„Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Árni Sæberg skrifar 31. ágúst 2026 16:46 Sigmundur Davíð hefur áhyggjur af lýðræðislegri umræðu á Íslandi. Vísir/Vilhelm Utanríkisráðherra þykir afleitt að síðasti kvöldfréttatími Sýnar verði sýndur í kvöld. Dapurlegt sé að fjölmiðlaumhverfi verði þrengra en áður þekktist. Formaður Miðflokksins hefur áhyggjur af því að vald Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði aukist enn við breytingarnar.
Líkt og greint var frá í morgun hefur stjórn Sýnar ákveðið að hætta útsendingu kvöldfrétta eftir fréttatímann í kvöld. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður tók þau Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, tali að loknum fundi utanríkismálanefndar í morgun og spurði þau álits á tíðindunum. Slæmt á tímum upplýsingaóreiðu „Mér finnst þetta afleitt. Mér finnst þetta mjög dapurlegt, að við séum að horfa upp á þrengra fjölmiðlaumhverfi en við höfum þekkt áður. Vissulega veit ég að aðrir miðlar Sýnar munu sinna fréttum. Það er mjög mikilvægt,“ segir Þorgerður Katrín. Henni finnist breytingarnar dapurlegar ekki síst vegna þess að við lifum nú á tímum sem einkennist af mikilli upplýsingaóreiðu. „Þá þurfum við sjálfstæða upplýsta fjölmiðla og ég vona að þessu verði bara beint í þá ákveðinn farveg innan Sýnar af því að með Sýn þá höfum við haft feikilega öfluga fjölmiðlamenn og blaðamenn sem hafa sinnt starfi sínu afar vel. Bara í lokin þá vil ég segja takk kærlega fólk á Sýn. Takk Sýn fyrir ykkar starf.“ Sigmundur miður sín Sigmundur Davíð slær á sömu strengi og segist hálfmiður sín yfir tíðindunum. „Þetta er ekki gott fyrir lýðræðislega umræðu á Íslandi, að það verði bara í rauninni ein sjónvarpsstöð eftir með fréttir. Ástand sem við höfum ekki búið við hér í áratugi. Ég hef áhyggjur af því af ýmsum ástæðum. Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins gagnvart samkeppnisaðilum, enn styrkja stöðu þess gagnvart öllum hinum miðlunum og þar með setja þá í enn meiri vörn. Þannig að það er mjög margt við þetta sem veldur mér áhyggjum og mér finnst þetta afskaplega leiðinlegt.“
Fjölmiðlar Ríkisútvarpið Alþingi Miðflokkurinn Viðreisn Tengdar fréttir Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður sendur út í kvöld á Sýn. Breytingarnar hafa í för með sér uppsagnir. 31. ágúst 2026 09:01 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira
Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður sendur út í kvöld á Sýn. Breytingarnar hafa í för með sér uppsagnir. 31. ágúst 2026 09:01