Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Bjarki Sigurðsson skrifar 11. ágúst 2026 12:10 Kristrún Frostadóttir er forsætisráðherra. Hún segir undirliði verðbólgu og efnahagsmálin að þróast í rétta átt. Vísir/Vilhelm Forsætisráðherra vísar því á bug að stjórnvöld hafi látið áhyggjur verkalýðshreyfingarinnar vegna mögulegs forsendubrests kjarasamninga eins og vind um eyru þjóta. ASÍ og SA verði að koma sér saman um hvers konar aðgerðir þau vilji sjá.
Í gær vöruðu sex verkalýðsleiðtogar við því að aukið atvinnuleysi vegna hávaxtastefnu Seðlabankans skapi kreppuverðbólgu sem gæti orðið erfitt að vinda ofan af. Þeir gagnrýndu að á meðan klukkan tifaði á vinnumarkaði vegna mögulegs forsendubrests kjarasamninga einblíndu stjórnvöld eingöngu á þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hreyfingin hafi mánuðum saman kallað eftir aðgerðum og viðbrögðum en án árangurs. Hafi unnið saman í stýrihóp Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir stjórnvöld hafa verið í samtali við verkalýðshreyfinguna í sumar. „Ég hefði auðvitað gjarnan viljað sjá verðbólguna á öðrum stað. En ef við tökum frá Hormús-áhrifin, olíuverðsáhrifin, erum við undir eða við markmið. Mér finnst skipta máli að hafa það í huga að við erum ekki langt frá þessari verðbólgutölu í kjarasamningum, fjögur komma sjö prósent. Við höfum ágústmánuð til að vinna áfram í þessum stýrihóp sem hefur verið að halda utan um ASÍ og SA-hliðina og ríkisfjármálahliðina. Við þurfum að sjá hvað kemur út úr því,“ segir Kristrún. Þurfi að geta fjármagnað aðgerðir Hún kallar eftir því að ASÍ og Samtök atvinnulífsins komi sér saman um hvers konar aðgerðir þau myndu vilja sjá. „Þau vita að af okkar hálfu yrði alltaf um afmarkaðar fullfjármagnaðar aðgerðir að ræða. Við horfum þannig á þetta að okkar stærsta einstaka mál sé að skila hallalausum fjárlögum til þess að halda aftur af of miklum þrýstingi í hagkerfinu. Það er mikið undir að við náum að klára það mál og við munum leggja fram slík fjárlög í haust. Ef það verður eitthvað brugðist við þurfum við að ná að fjármagna það,“ segir Kristrún. Allt að þróast í rétta átt Það hafi ekki verið rætt að framlengja tímabundið lagaákvæði um lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. „Við höfum ekkert sérstaklega rætt það. Við verðum að taka stöðuna núna í lok ágúst. Það liggur hins vegar fyrir að þróunin er í rétta átt varðandi langflesta undirliði verðbólgu og í efnahagsmálum. Það eru fyrst og fremst þessi ytri áhrif sem eru að gera okkur grikk akkúrat núna. Við getum ekki stýrt því og verðum að taka stöðuna aftur í lok ágúst,“ segir Kristrún.
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármál heimilisins Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Kjaramál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira