Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Jakob Bjarnar skrifar 31. ágúst 2026 09:01 Kvöldfréttirnar á Sýn í kvöld verða þær síðustu. Vísir/Arnar Sýn hefur ákveðið að hætta framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta frá og með 1. september 2026. Síðasti sjónvarpsfréttatíminn verður sendur út í kvöld á Sýn. Breytingarnar hafa í för með sér uppsagnir.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forstjóra fyrirtækisins til Kauphallar. Jafnframt verður hætt framleiðslu og útsendingu á Íslandi í dag. Í tilkynningu sem var send starfsfólki kom fram að störfum hjá Sýn yrði fækkað, einkum meðal starfsfólks sem kæmi að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi. Ákvörðunin er sögð tekin í ljósi breyttra neysluvenja almennings þar sem sífellt fleiri sækja sér fréttir og fréttatengt efni á stafrænum miðlum. Sýn muni því beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni og leggja áherslu á að miðla fréttum þar sem eftirspurn eftir fréttaefni er mikil. Þá segir að fréttastofa Sýnar mun áfram sinna fréttaþjónustu af fagmennsku og þróa miðlun frétta í takt við breyttar neysluvenjur landsmanna. Markmiðið er að styrkja fréttaþjónustu Sýnar á Vísi og Bylgjunni og tryggja um leið grundvöll fyrir sjálfbærum rekstri. Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar.Vísir/Vilhelm Vísir er einn vinsælasti innlendi vefmiðill landsins og um 170.000 manns á aldrinum 12–80 ára hlusta á útvarpsstöðvar Sýnar í hverri viku.* Með þessu lýkur 40 ára samfelldri sögu sjónvarpsfrétta hjá félaginu. Miklar breytingar hafa orðið á íslenskum fjölmiðlamarkaði undanfarin ár. Fréttaneysla hefur færst í auknum mæli frá línulegu sjónvarpi yfir á stafræna miðla og samhliða því hefur tekjugrunnur innlendra fjölmiðla veikst. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands rann 51% auglýsingafjár á Íslandi til alþjóðlegra tæknirisa árið 2024. Þetta hefur gert samkeppni einkarekinna miðla við Ríkisútvarpið á auglýsingamarkaði að enn meiri áskorun. Tillögur stjórnvalda hafa ekki nægjanleg áhrif á rekstur sjónvarpsfrétta þannig að þær geti breytt niðurstöðunni. Sýn færir því starfsfólki sem verður fyrir áhrifum af þessum breytingum innilegar þakkir fyrir ómetanlegt, faglegt og mikilvægt framlag í þágu félagsins og íslenskrar fjölmiðlunar. Í tilkynningunni er vitnað í Herdísi Dröfn Fjaldsted, forstjóra Sýnar, sem segir sjónvarpsfréttir hafi verið mikilvægur hluti starfsemi Sýnar og forvera félagsins nú í fjóra áratugi. „Þar hefur fjölbreyttur hópur framúrskarandi fréttamanna, framleiðslufólks og annars starfsfólks unnið mikilvægt starf í þágu almennings og íslensks samfélags. Við erum afar stolt af þeirri sögu og þakklát öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg. Ákvörðunin er erfið, ekki síst vegna áhrifanna á starfsfólkið okkar, en hún er nauðsynleg. Rekstur sjónvarpsfrétta hefur verið ósjálfbær um nokkurt skeið og við berum ábyrgð á því að bregðast við þeirri stöðu. Þótt þessum kafla í sögu Sýnar ljúki er framlag fréttastofunnar til íslenskrar fjölmiðlasögu óumdeilt og mun standa eftir. Sýn mun hér eftir sem hingað til kappkosta að miðla vandaðri fréttaumfjöllun á einum sterkustu miðlum landsins, Vísi og á Bylgjunni. Þar liggja spennandi tækifæri til að gera enn betur.“ Fyrirvari: Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Fjölmiðlar Tímamót Bíó og sjónvarp Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira