Íslenski boltinn

Emil Atla­son á leið í Fram

Sindri Sverrisson skrifar
Emil Atlason hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2020.
Emil Atlason hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2020. Vísir / Diego

Framherjinn öflugi Emil Atlason er á leið til Fram frá Stjörnunni og mun skrifa undir samning þess efnis í dag.

Frá þessu greinir sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason, stjórnandi Dr. Football, á X í dag. Vísir hefur fengið þetta staðfest.

Óvissa hafði ríkt um framtíð Emils en samningur hans við Stjörnuna gilti til loka nýafstaðins tímabils.

Rúnar Páll Sigmundsson, nýráðinn þjálfari Stjörnunnar, sagði við Vísi í vikunni að hann hefði heyrt hljóðið í Emil en að það væri framherjans að taka sína ákvörðun. Rúnar hafði þó að sjálfsögðu áhuga á að halda þessum 33 ára framherja.

„Ég er búinn að tala við Emil varðandi það. Hann þarf bara að taka ákvörðun um það sjálfur hvað hann vill gera. Ég er ekki að neyða menn til að vera hérna. Hann verður að ákveða það og þannig er það bara,“ sagði Rúnar Páll á þriðjudaginn.

Emil skoraði tíu mörk í Bestu deildinni í sumar, öll í sautján leikjum fyrir tvískiptingu deildarinnar.

Hann kom til Stjörnunnar fyrir tímabilið 2020 eftir að hafa áður leikið með HK, Þrótti, Val og KR sem og með þýska liðinu Preussen Münster um skamman tíma.

Endurnýjar kynnin við Rúnar

Emil endurnýjar kynnin við Rúnar Kristinsson en Rúnar fékk Emil til KR frá FH þegar hann var enn í 2. flokki. Hann spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki undir stjórn Rúnars.

Emil var nokkuð óvænt í stóru hlutverki hjá KR strax sumarið 2012, þá á elsta ári í 2. flokki, eftir að hafa ekki fengið tækifæri hjá FH.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, mun verða þjálfari Emils aftur en þeir unnu síðast saman hjá KR fyrir tólf árum, sumarið 2014.Vísir/Lýður

Hann var fastamaður í liði KR undir stjórn Rúnars árin 2012 til 2014 þar sem þeir félagar unnu saman einn Íslandsmeistaratitil og tvo bikartitla.

Hlutverk Emils minnkaði sumarið 2015 þegar Bjarni Guðjónsson tók við KR og hann skipti yfir í Val á miðju því sumri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×