Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Samúel Karl Ólason skrifar 10. september 2026 16:35 Meðlimir Húta á ferðinni í Sanaa, höfuðborg Jemen. AP Verð hráolíu hefur rokið upp í dag vegna áhyggja af enn frekari truflunum á flutningsleiðum olíu um heiminn, sem rekja má til aukinna og harðnandi átaka í Jemen. Hútar tóku í dag mikilvægan strandbæ við Rauðahaf sem mun gera þeim mun auðveldara að gera árásir á olíuflutningaskip á Rauðahafi.
Brent-hráolía, sem gjarnan er notuð sem heimsviðmiðið, hækkað um fjögur prósent um tíma í dag og fór upp í um 107 dali á tunnuna, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Verðið hefur ekki verið svo hátt síðan Bandaríkjamenn og Íranir gerðu vopnahlé í vor. Þessi hækkun er að miklu leyti til komin vegna fjölgunar árása við Hormússund en kannski sérstaklega vegna meiri átaka í Jemen, þar sem Hútar virðast hafa náð töluverðum árangri í dag. Nær munna Rauðahafs Hútar hófu sókn til suðurs, að Bab al-Mandab-sundi í síðustu viku. Í kjölfarið lýstu leiðtogar ríkisstjórnarinnar því yfir að sókn væri hafin gegn Hútum og til stæði að reka þá frá Sana, höfuðborg landsins. Sókn Húta til suðurs hefur verið nokkuð umfangsmikil en BBC segir hundruð hafa fallið í átökunum og að þúsundir hafi þurft að flýja heimili sín. Í dag bárust svo fregnir af því að Mocha hefði fallið í hendur Húta en yfirtaka bæjarins gerir þeim auðveldara að loka fyrir siglingar út um sunnanvert Rauðahaf, sem leiðtogar Húta hafa sagst ætla að gera fyrir olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu. Fjölmiðlar ytra segja að Hútar hafi þegar komið sér fyrir á Hanish-eyjum sem eru mikilvægar eyjur á Rauðahafi. Houthi forces have reportedly conducted an amphibious assault on the Hanish Islands, strategically positioned at the northern entrance of the Bab al-Mandeb Strait. The assault comes as Houthi forces make significant gains along the Red Sea coast. pic.twitter.com/0Ro8J3MLLQ— OSINTtechnical (@Osinttechnical) September 10, 2026 Frá því stríð Bandaríkjanna og Ísraela gegn Íran hófst í febrúar hafa ráðamenn í Sádi-Arabíu flutt mun meira magn af olíu en áður gegnum aðrar leiðir en Hormússund. Miklu magni hefur verið dælt með leiðslum að ströndum Rauðahafs, þar sem olíunni hefur verið dælt um borð í skip. Sádar, sem eru stærsta olíuútflutningsþjóð heims, hafa þannig flutt mikið magn af olíu til Asíu. Hútar lýstu því yfir í sumar að til stæði að stöðva olíuflutning Sáda um Rauðahaf en síðan þá hefur um fjögurra ára gamalt vopnahlé í borgarastyrjöldinni í Jeman liðast í sundur. Eldur logar í olíuvinnslu í Abqaiq í Sádi-Arabíu eftir árás húta í vikunni.AP/Planet Labs PBC Hútar skutu svo í vikunni tugum dróna og eldflauga að herstöð og olíuinnviðum í þremur borgum Sádi-Arabíu. Að minnsta kosti 73 særðust í þessum árásum en Hútar segja að Sádar hafi í dag gert að minnsta kosti 54 loftárásir í Jemen. Ráðamenn í Pakistan voru í gær sagðir hafa sent klerkastjórninni í Íran viðvörun í vikunni og beðið Írani um að koma böndum á Húta. Ellegar væri hætta á því að átökin dreifðu úr sér. Hútar, sem stjórna stórum hluta Jemen og eru studdir af klerkastjórninni í Íran, og Sádar hafa lengi eldað grátt silfur saman. Reuters hefur eftir leiðtogum Húta í dag að öll skip megi áfram sigla gegnum Rauðahaf, nema þau séu að flytja olíu frá Sádi-Arabíu. Takist Hútum að loka Rauðahafi fyrir skip frá Sádi-Arabíu myndi það líklega leiða til töluverðrar hækkunar á olíuverði og vera vatn á myllu Írana í stríðinu gegn Bandaríkjunum. Það hefur um nokkuð skeið snúist um það hvor aðilinn geti betur þolað þann efnahagslega þrýsting sem beitt hefur verið. Bandaríkin eru með Íran í herkví og hafa meinað klerkastjórninni að selja þaðan olíu en Íranir hafa reynt að nota hækkandi olíuverð og gífurlegar óvinsældir stríðsins meðal kjósenda í Banaríkjunum til að þrýsta á Donald Trump, Bandaríkjaforseta.
Bensín og olía Jemen Sádi-Arabía Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Neytendur Jarðefnaeldsneyti Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira