Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Dómur fyrir stuld á 1031 krónu 25 ára gamall maður var í dag dæmdur í þrjátíu daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að stela matvörum að verðmæti 1031 króna í verslun 11-11 við Skúlagötu í ágúst síðastliðnum. Maðurinn á að baki nokkurn sakaferil og því kom ekki til álita að skilorðsbinda refsinguna. Hinn ákærði var jafnframt dæmdur til að greiða allan sakarkostnað. 13.12.2004 00:01
Bush tilnefnir nýjan ráðherra George Bush Bandaríkjaforseti hefur tilnefnt Michael Leavitt sem nýjan heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn sinni. Leavitt hefur gegnt stöðu formanns umhverfisverndarmála í Bandaríkjunum undanfarin misseri en var þar áður ríkisstjóri Utah. Fráfarandi heilbrigðisráðherra, Tommy Thompson, sagði af sér á dögunum. 13.12.2004 00:01
Annir og afslöppun á Alþingi Jólahlé Alþingis hófst á föstudag og stendur til 24. janúar. Þingstörf liggja niðri í 28 virka daga. Starfsáætlun þingsins gerir ráð fyrir þing- og nefndafundum í 117 daga á þingárinu 2004 - 2005. Hefðbundinn launþegi vinnur rúma tvö hundruð daga að jafnaði á ári. Einn þingmaður hefur talað í fjórar mínútur í vetur. </font /></b /> 13.12.2004 00:01
Boðað til kosninga í Danmörku Búist er við að boðað verði til kosninga í Danmörku í næsta mánuði en að öllu eðlilegu ættu þær ekki að fara fram fyrr en eftir tæpt ár, eða í nóvember á næsta ári. Forsætisráðherra Danmerkur, Anders Fogh Rasmussen, leiðtogi frjálslyndra, hefur rétt á að boða til kosninga fyrir þann tíma og mun að líkindum gera það vegna góðrar útkomu í könnunum undanfarið. 13.12.2004 00:01
Sjö lágu í valnum Fimm ísraelskir hermenn lágu í valnum eftir árás palestínskra vígamanna á ísraelska herstöð í fyrrinótt. Vígamennirnir grófu göng undir herstöðina, sprengdu öfluga sprengju og réðust síðan á hermennina vopnaðir hríðskotarifflum. Fimm ísraelskir hermenn særðust til viðbótar þeim sem létust og tveir vígamenn létu lífið í árásinni. 13.12.2004 00:01
Abbus næsta öruggur um sigur Mahmoud Abbas, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu (PLO) og fyrrum forsætisráðherra heimastjórnar Palestínu, þykir næsta öruggur með sigur í forsetakosningum Palestínu eftir tæpan mánuð. 13.12.2004 00:01
Kennir stjórnvöldum um eitrunina "Þetta er verk ríkisstjórnarinnar," sagði Viktor Júsjenkó, forsetaframbjóðandi í Úkraínu, þegar hann sakaði keppinauta sína um að hafa eitrað fyrir sér. Orð sín lét hann falla þegar hann sneri heim til Kiev eftir að hafa fengið staðfest hjá austurrískum læknum að eitrað hefði verið fyrir honum. 13.12.2004 00:01
Borgarstjóri verður forseti Traian Basescu, borgarstjóri í Búkarest, bar sigurorð af Adrian Nastase forsætisráðherra í rúmensku forsetakosningunum sem fram fóru á sunnudag. Úrslitin lágu fyrir í gær, Basescu hlaut 51,2 prósent atkvæða en Nastase 48,8 prósent. 13.12.2004 00:01
Á þriðja tug létust á sólarhring Þrettán Írakar létust þegar bílsprengjuárás var gerð í Bagdad í gær og þrír þjóðvarðliðar féllu í bardögum við uppreisnarmenn, þá var eitt ár liðið frá handtöku Saddams Husseins. Sjö bandarískir hermenn féllu í bardögum við andspyrnumenn í vesturhluta Íraks. 13.12.2004 00:01
Pinochet skal í stofufangelsi Dómari fyrirskipaði í gær að Augusto Pinochet, fyrrum einræðisherra Síle, skyldi hnepptur í stofufangelsi. Ástæðan er ákærur sem tengjast ofsóknum gegn pólitískum andstæðingum Pinochet í valdatíð hans. 13.12.2004 00:01
Rúmlega 100 fastir á Landspítala Rúmlega 100 einstaklingar eru innlyksa á Landspítala háskólasjúkrahúsi þar sem hjúkrunarrými eða búsetuúrræði skortir fyrir þá. Ekki eru handbærar tölur um dvalarkostnað þeirra á spítalanum en framkvæmdastjóri segir hann hærri heldur en ef þeir dveldu á hjúkrunarheimilum. </font /></b /> 13.12.2004 00:01
Allt í einu skíðlogaði allt! Tveir vélsmiðir, sem voru að sjóða saman rör í vélsmiðju í Garðabæ í fyrrinótt, þegar neisti komst í olíutunnu, lýsa skelfingu sinni eftir eldsprengingu á staðnum. Slökkvitæki réðu ekkert við eldinn. Tjónið nemur tugum milljóna króna </font /></b /> 13.12.2004 00:01
Skattfé skotið undan Hægt væri að reka allt skólakerfið fyrir það fé sem á hverju ári er svikið undan skatti. Ýmsar leiðir eru til slíkra undanskota og má segja að hver glufa sé nýtt til hins ítrasta. 13.12.2004 00:01
Eiginkonan reyndi endurlífgun Sonur mannsins sem lést á sveitakránni í Mosfellsbæ eftir þungt högg um helgina segir fjölda fólks hafa gert lífgunartilraunir á föður sínum. Minningarstund var í Lágafellskirkju í gærkvöld. </font /></b /> 13.12.2004 00:01
Pinochet verður sóttur til saka Agusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, var í dag formlega ákærður fyrir morð og mannrán í valdatíð sinni. Vöflur hafa verið um hvort ætti að sækja hinn 89 ára gamla Pinochet til saka sökum slæms heilsufars en dómari í Chile kvað upp úr með í dag að það skyldi gert. Lögmenn einræðisherrans fyrrverandi segjast ætla að áfrýja ákvörðuninni. 13.12.2004 00:01
Verðhækkanir á fölskum forsendum Iðnaðarráðherra segir stjórnarformann Hitaveitu Suðurnesja undirbúa verðhækkanir á fölskum forsendum. Ný raforkulög hækka verð um þrjú prósent en ekki tíu eins og stjórnarformaður Hitaveitunnar haldi fram. 13.12.2004 00:01
Niðurstaða krufningar væntanleg Búist er við að bráðabirgðaniðurstaða úr krufningu mannsins, sem lést eftir hnefahögg við veitingahús í Mosfellsbæ í fyrrinótt, liggi fyrir á morgun. Lögregla hefur yfirheyrt fjölmörg vitni. 13.12.2004 00:01
Bruninn á versta mögulega tíma Sigurður Markússon, rekstrarstjóri Nóatúns, segir næstu tvo til þrjá daga skera úr um hvenær hægt verði að opna verslunina við Hringbraut aftur. Allar vörur hafa verið fjarlægðar úr búðinni en Sigurður segir þá ákvörðun hafa verið tekna í samráði við tryggingarfélag fyrirtækisins. Hann vildi ekki svara því hvort verslunin væri með rekstrarstöðvunartryggingu. 13.12.2004 00:01
Í fangelsi fyrir búðarhnupl Tuttugu og fimm ára maður var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir þjófnað. Hann var fundinn sekur um að stela matvöru í versun 11-11 fyrir rétt rúmar eitt þúsund krónur. 13.12.2004 00:01
Áttu fótum fjör að launa Tveir menn áttu fótum fjör að launa þegar eldur kom upp í vélsmiðju í Hafnarfirði í nótt. Húsið er mikið skemmt ef ekki ónýtt. Mennirnir voru að klára verkefni fyrir Hitaveitu Suðurnesja þegar neisti skaust í olíutunnu eða málningu og úr varð mikið bál. 13.12.2004 00:01
Ár liðið frá handtöku Saddams Ár er liðið frá því að Saddam Hússein var gómaður í holu í Írak. Örlög hans eru enn óráðin, en á meðan yrkir hann ljóð og uppreisnarmönnum vex ásmegin. 13.12.2004 00:01
Tjáir sig ekki um tölvuleiki Engar reglur gilda um tölvuleiki hér á landi. Þórhildur Líndal, umboðsmaður barna, hefur frá árinu 2001 óskað eftir reglum. 13.12.2004 00:01
Dýrara að fækka ref og mink Sveitarfélög taka á sig aukinn kostnað vegna skipulegrar vinnu til að fækka ref og mink. 13.12.2004 00:01
Af eftirlitslista Sambandsins Fjármál Mýrdalshrepps eru ekki lengur undir smásjá Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sveinn Pálsson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, segir skýringar sveitarfélagsins hafa verið fullnægjandi. 13.12.2004 00:01
Línur kjaraviðræðna lagðar Samningaviðræður leikskólakennara og launanefndar sveitarfélaganna þokast, segir Karl Björnsson, formaður launanefndarinnar í viðræðunum. 13.12.2004 00:01
Miltisbrandseitrun kortlögð Stefnt er að því að kortleggja þá staði á landinu þar sem grunur leikur á að miltisbrandseitrun sé í jörðu. Dæmi eru um að jarðaeigendur óttist að eignir þeirra falli í verði, ef þær rata inn á þann lista eða séu í nágrenni við slík svæði. 13.12.2004 00:01
Friðarvonirnar fuðruðu upp Friðarvonir í Miðausturlöndum fuðruðu upp í gærkvöldi þegar sprengja palestínskra hryðjuverkamanna grandaði fimm ísraelskum hermönnum. Svar Ísraelsmanna var ljóst: auga fyrir auga, tönn fyrir tönn. 13.12.2004 00:01
Fischer kveðst vera í lífshættu Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, fullyrðir að honum sé bráður bani búinn í bandarísku fangelsi og sækir fast að fá hæli hér á landi. Bandarísk yfirvöld hafa óskað eftir því að fá Fischer framseldan til Bandaríkjanna en hann hefur verið í gæsluvarðhaldi í Japan svo mánuðum skiptir. 13.12.2004 00:01
Vændiskona rekur hótel í Reykjavík Bandarísk kona, sem auglýsir aðgang að líkama sínum til sölu á netinu, rekur tvö hótel í miðborg Reykjavíkur. 13.12.2004 00:01
Látlausar blóðsúthellingar í Írak Blóðsúthellingarnar í Írak virðast látlausar. Fjöldi fólks týndi lífi í morgun þegar hryðjuverkamaður sprengdi sig í loft upp í miðri mannmergð í Bagdad. 13.12.2004 00:01
Ný brú yfir Kolgrafarfjörð Snæfellingar fögnuðu mikilli samgöngubót í dag þegar nýr vegur og brú yfir Kolgrafarfjörð voru opnuð fyrir umferð. Það var auðvitað Snæfellingurinn og samgönguráðherrann Sturla Böðvarsson sem fékk þann heiður að opna þetta mikla samgöngumannvirki fyrir umferð með því að aka fyrstur yfir og hlaut fyrir lófaklapp viðstaddra. 13.12.2004 00:01
Dró yfirlýsinguna til baka Íslensk kona sem gift er Sýrlendingi sendi Útlendingastofnun erindi fyrir um tveimur árum þar sem hún sagði að hjónaband þeirra væri gervihjónaband. Það varð tilefni rannsóknar sem greint var frá í fréttum fyrir helgi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu dró konan svo yfirlýsingu sína til baka. 13.12.2004 00:01
Jólasveinar gæti hófs Jólasveinar eiga að gæta hófs og fara ekki í manngreinarálit þegar þeir setja gjafir í skóinn. Það vill brenna við að mörgum þægum börnum finnist þau misrétti beitt þegar jólasveinninn er stórtækari hjá skólafélögunum en þeim sjálfum. 13.12.2004 00:01
4 skattsvikaskýrslur á 20 árum Skýrsla sem skattsvikanefnd skilaði Alþingi í síðustu viku er fjórða úttektin sem gerð er á skattsvikum hér á landi síðustu tvo áratugi. Töluverðar breytingar hafa orðið á niðurstöðum spurningakannana sem lagðar hafa verið fyrir landsmenn í tengslum við úttektirnar. 13.12.2004 00:01
Páll kom til greina Allar líkur eru taldar á því að Hansína Ásta Björgvinsdóttir, oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn Kópavogs, taki við starfi bæjarstjóra. Formleg ákvörðun um hver muni gegna starfinu verður tekin á fulltrúaráðsfundi framsóknarmanna í Kópavogi á morgun. 13.12.2004 00:01
Þyrlan sótti dreng Þriggja ára drengur slasaðist á höfði þegar hann datt á svelli í Grundarfirði í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór til móts við sjúkrabíl til að sækja drenginn og lenti á Kaldármelum. 13.12.2004 00:01
Eldur í timburhúsi í miðborginni Eldur kom upp á matsölustaðnum Kebabhúsinu í Lækjargötu 2 í gærkvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út klukkan hálf níu og var allt tiltækt lið sent á staðinn auk þess sem kallað var á slökkviliðsmenn á aukavakt þar sem um timburhús í hjarta miðborgarinnar var að ræða. 13.12.2004 00:01
Tveir á slysadeild Tveir meiddust alvarlega í árekstri sem varða á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar seint í gærkvöld. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru þeir fluttir á slysadeild meðvitundarlitlir. 13.12.2004 00:01
Svört starfsemi skekkir samkeppni Formaður Rafiðnaðarsambandsins telur hætt við að hér verði sama þróun og í Noregi og Svíþjóð þar sem svört atvinnustarfsemi hefur aukist. Forsvarsmenn þriggja verkalýðsfélaga telja að auka þurfi eftirlit hins opinbera með skattgreiðslum. 13.12.2004 00:01
Akureyringar vilja á Alþingi Hópur Akureyringa íhugar að mynda nýtt þverpólitískt stjórnmálafl og bjóða fram lista í næstu Alþingiskosningum. Að sögn Ragnars Sverrissonar, kaupmanns á Akureyri og talsmanns hópsins, mun listinn eingöngu verða skipaður Akureyringum. 13.12.2004 00:01
Alvarlega slasaður eftir árás Karlmaður var fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús eftir líkamsárás á veitingastað í Mosfellsbæ í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var vopnum ekki beitt, en til átaka mun hafa komið. Karlmaður á miðjum aldri er í haldi lögreglunnar og bíður yfirheyrslu. 12.12.2004 00:01
Þrjár bílveltur í nótt Þrjár bílveltur urðu í Árnes- og Rangárvallasýslum í gærkvöldi og í nótt. Sú fyrsta varð við Ingólfshvokl laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Ökumaður og farþegi voru fluttir á heilsugæslustöðina á Selfossi til aðhlynningar, en meiðsli þeirra munu ekki hafa verið mikil. 12.12.2004 00:01
Að minnsta kosti 6 létust Að minnsta kosti 6 manns fórust og þrír tugir særðust eftir sprengingu á markaði á Filipseyjum í morgun. Ekki liggur fyrir hvort að um slys var að ræða eða hvort að hryðjuverkamenn voru að verki, en lögreglan segir tengsl Abu Sayyaf við Jemaah Islamiah á Filipseyjum. 12.12.2004 00:01
Afbrotum fækkar Skráðum afbrotum á Íslandi fækkaði um tíund á síðasta ári miðað við árið á undan, samkvæmt skýrslu Ríkislögreglustjóra, en fíkniefnabrotum fjölgaði hins vegar og hefur sú fjölgun verið stöðug frá árinu 2001. Í skýrslunni er líkum að því leitt að aukin áhersla lögreglu og tollgæslu á þennan málaflokk, talin skýra fjölgun mála. 12.12.2004 00:01
Eitrunin rannsökuð Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að hefja lögreglurannsókn á því hvort eitrað hafi verið fyrir Viktor Júsjenkó, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Úkraínu. Austurrískir læknar tilkynntu í gær að orsökin fyrir veikindum hans, sem meðal annars lýsa sér með útbrotum í andliti og margskonar einkennum frá líffærum, væri díoxín eitrun. 12.12.2004 00:01