Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Freyja Þórisdóttir skrifar 3. ágúst 2026 21:52 Fjölskyldumeðlimir þeirra Estefaníu, Jeovvany og Elisabeth hafa reynt að hringja í þau síðustu daga en án árangurs. Aðsend Fjölskyldumeðlimir þriggja kólumbískra ferðalanga hafa ekkert heyrt frá þeim í rétt um viku en þau höfðu verið á ferðalagi um Evrópu þegar þau lentu á Íslandi þriðjudaginn 28. júlí. Lögreglan á Suðurnesjum veit hvar þau eru niðurkomin.
Þetta staðfestir Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum, en hann greinir frá því að þau séu í öruggum höndum. Samband hafi verið haft við fjölskyldu þeirra úti í Kólumbíu og þau verið látin vita. Í tilkynningu frá fjölskyldumeðlimum þeirra sem barst fréttastofunni kemur fram að þau sem um ræðir séu hin 34 ára Estefanía Arboleda Herrera, hinn 54 ára gamli Jeovvany Martínez Quinchía og eiginkona hans Elisabeth Martínez Quinchia sem er 57 ára gömul. Þau áttu bókaða gistingu á Center Hotels Plaza í Reykjavík og voru við það að leggja af stað þangað frá Keflavíkurflugvelli síðast þegar frænka þeirra talaði við þau. Skiluðu sér ekki á hótelið Þau eru frá Medellín í Kólumbíu en fjölskylda þeirra segir í tilkynningu frá því að síðustu daga hafi virst sem slökkt væri á farsímum þeirra, sem þyki mjög óvanalegt. Þau hafi sem fyrr segir átt bókaða hótelgistingu í Reykjavík en ekki skilað sér þangað. Þau Jeovvany Martínez Quinchía, 54 ára, og Elisabeth Martínez Quinchía, 57 ára, höfðu síðast samband við fjölskyldu þriðjudaginn 28. júlí.Aðsend Í Facebook-hópnum Latinos en Islandia hafa fjölskyldumeðlimir ferðafólksins birt færslur reglulega síðustu daga en nú væri liðin tæp vika frá því að heyrðist frá þeim síðast. Málið er ekki komið inn á borð rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn í samtali við blaðamann Vísis. Það er sem fyrr segir í umsjón lögreglunnar á Suðurnesjum að svo stöddu. Af ummælum undir Facebook-færslunum að dæma ætluðu ferðalangarnir einungis að dvelja á Íslandi í um tvo sólarhringa, því næst færu þau aftur til Spánar. Ertu með ábendingu varðandi þetta mál? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fréttin var uppfærð klukkan 22:51 eftir að nýjast upplýsingar bárust frá Lögreglunni á Suðurnesjum.
Ferðalög Lögreglumál Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira