Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Agnar Már Másson og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 30. ágúst 2026 09:32 Þau voru kát í gær og eflaust núna líka. Vísir/Anton Brink Íslendingar hafa hafnað áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Lokatölur voru 46,95 prósent já og 53,05 prósent nei.
Eftir ótalmargar rökræður við matarborðið, í heita pottinum eða í útskriftarveislum hafa Íslendingar útkljáð það í kjörklefanum hvort þeir vilji hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Skoðanakannanir höfðu sýnt að þjóðin væri klofin í afstöðu sinni til spurningarinnar á kjörseðlinum, um hvort Íslendingar vildu hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. En nú liggur svarið fyrir: Nei. Lokatölur komu seint í hús Segja má að Evrópusambandssumrinu mikla hafi lokið í morgun þegar lokatölur bárust úr Suðvesturkjördæmi klukkan korter yfir níu og ljóst var að nei-ið vann nauman sigur með 35.903 atkvæðum gegn 31.780 atkvæðum fyrir já-ið. Á öllu landinu voru 272.690 á kjörskrá í kjördæminu og greiddu 225.031 atkvæði. Íslendingar höfnuðu því með naumum meirihluta að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ekki munaði nema 12.701 atkvæðum á landsvísu en lokatölurnar eru að miklu leyti í takt við skoðanakannanir síðustu vikna. Þar lá fyrir að hörð og naum barátta væri í vændum. Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst Landið allt Reykjavík norður Reykjavík suður Suðurkjördæmi Norðausturkjördæmi Norðvesturkjördæmi Suðvesturkjördæmi JÁ 0 atkvæði 0,0% +0,0% 0 atkvæði 0,0% NEI Þetta mun því að öllum líkindum þýða að ríkisstjórnin ætli ekki að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, en það mun væntanlega skýrast á blaðamannafundi klukkan 13 þar sem formenn ríkisstjórnaflokkanna munu fara yfir næstu skref. Blaðamannafundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi. Þorgerður Katrín verður mætt á blaðamannafund klukkan eitt í dag.Vísir/Viktor Freyr Já-hliðin var yfir um stund Þegar tölur úr Reykjavík fóru að birtast virtist sem já-hliðin hefði naumt forskot, en það breyttist fljótt þegar frekari tölur bárust úr landsbyggðarkjördæmunum. Mestur stuðningur við já-ið var í höfuðborginni. Í Reykjavíkurkjördæmi norður sögðu 57,5 prósent kjósenda já og 42,5 prósent nei. Í Reykjavíkurkjördæmi suður var staðan 54,5 prósent já og 45,5 prósent nei. Aðra sögu var að segja í landsbyggðarkjördæmunum – Suðurkjördæmi, Norðvesturkjördæmi og Norðausturkjördæmi – þar sem fleiri en 60 prósent kjósenda sögðu nei. Stuð og fjör í kosningavöku Áfram Ísland.Vísir/Anton Brink Umræðan í kosningabaráttunni var á tímum heit og jafnvel persónuleg, hvort sem varðaði ráðherra ríkisstjórnarinnar eða fulltrúa þeirra félagasamtakanna sem börðust sitthvoru megin við stóru spurninguna. Hver næstu skref ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur verða er enn óljóst, en í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar gaf hún út að ef svarið yrði nei myndi ríkisstjórnin ekki taka málið upp aftur. Þannig að líklega er umræðunni um það hvort Íslendingar ætli að ganga í Evrópusambandið lokið. Að minnsta kosti í bili. Fylgst var með þróuninni og kíkt í kosningavökur í kosningavöku Sýnar sem hægt er að horfa á hér fyrir neðan.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Alþingi Utanríkismál Samfylkingin Flokkur fólksins Viðreisn Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Öryggis- og varnarmál Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira