„Það voru margir með tár á hvarmi“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 25. september 2026 11:54 Hrönn Marinósdóttir, hátíðarstjórnandi Riff, segir að mynd um hinstu för Jons Snorra hafi verið sláandi. Til hægri er skjáskot af ekkju Johns, Línu Móeyju Bjarnadóttur, sem kemur fyrir í myndinni. vísir/anton brink/skjáskot Hátíðarstjórnandi Riff segir ýmsa hafa gengið af opnunarmynd hátíðarinnar með tár á hvarmi í gær. Myndin segir frá hinstu för Johns Snorra sem lést við það að ganga upp K2 að vetri til. Það hafi verið mögnuð upplifun að sjá myndina með fjölskyldu og vinum Johns.
Setningarathöfn Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík eða Riff fór fram með pompi og prakt í gær. Dagskráin í ár er sérstaklega vegleg og þá hafa erlendar stórstjörnur lagt leið sína hingað til lands til en þar á meðal er sænski leikarinn Alexander Skarsgård. Hrönn Marinósdóttir, hátíðarstjórnandi RIFF, segir hátíðina fara vel af stað. Dagskrána má nálgast hér. „Þetta fór sem sagt af stað í Háskólabíói í gær að viðstöddum fjölda gesta og það var menningarmálaráðherra sem að setti hátíðina formlega og Margrét Örnólfsdóttir, handritshöfundur sem situr líka í ráðgjafaráði Riff, hélt þrumuræðu, svokallaða hátíðargusu.“ Heimildarmyndin The Last First: Winter K2 var opnunarmynd hátíðarinnar að þessu sinni en hún segir frá för Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til sem reyndist hans síðasta. Hrönn segir að um tilfinningaríka stund hafi verið að ræða. „Öll þjóðin fylgdist með andaktug þegar þessi leiðangur átti sér stað fyrir fjórum árum síðan sem endaði með þessum hörmulegu afleiðingum. Þess vegna held ég að þetta hafi verið ágætis uppgjör fyrir okkur að fá að sjá á stóra tjaldinu hvernig þetta var. Það var mjög sterk upplifun að vera í salnum með öllu þessu fólki, fjölskyldu hans og vinum og bara að fylgjast með þessu, hvernig þetta var allt saman. Það er náttúrulega bara sláandi. Það var margt óvænt sem kemur upp á sem við í rauninni vissum ekki af fyrir nokkrum árum þegar við fylgdumst öll með þessu.“ Töluverður fjöldi gesta hafi gengið úr salnum með tár á hvarmi. „Fjölskylda hans var viðstödd og nánir vinir. Vinur hans Páll hjá Ferðafélagi Íslands hélt tölu. John Snorri var auðvitað einn af okkar helstu fjallgöngugörpum. Það voru alls konar umræður auðvitað í kjölfarið og núna finnst mér við skilja betur hvað í rauninni hann var að ganga í gegnum. Maður heyrði snökkt í salnum og það voru miklar tilfinningar. Það voru margir með tár á hvarmi. Þetta er ein besta heimildarmynd sem ég hef séð.“ Hátíðin stendur nú yfir í tíu daga þar sem úrval kvikmynda alls staðar að úr heiminum verða til sýnis. „Eitt áhrifamesta sköpunarteymi hasarmynda samtímans, David Leitch og Kelly McCormick eru á landinu og verða í Háskólabíói í kvöld og á morgun. Við ætlum að sýna Bullet Train og Atomic Blonde. Við erum gríðarlega ánægð og mjög ánægð með góða aðsókn. Það er þegar uppselt á marga viðburði.“ „Svo auðvitað er frábært að fá Elísabetu Ronaldsdóttur sem að er landsmönnum kunn fyrir sín afrek. Sem klippari og kvikmyndagerðarkona. Síðan gæti ég til dæmis mælt með á Club Kid sem er sýnd á næstu dögum sem ég leyfi mér bara að fullyrða að var bara vinsælasta og ein umtalaðasta myndin á Cannes síðastliðið vor.“
John Snorri á K2 RIFF Bíó og sjónvarp Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira