Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 24. október 2026 08:00 Valur hefur skrifað um mál Írisar Helgu frá A-Ö auk þess að lenda sjálfur í áreiti af hálfu hennar. Samsett „Ég þurfti að tala við strákana mína og vara þá við. Þannig að það var alveg samtal sem þurfti að eiga sér stað. Og svo sem ekkert í fyrsta skipti. Ég hef alveg þurft að tala við drengina mína áður um alls konar mál af því að líf blaðamannsins getur auðvitað verið flókið þegar maður er að gera þetta rétt.“
Þetta segir Valur Grettisson, blaðamaður á Heimildinni, þegar hann rifjar upp hvernig umfjöllun hans um mál Írisar Helgu Jónatansdóttur fór að hafa áhrif á hann og fjölskyldu hans. Valur er gestur í þriðja þætti hlaðvarpsins Önnur mál þar sem farið er yfir forsögu málsins, rannsóknina og ákæruna á hendur Írisi Helgu. Íris Helga er ákærð í 68 liðum fyrir meðal annars umsáturseinelti, hótanir og rangar sakargiftir gegn þremur karlmönnum og fólki þeim tengdu. Hún neitar sök. Aðalmeðferð málsins er fyrirhuguð í Héraðsdómi Reykjaness í byrjun nóvember. Hafði samband við fjölda fólks Valur segist fyrst hafa lesið um málið á Vísi þegar Garpur Ingi Elísabetarson steig fram og lýsti áreitni sem hann sagðist hafa orðið fyrir. Honum hafi þótt frásögnin óvenjuleg, ekki síst vegna þess að hann hafði áður fjallað um umsáturseinelti og þekkti til þess hversu erfitt gæti verið fyrir fólk að segja frá slíkri reynslu. Hann hóf að kanna málið og komst fljótlega í samband við fleiri einstaklinga sem töldu sig hafa orðið fyrir sambærilegu áreiti. Sumir vildu koma fram undir nafni en aðrir óskuðu eftir að vera ekki nafngreindir. „Ég talaði við á annan tug einstaklinga,“ segir Valur og lýsir því hvernig málið hafi reynst mun umfangsmeira en hann gerði ráð fyrir í upphafi. Áður en Valur birti umfjöllun sína hafði hann samband við Írisi Helgu og bauð henni að tjá sig. Hún sendi honum meðal annars tölvupósta þar sem hún gerði grein fyrir sinni hlið. Valur segir svörin hafa verið erfið aflestrar og að hún hafi brugðist illa við þegar hann ákvað að nafngreina hana og birta mynd af henni. Myndir af fjölskyldunni birtar Valur segir að í kjölfar umfjöllunarinnar hafi Íris Helga farið að beina athygli sinni að honum og fjölskyldu hans. „Hún reynir að ógna mér líka. Hún byrjar að birta myndir af mér og fjölskyldunni minni á einhverri heimasíðu eða Facebook-síðu. Síðan skrifar hún að hún ætli að sækja um starf sem kennari í sama grunnskóla og synir mínir voru í. Mér leist ekkert sérstaklega vel á þetta.“ Málið tók aðra stefnu þegar Valur fjallaði um svokallaða Selfossleið, úrræði sem hafði verið beitt í tengslum við ásakanir Garps. Hann hafði í fyrstu kallað úrræðið nálgunarbann í frétt sinni en leiðrétti það síðar, enda ekki um formlegt nálgunarbann að ræða. Valur segir að Íris Helga hafi haft samband við sig eftir umfjöllunina og verið mjög reið. „Hún fer úr því að vera mjög róleg, yfir í að öskra á mig og segjast ætla að drepa mig.“ Hann segist þó ekki hafa verið í sérstöku uppnámi vegna hótunarinnar; hann hafi áður fengið hótanir vegna starfa sinna og sé vanur að fjalla um viðkvæm mál. Hótunin hafi engu að síður verið kærð til lögreglu samkvæmt verklagi Heimildarinnar. Vildi ekki láta óttann stjórna Aðspurður hvers vegna hann hafi ekki orðið hræddur rifjar Valur upp að hafa á blaðamannsferli sínum átt í samskiptum við ofbeldismenn og fólk úr undirheimunum. Það sé mikilvægt að láta hótanir ekki ráða því hvernig blaðamenn vinni störf sín. „Við lútum ekki reglum glæpaheimsins, við lútum ekki reglum hótana eltihrellisins.“ Í þættinum er hann sérstaklega spurður hvort honum hafi ekki brugðið við ummælin um kennarastarfið við skóla sona hans. Valur segir að sá hluti málsins hafi verið sláandi. Hann hafi getað brugðist við með því að fjalla opinberlega um samskiptin. Það sé þó ekki endilega í boði fyrir aðra sem verða fyrir sambærilegum hótunum. „Ég skrifaði þetta bara, hún hótaði þessu og þar með er því lokið af því að ég get alltaf sagt sannleikann. En ef þú getur það ekki og hefur ekki færi á því að vera í svona stöðu eins og ég er í, þá er það virkilega ógnvekjandi.“
Hlaðvörp Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira