Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Freyja Þórisdóttir skrifar 29. september 2026 18:49 Það vakti mikla furðu að mönnunum fimm hafi verið sleppt enda var neyðarástandi lýst yfir og öryggisráðstafanir í herstöðinni voru auknar til muna. Embættismenn töluðu um að komið hefði verið í veg fyrir hörmulega atburði. Getty Leit í þremur sendiferðabílum sem voru nærri RAF Fairford-herstöðinni í Englandi er lokið en þar fannst nokkuð magn af bensíni en engin sprengiefni eins og talið var. Fimm breskum ríkisborgurum var í gær sleppt úr haldi en þeir höfðu verið handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks og neyðarástandi lýst yfir við herstöðina í kjölfarið.
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið. Fimm menn, allir breskir ríkisborgarar á þrítugsaldri, voru handteknir grunaðir um að hafa brotið lög um sprengiefni og síðar skipulagninu hryðjuverks eftir að þeir sáust aka um á sendiferðabílum nærri bresku herstöðinni síðasta sunnudag, þann 27. september. Grunur lék þá á að sprengjur væru í bílunum þremur og leiddi það til umfangsmikilla öryggisaðgerða í kringum herstöðina sem er rekin af Bandaríkjaher en notuð af bæði breska og bandaríska flughernum. Þeim var sleppt gegn tryggingu í gær, mánudaginn 28. september, en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands sagði að þeir yrðu undir nánu eftirliti og takmarkanir yrðu settar á ferðir þeirra og samskipti við aðra. Mennirnir voru handteknir eftir að tilkynning barst frá bónda á svæðinu um grunsamlega menn á ferðinni á sendiferðabílum. Þá hafði bóndinn séð mennina í lambhúshettum við bílana og reyndu einhverjir þeirra að fela sig þegar lögreglan ók fram hjá þeim. Búið var að merkja bílana tilteknu fyrirtæki, en nafnið var rangt og rangur litur á merki fyrirtækisins. Þetta fyrirtæki flytur eldsneyti á bóndabæi í Bretlandi og hafði verið talið líklegt að tunnur af bensíni fyndust í bílnum. Það reyndist svo vera rétt. Meðal þeirra sem lýstu yfir furðu sinni á því að mönnunum fimm hafi verið sleppt eru Donald Trump forseti Bandaríkjanna og Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna, en sá síðarnefndi sagðist ekki átta sig á því af hverju Bretar slepptu mönnunum úr haldi. Þá kallaði Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands ráðherra sína til fundar vegna atviksins. Um var að ræða svonefndan COBRA-fund, þar sem ráðherrar, háttsettir embættismenn og aðrir lykilaðilar hittast til að samræma viðbrögð við alvarlegum atburðum.
Hernaður England Bretland Bandaríkin Tengdar fréttir Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka. 27. september 2026 13:14 Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Lögreglan í Bretlandi hefur sleppt úr haldi fimm mönnum sem grunaðir eru um að hafa brotið lög um sprengiefni og eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverks. Mennirnir voru handteknir nærri stórri breskri herstöð á sunnudaginn en verður sleppt gegn tryggingu en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands segir að þeir verði undir nánu eftirliti og takmarkanir settar á ferðir þeirra og samskipti við aðra. 28. september 2026 15:23 Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar nú hvort Íran standi að baki meintum sprengjuáformum eftir að vopnaðir lögreglumenn fundu sprengiefni í þremur sendibílum sem lagt hafði verið í nokkurra mínútna fjarlægð frá herstöð Bandaríkjanna í Fairford í Gloucestershire í Bretlandi í gær. Bandaríski flugherinn hefur notað herstöðina í aðgerðum gegn Íran samkvæmt frétt Guardian. 28. september 2026 06:45 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Sjá meira
Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka. 27. september 2026 13:14
Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Lögreglan í Bretlandi hefur sleppt úr haldi fimm mönnum sem grunaðir eru um að hafa brotið lög um sprengiefni og eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverks. Mennirnir voru handteknir nærri stórri breskri herstöð á sunnudaginn en verður sleppt gegn tryggingu en yfirmaður hryðjuverkalögreglu Bretlands segir að þeir verði undir nánu eftirliti og takmarkanir settar á ferðir þeirra og samskipti við aðra. 28. september 2026 15:23
Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar nú hvort Íran standi að baki meintum sprengjuáformum eftir að vopnaðir lögreglumenn fundu sprengiefni í þremur sendibílum sem lagt hafði verið í nokkurra mínútna fjarlægð frá herstöð Bandaríkjanna í Fairford í Gloucestershire í Bretlandi í gær. Bandaríski flugherinn hefur notað herstöðina í aðgerðum gegn Íran samkvæmt frétt Guardian. 28. september 2026 06:45