Erlent

Minnst tíu sagðir látnir í á­rekstri hraðlesta á Spáni

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá vettvangi árekstursins í Urda á Spáni.
Frá vettvangi árekstursins í Urda á Spáni. AP/Juanma Jimenez

Tvær hraðlestir rákust á í Toledo á Mið-Spáni í morgun. Að minnsta kosti tíu eru sagðir látnir en talið er að tala látinna muni hækka. Hundruð farþega voru í lestunum tveimur.

Áreksturinn átti sér stað á milli bæjanna Mora og Orgaz og Urda í Toledo-héraði skömmu eftir klukkan níu að staðartíma í morgun. Önnur lestanna var á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu. AP-fréttastofan hefur eftir spænska ríkissjónvarpinu að báðar lestir hafi verið á sömu leið en annarri þeirra hafi verið ekið aftan á hina þar sem hún var kyrrstæð.

Sjónarvottar segja spænska blaðinu El País að fjöldi manns sé slasaður og að viðbragðsaðilar séu komnir á vettvang. Tveir lestarvagnar hafi farið út af sporinu og oltið niður kant.

Talskona sjálfsstjórnarhéraðsins Castilla-La Mancha segir að 397 manns hafi verið í annarri lestinni sem var á vegum ríkislestarfélagsins RENFE en 147 í hinni á vegum IRYO, einkarekins fyrirtækis.

Lestarsamgöngur liggja nú niðri á milli Madridar, Ciudad Real og Andalúsíu vegna slyssins.

Fjörutíu og fimm manns létust þegar lest fór út af sporinu og í veg fyrir lest sem kom úr gagnstæðri átt á Suður-Spáni í janúar. Þær lestir voru í eigu sömu tveggja félaga og í slysinu í dag.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×