyndi ásamt félögum sínum að stöðva grjótkast áhorfenda þegar lögreglumenn komu aðvífandi og skutu hann. Fjarlægja þurfti hluta af lunga leikmannsins en hann er ekki lengur í lífshættu. Sex lögreglumönnum hefur verið sagt upp störfum í kjölfar atviksins. 13.9.2005 00:01
Spá hækkun stýrivaxta Greiningardeildir Landsbankans og KB banka spá því báðar að Seðlabankinn muni á næstunni hækka stýrivexti í kjölfar fregna af vaxandi verðbólgu. Þar sem verðbólgan er komin yfir þolmörk verðbólgumarkmiðs bankans þarf hann að gera ríkisstjórninni formlega grein fyrir stöðunni. Það hefur tvisvar gerst áður, í síðara skiptið í febrúar á þessu ári, og í bæði skiptin fylgdu stýrivaxtahækkanir í kjölfarið. 13.9.2005 00:01
Þjóðarútgjöld hafi aukist um 11,8% Þjóðarútgjöld eru talin hafa vaxið um 11,8 prósent að raungildi á 2. ársfjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður, eftir því sem fram kemur í upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Landsframleiðslan jókst hins vegar mun minna vegna mikils innflutnings eða um 6,8 prósent. 13.9.2005 00:01
Tyrkneskum gíslum sleppt í Írak Þremur tyrkneskum verkfærðingum, sem höfðu verið í haldi mannræningja í Írak í tvo mánuði, var sleppt í gær og eru þeir þegar komnir til heimalands síns. Frá þessu greina tyrkneskir fjölmiðlar í dag. Mannræningjarnir höfðu farið fram á það að fyrirtækið sem verkfræðingarnir unnu hjá hætti starfsemi í Írak en ekki er ljóst hvort fyrirtækið hafi orðið við þeim kröfum og þannig greitt leiðina fyrir lausn gíslanna. 13.9.2005 00:01
Spennan minnkar í Belfast Óeirðir héldu áfram í Belfast og nokkrum öðrum stöðum á Norður-Írlandi í gærkvöld, þriðja kvöldið í röð, en voru þó ekki eins miklar og um helgina. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að tíu lögreglumenn hafi slasast í átökum við mótmælendur, en átökin hófust þegar lögreglan kom í veg fyrir að Óraníumenn gætu farið fylktu liði um hverfi kaþólikka á laugardaginn var. 13.9.2005 00:01
Aftur til vinnu eftir veikindi Jacques Chirac Frakklandsforseti hélt í morgun fyrsta fund sinn með ríkisstjórninni eftir veikindi. Forsetinn var lagður inn á sjúkrahús fyrir um tíu dögum vegna æðakvilla sem höfðu áhrif á sjón hans og dvaldi hann þar í tæpa viku. Hann sneri svo aftur til starfa í gær og að sögn ráðherra á fundinum var hann hinn hressasti. 13.9.2005 00:01
Styrkir saltvinnslu og menntun Pétur Björnsson, fyrrverandi forstjóri og eigandi Vífilfells, hefur veitt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í Gíneu-Bissá fimm milljóna króna styrk. Í tilkynningu frá UNICEF hér á landi kemur fram að fénu verði varið alfarið til verkefnis sem miðar að því að styrkja framleiðslu joðbætts salts í landinu og um leið veita stúlkum og ungum mæðrum menntun. 13.9.2005 00:01
Stjórn hafnað á afgerandi hátt Öllum að óvörum höfnuðu Norðmenn með afgerandi hætti ríkisstjórn Kjells Magnes Bondeviks í kosningunum í gær. Stjórnarflokkarnir guldu afhroð en Verkamannaflokkurinn og Framfaraflokkurinn unnu stórsigur. 13.9.2005 00:01
Flutningstími sjúkra muni lengjast Það er ekki og verður aldrei valkostur, samkvæmt ákalli frá Norðurlandi, að lengja flutningstíma bráðveikra og slasaðra af landsbyggðinni á hátæknisjúkrahús í Reykjavík, með því að leggja Reykjavíkurflugvöll niður. 13.9.2005 00:01
Stefna olíufélaga þingfest Stefna olíufélaganna Skeljungs og Olíuverslunar Íslands á hendur samkeppnisyfirvöldum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tíu í morgun. Stefna Olíufélags Íslands hefur þegar verið þingfest. 13.9.2005 00:01
GR vill stækka völl á Korpu Golfklúbbur Reykjavíkur vill stækka golfvöllinn á Korpu úr 18 holum í 27. Til greina kemur að borgin byggi á fyrstu braut. 13.9.2005 00:01
Farið yfir ákæruliði í Baugsmáli Fyrirtaka í Baugsmálinu verður klukkan hálftvö í dag og hefur verið tekinn frá tími í dómsal til klukkan hálffimm. Þar verður meðal annars farið yfir átján ákæruliði sem dómendur í málinu telja að annmarkar gætu verið á. Héraðsdómur Reykjavíkur sendi bæði ákæruvaldinu og ákærðu bréf 26. ágúst síðastliðinn þar sem athygli var vakin á hugsanlegum annmörkum sem gætu orðið til þess að dómur verði ekki kveðinn upp um hluta ákærunnar. 13.9.2005 00:01
Nýr framkvæmdastjóri hjá RKÍ Kristján Sturluson, félagsráðgjafi og sálfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands og tekur við því starfi af Sigrúnu Árnadóttur sem gegnt hefur starfinu síðustu 12 ár. Kristján starfaði nú síðast sem framkvæmdastjóri starfsmanna- og umhverfissviðs hjá Norðuráli ehf. en er enginn nýgræðingur á sviði Rauða krossins, hefur verið sjálfboðaliði, deildarformaður, stjórnarmaður og skrifstofustjóri innanlandsskrifstofu. 13.9.2005 00:01
Tjón talið nema hundruðum þúsunda Óvenju bíræfinn þjófur ók stolinni traktorsgröfu að tölvuverslun við Bæjarlind í Kópavogi undir morgun og braut svo dyraumbúnað og stóran sýningarglugga með rimlum fyrir með afturskóflunni. Tjón er talið nema hundruðum þúsunda. 13.9.2005 00:01
Engar séraðgerðir vegna verðbólgu Ríkisstjórnin grípur ekki til sérstakra aðgerða þótt verðbólga sé meiri en hún hefur verið undanfarna 40 mánuði og hafi farið fram úr þolmörkum Seðlabankans. 13.9.2005 00:01
Leggur fram fé vegna hamfara Ríkisstjórn Íslands ætlar að leggja til 31 milljón króna í fjársöfnun fyrir fórnarlömb fellibylsins Katrínar. Peningarnir verða lagðir í sjóð sem George Bush eldri og Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, stýra. 13.9.2005 00:01
Áströskunartilfellum fjölgar mikið Anorexíutilfellum hefur fjölgað um 50 prósent milli ára síðustu árin. Ekkert fjármagn er beinlínis ætlað í meðferð átröskunarsjúklinga í heilbrigðiskerfinu. 13.9.2005 00:01
25 bátar frá Snarfara í leit Sjómælingaskipið Baldur frá Landhelgisgæslunni mun í dag taka þátt í leitinni að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað hefur verið frá því á sunnudag eftir sjóslysið á sundunum. Á sunnudag tóku 25 bátar frá sportbátafélaginu Snarfara þátt í leitinni. 13.9.2005 00:01
Tæp 25% bíla stóðust ekki skoðun Tæplega 120 þúsund bílar fóru í aðalskoðun á síðasta ári. 24,4 prósent af þeim stóðust ekki skoðun. Þetta kemur fram í nýútkominni ársskýrslu Umferðarstofu. Alls voru tæp 236 þúsund ökutæki á skrá í fyrra sem er aukning um 12.500 ökutæki frá árinu á undan. Nýskráð ökutæki voru rétt rúm 19 þúsund og voru rúm 16 þúsund þeirra ný. Meðalaldur fólksbíla hér á landi er 9,9 ár. 13.9.2005 00:01
Of lítið hægt að búa til af lyfjum Vísindamenn telja sig nú hafa þekkingu til þess að búa til bóluefni við fuglaflensu ef hún stökkbreytist og fer að berast milli manna en hins vegar er óttast að ekki takist að framleiða nóg af ef slíkur faraldur kæmi upp. 13.9.2005 00:01
Matsmenn skoði krufningargögn Hæstiréttur sneri úrskurði Hérðasdóms Reykjavíkur og segir að kalla beri til tvo matsmenn í réttarmeinafræðum til þess að meta gögn úr krufningu manns sem lést af völdum hnefahöggs á Ásláki í Mosfellsbæ á síðasta ári. Héraðsdómur hafnaði beiðni verjanda þess, sem er grunaður um verknaðinn, um dómkvadda matsmenn. 13.9.2005 00:01
Osman framseldur til Bretlands Hussain Osman, einn fjórmenninganna sem grunaðir eru um að hafa staðið fyrir misheppnuðum hryðjuverkaárásum í Lundúnum 21. júlí síðastliðinn, verður framseldur frá Ítalíu til Bretlands. Að þessari niðurstöðu komst Hæstiréttur Ítalíu í dag og staðfesti þar með úrskurð á neðra dómsstigi. 13.9.2005 00:01
Hugað verði að Vesturlandsvegi Ekki verður farið í að tvöfalda um eins kílómetra langan kafla af Vesturlandsvegi frá Skarhólabraut að Langatanga í Mosfellsbæ fyrr en eftir þrjú til fjögur ár vegna fjárskorts. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar er mjög ósátt við þetta og finnst með ólíkindum að þessi fjölfarni vegur skuli sitja á hakanum þegar verið er að útdeilda fjármagni vegna sölu Símans. 13.9.2005 00:01
86% jákvæð gagnvart Umferðarstofu 86 prósent þjóðarinnar eru jákvæð gagnvart Umferðarstofu samkvæmt skoðanakönnun Gallups. 4,9 prósent voru neikvæð og 9,1 hvorki jákvæð né neikvæð. Þá telja tæp 78 prósent að Umferðarstofa standi sig vel í umferðaröryggismálum en 8 prósent illa og 14 prósent hvorki vel né illa. 13.9.2005 00:01
Ábyrgðin hjá ríkisvaldinu Hagfræðingur Alþýðusambands Íslands segir að verðbólgan sé að stórum hluta tilkomin vegna aðhaldsleysis í ríkisfjármálum. Tímasetningar á framkvæmdum hafi verið rangar. Annar hagfræðingur segir að þenslan sé ekki lengur aðeins bundin við olíuverð og íbúðaverð heldur sé að breiðast út um hagkerfið. </font /></b /> 13.9.2005 00:01
Býður oddvitunum þremur í hádegismat: „Svona hótanir eru ekki góður grundvöllur fyrir samstarf“ Innlent