Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Kjartan Kjartansson skrifar 6. október 2026 15:03 Donald Trump hefur ekki miklar mætur á ríkjum þar sem meirihluti kjósenda greiddi honum ekki atkvæði sitt í forsetakosningum. Hann hefur sýnt það í verki á ýmsan hátt undanfarin misseri. AP/Charlie Riedel Donald Trump Bandaríkjaforseti er til í að leyfa Írönum að „taka út“ stórborgir í Kaliforníu þar sem demókratar eru í meirihluta í stríði hans við Persaflóaríkið. Ríkisstjóri Kaliforníu segir forsetann „sturlaðan“.
Ummælin lét Trump falla á fundi með stuðningsmönnum sínum í Nebraska í gærkvöldi. Þar sagði hann meðal annars að hátt olíuverð væri lítið gjald fyrir að tryggja öryggi heimsbyggðarinnar og Bandaríkjanna með stríðsrekstrinum í Íran. „Þeir gætu tekið út borg. Leyfið þeim að taka út Los Angeles. Leyfið þeim að taka út San Diego,“ sagði forsetinn og uppskar lófatak aðdáenda sinna. Trump: "With the war, it's just artificial. It's a little bit high. It's a small price to pay ... let them take out Los Angeles, let them take out San Diego. This is a very small price to pay."[image or embed]— Aaron Rupar (@atrupar.com) October 5, 2026 at 11:44 PM Bæði Los Angeles og San Diego er stýrt af demókrötum og ríkið sjálft sömuleiðis. Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, fordæmdi ummæli forseta landsins í samfélagsmiðlafærslu. „Hann er sturlaður og hættulegur,“ sagði Newsom. Það gæti ekki talist eðlilegt að forseti landsins hvetti til árása á tvær af fjölmennustu borgum eigin lands þar sem rúmlega tíu milljónir manna búa. Trump hefur beitt sér á ýmsan hátt gegn ríkjum sem greiddu honum ekki atkvæði í forsetakosningunum árið 2024, meðal annars með því að meina þeim um stuðning alríkisstjórnarinnar eftir náttúruhamfarir. Þá sendi hann þjóðvarðliðið til Kaliforníu til þess að framfylgja innflytjendastefnu sinni í fyrra.
Íran Donald Trump Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira