Seðlabankinn lagði Þorstein Má Árni Sæberg skrifar 22. október 2026 10:03 Þorsteinn Már Baldvinsson var forstjóri Samherja þegar rannsókn Seðlabankans á fyrirtækinu stóð yfir. Vísir/Vilhelm Seðlabanki Íslands hefur verið sýknaður af öllum kröfum Þorsteins Más Baldvinssonar, fyrrverandi forstjóra og stærsta eiganda Samherja. Hann krafðist miskabóta úr hendi Seðlabankans vegna meintrar ólögmætrar meðferðar persónuupplýsinga um hann, sem aflað var með húsleit árið 2012.
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Mbl greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að finna á þremur hörðum diskum. Þessara upplýsinga var aflað í frægri húsleit á skrifstofum Samherja í mars 2012 vegna gruns um brot félagsins á gjaldeyrislögum. Þar var lagt hald á mikið magn gagna og afrit af þeim var geymt í þessum hörðu diskunum. Þorsteinn Már vildi meina að í þessum gögnum hefði verið að finna persónulegar upplýsingar um hann og því taldi hann sig eiga rétt til miskabóta. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu árið 2021 að Seðlabankinn hefði ekki brotið persónuverndarlög með því að eyða ekki gögnunum eftir að rannsókn bankans á Þorsteini Má og Samherja lauk. Máli Seðlabanka, Samherja og Þorsteins Más lauk þegar Hæstiréttur felldi úr gildi 15 milljóna króna sekt á hendur Samherja og Þorsteini fyrir meint brot á gjaldeyrislögum. Bankanum var í kjölfarið gert að greiða Þorsteini Má 2,5 milljónir króna í miskabætur. Uppfært klukkan 11:15: Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur hefur nú verið birtur og hann má lesa hér. Í stuttu máli var niðurstaða dómsins sú að ekki verði sé að sök starfsmanna Seðlabankans hefði verið sönnuð, hvað þá að um hafi verið að ræða ásetning eða stórfellt gáleysi, líkt og áskilið er í skaðabótalögum. Á sama hátt verði ekki talið sannað að háttsemi starfsmannanna hafi verið ólögmæt. Þá verði eigi heldur séð að Þorsteinn Már hafi sýnt fram á það að hann hafi orðið fyrir ófjárhagslegu tjóni (miska) vegna háttsemi starfsmanna Seðlabankans á því tímabili sem um ræðir í málinu. Orsakasamband á milli meints tjóns og meintrar saknæmrar og ólögmætrar háttsemi starfsmannanna hafi sömuleiðis ekki verið sannað, né að hið meinta tjón. Þorsteinn Már verði að bera halla af öllum þessum atriðum með hliðsjón af almennum reglum skaðabótaréttarins. Því væru ekki efni til að dæma Þorsteini Má miskabætur á grundvelli ákvæðis skaðabótalaga um miskabætur, almennu skaðabótareglu sömu laga eða reglu skaðabótaréttarins um húsbóndaábyrgð, þar þar sem skilyrði þessara reglna um sök, ólögmæti, tjón, orsakasamband og sennilega afleiðingu væru ekki uppfyllt. Ekki væru heldur tilefni til að dæma honum miskabætur á grundvelli tiltekins ákvæðis persónuverndarlaga, þar sem það mæli ekki fyrir um rétt til skaðabóta vegna ófjárhagslegs tjóns. Þá verði ekki séð að skilyrði séu til að fallast á miskabótakröfu Þorsteins Más á grundvelli almennu persónuverndarreglugerðar Evrópusambandsins, GDPR, að virtri þeirri niðurstöðu dómsins að vinnsla og varðveisla Seðlabankans á þeim gögnum sem geymd voru á hörðu diskunum þremur, þar með talið persónulegum gögnum og upplýsingum um Þorstein Má sem þar leyndust innan um önnur gögn, hafi verið heimil á tímabilinu frá 8. nóvember 2018 til 15. apríl 2020 og í samræmi við tilgreind ákvæði persónuverndarlaga og reglugerðarinnar, að teknu tilliti til skyldna Seðlabankans samkvæmt lögum um opinber skjalasögn. Þannig bresti það lagaskilyrði ákvæðis reglugerðarinnar um skaðabótaábyrgð að vinnslan hafi verið andstæð ákvæðum reglugerðarinnar.
Samherji og Seðlabankinn Dómsmál Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Sjá meira