Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Sigurgeir Þorkelsson skrifar 6. ágúst 2026 23:56 Nafn Sigurjóns Sighvatssonar er samofið orðinu kvikmyndaframleiðandi í íslenskri tungu. Sigurjón Sighvatsson, kvikmynda- og sjónvarpsþáttaframleiðandi, var í kvöld heiðraður með Raimondo Rezzonico-verðlaununum á Locarno-kvikmyndahátíðinni í Sviss fyrir framlag sitt til alþjóðlegrar kvikmyndagerðar.
Í kjölfar verðlaunanna voru sýndar tvær þeirra mynda sem Sigurjón framleiddi, Wild at Heart (1990) og Zidane, A 21st Century Portrait (2006). Kvikmyndin Wild at Heart vann gullpálmann í Cannes árið 1990. Sigurjón Sighvatsson á að baki fjögurra áratuga feril í kvikmyndagerð og er einn fárra Íslendinga sem hefur tekist að skapa sér farsælan feril í Hollywood. Vestanhafs byrjaði Sigurjón í tónlistarmyndbandagerð, vann síðan náið með David Lynch að Twin Peaks (1990-91) og Wild at Heart (1990), framleiddi hina geysivinsælu Beverly Hills 90210 (1990-2000) og hefur gegnum tíðina unnið með leikstjórum á borð við Nicolas Winding Refn, Kathryn Bigelow og Taylor Sheridan. Mótaði þróun kvikmyndagerðar tíunda áratugarins Giona A. Nazzaro, listrænn stjórnandi Locarno-hátíðarinnar, sagði verk Sigurjóns einkennast af „djúpu evrópsku sjónarhorni“ en þau væru um leið „á kafi í gangverki bandaríska iðnaðarins“ þegar fyrst var tilkynnt um afhendingu verðlaunanna. Kvikmyndahátíðin í Locarno var stofnuð 1946, er gjarnan talin sú virtasta utan toppanna þriggja: Cannes, Feneyja og Berlínar. „Sigurjón „Jonni“ Sighvatsson mótaði sanna „politique du producteur“ sem gerði listamönnum á borð við David Lynch kleift að skapa verk sín í algjöru frelsi og styðja við höfunda á borð við Kathryn Bigelow til að gera persónulegustu myndir ferils síns,“ sagði Nazzaro. Hugtakið „politique du producteur“ íslenskast sem „stefna framleiðandans“ en þar er átt við kerfi þar sem framleiðandinn er þungamiðja listrænnar mótunar. Sigurjón hefur komið að framleiðslu fjölmargra Hollywood-kvikmynda sem og íslenskra kvikmynda. „Innsæi hans sem framleiðanda hafði djúp áhrif á þróun kvikmynda tíunda áratugarins og viðhorf hans til að stuðla að frumleika og sjálfstæði gerði hann að viðmiðunarpunkti fyrir heila kynslóð kvikmyndagerðarmanna sem horfðu til verka Sighvatssonar sem fyrirmyndar dirfsku, heiðarleika, sköpunargáfu og framsýni,“ sagði hún. Fyrri verðlaunahafar Raimondo Rezzonico-verðlaunanna eru líbanska framleiðslufyrirtækið Abbout Productions, Jason Blum hjá hryllingsframleiðslufyrirtækinu Blumhouse og framleiðandinn Marianne Slot sem tengist Íslandi nánum böndum.
Kvikmyndagerð á Íslandi Íslendingar erlendis Sviss Bíó og sjónvarp Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira