Innlent

Full­trúi Ís­lands yfir­gaf ekki salinn með hinum

Eiður Þór Árnason skrifar
Fjöldi yfirgaf salinn og mátti meðal annars sjá sæti fulltrúa Palestínu standa auð.
Fjöldi yfirgaf salinn og mátti meðal annars sjá sæti fulltrúa Palestínu standa auð. AP

Fulltrúi Íslands sat áfram á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tók til máls. Fulltrúar fjölda ríkja gengu úr salnum á fimmtudag í mótmælaskyni en stríðsrekstur Ísraels á Gasa hefur verið harðlega gagnrýndur. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ekki í salnum þegar atvikið átti sér stað. 

Þetta segir Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hún hafi þess í stað verið á viðburði til stuðnings Palestínu-flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) sem fram fór á sama tíma. 

Klippa: Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls

Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum hafi setið í sæti Íslands í sal allsherjarþingsins og verið þar áfram, ásamt fulltrúum annarra norrænna ríkja. Ráðherravika allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna stendur nú yfir og eru bæði utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í New York vegna þessa.

Einar Gunnarsson, sendiherra og fastafulltrúi Íslands gagnvart mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna, í sumar. Með honum situr Sóley Ásgeirsdóttir, ráðunautur í fastanefnd Íslands í Genf, sem hefur áður setið fundi mannréttindaráðsins fyrir Ísland.Stjórnarráðið

Aðstoðarmaður ráðherra segir að Þorgerður hafi jafnframt tekið þátt í ráðherraviðburði um tveggja ríkja lausnina fyrr um daginn en henni er ætlað að koma á friði í samskiptum Ísraels og Palestínu.

Benjamín Netanjahú lét sér fátt um finnast þegar fulltrúar ríkja yfirgáfu salinn og kallaði þá siðferðislega hugleysingja.

Ásakanir um þjóðarmorð „stærsta lygi aldarinnar“

Netanjahú sagði ásakanir um þjóðarmorð Ísraelsmanna á Gasa vera „stærstu lygi aldarinnar“ í ögrandi ræðu frammi fyrir hálftómum sal allsherjarþingsins.

Þegar hann steig upp í ræðustól brugðust sumir við með fagnaðarlátum á meðan aðrir púuðu og gengu út, að sögn AP-fréttaveitunnar. Meirihluti sæta hafi verið auð á meðan hann flutti ræðu sína.

Fjöldi yfirgaf salinn og mátti meðal annars sjá sæti fulltrúa Palestínu standa auð.Ap/Yuki Iwamura

„Ef það eru einhverjir aðrir siðferðislegir hugleysingjar sem hafa ekki enn yfirgefið salinn, vinsamlegast gerið það núna,“ sagði Netanjahú.

Hann hækkaði síðan róminn og sagði árásir Ísraels á Íran „hafa verið ein auðveldasta ákvörðun sem ég hef nokkurn tíma þurft að taka.“ 

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, neyddist til að ávarpa Sameinuðu þjóðirnar með myndskeiði eftir að Bandaríkin synjuðu honum aftur um vegabréfsáritun og komu þannig í veg fyrir að hann gæti sótt allsherjarþingið.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls

Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×