Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Hjörvar Ólafsson skrifar 30. ágúst 2026 14:52 FH er nýkomið heim eftir sigur í Evrópukeppni. Guðmundur/Vísir Valur og FH skildu jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við í í lokaleik 17. umferðar Bestu-deildar kvenna í fótbolta á N1-vellinum á Hlíðarenda í dag. Mörkunum rigndi inn í blíðskaparveðrinu þegar um það bil stundarfjórðungur var liðinn af leiknum. Helena Maree Errington hóf markaflóðið en hún slapp ein í gegn, fór framhjá Tinnu Brá Magnúsdóttir og setti boltann í autt markið. Staðan 1-0 fyrir FH en Sóley Edda Ingadóttir jafnaði metin fyrir Val skömmu síðar með marki beint úr hornspyrnu. Adam blessaður var hins vegar ekki lengi staddur í paradís hjá Valsliðinu þar sem Birna Kristín Björnsdóttir endurheimti forystuna fyrir FH nokkru mínútum síðar. FH fór með 2-1 forskot inn í búningsklefa í hálfleik eftir fjörugan fyrri hálfleik. Skrúfað var fyrir lekann í varnarleik liðanna í seinni hálfleik en Lillý Rut Hlynsdóttir tryggði Val mikilvægt stig með jöfnunarmarki sínu í uppbótartíma seinni hálfleiks. FH er þar af leiðandi með 34 stig og er tveimur stigum á eftir Breiðabliki sem trónir á toppi deildarinnar. Valur jafnaði hins vegar Víking að stigum en liðin hafa hvort um sig 17 stig á hinum endanum. Matthías Guðmundsson var sáttur við stigið og frammistöðuna hjá Valsliðinu. Vísir/Diego Matthías Guðmundsson: Þýðir ekki að horfa á aðra leiki ogfara með bænir „Þetta er sterkt stig og að mínu mati var það sanngjarnt að við skyldum ná að jafna metin. Leikurinn var skemmtilegur og þú getur ekki slakað á í eina sekúndu þegar þú mætir FH. Við spiluðum vel heilt yfir og sýndum karakter í lokin,“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, að leik loknum. „Mér finnst liðið vera að þróast í rétta átt og þessi leikur var liður í því ferli. Við höfum náð að einbeita okkur að því að bæta leik okkar og pæla ekki of mikið í þeirri stöðu sem við erum í. Þessi deild er fáránlega jöfn og það geta allir unnið alla. Við bara höldum áfram að freista þess að bæta okkur og halda áfram að safna stigum um leið,“ sagði Matthías enn fremur. „Það hefur aldrei gefist vel að horfa á aðra leiki, fara með bænir og vona að úrslitin verði þér hagstæð. Við þurfum að sjá til þess sjálf að við náum í nógu mörg stig til þess að halda sæti okkar í efstu deild,“ sagði hann um stöðu mála. Guðni Eiríksson: „,“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari Vals, eftir leik. „,“ „,“ Besta deild kvenna Íslenski boltinn FH Valur