„Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson skrifar 9. ágúst 2026 14:01 Árið 1995 gengu Svíþjóð, Finnland og Austurríki í ESB. Síðan þá hefur vöxtur landsframleiðslu á mann (sem gefur ágætis hugmynd um þróun velmegunar) verið í kringum 3% á ári. Afar svipaður og á Íslandi. Árið 2004 gengu átta Austur-Evrópu lönd ásamt Kýpur og Möltu í ESB. Síðan þá hefur vöxtur landsframleiðslu á mann verið mismunandi eftir löndum, á bilinu 4-6% á ári. Nokkuð meiri en á Íslandi. Árið 2007 gengu Búlgaría og Rúmenía í ESB og sex árum seinna Króatía. Síðan þessi lönd gengu í ESB hefur vöxtur landsframleiðslu á mann verið í kringum 6% í þessum löndum. Einnig nokkuð meiri en á Íslandi. * Chad Kroeger, söngvari Nickelback, heldur á súluriti sem höfundur hefur límt á súlurit sem hann setti saman úr gögnum Eurostat, þar sem borin er saman hagvöxtur á mann á Íslandi við önnur lönd sem gengið hafa í ESB frá því 1995. Áhugasamir geta skoðað súlurtið á Substack síðu höfundar, þar sem minna fer fyrir Chat Kroeger og meira fyrir súluritinu. **Heimild: Eursotat, nama_10_pc, CP_PPS_EU27_2020_HAB, B1GQ og tónlistarmyndbandið Photograph við lag Nickelback. Sem sagt, frá árinu 1995 hafa 16 lönd gengið í ESB og öll hafa þau vaxið og dafnað og það er eflaust ein af fjölmörgum ástæðum þess að íbúar þessa landa sjá ekki eftir því að ganga í ESB. Samkvæmt nýlegri könnun ESB (EUROBAROMETER) segjast nefnilega: 63% aðspurðra Rúmena vera þokkalega sáttir við þau lífsgæði þar í landi; 93% Pólverja eru sáttir við þau lífsgæði sem þeir lifa við; og öll hin 14 löndin sem gengu í ESB frá 1995 svara sömu spurningu þar á milli. Þegar íbúar ESB er spurðir hvort þeir telji lífsgæði í ESB vera betri eða verri en lífsgæði í ríkasta landi í heimi svara þeir þannig að þeir telja lífsgæði í ESB vera svipuð eða meiri en í Bandaríkjunum. Og þetta á við um öll ESB ríkin. Það má vel vera að íbúar Bandaríkjanna búi í stærri húsum, keyri stærri bíla og að gosið með Stjörnumáltíðinni þar í landi sé stærra en innan ESB. Það breytir því samt ekki að þegar íbúar ESB eru spurðir þá telja þeir sig hafa það bara helvíti gott. Ein þjóð hefur þó yfirgefið ESB, Bretland. Síðan sú ákvörðun var tekin árið 2016 hefur pólitískur og efnahagslegur glundroði helst einkennt landið. Í nýlegri könnunYouGov vildu 57% aðspurðra Breta meina að það hafi verið röng ákvörðun að ganga úr ESB. Aðeins 30% aðspurðra voru á þeirri skoðun að það hafi verið rétt ákvörðun. Þjóðir sem ganga í ESB hafa haft gagn af því og eru ánægðar. Ísland hefur verið utan ESB en þó í eins nánu samstarfi við ESB og mögulegt er. Þannig hefur okkur í gegnum tíðina einnig tekist að hafa gagn af ESB og dafna samhliða ESB þjóðum. Við gætum mögulega haft enn meira gagn af því að ganga í ESB í framtíðinni. Eins og ég hef áður skrifað breytist heimurinn í kringum okkur ógnahraða og eftir nokkur ár og þegar búið er að semja, þá getum við skoðað hvort við teljum betra að ganga í ESB eða ekki. Höfundur er hagfræðingur og höfundur bókarinnar Eikonomics - hagfræði á mannamáli.. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Svíþjóð Finnland Austurríki Búlgaría Rúmenía Tónlist Króatía Pólland Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar