Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron Guðmundsson skrifar 22. september 2026 09:41 Rúnar Már mun leggja skóna á hilluna eftir yfirstandandi tímabil í Bestu deildinni með ÍA Flaviu Buboi/Getty Images Rúnar Már Sigurjónsson mun leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir síðasta leik ÍA á yfirstandandi tímabili. Rúnar segir ákvörðunina erfiða, hugurinn vilji halda áfram en líkaminn segi stopp.
Frá þessu greinir Rúnar, sem hefur yfir að skipa margra ára feril í atvinnumennsku sem og með íslenska landsliðinu, í færslu á samfélagsmiðlum. „Síðasti leikurinn minn verður 24. október næstkomandi,“ skrifar Rúnar í færslu sinni en þann dag tekur ÍA á móti Keflavík í síðustu umferð Bestu deildarinnar. Rúnar vill koma á framfæri þökkum til allra þeirra félöga, þjálfara, leikmanna, stuðningsmanna og sjálfboðaliða sem hann hefur komist í kynni við á sínum feril. View this post on Instagram A post shared by Runar Mar S Sigurjonsson (@runarmar) „Einnig KSÍ og Magnúsi Agnari Magnússyni fyrir næstum 20 ára samstarf, ásamt síðar Bjarka Gunnlaugssyni. Fjölskylda og vinir fá allar mínar þakkir fyrir stuðninginn og fyrir að elta mig um allan heim.“ Æskudraumurinn hafi orðið að veruleika. „Síðan ég var þriggja ára ætlaði ég aldrei að vera neitt annað en fótboltamaður og ég ætla að vera stoltur af því að það tókst. Að taka ákvörðun um að hætta er miklu erfiðara en ég hélt. Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn er búinn að fá nóg og segir stopp. Takk fyrir mig.“ Rúnar Már spilaði 32 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim leikjum tvö mörk. Hann hefur spilað fyrir Tindastól, HK, Ými, Val og ÍA hér á landi. Þá hefur hann spilað sem atvinnumaður í Svíþjóð, Sviss, Rúmeníu og Kasakstan. Varð hann landsmeistari bæði í Rúmeníu og Kasakstan. Á yfirstandandi tímabili með ÍA hefur Rúnar Már komið við sögu í 15 leikjum og skorað þrjú mörk. ÍA tryggði sér sæti í efri hluta Bestu deildarinnar og vermir nú 5. sæti deildarinnar með 30 stig.
Besta deild karla Landslið karla í fótbolta Íslenski boltinn ÍA Fótbolti Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira