Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Lovísa Arnardóttir skrifar 27. október 2026 10:07 Síga á niður til að kanna aðstæður. Vísir/Einar Í dag fer fram afmörkuð leitaraðgerð í Grindavík vegna Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í janúar 2024. Ekki er um að ræða björgun heldur er markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður samkvæmt tilkynningu lögreglu.
Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að um sé að ræða sjónskoðun og leit með myndavél sem framkvæmd verður af sérhæfðum leitarmönnum sem munu síga niður í sprunguna. Töluverður viðbúnaður er á vettvangi. Vísir/Einar Lúðvík Pétursson lést þegar hann féll í sprungu í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. Rætt var við bróður Lúðvíks, Elías, í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Viðtalið er hægt að hlusta á og lesa að neðan. Markmiðið ekki björgun Í tilkynningu lögreglu kemur einnig fram að aðstæður á vettvangi séu afar krefjandi. Öll framkvæmdin taki mið af ítarlegu áhættumati sem unnið var í samstarfi innlendra og erlendra sérfræðinga. Vegna þessa sé markmið leitaraðgerðar að kanna aðstæður á vettvangi en ekki björgun. Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn sagði í samtali við fréttastofu fyrr í morgun að undirbúningur hefði gengið vel. Um tólf manna teymi kæmi að aðgerðum í dag, meðal annars frá lögreglu, sérsveit ríkislögreglustjóra, slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og hjálparsveit skáta í Kópavogi, sem legði til sérhæfðan mann í rústabjörgun og búnað. Allir sem koma að verkefninu eru sérþjálfaðir í línuvinnu og fjallabjörgun, að sögn Bjarneyjar. Sérfræðingar í rústabjörgun koma að aðgerðinni. Vísir/Einar Í tilkynningu segir að áhersla sé lögð á að tryggja öryggi þeirra sem að aðgerðinni koma. Töluverður viðbúnaður er á vettvangi. Vísir/Einar Sérfræðingar í rústabjörgun koma að aðgerðinni. Vísir/Einar Svæðið er girt af en fylgst er með úr fjarlægð. Vísir/Einar
Grindavík Féll í sprungu í Grindavík Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Tengdar fréttir Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. 26. október 2026 11:18 Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Við fögnum þessu. Við teljum það ákaflega mikilvægt að grafið verði eftir Lúðvík. Með því fær fjölskyldan mögulega einhverja lúkningu með því að geta jarðað Lúlla. Það er líka alveg öruggt að það vill enginn Grindvíkingur að Lúlli liggi í sprungu í Grindavík,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll í sprungu í Grindavík 10. janúar 2024. 17. febrúar 2026 06:41 Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Erlendir sérfræðingar eru nú staddir hér á landi til að leggja mat á mögulegar aðgerðir til að sækja líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar upp úr sprungu í Grindavík. 21. ágúst 2026 06:47 Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Hyggst þyngja refsingar við að hagnýta börn til afbrota Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Sjá meira
Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024. 26. október 2026 11:18
Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Við fögnum þessu. Við teljum það ákaflega mikilvægt að grafið verði eftir Lúðvík. Með því fær fjölskyldan mögulega einhverja lúkningu með því að geta jarðað Lúlla. Það er líka alveg öruggt að það vill enginn Grindvíkingur að Lúlli liggi í sprungu í Grindavík,“ segir Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll í sprungu í Grindavík 10. janúar 2024. 17. febrúar 2026 06:41
Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Erlendir sérfræðingar eru nú staddir hér á landi til að leggja mat á mögulegar aðgerðir til að sækja líkamsleifar Lúðvíks Péturssonar upp úr sprungu í Grindavík. 21. ágúst 2026 06:47